Þjóðviljinn - 24.11.1966, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 24.11.1966, Blaðsíða 10
« ■ Allir vita að á íslandi geta dómsmál legið árum sam- an hjá dómstólunum, opinber mál ekki síður en einkamál. Á síðustu árum hafa t.d. verið daemd allmörg einkamál hér í Reykjavík sem staðið hafa 4, 5, 6, 7 eða ’jafnvel 8 ár. Þetta kemur fram í skýrslu dómsmálaráðherra um athugun á méðferð dómsmála og dómaskip- un, en skýrsla þessi var lögð Víkingur fékk á 3. hundrað tonn Lokið var að Janda úr Víkingi í fyrradag, en hann kom til Rvík- ur á laugardag eftir veiðiferð á Vestur-Grænlandsmið. Aflaði tog- arinn á þriðja hundrað tonn á níu sólarhringum, þrátt fyrir af- leitt veður. Um 150 tonn af afl- anum var karfi, en afgangurinn þorskur, og steinbítur, einnig 13 hákarlar. fram á Alþingi í gser. Athugun- iná gerði nefnd, sem dómsmála- ráðherra skipaði í október sl. „til þess að athuga breytingar, sem gera mætti á dómaskipun- inni og til bóta mættu teljast, op jafnframt að athuga og gera tillögur um breytingar á löggjöf og framkvæmd varðandi meðferð dómsmála í landinu". I nefndina tiinefndu eftirtaldir aðilar sinn fulltrúann hver: Hæstiréttur, lagadeild Háskólans, Dómarafé- lag íslands og Lögmannafélag Islands. Enfremur eiga sæti í nefndinni yfirborgardómarinn f Reykjavík, yfirsakadómari og ráðuneytisstjórinn í dómsmála- ráðuneytinu, sem er formaður nefndarlnnair. Frá töku augjýsingakvikmyndarinnar. Á myndinni eru Bessi Bjarnason og Kristín Guðlaugsdóttir. Fyrsta langa auglýsingak vikmyndin Skýrsla nefndarinnar ér allítar- leg og er þar m.a. að finna greinargerðir ýmissa aðila, sem leitað hefur verið til, einkum dórtiara víðsvegar um land. Má segja að langflestir nefni það sem aðalástaaðu fyrir drætti þeim, *'r vill verða á meðferð dómsmála, að skortur sé á hæfu starfsliði, starfsaðstaða sé víða slæm, og lögmenn tefji oft mál að óþörfu. Sumir dómaranna koma með til- lögur eða ábendingar til úrbóta. Jón Isberg, sýslumaður Húnvetn- inga, leggur til dæmis til að stofnaðir verði fjórðungsdómar, þ.e. sérstakur dómur fyrir nokk- ur lögsagnarumdasmi. PéturGaut- ur Kristjánsson, settur bæjarfó- geti á Siglufirði, telur að banna ætti „embættisdómurum með öllu afskipti af öðrum opinberum málum (en dómsstörfum) svo sem stjórnmálum og launuðum auka- störfum á óskyidum sviðuia." í gærkvöld var sýnd fyrsta langa auglýsingakvikmyndin í íslenzka sjónvarpinu og var sýn- ingartíminn 30 sekúndur. Auglýsingaskrifstofan, Lindar- bæ, annaðist gerð kvikmyndarinn- ar fyrir Herrahúsið í Aðalstræti en kvikmyndatökumaður var Þrándur Thoroddsen. Lögð var áherzla á að kynna Herrahúsið, Kóróna föt, Belmondo hálsbindi, Arrow skyrtur og Hanes undlr- fatnað. Aðalstjarnan í auglýsinga- myndinni var Bessi Bjarnason en auk hans komu fram Edda Þórarinsdóttir og Kristín Guð- laugsdóttir. Hefst myndin á því að vinnuklæddur sjómaður er á gangi í Aðalstræti og gefa stúlk- urnar honum heldur óhýrt auga, en brátt rennur upp ljós fyrir manninum. hann gengur ina í Herrahúsið og þegar hann kem- ur út þaðan klæddur samkvæmt nýjustu tizku horfá stúlkumar náttúrlega á hann aðdáunaraug- um! Hér er um tilraun að raeða, unnið var að gerð kvikmyndar- innar fram eftir dégi í gær og ekki var hægt að segja til um kostnað hennar að svo stöddu. Reykjavíkurdeild BFÚ ehir tíi „upprifjunar' '-námskeiða Sálumessa Brahms flutt í kvöld Eins og frá var skýrt hér í blaðinu í gær verður Sálumessa Bi-ahms flutt á tónleikunum i Háskólabíói í kvöld af Sinfóníu- hljómsveit lslands og Söngsveitinni Fílharmóníu ásamt einsöngvurunum Hönnu Bjarna Jóttur og Guðmundi Jónssyni en stjórn- andi er dr. Róbert A. Ottósson. Myndin hér að ofan er tekin á aðalæfingu í gærmorgnn í Háskólabíói- — (Ljósm. Þjóðv. A- K-). Munum halda áfram úthlutun sumar- bústaðalóða í nágrenni Þingvallar — segir Þingvallanefnd, sem úthlutað hefur 45 lóðum, þar af 29 nýlega ■ . Á síðastliðrium 9 árum hefur núverandi Þing- yallanefnd úthlutað alls 45 sumarbústaðalóðum í næsta nágrenni þjóðgarðsins í Þingvallasveit. Nefndin hefur þó aldrei auglýst eftir lóðaumsókn- um, en veitt þeim umsækjendum lóðir sem snúið hafa sér til hennar. \ , Þetta var upplýst á fundi sam- einaðs þings í gær, er til um- ræðu var fyrirspurn Gils Guð- mundssonar, þingmanns Alþýðu- bandalagsins, um lóðaúthlutun ÞÍAgVállanefndar. Fyrirspurnin var í sex Iiðum, svohljóðandi: 1. Hve mörgum lóðum .undir sumarbústaði befur Þingvalla- nefnd úthlutað úr landi jarð- anna Kárastaða og Gjábakka í Þingvallasveit? 2. Hvaða reglum hefur Þing- vaÚanefnd fylgt við ráðstöf- un lóða þessara? 3. Með hvaðá skilmálum eru lóð- irnar af hendi látnar? 4. Hverjir hafa fengið umraedd- ar lóðir? 5. Hver er tilgangur Þingvalla- nefndar með lóðaúthlutun þessari? 6. Hefur Þingvallanefnd í hyggju að halda áfram úthlutun lóða ■ á Þingvallasvæðinu? Forsætisráðherra Bjarni Bene- diktsson,/las upp svör Þingvalla- ‘nefndar (en í henni eiga sæti þrír þingmenn: Emi'l Jónsson, Hermann Jónasson og Sigurður Bjarnason). Var þar sagt að nefndin hefði á sl. 9 árum veitt alls 45 umsækjendum lóðir und- ir svtinarbústaði í Þingvallasveit, þar af 29 lóðir á dreifðu svæði í Kárastaða- og Gjábakkalandi nú nýlega. Nefndin hefur aldrei aug- lýst eftir umsóknum um lóðirn- ar, en afgreitt þær umsóknir sem fyrir hafa legið hverju sinni í tímaröð. Lóðaleigan er 2000 kr. og veiðileyfi þá ekki innifalið, leigutíminn 30 ár. Leigutakar greiða í eitt -skipti fyrir öll 10 þús. kr. vegna tæknilegra at- riða í sambandi við skipulagn- ingu sumarbústaðasvæðanna o.fl. Byggingaframkvæmdir þurfa að hefjast áður en 2 ár eru liðin frá lóðarveitingu og nefndin þarf að samþykkja teikningar af -bú- stöðunum sem á lóðunum rísa. I sarnbandi við 4. lið fyrir- spurnar Gils (Hverjir hafa feng- ið umræddar lóðir?) kvaðst ráð- herrann hafa í fórum sínum skrá Þingvallanefndar um. lóðar- hafa, en sagði að sú skrá ætti ekkert erindi til almennings og las hana því ekki upp. Þó væri þetta ekkert leyniplagg, sagði ráðherra. í lok svars Þingvallanefndar kom fram að nefndin er staðráð- in í því að halda áfram úthlutun sumarbústaðalóða við Þingvelli eftir því sem frágangi skipulags þar miðar áfram. Ekki staður fárra útvaldra Gils Guðmundsson minnti á að lög um friðun Þingvalla hefðu verið sett á árið 1928. í 1. grein þeirra laga stendur að Þingvell- ir við Öxará skuli „friðlýstur helgistaður allra. íslendinga“. Rakti hann síðan nokkur fleiri ákvæði löggjafarinnar, sem auð- sæilega hefði verið sett til verndar hinum þjóðhelga stað. Lagði ræðumaður áherzlu á að Þingvallanefnd yrði að fara mjög varlega í að úthluta lóðum nndir hús og önnur mannvirki í næsta nágrenni Þingvalla. Þeir eiga ekki að vera staðnr fárra út- valdra, sem njóta sérréttinda, sagði Gils, heldur helgistaður allrar þjóðarinnar eins og í lög- unum segir. Forsætisráðherra sagði í um- ræðunum í gær, að athuga þyrfti hvort Alþingi ætti ekki að gera ráðstafanir til að friða alla strandlengju Þingvallavatns — og væri það kannski orðið ef seint. Eiimig þyrfti að friða hinn forna þingstað betur en gert væri og nefndi í því sambandi þjóðveginn um Almannagjá, en notkun hans taldi forsætisráð- herra hrein helgispjöll og barbar- isma, líkt og Rómverjar legðu akbrautir um Forum Romanum eða Grikkir bílabrautir um Akropolishæð. Auk þess væri stórfelld hætta í sambandi við notkun vegarins í Almannagjó. Eitt aðalstefnumark Bindindis- félags öknmanna er að stuðla að aukinni umferðarmenningu. Áð þessu hefur félagið unnið á ýms- , an hátt, t.d. með ritum félags- ins, Umferð og BFÖ-blaðinu og góðaksturskeppnunum. Nú síðustu ár hafa margar nýjungar komið fram í sam- bandi við umferð og margir öku- menn hafa ekki fengið fækifæri til að kynna sér þær og eru af þeím sökum óvissir um hvernig haga skuli akstri við ýmsar að- stæður. Þetta kom glöggt í ljós í síðustu góðaksturskeppni BFÖ hér í Reykjavík í haust, er margir keppendur tóku t.d. rang- ar hægri beygjur og voru óviss- ir í akreinaakstri. Þessvegna hefur Reykjavíkur- deild BFÖ ákveðið að taka upp þá nýbreytni, að efna til upp- rifjunarnámskeiða fyrir félaga deildarinnar og aðra ökumenn. Skal hið fyrsta hefjast fimmtu- daginn 24. nóvember kl. 20s30 pS verður það til húsa í Slysa- varnafélagshúsinu við Granda- garð. Það námskeið er þegar fullsetið, en tekið verður á móti umsóknum á síðari námskeið á skrifstofu Ábyrgðar h.f., Skúla- götu 63, Reykjavík. Dagskrá fyrsta námskeiðsins verður sem hér segir: Fimmtud. 24. nóv. kl. 8,30' til 9,25: Umferðarlög (Hákon H. Kristjónsson hdl.), kl. 9,30 til 10,30: Erindi með skuggamynd- um (Pétur Sveinbjörnsson). Mánudagur 28. nóv. kl. 8,30 til 9,25: Umferðarlög (Hákon H. Kristjónsson hdl.), kl. S;30' tll 10,30: Erindi og _ fyrirspurnir (Magnús Einarsson, varðstj.). Þriðjudag 29. nóv. kl. 8,30 t.il 9,25: Erindi um hálkuakstur (Sig. E. Ágústsson), kl. 9,30 til 10,3(k Kvikmyndir um hálkuakstur. Fimmtudag 1. des. kl. 8,30 til 9,25: Umferðarlög (Hákon H. Kristjónsson Hdl.), 9,30- til 10,30: Umferðarkvikmyndir. Mánudag 5. des. kl. 8,30 til 9,25: Umferðarlög (Hákon H. Kristjónsson hdl.), kl. 9,30 til 10,30: Fyrirspurnir, námskeiðinu slitið. — (Frá BFÖ). Lokaður vegur Lögreglan í Hafnarfirði hefur beðið blaðið að vekja athygli ökumanna á því að Hafnarfjarð- arveginum hefur verið lokað á kafla við Hraunholtslæk vegna framkvæmda þar við skólplagnir. Er þó hægt að komast leiðar sinnar með því að aka niður fyrir veginn á þessum stað. Styrkveitingar AFS á ísiandi , Eins og undanfarin ár gengst American Field Service félags- skapurinn fyrir styrkveitingu til ársdvalar á bandarískum heim- ilum. Styrkir þessir eru véittir unglingum á aldrinum 16 til 18 •ára. Styrkþegar munu stunda nám við bandaríska gagnfræða- skóla og dvelja hjá bandarískum fjölskyldum. Allar nánari upplýsingar varð- andi styrk þennan munu veittar á skrifstofu A.F.S. á íslándf; Silla og Valda húsinu, Austur- stræti 17, 4. hæð, miðvikudaga og föstudaga milli kl. 4,30" og 6,30. Sími 23490. I oft í allt að átta ár í meðferð dómstólanna

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.