Þjóðviljinn - 13.04.1967, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVHjJINN — Fimmtudagur 13. apríl 1967.
Dr. Oddur Guðjónsson:
20 ára starf Efnahagsmála-
nefndar SÞ fyrir Evrópu
■ Þess var minnzt í gær, 12. apríl, að 20 ár voru
liðin síðan Efnahagsmálanefnd Sameinuðu þjóð-
anna fyrir Evrópu var komið á fót. í tilefni þess
afmælis sendi dr. Oddur Guðjónsson Þjóðviljan-
um í gær svofellda grein um stofnunina og störf
hennar.
1 dag er þess minnzt í Genf
og raunar víða annars staðar,
að fyrir rúmum 20 árum kom
Efnahags- og félagsmálaráð SÞ
á fót sérstakri stofnun eða
nefnd til að fjalla um við-
skipta- og efnahagsmál Evrópu.
Stofnun þessi hlaut nafnið Uni-
ted Nations Economic Commiss-
ion for Europe eða Efnahags-
málanefnd Sameinuðu þjóð-
anna fyrir Evrópu, venjulega
skammstafað ECE. A þeim 20
árum, sem síðan eru liðinhef-
■ ' ---------------■■■■■■.. " ' <
Callaghan boðar
áframhaldandi
kaupbindingu
LONDON 11/4 — James Ðallag-
han fjármálaráðherra birti brezka
þinginu í dag fjárlagafrumvarp
sitt. í því eru engar teljandi
breytingar frá gildandi fjárlög-
um, aðeins minniháttar tilfærsl-
ur og lagfæringar. Callaghan
sagði að staða sterlingspundsins
hefði stórbatnað, en þótt svo
væri, myndi ekki hægt að af-
létta kaupbindingunni þegar gild-
istíma laganna um hana lýkur
20. júlí.
Komm-
únistar sigruðu!
Hafi sumir talið rikja
nokkra óvissu um það hvemig
framboðslisti Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík yrði skip-
aður, náði hún ekki til
málgagna hemámsflokkanna
þriggja. Ritstjórar þeirra
vissu niðurstöðuna fyrirfram
og hefðu getað skrifað álykt-
anir sínar fyrir löngu: komm-
únistar sigruðu! Raunar þarf
slík niðurstaða ekki að koma
neinum á óvart; hernáms-
blöðin kafla alla félaga Al-
þýðubandalagsins ævinlega
kommúnista; málsvarar þess i
bæjarstjómum, á alþingi og
annarstaðar eru kyrfilega
merktir K í fréttum og fra-
sögnum þessara blaða. Og
hvemig mætti þá öðruvísi
fara en að kommúnistar sigri?
Hitt er fjarstæða þegar
blöðin telja að Reykjavíkur-
listinn beri það með sér að
einhver armur innan Alþýðu-
bandalagsins hafi hrifsað t:l
sín öll völd. Þegar Alþýðu-
bandalag var formlega stofn-
að í Reykjavík gengu ekki
aðeins í það menn sem áður
höfðu verið í Sósíalistaflokkn-
um, Málfundafélagi jafnaðar-
manna og Þjóðvamarflokkn-
um, heldur fjöldi fólks sem
aldrei hafði áður verið í nein-
um stjórnmálasamtökum. Svo
er ástatt um næstum því
helming félagsmanna í Al-
ir verkefni þessarar nefndar
beinzt að því að rannsaka
efnahagsástand álfunnar al-
mennt og einstakra landa eða
svæða sérstaklega. safna hvers
konar hagskýrslum, ræða efna-
hagsvandamál líðandi stundar
og síðast en ekki sízt beita sér
fyrir aukinni milliríkjaverzlun
og þar með stuðla að auknum
hagvexti þátttökuríkjanna.
Aðild að þessari stofnun eiga
öll lönd Evrópu, sem eru með-
limir SÞ, auk Bandaríkja
Norður Ameríku. Sviss er ekki
þátttakandi í SÞ, en hefurfrá
upphafi tekið þátt í störfum
nefndarinnar. Eru þátttökuríkin
nú 31. Island hefur frá upphafi
átt aðild aö þessum samtökum.
Náin tengsl eru og milli
ECE og annarra stofnanna á
vegum SÞ, svo sem við Alþjóða
Matvæla- og landbúnaðarstofn-
unina (FAO), Alþjóða vinnu-
máilastofnunina (ILO). Alþjóða-
heiibrigðismálastofnunina (WH-
O) o.s.frv. Þá má geta þess, að
samstarf er einnig við ýmis
starfandi viðskiptabandalög og
ríkjasamtök, svo sem við Efna-
hagsbandalag Evrópu (EEC),
Fríverzlunarsvæði Evrópu (E.F.-
T.A.), Viðskiptabandalag Aust-
ur-Evr/ iríkjanna (C.M.E.A.),
Efnahags- og framfarastofnun
Evrópu (O.E.C.D.) o.s.frv. Hafa
þýðubandalaginu í Reykjavík,
og þátttaka þessa nýja fólks
í störfum og baráttu Alþýðu-
bandalagsins hefur tryggt þvi
stóraukinn grundvöll. Að
sjálfsögðu stóð aldrei til að
þessir nýju samherjar yröu
einhverjir óvirkir áhorfendur
að störfum þeirra sem áður
höfðu verið innan bandalags-
ins, heldur fullgildir aðilar,
enda mótaði þessi staðreynd
til að mynda mjög framboðs-
lista Alþýðubandalagsins i
borgarstjórnarkosningunum f
fyrra. Og á framboðslistanum
nú er Jón Snorri Þorleifsson
úr þessum hópi Alþýðubanda-
lagsmanna og staðfesting þess
að samtökin eru nú mun víð-
tækari en þau voru áður. Að
sjálfsögðu mun Jón Snorri
eins og aðrir mega una því
að vera kallaður kommúnisti
í andstæðingablöðunum, en
skyldi ekki til að mynda
minnisgóðum lesendum Tím-
ans finnast sú nafngift næsta
einkennileg?
Að sjálfsögðu ber að líta á
framboð Alþýðubandalagsins
um land allt sem heild. Þau
bera það sannarlega með sér
að Alþýðubandalagið er mjög
víðtæk óg frjálsleg samtök og
að því fer fjarri að sóstalistar
hafi freistað þess að sitja yf-
ir hlut annarra. Enda er. það
óttinn við þessa breiðu sam-
stöðu sem veldur vanstilling-
arskrifum hernámsblaðanna
síðustu dagana. — Austri.
þessir aðilar aðstöðu til að
senda áheyrnarfulltrúa á fundi
Efnahagsmálanefndarinnar og
þannig fylgjast með störfum
hennar.
Um starfstilhögun og starfs-
háttu ECE er 'þetta að segja í
sem skemmstu máli: Störf ECE
fara að langsamlega mestu
leyti fram á vegum margra
fastra undirnefnda, sem hver
um sig fjallar um tiltekið mál
eða viðfangsefni. Efnahags-
málánefndin sjálf kemur sam-
an til fundar einu sinni á ári,
venjulega í apríl eða maí.
Mæta þar fulltrúar ríkisstjóma
þeirra landa, er aðild eiga að
samtöltunum, ásamt óheyrnar-
fulltrúum, er þar eiga rétt tíl
setu .
Á þessum fundum eru rædd
viðskipta- og hagþróunarmól
álfunnar, ályktanir gerðar um
margvísleg málefni, sem ýmist
eru sendar til ríkisstjórna þátt-
tökuríkjanna eða til Efnahags-
og félágsmáláráðs S.Þ. Þá er
samin og samþykkt starfsáætlun
fýrir næsta tímabil og felast
jafnan í henni fyrirmæli og á-
bendingar til hinna ýmsu und-
irnefnda í sambandi við verk-
efni þau, er þeim hefur verið
falin til úrlausnar.
Af fastanefndum þeim, er
hér koma til greina, skulu rh.a.
þessar tilgreindar: Nefnd um
landbúnaðarmál og vörur. Nefnd
um járn- og stálvörur. Nefnd
um kol og gas. Nefnd um
timfeur og pappír. -Nefnd um
kemískar vörur. Allar þessar
nefndir safna og fá til með-
ferðar skýrslur um framleiðslu,
birgðir, verzlun, verðlag og
söluhorfur á framangreindum
vörum. Er að þessu hið mesta
hagræði fyrir þá, er annast
framleiðslu og fást við verzlun
með framangreindar vörur.
Þessar nefndir beita sér einnig
m.a. fyrir stöðlun í verzlun
og framleiðslu áðumefndra
vara, þar sem því verður við
komið, leitast við að fá stað-
festar almennar reglur um sölu
þeirra, hafa milligöngu um
skipti á tæknilegum nýjungum
o.s.frv.
Þá má geta nefndar, er fjall-
ar um raforkumál. Hefur hún
leyst af hendi mikið starf í
sambandi við hvers konar upp-
lýsingar um framleiðslu áraf-
orku í álfunni, fyrirkomulag
um sölu á raforku í sveitum
og borgum, auk kynningar á
margháttuðum tæknilegum nýj-
ungum. Nefnd er fjallar um
hvers konar flutningsmál. Læt-
ur hún m.a. til sín taka vöru-
flutninga á vegum, með járn-
brautum og á skipum eftir ám,
einkum með tilliti til reglna um
tollmeðferð þessa flutnings,
um meðferð hættulegs varn-
ings eða vara, sem hætt ervið
að liggi fljótt undir skemmd-
um o.s.frv. I gildi eru þeg-
ar ýmsir alþjóðasamningar um
þessi mál, sem komið hefur
verið á fyrir atbeina ECE. Þá
má nefna nefnd er fjallar um
húsnæðismál. Var starf þessar-
ar nefndar sérstaklega þýð-
ingarmikið fyrst eftir stríðið,
þegar orðatiltækið „borgimar
hrundar og löndin auð“ átti
víða við í bókstaflegri merk-
ingu. Nú beindist starf þessarar
nefndar einkum að tillögum um
margs konar tæknilegar nýj-
ungar á sviði íbúðabygginga,
skipulagsmál borga og þorpa,
samræmingu eða stöðlun á
gerð íbúðarhúsa í fjöldafram-
leiðslu o.s.frv.
Á vegum ECE er öðru hverju
stofnað til ráðstefnu sérfræð-
inga um hagskýrslugerð. Er þar
leitazt við að samræma vinnu-
aðferðir og þar með tryggja
réttari statistiskan (eða töluleg-
an) samanburð hagskýrslna. Er
á þessum vettvangi unnið hið
mikilvægasta starf.
Áður en hér er látið staðar
numið við upptalningu fasta-
nefnda ECE, þykir rétt að geta
hér enn einnar nefndar, og þá
ekki þeirrar þýðingarminnstu.
Er það: Committee on the Dev-
elopment of Trade eða við-
skiptanefnd ECE, eins og hún
er kölluð í daglegu tali. Eins
og nafnið bendir til er við-
fangsefni þessarar nefndar
einkum að vinna að aukinni
verzlun milli þátttökuríkjanna,
en einnig að aukinni milli-
ríkjaverzlun almennt. Er ærið
verkefni fyrir þessa nefnd,
þegar þess er gætt, að hluti
þátttökuríkja ECE í heimsfram-
leiðslu iðnaðarvarnings er ná-
lega 80%, nálega helmingur af
heimsframleiðslu landbúnaðar-
vara og um 65 prósent af al-
heimsverzluninni.
Frá upphafi hefur einn af
þýðingarmestu þáttum í starfi
viðskiptanefndar ECE beinzt að
athugun á viðskiptum þjóða, er
búa við ólfk efnahagskerfi —
m.ö.o. að viðskiptum Vestur-
Evrópu við sósíalistísku lönd-
in í Austur-Evrópu — aust-
ur-vestur-viðskiptum — og verð-
ur nánar vikið að þeim síðar.
Fundir viðskiptanefndarinn-
ar hefjast að venju með um-
ræðum um viðskiptaþróun álf-
unnar almennt og einstakra
landa eða svæða sérstaklega.
Virðast þær umræður oft kær-
komið tilefni til að koma á
framfæri gagnkvæmum um-
kvörtunum eða klögumálum af
hálfu þátttökuríkjanna hvers í
annars garð — en þess er
einnig oft getið sem vel er tal-
ið hafa verið gert f viðskipt-
um einstakra landa. En auk
þessara almennu viðræðna
fjallar nefndin um margvísleg
önnur málefni, sem greiða
eiga fyrir milliríkjaverzlun.
Skulu hér nefnd nokkur við-
fangsefni, sem nefndin hefur
látið til sín taka og hún fjall-
ar að staðaldri um: Reglur um
gerð kaup- og sölusamninga.
Samræmingu og stöðlun út-
flutningsgjalda. Reglur um
gerðardóma almennt og að þvi
er snertir einstakar vöruteg-
undir, Alþjóða vörusýningar og
tollmeðferð sýningarmuna.
Samræmingu á reglum um
tryggingar á vörum í milli-
rikjaverzlun. Gerð viðskipta-
samninga til langs tíma.
Afnám viðskiptatálmana al-
mennt og að því er snertir
einstakar vörur sérstaklega.
Ráðstafanir til að greiða fyrir
yfirfærslum milli jafnkeypis-
reikninga (clearing-reikninga).
Má í þessu sambandi geta þess,
að ísland hefur fyrir meðal-
göngu ECE nokkrum sinnum
fengið yfirfærðar verulegar
upphæðir frá einu jafnkeypis-
landi til annars, enda þótt við-
komandi viðskiptasamningur
hafi ekki gert ráð fyxir slík-
um greiðslum. Hefur verið að
þessu mikið hagræði.
Að sjálfsögðu mætti til-
greina hér fleiri verkefni, sem
viðskiptanefndin fjallar um,
en hér skal þó láta staðar num-
ið.
Bein þátttaka fslands í störf-
um ECE eða einstökum undir-
nefndum hefur þó ekki verið
mikil, enda þótt íslenzka ríkis-
stjómin hafi þó jafnan síðan
1953 árlega sent fulltrúa ó fundi
viðskiptanefndarinnar. Hefur
þar ráðið mestu um, að nefnd-
in hefur látið viðskiptin við
sósíalistísku löndin í Austur-
Evrópu sérstaklega til sín taka.
Má raunar segja, að um langt
skeið hafi viðskiptanefnd ECE
raunverulega verið sá eini al-
þjóðavettvangur þar sem full-
trúar „Austurs“ og „Vesturs“
hittust til viðræðna um við-
skiptamál. Þýðing þessa sam-
starfs kemur nú með ári hverju
betur í ljós og lýsir sér í aukn-
um viðskiptum og frjálsari við-
skiptaháttum þessara svæða,
sem búa við ólík hagkerfi. A-
■stæðan fyrir því, að Island
hafði sérstaka ástæðu til að
fylgjast með þessum þætti í
starfsemi viðskiptanefndar ECE
er auðsæ. Lengst af þeim tima,
sem nefndin hefur starfað, hef-
ir Island haft þýðingarmikil
viðskipti við löndin í Austur-
Evrópu. Um tíma námu þessi
Framhald á 8. síðu.
RADlCBNEF
henta þar sem erfið skilyrði
eru. — Byggð fyrir fjalilendi
Noregs.
Sérhæfðir menn frá verk-
smiðjunum í Noregi annast
þjónustuna af þe.kkingu.
Radionette-verzlunin
Aðalstræti 18 sími 16995
Aðalumboð:
Einar Farestveit & Co. hf.
Vesturgötu 2.
ÁRS ÁBYRGÐ
FLOGIÐ STRAX
FARGJALD
GREITT
SÍÐAR %
%
%
I
%
5%
yy/j
ÉDANMÖRK 06
fA-ÞÝZKAlAND*‘í
Eystrasaltsvikan
5.-26. júlí. 1967. Verð kr. 13.500,00.
I
I
//////////////////^^^^
Fararstjóri: Magnús Magnússon, kennari.
Ferðaáaetlun: 5. júlí. Flogið til Kaupmannahafnar
og dvalið þar til 8. júlí. Farið með lest til Warne-
munde og dvalið á Eystrasaltsviku til 17. júlí.
Lagt af stað í 9 daga ferð til Berlínar, Magdeburg,
Erfurt, Leipzig. Dresden og Wittenberg og farið 25.
júlí með næturlest til Kaupmannahafnar og flogið
26. júlí til Reykjavíkur.
Innifalið fullt fæði nema morgunmatur í Kaup-
mannahöfn, flugfar, járnbrautir og langferðabílar,
leiðsögumaður, hótel, aðgangur að söfnum, dans-
leikjum o.fl. Baðströnd á Eystrasaltsvikunni. Ein
ódýrasta ferð sumarsins. Þátttaka takmörkuð og
þegar búið að panta í ferðina. Hafið samband við
skrifstofuna sem fyrst.
LAN DS9N ^
FERÐASKRIFSTOFA
Laugavegi 54.
SÍMI 22890 BOX 465 REYKJAVÍK
Vil HINNi VANDIÍTU
Suðurlondtbraut 10 (gggnt IþróHqhöll) simi 38585
[L'l.lrl.llllDl’.Ul
1‘lsabella-Stereo
IN
Kutíajakkar, úlpur
og terylene buxur í úrvali.
Ó. L. Traðarkotssundi 3
(móti Þjóffleikhúsinu)