Þjóðviljinn - 17.02.1967, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 17.02.1967, Blaðsíða 5
aaasaw. Eösbudagur W. febrúar 1967 — ÞJÓÐVILJTNN — Sll>A § Hanni&aJMalitMnaGimsQa: Blikur á lofti í upphafi árs aS glíma, þeim ber öSrum fremur skylda til aS leysa hann. Og rétt er þetta, s-vo langt sem þaS nær. En þá vaknar sú spuming, hvort þeir hafi háS glímuna viS dýrtiSardrauginn af slíkri íþrótt, aS þeim beri fremur að treysta til úrslita- glímunnar. ★ Fyrir seinustu ái'amót var nokkuð eftir því leitað við mig, að ég skrifaði áramóta- grein í hinum hefðbundna st.íL Þ. e. ýtarlega upprifjun á at- burðum liðins árs, hérlendis og erlendis og siðan mat á stjóm- málahorfum í þyrjun hins nýja árs. Venjulega er þetta 3—4 blaðsíður í dagblöðunum. Undan þessu veikst ég. — Ekki sökum þess, að ég teldi eftir mér að skrifa langa blaða- grein. Það er ekki langrar stundar verk. En ég hef ein- hvern veginn fengið óbeit á þessari vanabundnu lang- hundaframleiðslu. Ég held, að hún sé ósköp tilgangslílil. Les- endahópurinn sé næsta tak- markaður. Sjálfur verð ég að taka tilhlaup og setja í mig kjark, til þess að hefja lang- hundalesturinn. Hins vegar tel ég eðlilegt og viðeigandi að forseti landsins og forsætisráð- herra flytji þjóðinni áramóta- boðskap með einhverjum hættL og þá helzt í útvarpi og sjónvarpi. Ekki slapp ég þó með öllu frá áramótagrein, því að dag- blaðið „Visir“ beindi til min tveimur spumingum og ósk- aði svars í stuttu máli. Sömu spumingum var einnig beint til biskups, fjármálaráðherra, háskólarektors, borgarstjórans í Reykjavík og nokkurra ann- ama raanna. Spurningarnar voru þessar: „Hvað vakti mesta athygli yðar innanlands á árirrn. sem er að líða?“ „Hver teljið þér stærstu - verkefni næsta árs?“ Svar mitt var á þessa leið: „Þegar ég lít yfir atburði ársins, sem er að líða, hlýt ég að staðnæmast við lagasetn- ingu um að heimila eriendum auðhring að reisa hér og reka stóriðjufyrirtæki — alúmíní- umverksmiðju, sem verður eins og risi meðal dverga í saman- burði við atvinnufyrirtæki fslendinga. — Þetta getur vcr- ið viðsjárverð og hærttuleg stefna. Við munum verða að hafa fyllstu aðgát við hvert skref, sem við tökum í sam- skiptum við hinn erlenda auð- hring. Þetta er ný stefna. Hætta er á því, að íslenzkir atvinnuveg- ir verði afræktir. íslendingar ganga í þjónustu erlends auð- hrings, en gróðinn af álverk- smiðjunni streymir út úr land- inn, Samt eru íslenzkir at- vinnuvegir undtrstaða efna- hagslffs okkar, og þeir verða að vera það. ★ Þegar svo litið er á verk- efni komandi árs mundu ýms- ir telja brýnast verkefna að grafa þegar fyrir ráetur þeirrar þjóðlífsspillingar, sem daglega birtist í skattsvikum, tollsvik- um, skjalafalsi, okri, innbrotum, þjófnuðum, ránum, ofbcldis- verkum og liverskonar glæpa- starfsemi, sem virðist vera að helsýkja þjóðfélagið. Það er einnig ljóst, að nú- verandi stjórnarstefna verður að breytast. Annars getur hæglega svo farið, að við horfum upp á ís- lenzkt efnahagslíf í rústum eftir árið. Stóriðjan mundi ekki geta afstýrt því. Það verður að skapa atyinnuvegunum nýjan og heilbrigðan grundvöll. Losa verður um vinnuafl í milli- liðastarfsemi og beina þvi til framleiðslunnar. Ríki og sveitarfélög verða að ganga á undan í sparnaði og ráðdeild. Koma verður í veg fyrir fjöldagjaldþrot og stöðvun iðn- fyrirtækja, sem við megum ekki án vera. Verðhækkanir mega ekki eiga sér stað. Og það er ekki nóg. Verðlag verður að lækka, hvar sem menn hafa þegar gerzt of frekir til fjár. Hrun verður tæpast hindrað, nema stjómarstefnan breyt- ist“. Þetta var mín áramótahug- leiðing. Ekki verður þvi neitað, að ýmislegt, bæði varðandi þessi vandamál og önnur, sækir á hugann á þessu nýbyrjaða ári. Þeir, sem líta á röskun byggðajafnvægis og hinn lát- lausa fólksflótta af Vestfjörð- um og Noröurlandi sem alvar- legt þjóðfélagsvandamál, er ekki horfi til heilla, hljóta að sjá, hvcrt stefnir í þeim mál- um, þegar línuútgerð — at- vinnuundirstaða Vestfirðinga virðist vcra að fjara út, öll út- gerð drcgst stórlega saman, og hraðfrystihúsin telja reksturs- grundvöll sinn brostinn. En samtímis þessu bætist ofan á yfirspenntan vinnumarkað sunnan fjaila Búrfellsvirkjun, Álverksmiðjubygging og bygg- ing stórhafnar við Straumsvík, allt saman fjárfestingarstarf- Fyrirspurnir á Alþingi Þessar fyrirspurnir hafa verið lagðar fram á Alþingi: I. Til viðskiptamálaráðherra um bindingu sparifjár inn- lánsstofnana á Norðurlandi. Frá Birni Jónssyni og Ragn- ari Arnalds. Hve mikllli upphæð íiema bundnar innstæður innláns- stofnana á Noi-ðurlandi í Seðlabankanum, og hver er skipting þeirrar upphæðar milli einstakra sýslna og kaupstaða í fjórðunsrnum? ★ II. Til ríkisstjómarinnar uni varðveizlu skjala og gagna þingkjörinna og stjómskip- aðra nefnda- Frá Birni Jóns- syni. a. Hvaða háttur hefur verið á hafður og cr á hafður um skil og varðveizlu skýrslna og gagna, sem nefndir, þing- kjömar eða stjómskipaðar til athugunar á einstökum mál- um og tillögugerða, hafa unn- ið eða aflað? b. Ef svo er, að slíkum skýrsluin og guguum sé tryggð varðveizla, hafa þá þingmenn ótvíræðan aðgang að þeim? ★ III. Til ríkisstjórnarinnar um slysatryggingu sjómanna. Frá Geir Gunnarssyni. Er það ætlun hæstv. ríkis- stjórnar að Ieggja fyrir Al- þingi fmmvarp til laga um sérstaka slysatryggingu sjó- manna á bátum undir 12 tn. að stærð á grundvelli tillagna nefndar þeirrar, sem vann að athugun þessa máls sam- kvæmt þlngsályktunartillögu frá 4. mara 13fi4? -k IV. Til ríkisstjómarinnar um frumvarp til skólakostn- aðarlaga. Frá Ingvari Gísla- syni og Páli Þorsteinssyni- Er ekki að vænta á næst- unni framlagningar fmm- varps til nýrra skólakostnað- arlaga. svo sem forsætisráð- herra boðaði í ræðu á Alþingi 13. okt. s.l.? semi fyrir þúsundir miljóna. Það eru ekki vinir byggða- jafnvægis, sem þannig stjóma. En, eins og ég vék að í Vís- issvari mínu, tel ég það alvar- legast alls í sambandi við er- lenda stóriðju, að allur gróði hennar flæðir jafnharðan úr landi. Alvöru . þess og afleiðingar skilur þjóðin. í því efni hefur hún sárbitra reynslu um aldir að vitna til. Örbirgð íslands og cymd var afleiðing þess, að erlcnd verzlun flutti nálega Haunibal Valdimarsson alla verðmætasköpun þjóðar- innar úr landi. — Brennum okkur ekki á sama soði. Ég undirstrika ennþá einu sinni, að grundvallaratriði stefnunnar í efnahagsmálum verður að vera uppbygging ís- lenzkra atvinnuvega. Sé þar vel og viturlega unnið, munu flcst önnur efnahagsvandamál leysast á tiltölulega auðveld- an hátt. Þá vék ég í svari mínu að sívaxandi þjóðfélagsspillingu. Ástand þeirra mála vekur á- leitnar spurningar. Er ekki réttlæti og festu í réttarfarsmálum þjóðarinnar meira en lítið áfátt? Þolir þjóðin, sérstaklega æskulýður- inn mitt í öllu peningaflóðinu, taumlítið frelsi? Á ekki of- neyzla þjóðarinnar af áfeng- um drykkjum allmikla sök í þessum efnum? Ég verð að játa, að á mig sækir sú hugsun með sívax- andi styrkleika, hvort ekki verði að lögfesta algert áfeng- isbann, ei þjóðin eigí ekki að fara sér að voða, eða allt að því glata sjálfri sér siðferði- lega. Mér cr Ijóst, að þá yrði hrópað hátt um frelsisskerð- ingu. Og víst yrði framkvæmd- in vandasöm. Sjálfsagt yrðu nógu margir til að torvelda hana. Þá get ég ekki dulið, aö ástand liinna íslcnzku atvinnu- vega nú um áramót, veldur mér allþungum áhyggjum. Sanidráttur togaraútgerðar cr staðreynd. Fréttirnar af þingum Landssambands ísl. út- vcgsmanna og Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna lýsa neyð- arástandi, þrátt fyrir undan- gcngið góðæri. Og þá lýsingu staðfestir ríkisstjómin sem rétta, með því, að taka á rík- issjóð þá hækkun bolfisks- verðs, sem hún þó telur út- gerðarmenn og sjómenn verða að fá, ef bátaútvegurinn eigi ekki að stöðvast. Jafn augljóslega blasir við, að fjöldi iðnfyrirtækja er á gjaldþrots barmi. — Sumir iðjuhöldar þegar gjaldþrota, en stórfelldar ráðstafanir gerðar til bjargar í einstökum tilfell- um, eins og t.d. í veiðarfæra- iðnaðinum. Þá vita allir, að landbúnað- urinn byggist á hundraða milj- óna niðurgreiðslum og útflutn- ingsuppbótum. Á þeirri stundu, sem ríkið kippti þar að sér hendinni, yrði allsherjar hrun í sveitum landsins. Og hver er orsök þessa á- stands? Landinu hefur ekki verið stjórnað þannig, að þess- ir grunn-atvinnuvegir þjóðar- innar gætu orðið efnahagslífi hennar traustur grundvöllur. — Verzlunin ein er þar nnd- antekning. Lærðir mcnn liafa elt rhýra- Ijós í efnahagsmálum, en gleymt því, að mestu, sem byffgja verður á. Sannleikurinn er sá, að þrátt fyrir sívaxandi aflauppgrip frá ári til árs, hefði allt verið fyr- ir löngu stöðvað, ef heims- markaðsverð afurðanna hefði ekki farið síhækkandi. Á því einu hefur flotið. Sú stefna í efnahagsmálum, sem fylgt hefur verið, dugar ekki einusinni í góðæri. Enn síður í meðal árferði. Og strax, þegar eitthvað ber útaf, í afla- brögðum eða verðlagsmálum er hún gjaldþrota. Auðvitað er það hin æðis- gengna verðbólgustefna, sem þannig hefur leikið íslenzka atvinnuvegi og brotið niður grundvöll þeirra. Þess vegna kynni nú að verða spurt: Er þá ekki verðstöðvunin orð í tíma talað? Finnst þér ekki tími til kom- inn og raunar sjálfsagt, að spyrna við fótum? Og ég svara hiklaust: Jú, svo sannarlega, og þótt fyrr hefði verið. Öflug og vel undirbúin verð- stöðvun hefði þurft að koma fyrir rúmu ári. Þá hefði sjávarútvegurinn notið verð- hækkana eitt ár eða svo og rétt sig sjálfur af. Stöðvunin nú bjargar honum ekki, og líkist mest iðrun eftir dauð- ann. Ég geri mér Ijóst, að alls- herjar verðstöðvun, eftir lang- varandi dýrtíðarflóð, er alls ekki auðveld í framkvæmd. Ég taldi ríkisstjórnina þurfa miklu ákveðnari og ítarlegri löggjöf tií verðstöðvunar en þá laus- legu heimildarlöggjöf, sem hún aflaði sér. En allar tillögur Al- þýðubandalagsins í þá átt, ncma ein, voru felldar. Nú þegar virðist mér því miður, að verðstöðvunin ætli að mestu að reynnst sýndar- ráðstöfun. Bf Tryggingastofnun ríkisins tekur t.d. á sig auknar bóta- greiðslur miðað við seinasta ár, en verður svo vegna stöðv- unarinnar að ganga á sjóði sína, segjum um 50 miljónir. Fari hinsvegar svo, að Trygg- ingastofnunin verði árið eftir að bæta sér þennan halla með 100 miljóna innheimtu af al- menningi sjá allir, að vandinn hefur ekki verið leystur, — honum aðeins ckið á undan sér, frestað um eins árs skeið. En svo kemur hann jafnvel af tvöföldum þunga á eftir. Sama cr að scgja um þær niður- greiðslur, sem ríkið rís undir með tekjuafgangi sínum frá árinu 1966 eitthvað fram á kosningaárið, cn verður síðan að bera uppi með nýjum byrð- urn á skattþegnana. Þar hefur enginn dýrtíðarvandi verið leystur. Honum aðeins verið bægt frá í bili, verij frestað fram yfir kosnimgar. Þetta mun þjóðin áreiðan- lega skilja. Hér dugar ekkert smáfikt til að koma í veg fyr- ir, að vísitalan hækki á papp- ímum. Ef undiralda verðbólgu og dýrtíðar á að hægja á sér eða stöðvast, dugar ekkert minna en gjörbreytt stefna í atvinnu- málum, viðskiptamálum, efna- hagsmálum, peningamálum og vaxtapólitík m.a., en slíkrar stefnubreytingar hefur því miður ekki orðið vart ennþá. Þess vegna er ég næsta von- daufur um, að verðstöðvunar- gerðir rikisstjómarinnar fái varanlegt gildi. Og það ber að harma. ★ Svo mikið er víst, að þeirra vandi verður ærinn, sem þjóð- arskútunni skulu stýra eftir kosningar. Stjómarstefnu framleiðslu- atvinnuveganna ve.rður a® móta. Aðalvandamálið verður það, að leysa eða höggva á þann hnút, sem málefni ís- lenzkra atvinnuvega em kom- in í. Takmarkið hlýtur að verða það, að ísland verði samstíga helztu viðskiptaþjóðum sínum í dýrtíðarmálum, en bmni þar ekki fram úr öllum öðrum á sjö milna skóm, eins og að undanförnu. Það er svo íslenzkra kjós- enda að ákveða hverjum þenn- an vanda skuli fela. En ekki sýnist undarlegt, þótt launastéttimar og megin aðilar atvinnuveganna, svo sem sjómenn, útgerðarmenn, bænd- ur og iðnaðarmenn yrðu fram- arlega í för við mótun nýrrar stjómarstefnu. Alla þessa aðila og raunar marga fleiri, hefur verðbólgu- og dýrtíðarstefnan leikið grátt — svo grátt, að ólíklegt er, að þá fýsi að framlengja hana næstu 4 ár. Þó kunna þeir að vera til, sem segja sem svo: Núverandi stjórnarflokkar hafa skapað þann þjóðarvanda, sem við er Ég befi í framanrituðu gert grein fyrir nokkrum grund- vallarsjónarmiðum' Alþýðu- bandalagsins gagnvart viðkom- andi vandamálum líðandi stundar. Við, alþýðubandalags- menn, játum, ag vandinn er mikill. En við leitum trausts kjósenda, eins og allir aðrir flokkar, og munum undan engri þeirri ábyrgð skorast, sem kjósendur kunna að leggja okkur á herðar á komandi vori. Ég óska þess, að árið 1967 verði landi og þjóð gott og farsælt ár. Hannibal Valdimarsson. (Grein þessi birtist í síðasta tölubl. Vestfirðings, blaði Al- þýðubandalagsins á Vestfjörð- um). Tekst að bæta sambúð ríkis og kirkju í Pollandi? VARSJÁ 15/2 — Agostino Gasa- roli, sérfræðingur páfastóls í A-Evrópumálefnum, er kominn til Póllands til viðræðna við íulltrúa ríkis og kirkju um möguleika á að binda enda á deflur kirkjuhöfðingja og yfir- valda í landinu. Átti hann í dag fund með sextíu biskupum um þessi mál og var Wyszynski kardínáli, æðsti maður pólsku kirkjunnar, viðstaddur. • Fyrsta heftí HEILSUVERND- AR 1967 er nýkomið út. Efni; Jónas Kristjánsson: Ljóslækn- ingar. Gísli V. Vagnsson: 1 Lo- urdes. Offita styttir lífið. Bjöm L. Jónsson: Megrunarfæði — Verkaskiptingin á heimilmtt. Amheiður Jónsdóttir og Ámi Ásbjamarson: Grétar Folils sjötugur. Hárúðunarlyf sem i skctrdýraeitur. Urvínnsla þjónustu- könnunar senn hufín Þátttaka í þjónustukönnun Neytendasamtakanna hefur ver- ið góð, og mun betri en ýms- ir höfðu spáð. Hefur hún þeg- ar náð því marki, sem stjóm samtakanna setti um lágmarK, til jjess að hægt væri að birta niðurstöður könnunarinnar. Néytondasamtökin í Bandaríkj- unum hafa í áratugi haft hlið- stæöar kannanir árlega, oghafa svörin orðið flest um 10% af úlsendum eyðublöðum. Það var sett sem lágmark hér, og hef- ur það einmitt náðst Fleiri svör mjög æskileg. " Þrátt fyrir það eru það ein- dregin tilmæli Neytendasam- takanna til allra þeirra, sem Neytendablaðið hafa meðhönd- um, að þeir sendi svör sín hið allra fyrsta, svo að þau nái að styrkja og breikka enn þann grundvöll, sem niðurstöðurnar verða byggöar á. Vegna fá- mcnnis þjóðarinnar, en þó fjöl- breytni heimilistækja, er brýn nauðsyn, að svörin verði sem ílcst að 1 lu. Neytendasamtök- in íslenzku eru margfaldlega hin fjölmennustu í heimi miðaðvið fólksfjölda, en uni leið hin fá- mennustu að höfðatölu. Fulltrúar á síðasta þingi Al- þýðusambandsins og kennarar um ailt land, sem blaðið var sérstddega serrt til, eru ein- éregið hvattir til að leggja þessu hagsmunamáli alþjóðar lið með þátttöku sinni, en til- gangur þjónustukönnunarinnar er sá einn að stuðla að bættri þjónustu og auknu öryggi til handa neytendum, og f þessu tilfelli sérstaklega þeim, sem kaupa og nota heimilistæki, sem ætlað er að gegna mikil- vægu hlutverki um langt ára- bil á hverju heimili. Þeir sem ekki hafa fengið Neytendablaðið, en gerast fé- lagsmenn næstu daga, fá það sent um hæl í pósti og cætu þá tekið þátt í könnuninni. Inn- ritunarsímar Neytendasamtak- anna eru 1-97-22 og 21-666. Af hverju þessi timi var valinn. Rétt þykir nú að skýra frá því, af hverju annatíminn fyr- ir jólin var valinn. Það þótti ýmsum óhyggilegt með tilliti t:l þátttöku. Ástæðan var sú. að könnuninni var ætlað að hafa áhrif þegar í upphafi með bví að' fara fram einmitt á þeim tíma, sem flest kaup eru gerð á þessum hlutum. Þess vegna var minnt á þjónustukönnunina með auglýsingum f útvarpi og á annan hátt nær daglega all- an nóvember og fram að jól- um. En það sem munað hefur í þátttöku vegna jólaanna, er nú hægt að bæta upp næstu viku. (Frá NeWendasamtökunum).

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.