Þjóðviljinn - 12.02.1967, Side 2
2 SlÐÁ — ÞJÖÐVHa.nN'N — Simrwidagur 12. februar 1967.
Frumvarp flutt um verkfræðiskrif-
stofu fyrir Vestfjarðakjördæmi
Brezk dæguriagasöngkona í
Þjóðleikhússkjallaranum
Nýtt bíóorgel tekið í notkun í húsinu
□ Hannibal Valdimarsson flytur á Alþingi
frumvarp til laga um verkfræðiskrifstofu Vest-
fjarðakjördæmis. Er henni ætlað að annast verk-
fræðilegan undirbúning og hafa eftirlit með op-
inberum framkvæmdum í kjördæminu.
1 frumvarpinu eru m.a. þessi
ákvæði:
★ Skrifstofan er ríkisstofn-
un, og er aðalverkefni hennar
að annast verkfræðilegan und-
irbúning vega- og brúargerða,
hafnargerða og lendingarbóta,
svo og undirbúning skipulags-
mála í kjördæminu, allt undir
yfirstjórn vegamálastjóra, vita-
málastjóra og skipulagsstjóra.
Skrifstofan skal einnig ann-
ast hvers konar önnur verk-
fræðistörf við mannvirki og
framkvæmdir, sem til er stofn-
að á vegum ríkisins og ríkis-
stofnana að einhverju eða öllu
leyti, svo sem byggingu skóla,
sjúkrahúsa, embættisbústaða,
sundlauga, félagsheimila o.s.frv.
★ Þá skal skrifstofan enn
fremur annas.t hvers konar
verkfræðilegan og tæknilegan
undirbúning mannvirkjagerðar
og framkvæmda, sem sveitar-
stjórnir á Vestfjörðum fela
skrifstofunni að vinna. Fyrir
slík verk skrifstofunnar greiða
sveitarfélögin í réttu hlutfalli
við þá þjónustu, sem hún veit-
ir þeim hverju um sig.
★ Skrifstofan getur einnig
tekið að sér verkfræðistörf
fyrir einstaklinga og fyrirtæki
í Vestfjarðakjördæmi, enda
komi full greiðsla fyrir.
í greinargerð segir flutnings-
maður:
Frumvarp þetta er flutt sam-
kvæmt eindreginni ósk bæjar-
stjórnar ísafjarðar. Megintil-
gangur frumvarpsins er sá að
tryggja bætta sérfræðiþjónustu
í verklegum efnum í Vest-
fjarðakjördæmi. Og er þess
sízt vanþörf.
Bæjarstjórnin á ísafirði lét
aðeins þessi fáu orð fylgja til-
lögunni:
„Samþykkt þessi þarfn-
ast ekki nánari skýringa, en
aðeins er bent á til árétt-
ingar, hversu mikilsverður
þáttur verkfræðiskrifstofa á
ísafirði, sem bæjarstjórnin
nú hefur gert samþykkt um.
hlýtur að vera í byggða-
kjarnaskipulagi, sem mikið
er rætt um, en of lítið gert
að.“
„Á vorri storð — eitt verk
er meir — en þúsund orð“.
Ef til vill er líka óþarft að
láta fleiri orð fylgja frumvarp-
inu. Með því er tekið undir
kenninguna um myndun
byggðakjarpa eða þéttbýlis-
kjarna til þess að efla jafn-
vægi I byggð landsins. Það
er sannfæring bæjarstjórnar- .
innar á ísafirði, og þeirrar
skoðunar er flutningsmaður
frumvarpsins einnig, að dreif-
ing þeirra þjónustustofnana,
sem nú eru nær undantekning-
arlaust staðsettar í höfuðborg-
inni, sé þýðingarmikil ráðstöf-
un til byggðajafnvægis og jafn-
réttis. Og sé mönnum alvara
í þeim efnum væri ekki úr
vegi, að athafnir kæmu í orða
stað, einmitt frá Alþingi ís-
lendinga. Frumvarpið getur því
orðið eins konar prófsteinn á
raunverulega afstöðu alþingis-
LINDARBÆR
LEIKFÉLAG HVERAGERÐIS sýnir
Ðeleríum búbonis
eftir Jónas og Jón Múla Árnasyni þriðjudaginn
14. febrúar kl. 21.00 í LINDARBÆ.
Leikstjóri: Gísli Halldórsson.
MIÐAPANTANIR og forsala í LINDARBÆ í dag,
sunnudag, kl. 14-17 og þriðjudag frá kl. 15. Sími 21971.
LEIKFÉLAG HVERAGERÐIS.
manna í byggðajafnvægismál-
um. Er ekki að efa, að þeir
muni standast það próf.
Ef tíl vill verður sú rök-
semd færð fram gegn frum-
varpinu, að stofnun sérstakr-
ar verkfræðiskrifstofu í Vest-
fjarðakjördæmi muni auka
kostnað við opinberar fram-
kvæmdir. Yfirstjórn þessara
mála verði ódýrust með því,
að ein þjónustumiðstöð í hverri
grein, staðsett í Reykjavík,
annist hana. Ekki skal því
neitað, að stofnun þeirrar sér-
fræðiskrifstofu, sem hér um
ræðir, kunni að kosta aukin
útgjöld. en þó er það engan
veginn sannað mál, að svo
verði. Ferðir sérfræðinga út
um allt land frá þjónustumið-
stöðvunum i Reykjavík kosta
líka nokkurt fé, sem sparast
mundi að verulegu leyti með
þeirri breyttu skipan, sem hér
er lagt til, að upp verði tekin.
Hitt skiptir meira máli, að
betri þjónusta væri tryggð með
hinni nýju skipan. Þess mætti
vænta, að tæknilegur undir-
búningur mannvirkjagerðar
yrði betur felldur að aðstæð-
um, og víst gæti það fljótlega
sparað verulegar fjárhæðir, ef
betri aðstaða skapaðist til að
láta sérfræðinga fylgjast með
verklegum framkvæmdum hins
opinbera.
Hitt verður ekki dregið í efa,
að sveitarfélögum á' Vestfjörð-
um væri mikil stoð að starf-
semi slíkrar skrifstofu og leið-
sögn hennar í verklegum efn-
um. Hið sama má segja um
einstaklinga og fyrirtæki, sem
þannig fengju greiðan aðgang
að skrifstofunni í heimahéraði
í stað þess. að nú verður alla
tæknilega aðstoð að sækja til
Reykjavíkur
Hér er vissulega um nokkurt
nýmæli að ræða. En þrátt fyrir
það vill flutningsmaður vænta
þess, að frumvarpið hljóti
greiðan gang gegnum þingið,
þar eð byggðajafnvægismálin
geta naumast komið nokkrum
þingmanni ókunnuglega fyrir.
Opel fækkar starfsliði
RUSELHEIM 9/2 — Opelverk-
smiðjurnar í V-Þýzkalandi ætla
enn að fækka starfsmönnum sín-
um við aðalverksmiðjurnar í
Rússelheim. Verður 3.000 af
37.250 verkamönnum þar sagt
upp. Ástæðan er sölutregða á
heimamarkaðnum.
Þjóðleikhúskjallarinn hefur
nú ráðið erlcndan skemmtikraft
cr mun skemmta gcstum húss-
ins næsta mánuðinn. Er það
brezk dægurlagasöngkona Car-
ol Deene að nafni og kom hún
fyrst fram í húsinu sl. föstu-
dagskvöld. Sltýrðu forráða-
menn hússins, Bjarni Bender
og Ingi B- Ársælsson frá þessu
á fundi með fréttamönnum á
föstudaginn.
Carol Deeine hefur stundað
dægurlagasöng í sex ár og hef-
ur m.a. oft komið fram í þátt-
um í brezka sjónvarpinu auk
þess sem hún hefur sungið inn
á einar tólf plötur fyrir Colum-
bia útgáfufyrirtækið. Þá hefur
hún skemmt 'erlendis, m.a. í
Suður-AfríkUj Amsterdam og
Gautaboírg. Mun hún koma
fram tvisvar á kvöldi og verð-
ur prógrammið breytilegt
hverju sinni. Gafst fréttamönn-
um kostur á að hlýða á söng
henn-ar og ræða við hana
stundarkorn.
Þá skýrðu forráðamenn Leik-
hússkjaijarans frá því að ætl-
unin væri að brydda upp á
ýmsum nýjungum á næstunni,
þannig væru þeir komnir með
nýjan matseðil og einnig er ný-
SÓLARSTEINNINN
í orðabók Sigfúsar
Blcndals er „sólar-
steinn“ sagður hafa
, sfjthú .ntófkingu og leið-
arsteinn, en „leiðar-
steinn" látinn heita
,,Kompas“. Svo er að
sjá sem enginn hafi
vitað með vissu hvað
orð þetta þýddi. En nú
er komin fram Skýring
á því. Fer hér á eftir
stytt og endursögð frá-
sögn, sem Kaupmanna-
hafnarblaðið Politiken
birti fyrir skömmu:
öllum á óvænt hefur verið
gerð mikilvæg uppgötvun sem
skýrir það, hvernig víkingar
hinir fornu og landnámsmen.o
Islands fóru að því að rata um
höfin, þegar langtímum saman
sást hvorki til sólar né stjarna
vegna dimmviðris. Áttavita
höfðu þeir engan. Og samt
höfðu þeir nokkurskonar átta-
vita! Thorkild Ramskou, mag-
ister, forstöðumaður fornminja-
safnsins í Kaupmannahöfn, og
hinn fróðasti um allt sem lýt-
ur að ferðum víkinga, hefur nú
fundið hvernig í þessu liggur:
Þeir höfðu til þess silfurberg að
skyggnast gegn um ský tll
sólarinnar, og finna hvar hún
var stödd á himni. Einnig gátu
þeir séð til hennar þó að húh
væri nýlega gengin' undir.
Thorkild Ramskou vár það
lengi ráðgáta sem öðnim, hvaða
steinn það væri, sem- gerði
mönnum kleift að sjá til sólar,
enda þótt hún- væri gersamlega
hulin berum augum.
— Fyrst er getið um sólar-
stein í Flateyjarbók, segir Thor-
kild Ramskou, en þar er stutt
frásaga af Rauðúlfi og sonum
hans, er Ólafur konungur helgi
kemur í heimsókn til þeirra.
Taka þeir þá að telja íþróttir
sínar. Konungur spyr Sig-
urð hvað hann kunni (Hér hefst
frásagan í Flateyjarbók). „Hann
svarar: „ . . . ein er sú er hann
hefur mér kennt . . og er sú ein
af hans íþróttum mörgum."
„Hver er sú?“ spyr konungur.
Sigurður svarar: „Það er að
greina gang himintunglanna . .
og kunna stundir þær, sem
merkja dægur, svo að ég megi
vita lengd um dag og nátt, þó
að ég sjái eigi himintungl, og
veit ég þó grein allra stunda
bæði dag og nótt.“
(Upphaf 230. kafla.)
Rauðúlfur bóndi fylgdi kon-
ungi til útiskemmunnar nýju .
þá var logn veðurs og heið-
viðri . . . Konungur spurði Sig-
urð Rauðúlfsson: „Hvað mun
vera veðurs úti á rnorgun?"
,,Drífa,“ segir hann. „Það þykir
mér ólíklegt," segir konungur.
. . . Að morgni var veður
þykkt og drífandi, svo sem Sig-
urður hafði sagt. — Þá lét
konungur sjá út og sá hvergi
skýlausan himininn. Þábað hann
Sigurð segja sér hvar sól væri
komin. Hann kvað á. Þá lét
konungur taka sólarsteininn og
hólt upp, og sá hann hvar geisl-
aði úr steininum og markaði á
því svo til sem hann hafði sagt.
— Sólarsteins er getið í fleiri
fornritum, og um það ritaði ég
grein í fornfræða-tímaritið
„Skalk“, og við það brá svo, að
tveir menn svöruðu mér samtím-
is og starfa báðir hjá SAS og
annar þeirra, Jörgen Jensen, er
flugstjóri, en hinn, Gunnar
Thygesen, verkfræðingur. Þeir
sögðu báðir hið sama. „Það er
auðséð hvað þetta er. Sólar-
steinn er rökkuráttavitinn, sem
við svo köllum.“
Ég ætlfiði ekki að tnía, mínum
eigin 'éyrúm. Gat vérið nokkurt
samband þar á milli? En svo
skýrðu þeir þctta nánar pg
sögðu mér að pegár flogið væi i
yfir heimskautasvæðin mættu
þeir ekki missa þennan áttavita,
vegna þess að í grennd við seg-
ulskautið væri oft ekkert að
marka •'seguláttavita.
Síðan bentu þeir mér á prent-
aðar h'eimildir um rökkurátta-
vitann,og tókst mér að. f inna
greinar'gérð fyrir þessu tæki í
lögbók frá árinu 1955, en þar er
sagt að rökin fyrir gagnsemi
þess væri sú skauthverfing eða
klofnun ijóssins, sem Bartholini
fann fyrstur manna árið 1659.
En svo komst ég að því við
athuganir að þetta stenzt ekki,
því það sem Bartholini gerði
var að mæla og reikna út regl-
urnar fyrir því sérkennilega tvi-
broti ljóssins, sem er svo greim-
legt í íslenzku silfurbergi. En
sólarsteinn er raunar silfurberg.
Greinargerð Bartholinis vakti
hina mestu athygli á sínum
tíma, meða, lærðra manna, og
við athuganir hans studdist svo
Hollendingurinn Huygens, sem
tókst að sanna það 1698, að
ljósið váeri bylgjuhreyfing, og
að unnt er að afriða (ensrette)
bylgjur Ijóssins svo að fram
komi þaö sem kallast skaut-
hverft ljós (polariseret lys).
Þegar sólarljósið kemur inn
í lofthjúp jarðarinnar, afriðast
ljósöldurnar svo að úr verður
skauthverfing ljóssins. en augað
nemur þ'etta ekki. En til er sér-
stök gerð af sólgleraugum, sem
höfð erú t.d. til að komast hjá
því að sjá endurkast ljóss frá
veginum, sem ekið er um, °g
gegn um þau sést bepsi birta.
Hið endurkastaða ljós fer
lárétta braut, eða samhliða veg-
Kjötbúb Suöurvers tllkynnir
Tökum að okkur veiziur, kalt borð, smurt brauð, KJÖTBÚÐ SUÐURVERS, horni Stigahlíðar ob
snittur, kokteilsnittur og brauðtertur. Hamrahlíðar. - Sími 35645-Geymið auglýsinguna.
Carol Deene
búið að taka í notkun nýtt jap-
anskt bíóorgel hið fyrsta sem
sett er upp á veitingastað hér
á landi. Einnig hefur verið sett
í húsið nýtt magnarakerfi.
Thorkild Ramskou.
inum, og sé glerinu í gleraug-
unum, sem er þannig geyt,. að
það lætur hið skauthverfa ljós
hverfa, stefnt homrétt við yegr
inn, hverfur endurskinið.
— En nú skulum við snúa
okkur aftur að víkingunum.
— Hið sama lögmál var ' að
verki forðum þegar Ölafur heigí
fann sólina nákvæmlega þár
sem Sigurður Rauðúlfsson hafði
sagt til, þó að loft væri dimmt
af muggu, svo að ekki sást til
sólar með berum augum. Ólafur
konungur sá hið skauthverfa
ljós geisla af steininum. Deild-
arstjóri Mineralogisk Museum,
Steinafræðisafnsins í Kaup-
mannahöfn, Harry Michelsen,
hefur frætt mig um ýmiskonar
kristalla, sem nota má á þenn-
an hátt. Silfurberg frá íslandi
er bezt, en ýmislegt annað ór
einnig nothæft, svo að norræh-
ir siglingamenn hafa eflaust- átt
sér sólarsteina áður en þeir
fundu silfurberg á íslandi.\ Til
þess að finna sólina með sól-
arsteini, þarf að beina honurn
fyrst í hvirfilpunkt og sést þá
úr hvaða átt hið skauthvería
ljós kemur, svo auðvelt, er að
taka mið af því til sólarinnar,
og þetta var það sem Ölafur
helgi gerði. þegar hann prófaði
staðhæfingu Sigurðar um ,af-
stöðu sólarinnar þegar annars
var ekkert að sjá á lofti nema
snjóhríðina.
Það er stutt síðan Thorkild
Ramskou gerði þessa uppgötv-
un, og hefur hann prófað þetta
með mörgum og margyísleguin
molum úr silfurbergi, sem þann
hefur fengið til þess í Stejna-
fræðisafninu, og aldrei hefur
brugðizt að hann fvnd' sóli.na..
Hann segir svo: — t hínni
bandarísku kennslubók í flugi,
sem nú er höfð, segir að rökk-
uráttavitinn hafi fundizt við
John Hopkinsháskóla árið 1943,
en því neita ég. Þetta er ekki
í fyrsta skipti, sem þeir góðu
gömlu víkingar urðu fyrri til!