Þjóðviljinn - 19.11.1966, Page 8
\
____ . I
V ■ ■■ :• ■ z'
3 SÍÐA — ÞJÓÐVTUINN — LaugandagMr SO. nóaaembe* CT66
LEONARD GRIBBLE
8
Já, við verðúm að gera vissar
varúðarráðsrtafanir- Það er hugs-
anlegt að Doyce hafi látizt af
afiéiðingum einhvers konar
6tungu. Við viljum ekki að það
endurtaki síg!
Whittaker starði agndofá á
fulltrúann-
— Harpingjan góða! Þér eigið
þá við, að Doyce hafi verið....
— Það er rétt að bíða eftir
lfkskoðuninni áður en við full-
yrðum eitt eða neitt, sagði full-
trúinn rólega.
Wittaker kinkaði lcolli. — Ég
skal útskýra þetta fyrir þeim,
áður en þeir fara- Jæja, þama
kemur yfirlögregluþjónninn.
Slade leit við og um leið og
hann sá andlit starfsbróðurins
vissi hann, að hann hafði eitt-
hvað að segja honum- Slade fór
með hann afsíðis.
— Hvað er það, Clinton?
— Það var lítið á fingurgóm-
unum að graeða- Irvin er búinn
að fara yfir allt, en það er ekki
eitt einasta skýrt far í öllu her-
berginu. Þaoi eru öll útklínd-
Mér datt í hug að við gætum
kannski fengið myndir af þvi
hvernig Doyce féll útaf — áður
en þeir fara.
Slade kinkaði kolli. — Já, það
er góð hugmynd- Ég ætla að tala
við þjálfarana.
Bill Milne og George Raille
féllust á að fara út á völlinn
með nokkrum leikmönnum og
rifja upp letkinn eins og hann
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laugavegi 18 III hæð ilyfta)
SlMI 24-ð-ie
P E R M A
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21 SÍMl 33-968
D ö M U R
Hárgretðsla við allra bæfi
TJARNARSTOFAN
rjarnargötu 10. Vonarstrætls-
megÍD — Simi 14-6-62
gekk fyrir sig rétt áður en
Doyce féll niður- Leikmennirnir,
þjálfaramir tveir og Glinton
fónu þangað út og Slade sneri
sér að Kindilett.
— Ég vildi gjarnan hafa tal
af Morrow uppi, sagði lögreglu-
fulltrúinn, — Og hver sögðuð
þér að hefði mælt með Doyce
við félagsstjórniíia?
'— Setchley, hægri útherjinn
okkar- Það er þessi rauðhærði
þama, — við hliðina á Mercer.
Slade leit í áttina þamgað og
kom auga á grannvaxinn, meðal-
háan mann, fölan í andliti og
með dökkrautt hér.
— Stendur hann í nokkru
sambandi við fyrirtæki Mom-
ows og Doyce? spurði leynilög-
reglumaðurinn.
— Nei — Setchley er að vissu
leyti kynlegasti kvisturinn í lið-
inu-
— Hvemig þá?
— Sem knattspymuleikári á
ég við. Hann er efnafræðingur
að atvinnu-
Slade leit undrandi á Kindil-
ett, sem horfði á hann með var-
úð í svipnum-
— Það er mjög athyglisvert,
sagði Slade.
— Hvers vegna?' spurði fram-
kvæmdastjóri Trjóu.
Það vottaði fjtrir fjandskap í
framkomu Kindiletts. Slade tók
eftir þessu og gat ekki áttað sig
á ástæðunni.
— Tja, ég átti aðeins við það,
að hann getur kannski hjálpað
mér í sambandi við fáein smá-
atriði, segði hann kæruleysist-
lega- — Rökviss hugsun, þér
skiljið!
Kindilett kinkaði kolli stutt-
lega og sneri sér við- Slade stóð
stundarkorn og horfði á eftir
honum. Lögregluþjónninn var
samnfærður um að dauði Doyces
hefði verið vandlega undirbúinn
og hanil stafaði af einhvers
konar eitrun. Að svo miklu leyti
sem þessar bráðabirgðarann-
sóknir hans gáfu honum tilefni
til að hafa einhverja skoðun,
kom hún heim við lýsingu Mea-
dows læknis. Og Meadows lækn-
ir var þrautreyndur í sínu. fagi,
það vissi Slade. Hann hafði
skrifað nægilega margar skýrsl-
ur í lögreglumálum til að vita
hvenær um morð var að ræða.
Læknirinn gaf í skyn að
Doyce hefði verið myrtur með
lítt þekktu en mjög banvænu
lútarefni sem komizt hefði inn
í líkamann gegnum hörundið.
Og nú hafði Kindilett í þókka-
bót gefíð honum þaar upplýsing-
ar óbeðinn að einn úr Trjóulið-
iiwt væri efnafræðingur — mað-
ur sem gæti eflaust hæglega
komizt yfir eiturefni af þessu
tagi. .
Og þessi eitursérfrædingur
hafði átt þátt í því að hinn
látni var tekinn inn í kiiatt-
spymufélagið. *
Gaf þettai ekki nokkra vís-
bendingu?
Einhver snart handlegg hans
léttilega og Slade hrökk upp af
hugsunum sínum- Þreklegur
maður með aðlaðandi andlit
horfði á hann með áhyggjusvip.
— Hvað er það? spurði
Slade-
— Ég heiti Morrow, fulltrúi-
Ég vildi gjaman tala dálítið við
yður.
Slade leit hvasst á hann.
Þarna stóð maðurinn sem
hann vildi yfirheyra nánar og
óskaði sjálfur eftir viðtali. En
það kom ekki heim við áætlan-
ir hans og sýna neinn sérstak-
an áhuga á upplýsingum frá
félaga hins látna-
— Nújæja, ef það er eitthvað
áríðandi ....
— Það er mjög áríðandi, sagði
Morrow-
Raddhreimurinn gaf til kynna
að honum væri alvara. Hvað
svt> sem honum lá á hjarta. þá
var það áriðandi — fyrir Phil
Morrow-
— Ágætt, við skulum koma
upp.
Morrow gekk á eftir lögreglu-
fulltrúanum upp x á skrifstofu
Whittaikers. Slade lokaði á eft-
ir þeim. Þeir voru einir þama
inni.
— Fáið yður sæti, sagði hann
og Morrow dró stöl að skrifborð-
inu. Loftljósið varpaði daufri
birtu á dökk hár knattspymu-
leikarans- Það varð stutt þögn
t>g ekkert heyrðist nema tilbreyt-
ingariaust tif í stórri Borgundar-
hólmsklukku, sem reyndi að yf-
irgnæfa klukkuna sem stóð á ar-
inhillunni bakvið skrifborðið.
Dauf hljóð utanaf götunni bár-
ust innum gluggann — drunur
í bílhreyfli, köll í blaðadreng,
snöggur hlátur-
— Þér ætluðuð víst að segja
mér eitthvað? byrjaði Slade-
Það va_r eins og orð hans vektu
Morrow, sem settist upp í stóln-
um og ljósið féll beint í á-
hyggjufullt andlit hans.
— Ég hef satt að segja ekki
hugmynd um hvar ég á að
byrja......
Slade reyndi ævinlega að hafa
róandi áhrif á vitni sín, svo að
hann hagræddi sér í stólnum og
sagði vingjamlega: — Oft er á-
gætt .að byrja á byrjuninni til
dæmis — stundum bezt. Viljið
þér reykja?
Morrow hristi höfuðið. —
Nei, þökk /fyrír ........... Sem
snöggvast vottaði fyrir brosi á
embeittu andliti hans, en þegar
hann tók aftur til máls, var
bmsið horfið. — Ég ætla þá að
taka það fram í fyrstu, að við
Doyce lékum saman . knatt-
spyrnu í skóla og okkur samdi
alltaf tiltölulega vel- Þegai- við
komum úr skóla höfðum við
svipaðar framtíðaráætlanir. Það
hefur ýmislegt gerzt síðan, en
það fór þó svo að við stofnuð-
um fyrirtæki saman.
— 1 London? spurði Slade
eins og þetta væri honum ný
frétt-
— Já,' í City- Við fórum að
reka eigið fyrirtæki sem trygg-
ingarumboðsmenn. Eins og þér
getið gert yður í huigarlund,
vorum við ékki sérlega fjáðir.
Við sáum fram á mikið erfiði
bg lítinn hagnað. En það gerði
ekkért til. Við vorum báðir ein-
hleypir og óbundnir- En snemma
í félagsskap okkar tókum við á-
kvörðun til a:ð tryggja fyrirtæk-
ið.....
— 1 hverju var hún fólgin?
sagði Slade hvetjandi, þegar
honum virtist ungi maðurinn
hika-
— Við keyptum gagnkvæma
tryggingu ...... ég segi yður
satt, að það var aðeins gert fyr^
irtækisins vegna, ef eitthvað
skyldi koma fyrir gnnan hvorn
okkar. Þá gæti hinn rekið fyrir-
tækið áfram-
— Hve há var upphæðin? .
Knattspymuleikarinn varð
hálfhvumsa við þessa spumingu,
— Tíu þúsund pund, sagði hann.
— Jahá — dálagleg fúlga!
Slade sá að maðurinn kreppti
hnefana en stillti sig. — Er
nokkuð í skírteininu sem kemur
í veg fyrir útborgun, ef annar
aðilinn deyr voveiflega?
Morrow stirðnaði og fölnaði.
— Nei, það var engin klásúla í
sambandi við mbrð, sagði hann
hásum rómi.
— Með öðrum orðum: þér haf-
ið þá hagnazt um tíu þúsund
pund á dauða félaga yðar nú í
dag-
Morrow reis á fætur og hall-
aði sér fram á skrifborðið,
— Og það álítið þér frambæri-
lega ástæðu, fulltrúi? sagði hann
biturlega.
— Ástæðu til hvers? sagði
leynilögreglumaðurinn.
Morrow var þungt um andar-
drátt. Hann rétti út höndina
eins og hann vildi losa sig við
eitthvað ^m þjakaði hann.
— Æ, hættið nú þessúm mála-
lengingum! sagði hann. — Ég
veit mætavel, að þér eruð ekki
hingað kominn vegna þess að
John Doyce hafi dottið og háls-
brotnað. Þér eruð hingað kom-
inn vegna þess að Doyce var
myrtur og — og þessi tíu þús-
und pund beina athyglinni að
mér- Ég sá svo sem hvert
stefndi, svo að ég varð að tala
við yður.
(gníineníal
SNJÓHJÓLBARÐAR
MEÐ NÖGLUM
sem settir eru í, meS okkar íull-
komnu sjálívirku neglingarvél,
veita íyllsta öryggi í snjó bg
hálku.
Nú er allra veðra von, — Bíðið
ekki eftir óhöppum, en setjið
CONTINENTfiL hjólbarðá, með
eða án nágla, undir bílinn nú
þegar.
Vinnustofa vor er opin alla daga
frá kl. 7,30 til H. 22.
Kappkostum að veita góða þjón-
ustu með fullkomnustu vélum
sem völ er á.
GUMMIVINNUSTOFAN h.f.
Skipholti 35 — Sími 3-10-55.
S KOTTA
— Símareikningurinn hefur snarhækkað síðan hún fór a/ð hafa
plötuspilanann hjá sér.
Loðfóðraðir leður- og rúskinnsjakkar
fyrir dömur og herra
Verð frá kr. 4.450,00.
Leðurverkstœðið
Bröttugötu 3 B. — Sími 24-6-78.