Þjóðviljinn - 03.12.1966, Side 1

Þjóðviljinn - 03.12.1966, Side 1
Laugardagur 3. desember 1966 — 31. árgangur — 277. tölublað. Gerið skil i Happdrætti Þjáðviljms ■ Þeir sem fengið hafa senda miða í Happdrætti Þjóðviljans eru beðnir að gera skil hið allra fyrsta. Tekið er við skilum á afgreiðslu blaðsins, Skólavörðustíg 19, og í íjarnargötu 20. ■ Dregið verður hinn 23. desember n.k. Aðalvinningarnir eru tvær Moskvitsj-bifreiðar, árg. 1957. — Verð happdrættismiðans er 100 kr. Engiri iausn * Eins og sagt var frá hér í Þjóðviljanum íögðu póstménn niður eftir- "vinnu þrjá fyrstu dag- ana í þessari viku til að mótmæla þeim kjörum sem þeim er boðið upp á. Hafa þeir lengi reynt að fá leiðréttingu sinna máia, en ekkert gengið og því greip Pósimanna- félagið til þess ráðs að hefja eftirvinnuverkfall. * Þrátt fyrir eftirvinnu- verkfallið hafa engin tilhoð borizt frá póst- og Símamálastjórn um kjara- breytingar, hins vegar var póstmönnum hótað stefnu fyrir félagsdóm vegna verkfallsins, sem þeir telja þó fyllilega lögmætt, þar sem eftir- vinnuskylda er aðeins fimm tímar á mánuði. * Á fundi stjórnar Póst- mannafélagsins um há- degið í gær var ákveðið að halda áfram eftir- vinnuverkföllum í des- ember strax og starfs- menn hafa lokið fimm tíma skyldunni. Munu starfsmenn margra deilda póstsins hafa lok- ið eftirvinnuskyldunni þegar í gær, en síðdegis. var þó ákveðið sam- kvæmt* beiðni að halda eftirvinnu áfram fram í næstu viku. * Má búast við að öll ' afgreiðsla á bæði böggla-, bréfa- og tollpósti tefj- ist mjög af þessum sök- um, ekki sízt þar sem jólapóstur er farinn að berast til landsins. Fjárlagafrumvarp ársins 1967 ber engin merki verðstöðvunarstefnu — segir fulltrúi Alþýðubandalagsins í fjárveitingarnefnd Alþingis, Geir Gunnarsson, við 2. umræðu fjárlaga Svo staðráðnir virðpist stjórnarflokkámir í því að halda verðbólgustefnunni áfram, ef þeir fá ráðið málum eftir kosningarnar næsta sumar, að í engu er reynt að sam- ræma.fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár þeirri verðstöðvun sem ríkisstjómin þykist nú keppa að, að öðru leyti en því, að ríflegu fé verður varið til niðurgreiðslna. Fjárlagafrum- varpið fyrir árið 1967 ber öll merki fyrri verðbólgufjár- laga viðreisnarstjómarinnar. Hækkunin frá fyrra ári er meiri en nokkru sinni fyrr, eða nálega 900 miljónir króna, sem • svarar til 4500 kr. hækkunar á hvert mannsbam í landinu. Af þessari gífurlegu hækkun fara aðeins um 50 miljónir kr. til verklegra framkvæmda en meginhluti þeirr- ar upphæðar fer þó til greiðslu skulda, sem þegar hefur verið stofnað til, en ekki til nýrra framkvæmda á næsta ári. Þannig er meginsvip fjár- lagafrumvarpsins lýst af full- trúa Alþýðubahdalagsins í fjárveitinganefnd Al'þingis, Geir Gunnarssyni. í ýtarlegri og rökfastri ræðu á Alþingi í gær rakti Geir feril við- reisnarstjómarinnar og skip- brot hennar í efnahagsmál- um þjóðarinnar. Nokkur meginatriði þess málflutnings Framhald á 3. síðu. Ekkert unnið við Borgar- sjúkrahúsið í tvo mánuði ■ Verkfallfð hjá Byggingafélaginu Brú hefur nú staðið í 2 mánuði og á þeim tíma hefur ekkert verið unnið að þeim verkefnum, sem félagið hefur haft með höndum. Þó með þeirri undantekningu, að eitt fyrirtæki hefur lagt fram fé úr eigin sjóðum +il að borga verkamönnunum. Harðast kemur verkfallið mð- ur á Borgarsjúkrahúsinu, sem borgarbúar hafa beðið eftir með óþreyju í hálfan ánnan áratug og vissulega mátti sú bygging ekki við skakkaföllum af þessu tagi. Þar hefur nú ekki verið unnið handtak í 2 mánuði. Eins og áður hefur komið fram hér í blaðinu eru greiðsluörðug- leikar Brúar raktir til vanskila borgarsjóðs við fyrirtækið. Hins- vegar er fyrirtækinu stjórnað af mönnum, sem notið hafa sér- stakrar náðar borgarstjórnar- íhaldsins og má af þessu sjá, að af slíkri „samvinnu“ hlýát al- gjört öngþveiti. Annað verkefni, sem ekkert hefur verið unnið við að undan- förnu af sömu ástæðum er sund- laugin nýja í Laugardalnum, en hún hefur verið stóruppsláttur í Bláu bókinni fyrir kosningar. Skautasvellið notað þrátt fyrir frostið * Þrátt fyrir átta stiga gadd * í gærmorgun og harðnandi * frost er Ieið á daginn létu * börnin ekkert á sig bíta og * voru mætt með skautana sína * og sleðana úti á Tjöm strax * og birta tók. Fullmikill snjór * er þó á Tjöminni til þess að * hægt sé að renna sér vel, en * kannski er það ágætt Iíka * fyrir þá sem enn era dálítið * óstöðugir. Myndimar hér að *ofan tók Ijósmyndari Þjóðvilj- *ans, A.K. í gærdag. jr I Fjöldauppsagnir Ullarverksmihj- unni Framtíðin Ullarverksmiðjan Framtíðin hefur sagt upp fjórtán af starfs- fólki sínu, eða þvi sem næst helming. Uppsagnirnar eru með 1 — 2ja mánaða fyrirvara. Samkvæmt íþeim upplýsingum, sem blaðið hefur getað aflað sér, stafar þetta einvörðungu af verkefnaskorti hjá verksmiðj- pnni. Hingað til hefur mikill hluti framleiðslunnar verið teppagarn fyrir innlendar teppa- verksmiðjur, en nú hefur inn- flutningur á slíku gami verið gefinn frjáls og síðan hefur Pramtiðin haft lítil verkefni handa fólkinu. • Verksmiðjan seldi um 40 tonn af teppagami á síðasta ári, en lítið sem ekkert í sumar og haust. Fólkinu, sem sagt hefur verið upp er gefinn kostur á endur- ráðningu ef úr rætist með verk- efni. Ullarverksmiðjan Framtíðin er eitt af dótturfyrirtækjum Slátur- félags Suðurlands. Heyrzt hefur að mjög kreppi nú að iðnaðinum í landinu og það jafnvel ennþá meira en áð- ur. Vilja menn kenna 'tvennu Framhald á 6. síðu. Hita/aust í gömlu hverfunum — geymarnir á ÖskjuhlíB témir OG ENN BRÁST HITAVEITAN! Ekki í fyrsta sinn á vetrinum, — og væntanlega ekki í ,síð- asta sinn heldur, ef dæma skal eftir fyrri reynslu. EKKI VANTAR LOFORÐIN: fyrir kosningar ,í vor hét meiri- hluti Tsorgarstjórnar því að allt skyldi komið í lag í haust, áður en færi að kólna, ný varastöð koAin upp. nýr hita- veitugeymir risinn og aðrar nauðsynlegar breytmgar gerð- ar, svo allir, líka þeir sem búa í gömlu hverfum bæjarins fengju yljað sér í- frostunum. Óg þegar ekki var hægt að efna þetta fyrir fyrstu kulda- köstin var aftur lofað að í síðasta lagi um miðjan nóvembt r skyldi allt komið í lag, geymirinn risinn o.s.frv. EKKI VANTAR HELDUR ÚTSKÝRINGARNAR: fyrst var vex ið að tengja nýju1 dælustöðina kerfinu, svo var varastöðin I að vísu komin í gang, en ekki í fullan gang fyrr en næsta kuldakast skall á og því of seint, auk þess sem vatnsbirgð- ir reyndust ekki nægar. Og nýi geimirinn er að vísu risinn, en það gleymdist alveg að það er ekki nóg að hafa marga geyma, það .þarf líka að vera vatn í þeim! HVERNIG FARA ÍBÚAR GÖMLU HVERFANNA AÐ? Jú, þeir klæðast þykkum peysum og ullarsokkum áður en þeir fara upp í rúmið á nóttunni, á daginn flýja þeir beimil- in eða að þeir reyna að notast við rafmágnsofna með ærn- um tilkostnaði. Sumir eru svo heppnir að þafa enn gamla kolakyndingu í kjallaranum, sém reyndar kemur ekki leng- ur að sömu notum og í fyrra vegná þeirra óskapa snúnir.ga og erfiðleika sem nú eru á að fá keypt'kol hér í höfuðborg- inni. Og börnin fá neikvef æ ofan í æ, ef ekki eitthvað þaðan af verra, vatnsleiðslurnar frjósa í gömlu húsunum og upp- vaskið verða húsmæðurnar bara að láta bíða, hvað þá að fjölskyidan komist í bað. — Jú, þetta bjargast allt ein- hvernveginn. EINHVERNVEGINN. En hún þarf ekki að ímynda sér, íhalds- klíkan í borgakstjórninni að fólk taki þessu þegjandi og hljóðalaust, að það sætti sig við innantóm loforð og eng- ar efpdir ár eftir ár. Enda kom hugur meirihlutans í borg- arstjórn berlega í ljós fyrir skömmu, þegár fulltrúi Alþýðu- bandalagsins bar fram þá tillögu nýlega að haldið yrði áfram að bora og leita eftir vatni á Reykjavikursvæðinu. en íhald- ið kolfelldi. ALLT ÞETTA SKAL MUNAÐ í NÆSTU KOSNINGUM. i

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.