Þjóðviljinn - 25.04.1967, Side 3
Þriðjudagur 25. april 1967 — ÞJÓÐVXUINN — SlÐA 3
Bandaríkjamenn herða enn
loftárásirnar á N-Vietnam
Þeir réðust í gær í fyrsta sinn á flugvelli þar
sem eru bækistöðvar fyrir sovézkar orustuþotur
Valdaránið í Grikklandi
SAIGON 24/4 — Bandaríkjamenn hafa enn hert loftárásir
sínar á Norður-Vietnam. í dag réðust flugvélar þeirra frá
bækistöðvum í Thailandi og flugvélaskipum á Tonkinflóa
í fyrsta skipti á flugvelli þar sem staðsettar eru þær sov-
ézku MIG-þotur sem Norður-Vietnamar hafa til varna.
Árásir á þá flugvelli hafa
ekki verið gerðar áður og tals-
menn bandaríska landvarnaráðu-
neytisins, þ.á.m. McNamara ráð-
herra sjálfur, hafa sagt að þaer
myndu vera ástæðulaus stig-
mðgnun stríðsins. Það þykir víst
að sovézkir sérfræðingar annist
um þoturnar, sjái um viðhald
Alhaníufélag
Framhald af 12. síðu.
afla heimilda um þjóðfélags-
hastti, menningu og vísindastarf-
semi í Altoaníu.
b) Að gangast fyrir fræðslu
um Aibaníu með fyrirlestrum,
kvilkmyndasýningum, öflun bóka
og fn'marita, listkynningum, út-
gáfu- og upplýsingastarfsemi o.fI.
c) Að koma á framfæri við út-
varp, blöð og tímarit gagn-
kvasmri kynningu á menningu Is-
lands og Altoaníu og nýjungum í
vísindum og listum.
d) Að stuðla á allan hátt að
autonu samstarfi Altoana og ís-
lenddnga.
Næst var kosin stjórn í félag-
inu en hana slkipa fimm menn.
Ólafur Jónsson skipasmiður var
kjörinn formað-ur en aðrir í
stjórn em Guðni Guðnason lög-
fræðingur, Guðmundur Jósefsson
vélskólanemi, Helga Hjörvarhús-
móðir og Runólfur Bjömsson
verkamaður. 1 varastjóm vora
kjömir þeir öm Friðrifesson
jámsmiður og ÚJfur Hjörvar, en
endurskoðendur Guðjón Bene-
diktsson múrari, Jón Steinsson,
bifvélavirki og tiil vara ömól-
afsson stud. mag.
Að laknium stofnfundarstörfum
flutti Skúli Þórðarson sagnfræð-
ingur fróðlegt erindi um sögu
Albana og Þorsteinn frá Hamri
las upp.
Stofnfundurinn var vel sótt-
ur og genigu nær fjörtíu manns
1 félagið. Samfoýkkt var að foeir
sem ganga í félagið fyrir 1. maí
næstkomandi sfcuii teljast stxafn-
félagar.
(Frá MAÍ — Menningartengsl-
um Albaníu og fslands).
og viðgerðir á þeim, og loftárás-
ir á flugvellina sem mjög senni-
lega gætu haft í för með sér að
sovézkir þegnar létu lífið myndu
aðeins verða til þess að sovét-
stjórnin yrði erfiðari viðskipt-
is. Auk þess myndi það vera
hægðarleikur fyrir Norður-Viet-
nama að staðsetja orastuþoturn-
ar á flugvöllum hinum megin
við kínversku landamærin. Ef
loftárásirnar á flugvellina í
Norður-Vietnam ættu því að hafa
nokkum tilgang, yrði strax í
upphafi að gera ráð fyrir að
svo gæti farið að gera yrði loft-
árásir á Kína — með ófyrirsjá-
anleigum afleiðingum.
Sagt er að mjög hörð skot-
hríð hafi verið gerð að banda-
rísku flugvélunum sem tóku þátt
í árásunum í aag. Bandaríkja-
menn hafa sjálfir ekki látið uppi
hve margar flugvélar þeirra
hafi verið skotnar niður, en í
Hanoi var sagt í dag að níu
bandarískum flugvélum hefði
Konrad Adenauer
jarðsettur í dag
BONN 24/4 — Konrad Adenauer,
fyrrum kanzlari Vestur-Þýzka-
lands, sem lézt fyrir helgina
verður jarðsettur á morgun,
þriðjudag. Útför hans fer fram
frá dómkirkjunni í Köln, en í
þeirri borg var hann fæddur og
lifði þar mestallan aldur sinn.
Fjöldi stjórnmálaforingja og
þjóðhöfðingja mun verða við-
staddur útförina, þ.á.m. Johnson
Bandaríkj aforseti og de Gaulle
Frakklandsforseti. Þetta er í
fyrsta sinn að Johnson kemur
til Evrópu síðan hann tók við
forsetadómi í nóvember 1963. Bú-
izt er við að hann noti tækifær-
ið til viðræðna í einrúmi við
forystumenn af Vesturlöndum.
Þó er ekki gert ráð fyrir að
neinn fundur verði haldinn með
honum og de Gaulle, sem mun
fara rakleiðis heim að útförinni
lokinni.
verið grandað og enn fleiri flug-
menn hefðu verið teknir hönd-
um.
Árásirnar voru gerðar á flug-
velli sem báðir eru í grennd
við Hanoi, annar um 30 km frá
borginni, hinn um 60 km.
Flestar þær orustuþotur sem
eru í Norður-Vietnam eru af
tiltölulega gömlum gerðum, eft-
ir því sem bezt er vitað, og
þeim hefur lítið sem ekki verið
beitt í lofthernaðinum, þótt
Bandaríkjamenn segist hafa skot-
ið niður nökkra tugi þeirra.
Bíl ekið útaf veg-
inum við Skáletún
Laust eftir klukkan níu á
sunnudagstnorgun barst lögregl
unni í Reykjavík tilkynning frá
Skálatúni í Mosfellssveit um að
bifreið væri þar, að mestu út
af veginum. Lögreglan fór á stað-
inn og hékk bifreiðin á vegar-
brúninni og voru tveir piltar i
bílnum. Flutti lögreglan þá til
yfirheyrslu og geymislu í bæinn,
en þeir vora ölvaðir og kváðust
ekki muna hvor hefði ekið bíln-
um út af veginum, en það mun
hafa verið ■ aðfaranótt sunnu-
dagsins-
Reynt að láta líta svo át sem
kóngur hafí ekki komið nærrí
AÞENU 24/4 — Frá því að valdarán hersins í Grikklandi
átti sér stað 1 dögun á föstudag hefur verið reynt að láta
líta svo út sem Konstantín konungur hafi þar hvergi nærri
komið, að herforingjarnir hafi tekið völdin algerlega -í
blóra við hann.
Tveir df baki
Slys á hestamönnum verða æ
| tíðari og Wöur varla sú helgi að
lögreglan þurfi ekki að aðstoða
menn sem fallið hafa af hest-
baki. Um þessa heígi meiddist
tvennt: maður féll af baki á
Vatnsveituvegi á laugardag og á
sunnudag datt stúlka af baki við
Úlfarfell í Mosfellssveit. Bæði
voru flutt á slysavarðstofuna, er
ekki vitað hve alvarleg meiðsl
þeirra reyndust.
ViðgerSin á vélbátnum Bjarma
Framhald af 12. síðu.
við hendina og miðar hann
við árbók 1964, en þar er
skráð kaupgjald þessara
manna frá því í nóvember
1963.
Þá höfðu málmiðnaðarmenn
179.20 DM á viku, — 46 st.
vinnuviku og skipasmiðir eru
þar taildir hafa 185.14 DM á
viku, — miðað við 48.4 stund-
ir á viku. Þannig höfðu vest-
urþýzkir málmiðnaðarmenn
kr. 43.40 fslenzkar fyrir fjór-
um árum og óhætt er að full-
yrða, að kaupgiald hafi hækk-
að veralega sfðan.
Enda kvað vestunþýzki
sendifulltrúinn svo vera í
landi sínu. Þá er mi'kið uin
ákvaeðisvinnu í vesturþýzka
sfciipasmíðaiðnaðinum og
haekkar það kaup skipasmiða
og fá þeir raunverulega enn-
þá hærra kaup heldur en
tímakaupið gefur till kynna.
50 stundir í nætur- og
helgida gavinnu
Þess má geta, að hæsta
kaup írienzkra mádmiðnaðar-
manna var í nóvember 1963,
— kr. 43.01 á tíímanm, — þá
er 40 stunda vinnuvika í dag
hjá vesturþýzkum málmiðnað-
armönnum.
1 dag fá danskir skipasmið-
ir 13 krónur dansikar fyrir
klukkutímann eða um 80 kr.
íslenzkar og er það miðað við
meðaltal.
1 þáðum þessum löndum
hefur viðreisn ekki geisað elns
hörkulega og hér á landi og
hækkað lífsnauðsynjar al-
miennings upp úr öl'lu valdi.
Hver þekkir ekiki verðileg á
vörum í Kaupmannahöfn,
Haimborg, Amsterdam eða
London með auknutn ferða-
lögum till úfiianda.
Að lokuim hefur það vak-
ið athygli við bráðabirgðavið-
gerð bátsins, — til þess að
geta sent verkið úr landi, —
að þá hafa viðgerðarmennirn-
ir frá þandssmiðjunni unnið
50 stundir í nætur- og helgi-
dagavinnu frá því fyrir helgi
í einni ]<ytu, — ekkert tailar
eiginlega ljósara máli, að
kaupgjaldið er eklki eins stór
liður í rekstrinum eins og for-
stjóri Landssmiðjutmar og
formaður atvinnurékenda í
járniðnaði heldur fram í
fnamangreindu spjalli hans
við bfflaðið.
Innbrof ón
árangurs
Brotizt var mn hjá Rekord í
Brautarholti um helgina, en engu
var stoiið. Hafði verið brotizt
inn á skrifstofu forstjórans og
rótað þar í skúffum, en ekkert
lá þar verðmætt á glámþekk, og
mun þjófurinn hafa gefizt upp
við svo búið.
Tilgangurinn var augsýnilega
sá að magna ekki óvinsældir
Konstantins sem vora miklarfyr-
ir og auðvelda þannig herfor-
ingjunum að búa um sig fyrstu
dagana meðan almenningur hafði
ekki áttað sig fullkomlega á foví
sem gerzt hafði.
Þannig hefur konungur ekkert
látið til sín heyra. Boðskapur
sem til'kynnt hafði verið að hann
myndi flytja þjóðinni í útvarp
var aldrei fluttur. Með þessu
móti var gefið í skyn að herfbr-
ingjaklíkan sem nú hefur tekið
völdin hefði varnað honum máls-
1 kvöld létu herforingjamir
hins vegar þau boð út ganga að
Konstantín hefði loks fallizt á
valdatöku þeirra og hefði hann
sagzt vera fús til samstarfs
við þá.
I fangabúðir
Enn eru allar fréttir af því
sem gerzt hefur í Grikklandi sið-
ustu daga óljósar og óáreiðanleg-
ar. Þannig ber þeim ekki saman
um hvort hernum hafi verið
veitt andstaða eða ekki. 1 sumum
fréttum — og að sjálfsögðu í
Aþenuútvarpinu — er sagt að
svo hafi ekki verið, engar
blóðsúthellingar hafi átt sér stað,
almenningur hafi þvert á móti
heils hugar fagnað valdaráninu.
1 öðrum fréttum segir að á hverri
nóttu heyrist skothrið í Aþenu.
Það er þó vitað og viðurkennt
að þúsundir manna hafa verið
handteknar, meðal þeirra allir
þeir leiðtogar vinstriaflanna sem
til hefur náðst og hafa þeir verið
fluttir í hinar alræmdu fanga-
búðir á eyjum í Eyjahafi sem
grísk stjórnarvöld hafa notað frá
stríðslokum til að geyma í póli-
tíska andstæðinga. Talið er vfst
Hungursneyð-
in í Indlundi
KALKÚTTA 24/4 — Hungurs-
neyðin sem nú geisar í fylkinu
Bihar a Norður-Indlandi er sú
versta sem þar hefur komið í
heila öld, sagði talsmaður fylk-
isstjórnarinnar í dag á fundi
með blaðamönnum í Kalkutta.
Ef hjálp bærist ekki von bráð-
ar væri mikil hætta á því að
miljónir manna í Bihar myndu
deyja úr hungri. Stöðugir þurrk-
ar hafa verið í Bihar undanfar-
in tvö-þrjú ár og alger upp-
skerubrestur af þeim sökum.
Leiðtogar kommúnistafíokka
eru á fundi i Karlovy Vary
PRAG 24/4 — í dag hófst í Kar-
lovy Vary í Tókkslóvakíu ráð-
stefna ýmissa kommúnistaflokka.
Til ráðstefnunnar var formlega
boðað af flokkunum í Póllandi
og Frakklandi og tilkynnt hef-
ur verið að þar verði fjallað um
evrópsk málefni, og þá sérstak-
lega þýzka vandamállið og bá
hættu sem Evrópuþjóðum, bæði
í austri og vestri, stafi af Vest-
ur-Þjóðverjum og sókn þeirra í
kjamavopn.
Það er þó talið víst að á ráð-
stefnunni sem mun fara fram
fyrir luktum dyrum og standa
aðeins í tvo daga muni einnig
verða fjallað um deilur komm-
únistaflokka Kína og Sovétrikj-
anna.
Ekki er Ijóst af fréttum
hvað flokkar eiga fulltrúa á ráð-
stefnunni, aðeins sagt að þar séu
fuliltrúar frá 24 flokkum. Vitað
er að sumir flokkanna a.m.k.
sendu menn á ráðstefnuna með
því skilyrði að þar yrðu ekki
gerðar neinar bindandi samþykkt-
ir og er ekki búizt við að nein
opinber tiikynning verði gefin út
að henni lokinni.
Aðalfundur Geð-
verndarfélagsins
Aðalfundur Geðverndarfélags
Islands verður haldinn í Tjarn-
arbúð, þriðjudaginn 25. april
1967 bl. 20,30.
Sólgeislamælinum stolið
af turni Vatnsgeymisins
■ Síðari hluta laugar-1 úr þar seon langt er til næstu
dagsins var stolið sólgeisla- stöðva;
mæli Veðurstofu íslands af | Finnist tækið ekki eða sé það
eyði'lagt, sem líkiegt má telja,
hélt Adda áfram, má búast við
turni vatnsgeymisins við
Háteigsveg. Kemur þetta sér
ákaflega illa fyrir Veðurstof-
una, því mælitæki þetta er
mjög dýrmætt, kostar um 20
þús. krónur og hitt þó öllu
verra að marga mánuði tekur
að fá nýtt tæki.
Sólgeislamætirinn er notaður
til að msela þá hitaorku sem
berst til jarðar frá sólu, að því
er Adda Bána Sigfúsdóttir veð-
urfræðingur sagði Þjóðviljanum í
gær, en svona tæki era á nokkr-
um aðalveðurathuganastöðvum
um alilan heim og er það mjög
bagailegt fyrir alþj óða ran n sók n i r
á sólargeislunum að þesisi eina
stöð í Aítondiafinu stoulli nú faJla
að þessar mælingar hér falli
niður um margra mánaða skeið.
Þetta var eina slíka tækið á
landinu og er metið á um 20
þúsund krónur en þar sem svona
mælitaaki era ekki á almennum
markaði, verður að stníða þau
sérstatolega fyrir hverja stöð.
Tækið hjá okkur hefur einu
sinni áður verið eyðilagt, þá var
kastað í það grjóti, og tók níu
mánuði að fá nýtt.
Að þessu sinni hefur verið
Idlifrað upp á tum Vatnsgeymis-
ins og mikið fyrir þessu haft, m.
a. þurft að sarga sundur raf-
magnsleiðslur sem lágu að sól-
geislamælinum. Sonniilegast þyfc-
ir, að hér hafi einhverjir krafck-
ar verið að verki í óvitasfcap og
ektoi gert sér grein fyrir því hve
dýrmætan hlut þau voru að
eyðileggja. Er þvi vinsamlegast
beint tii foreldra ef þau stoyldu
verða vör við mælinn í fórum
bama sinna að reyna að koma
honum ósiködduðum aftór til
Veðurstofúnnar eða rannsóknar-
lögreglunnar.
Sdlgeisfiamælirinn er lítíð tætoi,
glerkúla á þrffæti, heldur stærri
on Ijósapera. Innan í glerkúlunni
era vínar og þræðir og er tæfcið
ónýtt ef kúlan brotnar.
að þeir feðgar, Georg og Andre-
as Papandreou, séu meðal þeirra
sem handteknir hafa verið, en sú
fregn hefur verið borin til baka
í Aþenu að Andreas hafi verið
tekinn af lífi.
.Jf'rjáls heímur“
Blöð komu út í Grikklandi i
dag, en öll blaðaútgáfa var bönn-
uð á föstudaginn. Það voru forjú
dagblöð sem komu út, öll saman
málgögn hægrimanna. Sagt var
að hin blöðin, málgögn vinstri-
manna og Miðbandalagsins, hefðu
ekki komið út vegna þess að út-
gefendur þeirra hefðu ekki fall-
izt á þær reglur sem her-
foringjastjórnin hefur sett um
blaðaútgáfu.
Eitt þessara þriggja blaða hafði
aldrei komið út áður og er því
talið sérstakt málgagn herfbr-
ingjanna. — Það heitir „Frjáls
heimur“, hefur baráttuna gegn
kommúnismanum að helzta
stefnumáli, sagði fréttamaður
brezka útvarpsins, og bætti við
að sjálft nafn þess gæfi til kynna
hvaða afstöðu herforingjaklíkan
tekur til heimsmálanna.
„Kommúnlstar“
Innanrikisráðherra í stjórn
herfbringjanna, Patakos, hefur
sagt í viðtali við blað á Kýpur
að þeir menn sem hafi verið
handteknir i Grikklandi séu
„kommúnistar“ og aðrir sem
hættulegir séu öryggi rfkisins.
Þeir muni verða látnir lausir aft-
ur, ef þeir lofi því að gera ekki
uppreisn.
1 óstaðfestum fregnum frá
Aþenu er sagt að þeirsemhand-
teknir hafi verið skipti foúsund-
um og handtökunum haldi áfram.
Valdaránið í Grikklandi hefur
valdið mótmælafundum og göng-
um víða um heim. Hefur fólk í
ýmsum höfuðborgum Vestur-
Evrópu safnazt saman við grisku
sendiráðin til að láta í ljós and-
úð sina á framferði herforingj-
anna og Kbnstantíns konungs.
Komarof
Framhald af 1. síðu.
farið hafi splundrazt í lendingu
vegna þess að fallhlífaútbúnað-
urinn bilaði.
Eins og Apolloslysið?
Komarof er fjórði geimfarinn
sem lætur lífið þegar hann var
að starfi og sá fyrsti sovézki
og hann er einnig sá fyrsti sem
bíður bana á braut. Hinir þrír
voru bandarísku geimfaramir
Grisson, White og Chaffee, sem
brunnu inni í Apollofari sínu á
skotpallinum á Kennedyhöfða í
janúar s.l.
Það slys hefur verið talid mik-
ill hnekkir fyrir geimferða- eða
öllu heldur tunglferðaáætlun
Bandaríkjanna og mönnum er nú
spurn hvort sovézka geimslysið í
dag hafi verið annað eins áfall
fyrir geimferðir Sovétrikjanna.
Þeirri spumingu verður ekki
svarað með neinni vissu sem
stendur, meðan engin alger vissa
er um hvemig slysið bar að:
tíminn einn getur því úr því
skorið.
Konu leitoð
Hjálparsveit skáta og slysa-
varnadeildin í Hafnarfirði vora
i gærkvöld kallaðar út til að leita
konu sem saknað var. Fannst
konan heil á húfi stuttu eftir að
leitin hófst.
Fólk grét
Þegar fréttin um afdrif Kom-
arofs sem var fertugur að aldri
og lætur eftir sig konu og tvö
böm barst um Moskvu urðu
borgarbúar harmi lostnir. Frétta-
ritari brezka útvarpsins sagði að
víða á götum borgarinnar hefði
mátt sjá társtokkin andlit og
hefðu borgarbúar ekki verið jafn
daprir í bragði síðan fréttin um
andlát Stalins barst.
Tilkynnt hefur verið að Kom-
arof hafi að honum látnum verið
sæmdur heiðurstitlinum „Hetja
Sovétrikjanna'*. Útför hans verð-
ur gerð f Moskvu og verða jarð-
neskair leifar hans lagðar til
hinztu hvildar í Kreml.