Þjóðviljinn - 17.02.1967, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 17.02.1967, Blaðsíða 10
Framvarp flutt u m utanríkismála- nefnd og sendinef nd íslands hjá SÞ Flutningsmenn þrír þingmenn Alþýðubandalagsins AlhÍTlírífi. havli anna. ácamf rnlrcfiirliln^ írrnínai*. hirHri Allhinrfio Ac Þrír þingmenn Alþýðubanda- lagsins, Einar Olgeirsson, Ragn- ar Arnalds og Lúðvik Jósepsson flytja á Alþingi frumvarp um breyting á Iögum um utanríkis- ráðuneyti fslands og fulltrúa þess erlendis. Frumvarpið er tvær greinar, svohljóðandi: Á eftir 1. gr. laganna komi ný grein, sem orðist svo: Um allar meiri háttar ákvarð- anir i utanrikismálum skaí ráðu- neytið hafa samráð við utan- ríkismálanefnd Alþingis, bæði meðan Alþingi er að störfum og milli þinga. Sendinefnd Islands á Allsherj- arþingi Sameinuðu þjóðanna er skipuð af ráðherra til eins árs í senn, og skulu þingflokkarnir hafa rétt til að tilnefna einn fulltrúa hver í nefndina- Arlega skal ráðherra gefa Al- þingi skýrslu um viðhorf ríkis- stjórnarinnar til utanríkismála og um störf islenzku sendinefnd- arinnar á þingi Sameinuðu þjóð- Fjáröfíunardagur kvennadeilda SVFÍ A sunnudaginn er fjáröflun- ardagur kvennadeilda Slysa- varnafélagsins og gengst kvenna- deild SVFÍ í Reykjavík þá fyr- ir merkjasölu í horginni til efl- ingar og styrktar slysavarna- starfsemlnni í landinu. — Verða merkin afhent frá kl. 10 á sunnudaginn í barnaskólunum, Sjómannaskólanum og húsi Slysavarnafélagsins við Granda- garð. Kvennadeild Slysavarnafélags- ins í Reykjavík er 37 ára og hefur haft merkjasölu á Góu- deginum í 35 ár.\ Allur ágóði af merkjasölunni rennur til kaupa á tækjum fyrir félags- deildirnar. Á fundi sem stjórn kvennadeildarinnar hélt með blaðamönnum í gser var þess getið að 4 ný heiðaskýli yrðu Eldvotnsbruin hrunin í óna 1 JÖKULHLAUPI í haust „rðu miklar skemmdir á tveim stöplum stálbitabrúarinnar yf- ir Eldvatn hjá Ásum. Annar stöpullinn hrundi alveg og nú fyrir skömmu hrundi hinn lika. þannig að tveir af fimm stöplum brúarinnar eru hrundir. Brúargólfið er nú dottið niður i miðju. ÁRNI PÁLSSON verkfræðingur hjá Vegagerðinni tjáði Þjóð- viljanum, að ekki væri hægt að meta tjónið að svo stöddu, en að sjálfsögðu væri það mikið. Hafizt verður handa um viðgerð á brúnni i sum- ar, en á meðan er allri um- ferð beint um brú, sem er ofar á ánni. Eru þeir, sem leið eiga austur beðnir að hafa þetta í huga. sett upp á næsta ári og yrðu þau búin ýmsum tækjum sem kvennadeildin í Rvík hefði átt mikinn þátt í að afla. Við sama tækifæri mættu tveir fulltrúar fyrir Tómstunda- félag Hamrafells. þeir Kjartan Kjartansson og Óskar Einars- son. og afhentu Slysavarnafé- íaginu gjöf frá félaginu: spari- sjóðsbók með 8.500,00 kr., kvik- myndavél og segulbandstæki. Sagði Kjartan að félag þetta hefði verið stofnað rétt eftir að Hamrafellið var keypt af SÍS 1956 og starfað þar til skipið var selt fyrir nokkru. Það kom einnig fram á fund- inum að Slysavarnafélagið og Landhelgisgæzlan hefðu í hyggju að kaupa stærri þyrlu, en þess- ir tveir aðilar eiga nú i ram- einingu. Væri hugmyndin að byggja skýli á Egilsstöðurti þar eð mikil þörf væri fyrir þyrlu á Austfjörðum Sem fyrr segir verður merkja- sala kvennadeildarinnar á sunnu- daginn og styrkja allir þeir sem kaupa merki gott málefni, öllu því fé sem inn kemur verður vel varið. — Kaffisala kvenna- deildarinnar verður væntanlega 12. marz n.k. að Hótel Sögu. Sömu konurnar hafa árum saman farið með stjórn kvenna- deildarinnar í Reykjavík og verður þéirra mikla og fórnfúsa starf seint að fullu metið. Á síðasta aðalfundi' var stjórn deildarinnar öll endurkjörin en hana skipa eftirfarandi konur: Gróa Pétursdóttir, formaður, Hlíf Helgadóttir, gjaldkeri, Hulda Viktorsdóttir, ritari, Ingibjörg Pétursdóttir, varaformaður, Sig- ríður Einarsdóttir, varagjald- keri, Guðrún Ólafsdóttir, Guðrún Magnúsdóttir, Þórhildur Ólafs- dóttir og Steinunn Guðmunds- •dóttir meðstjómendur. anna, ásamt rökstuddri greinar- gerð um afstöðu Islands til ein- stakra mála á þinginu, 2. gr. Þegar lög þessi hafa hlóti’ð staðfestingu, skal fella meginmál þeirra inn í lög nr. 31 27. júní 1941 og gefa þau út með fyrir- sögninni: Lög um meðferð ís- lenzkra utanríkismála. í greinargerð segir: Sérhver ákvörðun í utanríkis- málum snertir þjóðina alla; þegar Island á skipti við annað ríki eða þegar atkvæði íslands er beitt á alþjóðavettvangi. er mikið í húfi fyrir þjóðarheildina- Það er því höfuðnauðsyn, að landsmenn allir fylgist sem bezt með þeim ákvörðunum, sem teknar eru í utanríkismálum. Frumskilyrði þess er, að kjömir fulltrúar þjóðarinnar á ATþingi eigi þess kost að taka þátt í mótun utanríkisstefnunnar með því að ræða og bera saman hin ýmsu sjónarmið, sem taka verð- ur tillit til. Með þessu frumvarpi er einmitt stefnt að því að auka samstarf og samráð milli ríkis- stjórnar og Alþingis um stefn- una í utanríkismálum. I fyrsta lagi er hér áréttað lagaboð, sem nú er í þingsköp- um . Alþingis: ,,UtanríkismáTa- nefnd starfar einnig miiii þinga, og skal ráðuneytið ávalTt bera undir hana utanríkismál, sem fyrir koma milli þinga“. Þetta skýlausa lagaákvæði í 16. grein þingskapa hefur verið þverbrotið hvað eftir annað á undanförnum árum, án þess að á því hafi ver- ið gefin nokkur viðhlítamdi eða háldbær skýring. Er mál til kom- ið, að linni nú þessum lögbrot- um- Ákvæði þetta hefur almennt verið skilið svo, að ríkisstjórn- inni bæri ekki aðeins skylda til að bera undir utanríkismála- nefnd þá samninga, sem sam- Dökkklædiur á öfugum kanti Um sjöleytið í gærkvöld varð rpaður fyrir bifreið á Digranes- vegi í Kópavogi. Marðist hann talsvert, en var ekki talinn alvarlega meiddur. Telur Kópa- vogslögreglan ástæðu til að vekja athygli á því, að slys þetta orsakaðist fyrst og fremst af því að maðurinn gekk öfugu megin á götunni, þ.e. í • sömu átt og umferðin, en þarna er engin gangstétt, og einnig af því að hann var dökkklæddur og bar hvorki endurskinsmerki né annað er vekja mætti athygli ökumanna. ins þybki Alþingis er áskibð til, heldur og sérhver meiri háttar utanríkismál. I frumvarpinu er tekið skýrt fram, að þessi skylda hvíli á ríkisstjóminni bæði milli þinga og meðan þing situr. í öðru lagi er lagt hér til, að hver stjómmálaflokkur á Alþingi eigi rétt til að tilnefna einn full- trúa i sendinefnd Islands á Alls- herjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Sendinefndin er nú skipuð af ráðherra án samráðs við aðra að- ila. Framhald á 3. síðu. Þing verzlunar- mannasambands- ins seit í kvöld 60 fulltrúar frá 20 sambands- félögum víðsvegar um landið sækja 6. þing Landssambands íslenzkra verzlunarmanna, sem sett verður í húsi SVFl á Gfandagafði í kvöld. Formaður • LlV, Sverrir Her- mannsson, setur þingið, en síðan verða kjömir starfsmenn þings- ins og nefndir og flutt skýrsia sambandsstjómar. Gert er ráð fyrir að þinginu ljúki á sunnudagskvöldið. Föstudagur 17. febrúar 1967 — 32. árgangur — 40. tölublað. MALFUNDOR SÓSIALISTA UPPELDIS- OG FRÆÐSLUMÁL Málfundur sósíal- ista verður í Tjam- arbúð uppi næst- komandi laugardag kl. 3 síðdegis. — Frummælandi: Sig- urjón Björnsson. Fjárhagsáætlun ísafjardar samþykkt: Útsvör áætluð 17.5 milj. kr: ÍSAFIRÐl 16/2 — A bæjar- stjórnarfundi í gær var sam- þykkt fjárhagsáætlun fyrir ísa- fjarðarkaupstað árið 1967 og eru niðurstöðutölur hennar 25 miljónir 832 þúsund krónur. Helztu gjaldaliðir eru þessir: Félagsmál 7,2 milj. kr., til nýrra framkvæmda svo sem bygginga 5 milj. kr., gatna- og holræsa- gerð 4 milj. kr„ fræðslumál 2 milj. kr„ stjórn kaupstaðarins 1,8 milj. kr„ til lista, íþrótta og útiveru 1.5 milj. kr. og heil- brigðis- og hreinlætismál 1,5 milj. kr. Helzti tekjuliðurinn eru útsvörin en þau eru áætluð 17 miljónir 548 þúsund krónur en álögð útsvör á síðasta ári voru 15.211.298 kr. ÆFR ★ Umræðuhópur ÆFR um Verkalýðsmál heldur áfram á föstudagskvöld klukkan 9. ★ Viðfangsefni: Kjararannsókn- arnefnd; Björn Jónsson álþingis- maður mætir og reifar málið- Af framkvæmdum sem fé er áætlað til má nefna 1.5 milj. kr. til barnaskólabyggingar og milli 4 og 5 milj. til íbúðábygginga. Er þar bæði um að ræða beint framlag bæjarins svo og 1.8 milj. kr. framlag í Byggingarlánasjóð. Á fundinum voru einnig sam- þykktar ýmsar tillögur og álykt- anir. Til dæmis samþykkti bæj- arstjórnin að skora á ríkisstjórn- ina að auka framlag til bygg- ingar menntaskóla á ísafirði. að ráða rektor að skólanum og hefjast handa um bygginga- framkvæmdir. Þá samþykkti bæjarstjórnin áskorun til stjórnarvaldanna Varðandi iðnfræðslu og 'áskor- un til landlæknis og heilbrigðis- málaráðherra um að koma á fót læknamiðstöð fyrir ísafjörð og Súðavík. Ennfremur ítrekaði bæjarstjórnin áskorun sína til stjórnarvalda og alþingis um að elliheimili fái jafnan bygging- arstyrk og sjúkrahús. Loks samþykkti bæjarstjórn- in að skora á þingmenn og þá FIAT-verkstæði / tekur til starfa Hér hafa verið staddir að undanförnu tveir Italir og að- stoðað Fíatumboðið á lslandi, Davíð Slgurðsson h.f. við að koma upp verkstæði fyrir Fíat- bfla. Fréttamönnum var sýnt verk- stæðið í gær. Þar komast fyrír 8 bílar í einu og verða eingöngu Fíatbílar J:eknir til viðgerðar, enda ekki verkfæri til annars. öllu er mjög haganlega fyrir- komið á verkstæðinu og öll verk- færi sérhæfð til viðgerðar á hin- um einstöku gerðum Fíatbíla. Verkstæðið er allt skipulagt eftir kerfi, sem Fíat hefur komið upp víða um heim og gefizt mjog veL Mikið er lagt upp úr hreinlæti. Þannig mun enginn óþveginn bíll fara inn á þetta verkstæði. Sá sem hefur skipulagt verk- stæðið og þá þjónustu, sem þar verður veitt, er hr. Neirotti, sem nú er yfirmaður Norðuríanda- deildar Fíat, en á að baki 25 ára starfsferil hjá verksmiðjunum. Hinn Italinn, hr. Busatta, er sér- fræðingur í viðgerðum á Fíatbíl- um og mun dveljast hér í ár, til að þjálfa starfsmennma. Árs áþyrgð er á öllum Fíat- bílum, og verður fylgzt með þeim allan þann tímsr. Eigendumir fá að vita hvenær þeir eiga p5 Framhald á 3. síðu. sérstaklega þingmenn Vestfjarða- kjördæmis að samþykkja frum- varp Hannibals Valdimarssonar um verklræðiskrifstofu á Vest- fjörðum og að mæla með frum- varpi Framsóknarmanna um verkfræðiaðstoð utan Reykja- vikur. Taldi bæjarstjómin æskilegast að þessi tvö frum- vörp yrðu samræmd eða sam- einuð. — HÓ. BARN DRUKKNAR í fyrradag féll tveggja ára gamall drengur í tjörn á Vatns- leysuströnd og beið bana. Móðir barnsins fann það i tjörninni, sem hafði myndazt þarna vegna leysinga. Barnið var flutt á bamadeild Landspítalans og lífg- unartilraunum stöðugt haldið á- fram, en án árangurs. Barnið lézt á sjúkrahúsinu í fyrradag. Italirnir Busatta og Neirotti viö eitt af tækjiun verkstæöisins. AlþýðubandalagiS í Kópavogi heldur fræðsliifund ★ Alþýðubandalagid í Kópa- 1 vogi gengst fyrir fræðslu- fundi n.k. sunnudag og verður hann haldinn í Þinghól og hefst klukkan tvö e. h. ★ Loftur Guttormsson sagn- fræðingur flytur erindi sem hann nefnir: Verkalýðs- hreyfingin og baráttan fyr- ir sósíalisma- ★ Mönnum sem hyggjast koma á fundinn skal bent á grein Lofts í Tímariti Máls og menningar, 4- h. 1966: Verkalýðshreyfingin í Vestur-Evrópu andspænis nýkapítalismanum, svo og á kafla úr bók André Gorz: Stjórnlist verkalýðs- hreyfíngarinnar og ný- kapítalismi, sem birtist í RÉTTI, 4. hefti 1966

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.