Þjóðviljinn - 17.02.1967, Side 6
g SÍBA — ÞJÓBVTLJÖíN — Föstadagur VL febróar V3&1.
• Munið eftir endurskinsmerkjunum!
Börn bnin glitmerkjum eru í minni hættu í myrkurumferðinni en ún þeirra.
Mynd úr bæklingi VÁV-samtakanna um akstur bifreiða í myrkri
og slæmu skyggni.
Samtökin Varúð á vegum
haía sent frá sér eftirfarandi:
Skilningur flestra hér á landi
hefur vaxið og menn hafa sann-
færzt um gildi endurskins-
merkja til að auðkenna sigmeð
í myrkurumferðinni.
Samtðkin um umferðarslysa-
vamir, keyptu til landsins s. 3.
haust 52 þúsund endurskins-
merki til dreifingar til bama
og aldraðs fólks, en fyrir nokkru
voru öll þau merki uppurin.
Að útgjöldum þessum stóðu
Slysavamafélagið, tryggingarfé-
lögin og Reykjavíkurborg.
Auðvelt hefur verið aðdreifa
merkjunum til skólabama,
vegna mjög ánægjulegs skiln-
ins og samstarfs við skóilastjóra
og kennara allra skóla lands-
ins. Hafa mörg ánægjuleg bréf
borizt frá forráðamönnum skól-
anna, með þakklæti fyrir fram-
lagið.
Það er staðreynd, hve gang-
andi vegfarandi sést betur í
ljósum ökutækjanna, ef hann
ber endurskinsmerkí og það er
staðsett á sem heppilegustum
stað til að Ijósin nái að skína
á það. Hliðargeislar ökuljós-
anna ná mjög langt til hliðar
til að valda endurskini af
merkinu.
Segja má með vissu, að þótt
dökkklæddur maður sjáistekki
fyrr en innan við 30 metra frá
ökutækinu. ef ekið er með lág-
ljósum, þá má vel greina við
sömu aðstæður, endurskins-
merki á dökkklæddum manni í
allt að 150 metra fjarlægð.
Utan þeirra . endurskins-
merkja, sem afhent voru börn-
um og öldruðu fólki hafa verið
til sölu endurskinsmerki á veg-
um samtakanna. Það er heild-
verzlun Eggerts Kristjánssonar
& Co, sem hefur selt merkin
án álagningar og dreift þeim í
verzlanir.
Það hafa þvi miður verið
Kaupið
Minningarkort
Slysavamafélags
tslands
Halldór Kristinsson
gullsmiður. Óðinsgötu 4
Síml 16979.
—,----—-----------------?
HÖGNI JÓNSSON
Lögfræði- og fasteignastofa
Skólavörðustig 16.
Sími 13036,
heima 17739.
SMURT BRAUÐ
SNTTTUR — ÖL — GOS
OG SÆLGÆTl
Opið frá 9—23,30. — Pantið
tímanlega i veizlur.
BRAUÐSTOFAN
Vesturgötu 25. Sími 16012.
heldur lélegar undirtektir hjá
kaupmönnum, varðandi það að
hafa endurskinsmerkin til sölu í
verzlunum sínum. Þó hafa
nokkrir aðilar sýnt góðan skiln-
ing á nauðsyn þeirra og meðal
annars hefur ein verzlun, Jóns-
val, Blönduhlíð, selt merkin á
kostnaðarverði.
Sérstaklega einn þáttur þess-
arar herferðar um notkun end-
urskinsmerkja nær ekki nægi-
lega tilgangi sínum, en það er
að koma merkjunum til aldr-
aða fólksins og aðstandenda
þeirra, sem komnir eru til óra,
en hafa fótavist og eru úti við
þegar rökkva tekur, að afla
þeim endurskinsmerkja.
Með því að hringja, skrifa
eða koma á skrifstofu Slysa-
vamafélagsins, gettir viðkom-
andi fengið send endurskins-
merki.
Samtökin skora að lokum á
allt hugsandi fólk, að stuðla að
notkun endurskinsmerkja fyrir
vegfarendur á öllum aldri.
• Skrúfudagur
Vélskólans
• Laugardaginn 18. febrúar,
belrtur Vélskólinn tyllidag sinn,
Skrúfudagrinn, hátíftlegan.
Merki Vélskólans er skips-
skrúfa og skýrir þaft nafn
dagsins.
Oagur þessi er nemendamóts-
dagur skólans og kynningar-
dagur út á vift.
Nemendur eldri og yngri
koma saman, hitta gamla
skólafélaga, rifja upp endur-
minningar frá skólaverunni og
kynnast skóiastarfinu eins og
! það er á hverjum tíma.
Skólinn telur sér mikils virði
að halda tengslum við fyrri
nemendur og álítur það vera til
gagns og ánægju báðum aðil-
m
Almenningi gefst eirmig kost-
ur á að kynnast starfsemi skól-
ans og er þess vænzt, að sem
flestír komi og kynnist skólan-
um.
Kl. 14.00-15.00 veröur fundur
í hátíðasal Sjómannaskólans.
Þar verða flutt ávörp og af-
hentar heiðursgjafir. Önnur
þeirra er steypt málmskrúfa á
fæti, sem nemendur aflienda
einum kennara í viðurkenning-
ai-skyni, en hin er silfurbikar,
sem kennarar afhenda nem-
anda í sama tiilgangi.
Kl. 16.00 verður starfsemi
skólans kynnt. Þá verða nem-
endur að störfum í vélasölum
og rannsóknarstofu.
öll tæki verða starfrækt af
nemendum sjálfum og munu
þeir veita allar skýringar og
upplýsingar sem gestrr kunna
að óska.
Veitingar verða framreiddar í
veitingasal skólans frá kl.
15.30 og .geta gestir fengið sér
þar kaffisopa í kunningjahóp.
Það er von allra, sem að
þessum degi standa, að vél-
stjórar, eldri og yngri svo og
aðrir velunnarar skólans fjöl-
menni til þessa nemendamóts
og kynningardags, svo að hann
verði öllum aðilum til gagns og
ánægju.
Að Skrúfudeginum standa
Vélskóli Islands og Vélstjórafé-
lag Islands, sem styrkir hann
með fjárframlögum.
(Skrúfuráð).
• Bréfaskipti
• 21 árs gamall þýzkur stúd-
ent hefur sent blaðinu línu og
vill komast í bréfasamband við
unga íslendinga, stúlkur eða
pilta. Nafn hans og heimilis-
fang:
Reinfried Peterhánsel,
6551 Schondorf-Schlelz
D.D.R.
• Styrkur til
námsdvalar
í Svíþjóð
Samkvæmt tilkynningu frá
sænska sendiráðinu í Reykja-
vfk, hafa sænsk stjómarvöld á-
kveðið að veita Islendingi styrk
til náms í Svíþjóð skólaárið
1967-68. Styrkurinn miðast við
8 mánaða námsdvöl og nemur
6.400 sænskum krónum, þ.e. 800
krónum ó mánuði. Ef styrkþegi
stundar nám sitt í Stokkhólmi,
getur hann fengið sérstaka
staðarupþbót á styrkinn. Fyrir
styrkþega, sem lokið hefur
æðra háskólaprófi og leggur
stund á rannsóknir, getur
styrkurinn numið 150 krónum
til viðbótar á mánuði.
Til greina kemur að skipta
styrknum milli tveggja um-
sækjenda, ef henta þykir.
Umsóknir sendist mennta-
málaráðuneytinu. Stjómarráðs-
húsinu við Lækjartorg, fyr-
ir L apríl n.k., og fylgi stað-
fest afrit prófskírteina ásamt
meðmælum. Umsóknareyðublöð
fást í menntamálaráðuneytinu.
(Frá menntamálaráðu-
neytinu).
• Skálatúns-
heimilið
• Barnaheimilinu að Skálatúni
berast stórar og góðar gjafir.
„Vinahjálp" hefur afhent
stjórn Skálatúnsbeimilisins eitt
hundrað og fimmtíu þúsund
krónur og Kvennadeild Styrkt-
arfélags vangefinna hefur af-
hent barnaheimilisstjórninni
tvö hundruð þúsund krónur.
Bæði þessi félagasamtök
hafa áður fært stofnuninni stór-
ar gjafir.
Barnaheimilisstjórnin færir
þessum konum öllum sem að
þessum félögum standa alúð-
arfyllstu þakkir. Þetta er
stofnuninni ómetanlegur styrk-
ur, ekki sízt nú þegar verið
er að taka í notkun nýtt og
vandað vistheimili fyrir veikl-
uðu börnin, að Skálatúni. Það
hefur að sjálfsögðu í för með
sér mikil útgjöld og má gera
ráð fyrir að margir verðí til
að leggja þessu málefni lið.
21,30 Lesfcur Passíusálma (23).
21,40 Víðsjá.
22,00 Kvöldsagan: „Litbrigði
jarðarirmar", eftir Ölaf Jóh.
Sigurðsson. Höf. les.
22,20 Sinfónía nr. 8 eftir G.
Mahler. Einsöngvarar, Fíl-
harmoníski kórinn og hljóm-
súeitin í Rotterdam flytja; E.
Flipse stjórnar.
22.45 Fréttir í stuttu máli
og Dagskrárlok.
• Margrét tekirr
við hlutverkinu
á ný
Sjónvarpið
•Föstudágur 17. fehrúax 1967.
20,00 Fréttir.
20,30 Á öndverðum meiði.
Kappræðuþáttur í umsjá
Gunnars G. Schram. Magnús
Kjartansson, ritstjóri og séra
Sigurður Pálsson vígslubiskup
verða á öndverðum meiði um
stöðu kirkjunnar í þjóðfélag-
inu.
20.55 Skemmtiþáttur Lucy Ball
— Islenzkan texta gerði Ósk-
ar Ingimarsson.
21.20 I tónum og tali. — 1 um-
sjá Þorkels Sigurbjörnssonar.
í þessum þáttum tekur Þor-
kell til meðferðar þekkt og
óþekkt verk íslenzkna tón-
skálda með aðstoð söng-
flokks.
Að þessu sinni tekur Þorkell
fyrir þá Sveinbjörn Svein-
björnsson og Ey-
þór Stefánsson frá Sauðár-
króki, og eru með honum 12
söngmenn. Einsöngvari er
Kristinn Hallsson.
21.35 Dýrlingurirm. RogerMoore
í hlutverki Simon Templar.
Islenzkan texta gerði Berg-
ur Guðnason.
22.20 Dagskrárlok,
• Margrét Guðmundsdóttir varð
íyrir því óhappi að slasast á
fæti á sýningu í Þjóðleikhús-
inu fyrir nokkru, og tók þá
Sigríður Þorvaildsdóttir við hlut-
verki hennar í lefkritinu
„Galdrakarlinn frá Oz“. Nú
hefur Margrét náð sér að fullu
aftur og tekur hún aftur við
hlutverki sínu f Galdrakarlin-
um n.k. sunnudag. Leikurinn
hefur nú verið sýndur 10 sinn-
um og ávallt fyrir fullu húsi.
— Myndin er af Margréti í hlut-
verki sínu í bamaleiknum.
• Föstudagur 17. febrúar.
13,15 Lesin dagskrá næstu viku.
14.40 Edda Kvaran les söguna
„Fortíðin gengur aftur“.
15.00 Miðdegisútvarp: I-Iarmon-
iku-Harry, S. Barrabas, R.
Shock, M. Greger og hljóm-
sveit hans syngja og leika.
16,00 Síðdegisútvarp: Karlakór-
inn Geysir syngur. Tékkneska
fílharmonrusveitin leikur
Gapriccio Italienne op. 45 eft-
ir Tjaikovský; K. Sejna stj.
L. Schiitzendorf syngur ariu
eftir Rossini. Z. Francescalti
og Fílharmonfusveitin í New
York leika Fiðlukonsert op.
64 eftir Mendelssohn; Mitro-
jxiuilos stjómar. W. Kempff
leikur bagatellu í a-moll eft-
ir Beethoven.
17,05 Miðaftanstónleikar.
a) „Háry János“, hljómsveit-
arsvíta eftir Z. Kodály. b)
„Myndir frá Ungverjalandi"
eftir B. Bartók og Rúmenskir
þjóðdansar í hljómsveitarbún-
ingi hans. Sinfóniuhljómsveit-
in í Minneapolis lcikur öll
tónverkin; A. Dorati stj.
17.40 Útvarpssaga barnanna:
„Mannsefnið“ eftir Ragnvald
Waage. Snorri Sigfússon les.
19,30 Kvöildvaka: a) Lesturforn-
rita: Hrólfs saga Gautreks-
sonar. Andrés Bjömsson les.
b) Þjóðhættir og þjóðsögur.
Ámi Bjömsson cand. mag.
talar um merkisdaga um árs-
ins hring.
c) Jóp Ásgeirsson kynnir ís-
lenzk þjóðlög með aðstoð
söngfól&s.
d) Fjalla-E.windur. Guðjón
Guðjónsson flytur frásöguþátt
eftir Helga Haraldsson á
Hrafnkelsstöðum.
e) Snæfellskar lausavísur.
Oddfríðirr Sæmundsd. flytrrr.
POLARPANE
.O
£^tpoLar
e,na”9runQrg£E
falt
falt
SQBnslc
9œdavQra
EINKAUMBOD
f
MARS TRADHMG
LAUGAVEG 103 SIMi 17373
Almennur /ífeyris-
sjóBur iðnaðarmanna
Umsóknir um lán úr sjóðnum skulu hafa
borizí; sjóðsstjóminni fyrir 1. marz n.k.
Umsóknareyðublöð og lánareglur má fá á
skrifstofu Landssambands iðnaðarmanna,
Iðnaðarbankahúsinu 4. hæð, skrifs'tofu Iðn-
aðarmannafélagsins í Hafnarfirði, Linnet-
stíg 9, Hafnarfirði og skrifstofu Iðnaðar-
mannafélags Suðurnesja, Hafnargötu 26,
Keflavík.
Stjóm Almenns lífeyrissjóðs
iðnaðarmanna.