Þjóðviljinn - 22.10.1966, Page 6

Þjóðviljinn - 22.10.1966, Page 6
g SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 22. október 1966. „Ó; þetta er indælt stríð" í Þjóðleikhúsinu í kvöld Söngleikurinn frægi „Ö, þetta er indælt strið," hefur nú verið sýndur 18 sinnum í Þjóðleikhúsinu við góða aðsókn. Næsta sýning verður i kvöld — Myndin er úr byrjunaratriði leiksins. atriði leiksins. STARF í LONDON Flugfélag íslands h.f. óskar að ráða stúlku til starfa við skrifstofu félagsins í London. Reynsla í skrifstofustörfum og góð mála- kunnátta nauðsynleg. Umsóknareyðublöð, sem fást á skrifstofum vorum, óskast send starfsmannahaldi fyrir 27. okt. n.k. — Eldri umsóknir óskast endur- nýjaðar. Á/ff/u/Sff.x ICEIMVBAIR Útgerðarmenn og fískverkendur Á fundi bæjarstjórnar Hafiiarfjarðar 11. okt. s.1. var samþykkt að fram fari ítarleg athugun á því, hvort og á hvern hátt unnt kynni að vera að tryggja áframhaldandi starfrækslu Fiskiðjuvers Bæjarút- gerðar Hafnarfjarðar svo og annarra þátta fyrir- tækisins, án fjárhagsáhættu fyrir bæjarfélagið. Skv. þessu er þess óskað, að þeir útgerðarmenn eða fiskverkendur sem hug hafa á viðskiptum, eða að yfirtaka reksturinn allan, eða einstaka hluta hans, hafi samband við bæjarstjórann í Hafnar- firði fyrir 5. nóv. n.k. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði, Krístinn Ó. Guðmundsson. AUGLÝSING um varnir vegna hundapestar í nágrenni Reykjavíkur. Þar sem hundapestar hefur orðið vart í nágrenni Reykjavíkur skulu allir hundaeigendur í Gull- bringu- og Kjósarsýslu, Reykjavík, Hafnarfirði og Keflavík gæta þess að halda hundum sínum heima, forðast að þeir hafi samgang við aðra hunda og hafa þá ekki með sér utan heimilis. Úr þessum landshluta má ekki flytja hunda til annarra staða á landinu og þangað má ekki flyt'ja hunda nema með leyfi sýslumanns eða bæjarfógeta. Hreppstjórar og bæjarfógetar skulu sjá um, að öll- um hundum, sem sýkst hafa eða sýkjast af hunda- pest verði lógað án tafar og hræin grafin. Sama rnáli gegnir um alla flækingshunda. Brot gegn fyrirmælum þessarar auglýsingar varða sektum samkvæmt lögum nr. 16, 1952, Landbúnaðarráðuneytið, 21. október 1966. • Hjónaband • 15. október voru gefin saman í hjónaband af séra Sigurði H. Guðjónss. ungfrú Elly Kratsch og Þröstur Jónsson. Heimili þeirra er í Hraunbao 32. (Nýja myndastofan, Lauga- vegi 43 b, sími 15125). • 15. október voru gefin saman í hjónaband af séra Óskari J. Þorlákssyni ungfrú Sigríður Jónasdóttir og Heimir Lárus- son. Heimili þeirra er í Kar- ise, Danmörku. (Nýja myndastofan, Lauga- vegi 43 b, sími 15125). 13.00 Óskalög sjúklinge. Sigríð- ur Sigurðardóttir kynnir lög- in. 14.00 Háskólahátíðin 1966. Ot- varp frá Háskólabíói. a) Strengjasveit leikur undir stj. Björns Ólafssonar. b) Há- skólarektor, Ármann Snævarr prófessor, flytur ræðu. c) Há- skólarektor afhendir Sigurði Nordal prófessor doktorsbréf. d) Stúdentakórinn syngur- Söngstjóri: Jón Þórarinsson. e) Háskólarektor ávarpar ný- stúdenta. 15.20 Einn á ferð. Gísli J. Ást- þórsson flytur þátt í tali og tónum. 16.00 Ingólfur Davíðsson grasa- fræðingur velur sér hljóm- plötur- 17.05 Létt lög. 17-30 Úr myndabók náttúrunn- ar. Ingimar Óskarsson nátt- úrufræðingur svarar spurn- ingunni. Á hverju nærast trén? 17.50 Söngvar í léttum tón- 19.30 Vetrarvaka. a) Hugleiðing við misseraskiptin. Séra Þor- steinn B. Gíslason prófastur í Steinnesi flytur. b) Ein- söngur: Ólaíur Þ. Jónsson syngur íslenzk lö,g- c) Um huldufólk. Flytjendur: Kristj- án Bersi Ólafsson, Brynja Benediktsdóttir og Haraldur Ólafsson. 21.30 Islenzkur gamanleikur: Þváðrið, eftir Pál J. Árdal. Leikendur: Nína Sveinsdóttir, Guðbjörg Þorbjarnardóttir, Þóra Borg, Margrét Ólafs- dóttir, Valdimar Lárusson. 22.10 Dansskemmtun útvarps- ins í vetrarbyrjun. Auk danslagaflutnings af plötum leikur hljómsveit Ásgeirs Sverrissonar gömlu dansana og Ingimars Eydals hina nýju. Söngfólk: Sigríður Magnúsdóttir, Erla Stefáns- dóttir og Þorvaildur Halldórs- son. 02.00 Dagskrárlok. (Klukkan færð til íslenzks meðaltíma, — seinkað um eina stund). • Vandræði • Það er að vísu sök sér að gryrnra lítið í því s«m fyrir mann ber á sviðinu «ða utan þess- En að hafa af því enga skemmtun — það er öldungis afleitt. (Ólafur Jónsson í Alþýðu- blaðinu). • Sauðkindin jarmar • Stóri, gantli maðnrinn 1 ísra- elskum bókmenntum, hinn 78 ári gamli Samuel Joseph Haleui Agnon hefur hlotið bókmennta- verðlaun Nóbels í ár .... (Frétt i Timanum) • Staðfestar af- greiðslur mála Á fundi ríkisráðs í Reykja- vík i dag staðfesti forseti Is- lands ýmsar afgreiðslur, sem farið höfðu fram utan rfkis- ráðsfundar og féllst á tillögur um að leggja nokkur frumvöi’p fyrir Alþingi sem stjómarfrum- vörp. Ríkisráðsritari, 21. okt. 1966. • Góð gjöf til Krabbameinsfélagsins • Nylega afhenti Kiwanis- klúbburinn „Hekla“ Krabba- meinsfélagi Reykjaivíkur að gjöf tæki (gastro-camera), sem ætlað er til hjálpar sérfræð- ingum við greiningu á maga- sjúkdómum, m a. magakrabba- meini. Þetta tæki er sérstaklega þægilegt og auðvelt í notkun fyrir þá, sem kunna með það að fara, létt og færanlegt og hægt að nota það bæði á spít- ölum og uban þeirra. Krabbameinsfélag Reykjayíl^- ur er mjög þakklátt Kiwanis- klúbbnum fyrir þessa góðu gjöf, og mun tækið verða tekið mjög fljótlega í notkun'af ser- fræðingum í meltingarsjúkdóm- um- M.a. hefur komið fram sú hugmynd hjá krabbameinsfélög- unum, að hefja fjöldarannsókn- ir á magakrabbameini með hjálp þessa tækis. Væri það ekki óeðlilegt, þar sem maga- krabbameinið er slgengasta krabbameinið á Islandi. ★ I fjarveru formanns Krabba- meinsfélags Rvíkur (Gunnlaugs Snædals) veittu þeir próf. Ólaf- ur Bjamason, o£ v Jónsson læknir tælkinu móttöku f.h. félagsins, e>g færðu forráða- mönnum klúbbsins alúðarþakk* ir fyrir. • „Óboðinn gestur" í Kópavogi Leikfélag Kópavogs endursýnir um þcssar mundir hinn vinsæla gamanleik „Óboðinn gest“ eftir Svein Halldórsson. Vegna nýrra vcrkcfna verða þó aðeins örfiiar sýningar á leikritinu til við- bótar, þeir sem hafa hug á að sjá lcikritið ættu því ekki að láta það dragast- Næsta sýning cr mánudag 24. októbesr. Myndin er af Sveini Iialldórssyni og Bimi Magnússyni í hiutverkum sínum. • Hernámsandstæðingar ★ Dregið var í happdrætti Samtaka hernámsandstæðinga 5 októ- ★ ber sl. Þeir sem enn hafa ekki gert skil í happdrættinu eru ★ beðnir að gera það sem allra fyrst svo hægt sé að birta vinn- ★ ingsnúmerin. Tekið er á móti skilum í skrifstofu samtakanna í ★ Mjóstræti 3, 2. hæð, sími 24701.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.