Þjóðviljinn - 04.05.1967, Blaðsíða 2
2 v&osmssðmsá ~ &amÉo&-S* maf iasz.
Úr anddyri Hótel Loftleióa.
75 þúsund manns gistu á Hótel
Loftleiðum fyrstu starfsáríi
■ Á mánudaginn 1. maí,
var blaðamönnum boðið í
afmælisveizlu, með rjóma-
tertu og öllu tilheyrandi,
en afmælisbarnið var Hótel
Loftleiðir, sem nú hefur
verið starfrækt um eins árs
skeið. í viðtali við forstöðu-
menn hótelsins voru rakin
nokkur atriði í sambandi
við starfsemina fyrsta árið
og kom þar fram, m.a. að
hún hefur gengið sam-
kvæmt vonum og urðu hót-
elgestir rúm 15 þúsund tals-
ins, en meðalherbergjanýt-
ing um 60%, og gestir í veit-
ingasölum urðu um 60 þús-
und.
Við Hótel Loftleiðir starfa nú
um 130 manns. Hótelstjóri er
Stefán Hirst lögfræðingur, sem
tók við því starfi 1. marz sl.
af Þorvaldi Guðmundssyni, sem
hafði haft yfirumsjón með
rekstri hótelsins frá opnun og
jafnframt með skipulagningu
þess áður en það opnaði. Stef-
án Hirst starfaði áður sem full-
trúi bæjarfógetans í Hafnar-
firði. Deildarstjórar hótelsins
eru Friðrik Gíslason veitinga-
stjóri, Emil Guðmundsson og
Geirlaug Þorvaldsdóttir mót-
tökustjórar, Einar Guðjohnsen
skrifstofustjóri, Friðrik Theo-
dórsson sölustjóri, Bjarni Guð-
jónsson þjónastjóri og Karl
Finnbogason yfirmatsveinn.
Innan hótelsins er starfrækt
sundlaug með gufubaðstofum,
snyrtistofa. hárgreiðslustofa og
rakarastofa og er þessi þjón-
usta bæði fyrir gesti hótelsins
og fólk úr Reykjavík. Ennfrem-
ur er rekin innan hótelsins
min j agripaverzlun.
Veitingasalir hótelsins eru
helztir Blómasalur, Víkingasal-
ur og Cafeteria og eru allir
þessir staðir mikið sóttir bæði
af hótelgestum og borgarbúum.
Blómasalinn og Víkingasalinn,
þar sem hljómsveit Karls I illi-
endahls sér um fjörið auk er-
lendra skemmtikrafta, þarf vart
að kynna, en Cafeterían, sem
opnuð var síðar, er matsölu-
staður með sjálfsafgreiðslu-
sniði, þar sem matur er af-
greiddur á mjög stuttum tíma
fyrir verð við allra hæfi.
Auk fastra liða í starfsem-
inni hafa verið leigðir út salir,
Blómasalur. Leifsbúð og
-<$>
Nið-
urlæging
I útvanpsdagskránn i að
kvöldi fyrsta maí átti Stef-
án Jónsson m.a. einkar fróð-
leg viðtöl við starfsmenn Búr-
fellsvirkjunar. Þar kom fram
að íslenzkir starfsmenn töldu
margt miður fara; sumir sögðu
erlenda starfsbræður sína
vera á miklu hærra kaupi líkt
og tíðkast í nýlendum og
hálfnýlendum þar sem litið
er á innborna sem óæðra kyn;
það kom í ljós að engin sjálf-
stæð samtök starfsfólksins
hafa enn verið stofnuð. Eitt
var þó furðulegast af öllu því
sem fram kom í þessum
viðtölum. Starfsmennimir
greindu frá því að engin að-
staða væri til félagslífs á
staðnum, eina starfsemin af
því tagi væri kvikmyndasýn-
ingar tvisvar í viku, en þær
annaðist Upplýsingaþjónusta
Bandaríkjanna.
í sambandi við dátasjón-
varpið hefur mikið verið rætt
um skyldur fullvalda þjóðar
til þess að hafa sjálf yfirráð
yfir menningarstarfsemi í
landi sínu, engin sjálfstæð
þjóð gæti unað því að fela
erlendu stórveldi hina mikil-
vægustu þætti á því sviði.
Þessum röksemdum hefur
ekki verið mótmælt nema með
lágkúrunni einni. En hér er
auðsjáanlega um meira en
dátasjónvarpið að tefla.
Starfsmannahópurinn við Búr-
fell jafngildir talsvert stóru
þorpi á íslenzkan mælikvarða.
Þetta þorp er einangrað; það
hefur enga aðstöðu til fé-
lagslífs, tómstundaiðkana og
menningarviðleitni. Inn í
þetta tómrúm kemur upplýs-
ingaþjónusta erlends stórveld-
is og leggur til — ókeypis —
kvikmyndasýningar tvisvar í
viku. Auðvitað kemur engum
til hugar að Upplýsingaþjón-
ustunni gangi til mannkær-
leiki, einhver óeigingjörn
löngun til þess að stytta
mönnum stundir uppi í ó-
byggðum. Hér er um að ræða
það sem Bandaríkin kalla
„sálfræðilegan hemað“, til-
raun til þess að undiroka
menn andlega — það er að
sjálfsögðu ákjósanlegri bar-
áttuaðferð en bensínhlaup og
nálasprengjur. Frásögnin um
einkarétt Upplýsingaþjónustu
Bandaríkjanna til félagsstarf-
semi við Búrfell er eitthvert
furðulegasta dæmið um ís-
lenzka niðurlægingu sem ég
hef lengi heyrt.
Hér er um að ræða vanda-
mál sem íslenzku verklýðs-
samtökin hefðu átt að gefa
gaum fyrir löngu. Þegar tek-
in eru upp stórfelld störf
fjarri mannabyggðum og þar
rísa íslenzk þorp er ekki
nægilegt að semja um kaup
og kjör, dagvinnu, eftirvinnu,
næturvinnu, duldar greiðslur
og helgarfrí, sæmilegar vist-
arverur og boðlegt fæði. Mað-
urinn lifir ekki á brauði einu
saman, og við slíkar aðstæð-
ur á það að vera skýlaus
krafa að verkafólk eigi kost
á eðlilegri félagsstarfsemi sem
mótist af þeirri einföldu stað-
reynd að við erum íslending-
ar. Atvinnurekendur við Búr-
fell eru ekki að ráða til sín
nein vinnudýr, heldur lifandi
fólk, sem á áhugamál og
verður að eiga þess kost að
sinna þeim; það atriði á að
vera sjálfsagður þáttur í slík-
um kjarasamningum. Auðvit-
að er hægt að halda uppi
eðlilegri félagsstarfsemi í
þorpinu við Búríell, kvik-
myndasýningum undir ís-
lenzkri stjóm, bókaútlánum
og annarri hliðstæðri iðju,
auk þess sem auðvelt er að
tryggja þangað gestakomur
annað kastið. Hafi áróðurs-
deildir erlendra sendiráða
hug á að koma varningi sín-
um á framfæri, ber að velja
framlög þeirra samkvæmt ís-
lenzku mati, en ekki afhenda
þeim neina einokunaraðstöðu.
Er þess að vænta að niður-
lægingunni sem Stefán Jóns-
son skýrði frá á baráttudegi
verkalýðsins linni tafarlaust.
— Austri.
Snorrabúð, til hvers konar
einkasamkvæma, fundahalda,
fermingarboða o.fl. og verður
lögð aukin áherzla á þessa
starfsemi í framtíðinni.
Eins og áður er sagt dvöldu
rúmir 15 þúsund gestir á hótel-
inu á árinu, en gistinætur urðu
32.140, þannig að meðal dvalar-
lengd gesta varð rúmir tveir
dagar. Þar af voru gistinætur
fyrir viðdvalargesti Loftleiða
(Stopover-gesti) 10.061 á þessu
starfsári eða 31,3% af heildar-
tölu gistinótta. Meðalnýting
herbergja varð um 60%, sem
telst mjög gott af fyrsta starfs-
ári. Minnst nýting varð í fe-
brúar, 40%, og mest í ágúst
80%. Gestir hótelsins skiptust
nokkurn veginn í þrennt, inn-
lendir gestir %, stopover-gest-
ir % og tilfallandi gestaumferð,
bókuð beint eða gegnumferða-
skrifstofur %. Áberandi aukn-
ing innlendra gesta varð síð-
ustu mánuði starfsársins og er
ástæðan talin m.a. hagstætt
herbergjaverð. sundlaugardeild-
in og þægilegar strætisvagna-
ferðir.
Miklar bókanir liggja nú fyr-
ir hjá hótelinu fyrir sumarið
og er fyrirsjáanlegt að öll her-
bergi verða fullskipuð sumar-
mánuðina og einnig er búizt við
meiri aðsókn í haust en í fyrra.
Þegar hafa verið ráðnir
skemmtikraftar fyrir Víkinga-
salinn fram eftir sumri og verð-
ur reynt að hafa sem mesta
fjölbreytni í þeim efnum.
Auk þess sem ákveðið er að
leggja áherzlu á leigu smærri
salarkjmna hefur hótelið í
hyggju að selja út veizlumat
á hausti komanda en það hefur
mjög fullkomið eldhús, ásamt
bakaríi og öllum nauðsynlegum
áhöidum.
Nýjung í hótelrekstrinum er
svokallað fjölskylduherbergi,
þar sem fjölskyldum og smæx-ri
hópum er gert kleift að kaupa
gistingu á hagkvæmu verði og
rúmar þetta herbergi átta
manns.
Rauðu skikkj-
unni illa tekið
íCannes
• ,Jtauða skikkjan“ fékk held-
ur misj'afna dóma gagnrýnenda
á alþjóðlegu kvikmyndahátíð-
inni í Gannes. Fannst flestum
gagnrýnendanna kvikmyndin
alltof langdregin og að of lítið
gerðist í henni.
Á blaðamannafundi eftir sýn-
inguna sagði Gabriel Axel,
stjórnandi myndarinnar, að
danskir kvikmyndagagmýnend-
ur hefðu heldur ekki tekið
henni vel, en að hann vonaði
að sýningin í Cannes myndi
auka áhugann á henni.
„Þetta er ellefta kvikmyndin
mín, og kannski sú síðasta,
hún varð mjög dýr“, sagði
Gabriel Axel.
Nauðungaruppbcð
Eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík
og ýmsra lögfræðinga fer fram nauðungar-
uppboð að Síðumúla 20, (Vöku h.f.), hér 1
borg, föstudaginn 12. maí 1967, kl. P/2 síð-
degis og verða þar seldar eftirtaldar bif-
reiðar:
R-287, R-510, R-890, R 1129,
R-1956, R-2340, R-2432, R-2611,
R-2834, R-3231, R-3422, R-3497,
R-3723, R-3880, R-4162, R-4180,
R-4497, R-4636, R-4722, R-5060,
R-5783, R-6049, R-6327, R-6589,
R-6946, R-6971, R-7143, R-7330,
R-7618, R-7620, R-7923, R-8196,
R-8446, R-8611, R-8851, R-9188,
R-9533, R-9975, R-9980, R-10200,
R-10245, R-10312, R-10521, R-10537, R-10774,
R-10924, R-11259, R-11444, R-11473, R-111C4,
R-11660, R-11792, R-11889, R-12187, R-12188,
R-12588, R-12691, R-12830, R-12832, R-13153,
R-13288, R-13299, R-13410, R-13468, R-13622,
R-13730, R-13745, R-13749, R-14085, R-14279,
R-14388, R-14498, R-14506, R-14523, R-14608,
R-14651, R-14657, R-14660, R-14667, R-14841,
R-15119, R-15267, R-15468, R-15595, R-15649,
R-15780, R-15845, R-15865, R-15878, R-16098,
R-16280, R-16464, R-16513, R-1G542, R-16670,
R-16730, R-16733, R-16801, R-16832, R-16971,
R-17186, R-17342, R-17532, R-17567, R-17624,
R-17813, R-18127, R-Í8Í41, R-18266, R-18339,
R-18476, R-18573, R-18741, R-18950, R-18996,
R-19206, R-19258, R-19543, R-19717, R-19832,
R-19975, R-20101, R-20486, R-20843, R-20880,
Pressubíll R-2730 og mótorhjól R-3934. Enn-
fremur L-944, Y-1228, X-2053, og ótollaf-
greiddur Rambler-bíll árgerð 1961.
Þá verða einnig seldar 3 loftpressur, 3 jarð-
ýtur og skurðgrafa.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
BORGARFÓGETAEMBÆTTIÐ
í REYKJAVÍK.
Stúdentakórinn
heldur samsöng fyrir styrktarfélaga í
GAMLA BIÓI
föstudaginn 5. anaí kl. 19 og laugardaginn
6. maí kl. 15.
Ódagsett skírteini gilda á föstudagssam-
sönginn.
STÚDENTAKÓRINN.