Þjóðviljinn - 01.04.1967, Síða 6

Þjóðviljinn - 01.04.1967, Síða 6
0 SIÐA — ?>JÖÐVILiJINN — Laugardagur 1. apríl 1967 □ Hér á síðunni eru nokkrar myndir írá fram- kvæmdum við Búrfellsvirkjun en hún er sem kunnugt er mesta mannvirki, sem ráðizt hefur verið í hérlendis. Þar er verið að byggja orkuver, sem á að afkasta 210.000 kílóvöttum. Myndirn- ar tók einn starfsmaðurinn þar eystra, en við snér- um okkur til Árna Snævarrs verkfræðings, fram- kvæmdastjóra Almenna byggingarfélagsins og báðum hann að segja okkur stuttlega frá fram- kvæmdum í vetur. Framkvæmdir við Búrfell hafa gengið erfiðlega í vetur vegna veðurfarsins Myndin cr tckin I stöðvarhússgrunninum og sést op jarðganganna til vinstri. Stærðarhlutföllin má marka af vélskóflunni til hægri og mönnunum tveimur sem standa til vinstri á myndinni skáhallt ncðan við opið. I Elías og Benedikt ýtustjórar og Denni og Siguröur „scraper" menn við Búrfell. Séð úr grjótnáminu ofan yfir aðra skálaþyrpinguna. Þarna eru stórvirkar vinnuvélar að brjóta sér leið gegnum haftið niður í Þjórsá. □ Árni sagði að ótíðin hefði sett svip sinn á verkið og gert mönnum erfitt fyrir. Lokið er við að sprengja fyrir stöðvarhússgrunninum og farið að steypa í botninn á honum. Þá hefur einnig verið unnið að þrennum jarðgöngum, bæði aðal- göngunum upp í Sámsstaðamála og tvennum göngum úr grunninum inn í fjallið. □ Uppi á fjallinu við Þjórsá hefur verið unnið að greftri á stórum aðveituskurði og auk þess er búið að gera varnarstíflu út í Þjórsá þar sem byggja á inntakið og fyrsta hluta stíflunnar í ánni. □ Óhætt er að segja að hin ótrygga veðrátta hafi valdið verktökunum erfiðleikum og töfum. Ekki hefur verið mjög snjóþungt, en blásið hart og napurt. Nú er vonazt eftir því, að veður fari að batna og verkið að ganga betur. □ Aðalbækistöðvar verktakanna þar eystra eru fyrir neðan Sámsstaðamúlann rétt þar hjá, sem eyðibýlið Sámsstaðir stóðu að fornu, en þá tók af í Heklugosinu 1104. Sámsstaðir voru syðsti bærinn í eystri bæjaröðinni í Þjórsárdal, sem af tók í fyrrnefndu Heklugosi. Auk þess er önnur byggð upp við ána, þar eru skálar og mötuneyti fyrir hluta starfsfólksins. Svíinn Thorsten Svensson verk- stjóri. Myndirnar tók Ingi H. Jensen Fermingar á morgun í Langholtssókn Fermingarbörn. Langholts- ókn 2/4 1967. Prestur sr. Árel- us Níelsson kl. 1.30. Alda Björk Marinósdóttir, íjörvasundi 26, Bima Kristín iuömundsdóttir Giaðheimum 4, irynja Hallldórsdóttir Álfh. 32, lagmar Inga Kristjánsdóttir, irekav. 8, Banfríöur Kristin karphéðinsd. Sólh. 32, Elín (ddgeirsdóttir Kleppsv. 4, 'anney Björg Gísladóttir Soga- letti 8, Gígja Geirsdóttir Ljós- eimum 22, Guðrún Guðmunds- óttir Álfheimum 50, Hugrún ijörk Hauksdóttir Freyjugötu , Kolbrún Bryndís Bjöms- óttir Grafarholti. Kolbrún >sk óskarsdóttir Goðheimum 6, Kristín Sigbjömsdóttir irekav. 8, Ólína Sigríður Ein- rsdóttir Álfheimum 21, Ósa Knútsdóttir Goðheimum 21, Ragnheiður Mósesdóttir Goðh. 23, Rannveig Einarsdóttir Bald. 37, Sigríður Guðbergs- dóttir Áifheimum 32, Sigríður Rut Gunnarsd. Fossv.bletti 53, Sigrún Þorbjömsdóttir Skipa- sundi 42, Aðalsteinn Ömólfsson Álfheimum 50, Benedikt Gröm- dal Þorvaldsson Nökkvav. 19, Emil Þór Sigurðsson Efst. 76, Guðlaugur Einarsson Meistarav. 25, Guðmundur Bjöm Thorodd- sen, Álfheimum 15, Guðmundur Kristján Jónsson Álfheimum 16, Hlynur Þorsteinsson Skeiðarv. 105 Jón Bergmann Ársælsson Austurbrún 4, Jón Pétursson Skipasundi 27, Ómar öm Karisson Hávegi 13, Pétur Jó- hannesson Álfheimum 58, Sig- urjón Símonarson Álfheimum 30, Sigurður Steinar Bergsteins- son Langholtsv. 103. Fermingarskeyti Lands- . ; • | 1 símans - Sími 06

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.