Þjóðviljinn - 13.04.1967, Page 4
4 SlBA — txJÖBVmjmiS — gbmntudagar 13. aprfl 1961.
Ritstjórar: Ivar H- Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Siguróur G-uðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson
Auglýsingastj.: Sigurður T. Sigurðsson.
Framkvstj-: Eiður Bergmann.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja Skólavörðust- 19,
Sími 17500 (5 línur) — Áskriftarverð kr. 105,00 á mánuði. —
Lausasðluverð kr. 7.00-
Lærdómsríkar andstæður
r\'
[ útvarpsumræðunum í fyrrakvöld greindi Bjarni
Benediktsson forsætisráðherra m.a. frá því
hversu stórfelld verðmæti þjóðarheildinni hefðu
áskotnazt í góðæri undangenginna ára, vegna met-
afla ár eftir ár og síhækkandi verðlags á mörkuð-
um erlendis. Frá 1959 hafa þjóðartekjur á mann
aukizt um þriðjung; ef rét't væri skipt ætti hver
einstaklingur semsé að bera þriðjungi meira úr
býtum fyrir óbreyttan vinnutíma. Og á saima tíma
hefur raunverulegur þjóðarauður aukizt um 40
til 50%.
j£n það var einnig minnt á aðrar staðreyndir í um-
ræðunum, staðreyndir sem vert er að skoða
með velmegunarlýsingar forsætisráðherrans að
baksviði. Bjöm Jónsson minnti á það að kaupmátt-
ur tímakaups verkamanna má heita hinn sam| nú
og 1959, þrátt fyrir alla aukningu á þjóðartekjum
og þjóðarauði. Og hann benti á það að kaupmátt-
ur vinnuvikunnar, miðað við dagvinnu eina sam-
an, er lægri nú en hann var 1959; sú stytting dag-
vinnutímans sem samið hefur verið um hefur ekki
fengizt með óskertu heildarkaupi. Hér er um að
ræða einfaldar staðreyndir. og ákaflega lærdóms-
ríkar andstæður. Til þess að öðlast hlutdeild í sí-
vaxandi tekjum þjóðarheildarinnar hefur verka-
fólk orðið að leggja -á sig stóráukinn vinnutíma, og
þannig eru fengnar þær „ráðstöfunartekjur" og
„meðaltekjur“ sem forsætisráðherrann talaði um.
En lífskjör verða ekki einvörðungu reiknuð í krón-
um; vinnutíminn er einnig mælikvarði á kjörin,
og raunar sá mælikvarði sem mest áherzla er nú
lögð á í ýmsum nágrannalöndum okkar. Það er til
marks um afar alvarlegt öfugstreyoni að vinnutími
hérlendis skuli hafa lengzt til muna á sama tíma
og efnahagur þjóðarheildarinnar hefði átt að geta
tryggt okkur hliðstæða þróun og orðið he'fur um-
hverfis okkur.
jþað er meginverkefni verklýðshreyfingarinnar að
taka þetta vandamál föstum tökum og vinna að
raunverulegri vinnutímastyttingu með óskertu
heildarkaupi á skipulegan hátt. En margir þættir
þess vandamáls eru utan þess sviðs sem kjarasamn-
ingar alþýðusamtaka ná til. Eigi að stytta vinnu-
tímann og tryggja launafólki eðlilegan hlu't af þjóð-
artekjunum verður að framkvaama mjög stórfelld-
ar skipulagsbreytingar í efnahagsmálum og at-
vinnumálum, m.a. með því að tryggja þá festu í
hagstjórn sem aðeins fæst með áætlunarbúskap.
Því aðeins munu alþýðusamtökin ná árangri á
þessu mikilvæga sviði kjarabaráttunnar að póli-
tísk völd haldist í hendur við áhrif stéttarfélag-
anna. Alþýðubandalagið var til þess stofnað 1956
að frumkvæði verklýðssamtakanna að efla þau
völd, og til þess bjóðast stórfelld tækifæri í kosn-
ingunum í sumar. — m.
Frá Sauðárkróki, þar sem Sæluvika Skagfirðing-a er haldin.
Fjöknenni á Sælu-
viku Skagfirðinga
Ekkert hik, á öllu kvik,
yfir lykur glaumur.
Sjafnarblik, á sumum „ryk“
Sæluviku-draumur.
Þannig hljóöar vísa eftir
Hallgrím Jónasson, kennara,
sem birt er í dagskrá Saelu-
viku Skagfirðinga. Þessi „8
daga gleðivika“ á Sauðárkróki
hófst á sunnudaginn og er nú
mikið um að vera þar í baen-
um og búizt við margmenni.
Þjóðviljinn hafði samband
Það hefur verið mjög í tízku
undanfarnar vikur að aðilar
sem að öðru jöfnu láta sig um-
ferðarmál litlu skipta, að
minnsta kosti á opinberum
vettvangi, hafa gengið frarn
fyrir skjöldu og mótmælt fyr-
irhugaðri breytingu úr vinstri í
hægri umferð. Hafa þessir að-
ilar borið fyrir sig órökstudd-
ar fullyrðingar um afleiðingar
breytingarinnar, sérstaklega
varðandi kostnað og aukna
slysahættu.
Varðandi kostnaðinn af breyt-
ingunni taka þessir aðilar sér
f munn ótilgreindan fjölda
hundraða miljóna, þó fyrir liggi
sundurliðuð kostnaðaráætlun
frá 8. nóv. 1965, sem nemur
49,4 miljónum kr. Þessi kostn-
aðaráætlun er öllum aðgengi-
leg m.a. í greinargerð fyrir
frumvarpi til laga um hægri
handar umferð.
Er því þeim, sem hafa mál-
efnalegan áhuga á máli þessu
í lófa lagt að kynna sér for-
sendur kostnaðaráætlunarinnar.
og laganna í heild.
Það hefur ekkert komið fram
sem bendir til þess að áður
nefnd kostnaðaráætlun standist
ekki, enda hefur hún aldrei ver-
ið vefengd, þar sem ekki er
á hana minnzt í þeim skrifum
eða ræðum, sem mælt hafa mót
umferðarbreytingunni. 1 þess
stað hafa menn forsendusnautt
búið til eigin áætlanir og dreg-
ið þar inn atriði sem ekki á
neinn hátt viðkoma kostnaði af
umferðarbreytingunni, svo sem
ný kaup á strætisvögnum og
öðrum almenningsvögnum. Stað-
reyndimar eru þær að ýmsir
sérleyfishafar, þar með taldir
Strætivagnar Rvíkur, hafa
frestað um nokkur ár eðlilegri
endurnýjun á vagnakosti sín-
um, þar sem umferðarbreyt-
ingin var í undirbúningi. Af
þeim ástæðum verða ný kaup
þessara vagna óeðlilega mikil
núna, en er fjácfesting sem í
stað þess að dreifast á nokkur
undanfarin ár kemur nú íeinu
víð fréttaritara sinn á Sauðár-
króki, Hrein Sigurðsson, og
sagði hann að Sæluvikan væri
orðin rótgróin hefð hjá Skag-
firðingum. Upphaf hennar hefði
verið svokölluð Sýslufundar-
vika; þá komu menn úr nær-
sveitum saman til funda á
Sauðárkróki og höfðu með sér
fjölskyldur sínar, sem eðlilrfa
þurftu að gera sér ýmislegt til
gamans á meðan þingað var.
Þetta mun hafa verið um alda-
mótin og Sýslufundarvikurnar
lagi, en er að sjálfsögðu fjár-
festing sem sérleyfishafar sjálfir
verða að bera allan kostnað af.
Tal og skrif um „stóraukna
slysahættu" eru órökstuddar
fullyrðingar sem sfzt eru til
þess fallnar að bæta öryggi í
umferðinni hvorki fyrir né eft-
ir umferðarbreytinguna.
Það sem við höfum við að
styðjast í þessu máli er sú
reynsla, sem fengizt hefur af
þeim þjóðum sem tekið hafa
upp hægri umferð á síðustu
áratugum, en þær eru allmarg-
ar og þar af tvær mjög fjöl-
mennar, þ.e.a.s. Kína og Kan-
ada.
Engar fregnir eru af því að í
þessum löndum hafi umferðar-
slysum fjölgað svo að frétt-
næmt þætti, og eru þó frétta-
stofur ósínkar á að segja frá
ef um slys eða slysafaraldur er
að ræða.
En sú reynsla, sem fékkst -if
breytingu Eþiopíumanna í júní
1964 er staðfest af sænskri
sendinefnd sem fylgdist með
þeirri framkvæmd. Þessi sendi-
nefnd skilaði skriflegri greinar-
gerð eftir heimkomuna.
í aðalatriðum segir þar að
brot á umferðarreglum væra
þau sömu fyrir og eftir um-
ferðarbreytinguna t.d. of hrað-
ur akstur og röng hægri beygja
hjá ökumönnum, og fótgang-
andi hvernig það fór yfir götu.
Vanþekking á umferðarregl-
um sé meginorsök s-lysanna
bæði fyrir og eftir breyting-
una, en ástandið hafi batnað
vegna aðgerða lögreglu. Upp-
lýsingar fyrir fram hafi verið
ófullnægjandi og undirbúning-
ur ekki sannfærandi en þó næg-
ur.
Skýrslan sem heild ber það
með sér að ástandið í umferð-
armálum Eþiopíu hafi batnað,
þótt meira hefði mátt gera í
almennri fræðslu fyrirfram.
Þetta hiýtur að vera okkur
Islendingum ómetanleg áminn-
ing, enda er éstandið f okkar
Framhald á 9. síðu.
urðu að Sæluvikum þegar fram
liðu stundir.
Að þessu sinni eru tvö leik-
rit í gangi á Sæluvikunni: Hve
gott og fagurt eftir Sommerset
Maugham og Deleríum búboms
eftir Jónas og Jón Múla Árna-
syni. Fyrrnefnda leikritið er
sýnt á vegum Leikfélags Sauð-
árkróks en kvenfél-ag staðar-
ins stendur að sýningu þess
síðarnefnda.
Kári Jónsson hefur sviðsett
Hve gott og fagurt og eru að-
alleikendurnir þessir: Kristján
Skarphéðinsson, Hafsteinn
Hannesson, Halla Jónasdóttir,
Anton Angantýsson og Sveinn
Friðvinsson.
Delerium búbonis er sviðsett
af Magnúsi Jónssyni og leik-
tjöldin eru gerð af Jónasi Þór
Pálssyni. Með stærstu hlut-
verkin í leikritinu fara Helgi
Rafn Traustason, Stefanía Frí-
mannsdóttir, Sigrún Vilhjálms-
dóttir og Haraldur Árnason.
Auk leiksýninga eru dansleik-
ir á hverju kvöldi, í fyrrakvöld
var t.d. dansleikur fyrir ung-
linga á aldrinum 12—17 ára.
Allar skemmtanirnar fara fram
í kvikmyndahúsinu á Sauðár-
króki; dansleikir, leiksýningar,
kvikmyndasýningar, skóla-
skemmtanir, og síðast en ekki
sízt söngskemmtanir. Þar hafa
sungið m.a. Karlakórinn Feyk-
ir frá Akrahreppi, Karlakórinn
Heimir og Karlakór Sauðár-
króks.
Sæluvikunni lýkur sunnu-
daginn 16. apríl með lokadans-
leik. Sagði Hreinn að búizt
væri við fjölmenni úr nálæg-
um héruðum og Siglfirðingar
væru vanir að mæta vel á
Sæluvikunni.
Námskeið í áætl-
unargerð
Daganna 1.-3. apríl s.l. var
haldið í húsakynnum Iðnaðar-
málastofnunar íslands í Rvík
námskeið í CPM áætlunargerð,
sem efnt var til í samvinnu
milli Stjórnunarfélags Islands
og Sambands íslenzkra sveit-
arfélaga. Námskeið þetta sóttu
auk starfsmanna nokkurra
sveitarfélaga utan Reykjavíkur,
hagræðingarráðunautar þeir,
sem ráðnir hafa verið til starfa
hjá samtökum vinnumarkaðar-
ins. Þetta er 13. námskeiðið,
sem haldið er í CPM áætlunar-
gerð og annað sémámskeiðið,
en í fyrra mánuði var efnt t.i!
námskeiðs fyrir starfsmenn R-
víkurborgar.
I ávarpi sem Páll Líndal, sem
gegnir formennsku í Sambandi
íslenzkra sveitarfélaga, flutti, er
námskeiðinu var slitið, gat
hann þess, að til athugunar
væri, að Stjómunarfélag ís-
lands og Samband íslenzkra
sveitarfélaga efndu sameigin-
lega til námskeiða í CPM á-
ætlunargerð í öðrum landshlut-
um, svo sem á Akureyri, Vest-
fjörðum og á Austurlandi, ef
þátttaka yrði næg.
Samtals hafa liðlega 300
manns sótt námskeið Stjómun-
arfélagsins í CPM áætlunar-
gerð. Aðferð þessi, sem kölluð
er CPM, er notuð við skipu-
lagningu framkvæmda, hvort
sem um er að ræða mann-
virkjagerð eða almenna stjórn-
un verka.
Snndmeistara-
mét Selfoss
Sundmeistaramót Selfoss,
verður háð í Sundhöll Selfoss,
laugardaginn 22. apríl kl. 15.09.
Greinar:
100 m baksund karla, 100
m baksund kvenna, 100 m
skriðsund karla, 100 m skrið-
sund kvenna, 200 m bringusund
karla, 200 m bringus. kvenna,
50 m flugsund karla, 50 m flug-
sund kvenna, 4x50 m fjórsund
karla, 4x50 m fjórsund kvenna,
50 m bringusund sv. 14 ára og
yngri, 50 m bringusund telpna,
50 m skriðsund sv., og 50 m
skriðsund telpna.
Þátttaka tilkynnist til Hrafn-
hildar Guðmundsdóttur í slma
1501 Selfossi fyrir 17. þ.m.
Sundráð.
BLAÐDREIFING
Blaðburðarfólk óskast í eftir'talin hverfi:
Tjamargötu — Kvisthaga — Höfðahverfi.
fc.® f *« ea*o
P|oovil|inn
Plaslmo
ÞAKRENNUR OG NIÐURFALLSPÍPUR
RYÐGAR EKKI
Þ0LIR SELTU OG SÓT,
ÞARF ALDREI AÐ MÁLA
MarsTradíng Company IrT u
IAUGAVEG 103 — SlMI 17373
Hægríumferð, slysa-
hætta og kostnaður