Þjóðviljinn - 09.02.1967, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 09.02.1967, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVTLJINN — Fimmtudagur 9. febrúar 1967. Ragnar Arnalds: Ríkið hafi forystu um uppbygg- ingu niðursuðuiðnaðar á fslandi ★ Frumvarp Ragnars Arnalds um Fiskiðju ríkisins var til 1. umræðu á fundi neðri deildar Alþingis á mánudaginn. Var frumvarpinu vísað til 2. um- ræðu og nefndar að lokinni framsöguræðu flutningsmanns. Fer ræða Ragnars Amalds hér á eftir: Á þingskjali 78 hef ég leyit mér að flytja frumvarp til laga um stofnun fyrirtækis, er beri nafnið Fiskiðja ríkisins. I stuttu máli er það meginefni þessa frumvarps, að ríkisvaldið taki að sér forystuhlutverk i upp- byggingu niðursuðuiðnaðar á Is- landi, en þessi uppbygging hef- ur nánast staðið í stað í ald- arfjórðung. Ef þessi iðnaður á að verða einn af grundvallar- atvinnuvegum þjóðarinnar i framtíðinni, eins og hann hefur öll skilyrði til að verða, þá verður ekki hjá því komizt, að ríkisvaldið leggi grundvöll- inn með nokkrum markvissum ráðstöfunum. Hér er gerð um það tillaga: 1. að sett verði á stofn Fisk- iðja ríkisins, er starfi undir sérstakri þingkjörinni stjóm; 2. að ríkið leggi fram fjár- magn, svo að unnt sé með nokkurri von um árangur að ráðast til atlögu við mesta vandamál þessa iðnaðar: mark- á'ðsyándamálið. Meðal annars verði stofnað til sölusamtaka framleiðenda, er ‘reyni sameih- , aðir að brjótast inn á frjáisan /"'hfarkáð ‘ erlendis undir ’ ,éifíu: auglýstu vörumerki; 3. að fiskiðjan taki við rekstri niðurlagningarverksmiðjunnar á Siglufirði; 4. að fiskiðjan reisi nokkrar nýjar verksmiðjur, eftir því sem markaður leyfir, þar sem vinna er að staðaldri ónóg; 5. að Fiskiðja ríkisins fái það hlutverk að hafa forystu um hverskonar vísindarannsóknir á þessu sviði: innleiði tækninýj- ungar og geri tilraunir með nýja matarrétti; 6. að Fiskiðju ríkisins veröi falið að gera ráðstafanir til þess, að íslendingar eignist fjölmennan hóp sérmenntaðra manna í niðursuðutækni: á- hugamenn séu kostaðir til náms erlendis og efnt sé öðru hverju til sérstakra námskeiða fyrir verkstjóra og annað starfslið. Margir hafa furðað sig á því, og það eftki að ástæðu- lausu, hversu illa hefur gengið Síldin, þetta úrvalshráefni i ljúffengustu matarrétti. að koma upp niðursuðu- og niðurlagningariðnaði á Islandi. Á hverju ári hafa Islendingar mokað gífurlegum afla á land, en minna um það hirt að full- vinna afurðimar sjálfir. Fisk- vinnslustöðvar víða um heim hafa fengið ódýrt úrvalshráefni frá Islandi og hagnazt drjúgum á því að margfalda haráefnis- verðið með fullvinnslu. Ef við berum okkur saman við Norðmenn, kemur glöggt í Ijós, hve Islendingar eru langt á eftir Norðmönnum á þessu sviði. 1 Noregi er 15 prósent Sterka bensínið Mikið er um það skrifað þessa dagana að nú sé loksins von á „sterku“ bensíni til landsins frá Rússum; hafi þeir vondu austrænu menn árum saman selt okkur kraft- lítið gutl, en barátta Félags íslenzkra bifreiðaeigenda og þriggja olíufélaga hafi að end- ingu borið þann árangur að „styrkleikinn" vaxi. Eftirleið- is verði ekkert selt hér ann- an en „sterka“ bensínið. Er talað um þessi umskipti af þvílíkum feginleik að helzt minnir á drykkjuberserki sem komast loksins í brennda drykki eftir að hafa lengi orð- ið að sætta sig við borðvín. Mér segja fróðir menn að fráleitt sé að tala um „styrk- leika“ í áambandi við oktan- tölur í bensíni; oktantalan jafngildi engan veginn pró- sentutölum um áfengismagn í brennivíni. Oktantölur gefi til kynha ólíkan efnafræðileg- an samsetning og mismunandi eiginleika. Því fari mjög fjarri að „sterka" bensínið henti öllum bílum, slíkt fari eftir gerð véla, eftir hraðanum sem ekið er á að jafnaði, eftir vegum og fleiri aðstæðum. Þess vegna þykir það sjálf- SÖgð þjónusta í nágrannalönd- um okkar að bensínstöðvar hafi til sölu bensín með mis- munandi oktantölu, til þess að bílstjórar geti valið þá teg- und sem þeim hentar. Hvers vegna á aðeins að verða til sölu „sterkt" bensín á Islandi, þótt bflainnflytjend- ur hafi þegar gert athuga- semdir við þá^tilhögun? Hvers vegna sanna olíufélögin þrjú ekki tilverurétt sinn með þvi að hafa á boðstólum bensín með mismunandi oktantölu og leyfa bílstjórum að velja í samræmi við þekkingu og reynslu? Hvers vegna má ekki taka upp frjálsa verzlun í stað einokúnár á þessu sviði? Er ástseðan ef til vill sú að „sterka" bensínið er dýrara. svo að álagningarhlutur olíu- félaganna verður hærri en hann hefur verið til þessa? — Austri. af útflutningsverðmæti norskra sjávarafurða niðursoðinn eða niðurlagður fiskur, en hlistæð hlutfallstala á Islandi er að- eins V2 prósent. Það er vissulega nokkuð öm- urlegt að sjá hve Islendingar standa langt að baki keppi- nautum sínum Norðmönnum á þessu sviði, en hitt er þó jafn- vel enn ömurlegra að sjá, hvað framfarir í þessari iðn- grein hafa verið hægar og þróunin einkennilega skrykkj- ótt. Árið 1940-1941 var útflutning- ur lslendinga á niðursuðuvör- um um 700 tonn eða um það bil tvöfalt meiri en 1963 og 1964. Á þessu tímabili kom það fyrir, að útflutningurinn eitt árið fór yfir þúsund tonn, ann- að árið datt hann niður í sama sem ekki neitt. Árin 1965 og 1966 hefur út- flutningsmagn niðursuðuvara aukizt talsvert, einkum vegna stóraukinnar sölu til Sovétríkj- anna. En þrátt fyrir þessa aukn- ingu er hlutfallstala niðursuðu- og niðurlagningarvara af út- fluttum fiskafurðum þó enn langt innan við 1 prósent, og talinn í tonnum er útflutning- urinn á síðasta ári svipaður eða aðeins lítið eitt meiri en hann varð mestur íyrir aldar- fjórðungi. Hver er þá helzta skýringin á erfiðleikum niðursuðuiðnaðar- ins? Skýringin er fyrst og fxemst sú, að skort hefur mark- aði. En hvers vegna hefur maskaði skort? öllum ber þó saman um, að íslenzk hráefni séu með þeim beztu, sem fá- anleg eru í heiminum. Hvers vegna geta Islendingar ekki selt þessa framleiðslu eins og aðr- ar þjóðir? Um leið og reynt er að svara spurningunni, er nauðsynlegt að gera sér þess grein, að mark- aðsöflun fyrir fullunnar iðnað- arvörur er miklu meiri erfið- Ieikum bundin en sala á hrá- efnum eða hálfunnum vörum. I upphafi þarf stórfellda auglýs- ingaherferð á frjálsum markaði, erindrekstur og tilraunastarf- semi. Hér á landi hafa verið starfræktar fjölmargar verk- smiðjur, en þær hafa flestar verið litlar og ófullkomnar. Eig- endur hafa oftast verið fjár- vana og ekki þolað neins kon- ar áföll eða byrjunarörðugleika. Auk þess hefur sérþekking og tæknikunnátta verið mjög af skornum skammti, og stundum hefur framleiðslan misheppn- azt. En jafnvel smávægilegustu mistök geta eyðilagt stóran markað. Vafalaust skiptir þó mestu máli, að aldrei hefur verið gert stórfellt, markvisst átak til að seljá framleiðsluna. Framleiðendur hafa aldrei haft nein samtök með sér. Enginn aðili hefur haft fjármagn til að brjótast inn á frjálsan mark- að með þeim krafti, sem tií þarf. Enginn hefur getað leyft sér að taka þá áhættu, sem í upphafi fylgir slíku. Nú eru hér á landi þrjár meiri háttar verksmiðjur í þess- um iðnaði, allar búnar mjög góðum framleiðslutækjum. K. Jónsson & Co. h.f. á Akureyri framleiðir langsamlega mest og flytur megnið af framleiðslu sinni til Sovétríkjanna sam- kvæmt föstum samningum. Norðurstjaman í Hafnarfirði nýtt og glæsilegt fyrirtæki, seldi aðallega til Bandaríkjanna Ragnar Arnalds undir norsku vörumerki en hef- ur ekkert framleitt nú skeið. Á Siglufirði var að frumkvæði Alþingis og ríkisstjómar hafin bygging verksmiðju af full- komnustu gerð, og er hún nú hálfbyggð. Verksmiðjan er rek- in undir stjórn S.R. og var ætl- uð sem. framlag hins opinbera til styrktar þessum iðnaði og átti að ryðja öðrum verksmiðj- um brautina. Framleiðslan hef- ur þótt takast mjög vel, og er hún að mestu seld til Sovét- ríkjanna, en því miður hefur ekkert stórátak verið gert til að afla annarra markaða. Bygging þessara þriggja full- komnustu verksmiðja er mikil- vægt spor í rétta átt. Næsta spor er að hefja víðtæka mark- aðsöflun og skipuleggja þenn- an atvinnuveg í heild sinni, svo að hér megi rísa stór- iðja í matvælaiðnaði. En hvemig má það verða? Munu hinir ýmsu framleið- endur í þessari iðngrein verða færir um að skipuleggja þenn- an atvinnuveg og koma á fót slíkri stóriðju, án aðstcðar eða forystu ríkisvaldsins? Ég held ekki. Ég held, að ríkisvaldið hafi beðið of lengi ; eftir því, að þessi atvinnugrein risi upp í landinu af sjálfu sér. Ástandið í þessum iðnaði og stöðnunin undanfann 25 ár, ætti að geta sannfært menn um það, að rfkisvaldið má ekki halda að sér höndum á þessu sviði, heldur verður að taka forystuna. Þegar Siglufjarðarverksmiðj- an var reist, var það einmitt ætlunin, að hún yrði tilrauna- og forystuverksmiðja. Afstaða ríkisvaldsins til þessa afkvæm- is síns hefur þó verið nokkuð óljós: verksmiðjan hefur verið Framhald á 7. síðu Athugasemd frá Verðlags- ráði sjávarátvegsins í frétt frá Útvegsbændafél- Vestmannaeyja, sem birtist í dagblöðunum í gær segir svo i upphafi fréttarinnar: „Útvegsbændafélag Vestm.- eyja lýsir megnri óánægju á þeim . drætti, er varð um ný- gerða verðákvörðun á bolfiski, og telur, að ef reglur hefðu ver- ið haldnar, hefði verðákvörð- unin átt að liggja fyrir 10. des. s.l.“ I viðtalsþætti Ölafs Ragnars Grímssonar, hagfræðings í Ríkisútvarpinu í gærkvöld, voru viðhöfð ummæli sama efnis af Hilmari Rósmundssyni, útgerð- armanni í Vestmannaeyjum. 1 tilefni af fyrrgreindum ummælum, vill stjórn Verðlags- ráðs sjávarútyegsins taka fram eftirfarandi. í 8. gr. reglugerð- ar um . Verðlagsráð sjávarút- vegsins frá 31. október 1962, segir svo: „Verðlagsráð (fiski- deild) skal leitast við að ná samkomulagi um lágmarksverð fisktegunda fyrir eitt ár í senn, og skal þá hafa lokið verðá- kvörðunum sínúm fyrir 10. des. ár hvert. Náist ekki einróma samkomulag í verðlagsráði um verð fyrir tilakilinn tíma, skal vísa ágreiningsatriðum til yfir- nefndar þegar í stað. Yfir- nefndin skal hafa fellt fulln- aðarúrskurð um ágreiningsatriði og tilkynnt fiskverð eigi síðar en 31. desember ár hvert“. Fyrrgreint ákvæði um að fiskideild Verðlagsráðs skuli ljúka verðákvörðun eigi síðar en 10. desember, er sett til þess að yfirnefnd, ef hún fjall- ar um málið, skuli hafa nógan tíma til starfa og ákvörðunar fiskverðs eigi síðar en 31. des. ár hvert. Síðan Verðlagsráð hóf störf í desember 1961, hefur það ávallt komið í hlut yfirnefndar að ákveða bolfisk- verðið. Þannig náðist ekki sam- komulag í Verðlagsráði um lág- marksverð á bolfiski árið 1967.; Verðákvörðuninni var því visað til úrskurðar yfirnefndar á fundi ráðsins þann 9. desem- ber s.l., í samræmi við ikam- angreind reglugerðarákvæði. Vegna yfirgripsmikillar könn- unar á rekstursafkomu fiski- báta, frystihúsa og annarra fiskverkunarstöðva, svo og markaðskönnunar erlendis, lauk yfirnefndin ekki störfum fyrr en þann 8. janúar, er úrskurð- ur var kveðinn upp um lág- marksverð á bolfiski. Sjávarút- vegsmálaráðuneytið hafði fyrir áramót veitt yf'rnefndinni frest til 8. janúar til uppkvaðningar úrskurðar um fiskverðið. Af framansögðu er það ljóst, að fullyrðingar í áðurgreindum ummælum, um brot á settum reglum, eru ekki á rökum reistar. —■ (3. febrúar).

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.