Þjóðviljinn - 04.05.1967, Blaðsíða 5
Flmmtudagur 4. maí 1967 — ÞJÓÐVILJTNN — SÍDA tj
Umsóknir um réttindi
tii hópferðaaksturs
Samkvæmt lögum nr. 83/1966 falla núgild-
andi rettindi til hópferðaaksturs úr gildi
þann 9. júní 1967 og verða veitt að nýju
frá þeim tíma fyrir tímabilið 9. júní 1967
til 1. júní 1968.
Umsóknir um hópferðaréttindi skulu send
Umferðarmáladeild pósts og síma, Umferð-
armiðstöðinni í Reykjavik fyrir 22. maí 1967.
í uansókn skal tilgreina skrásetningamúm-
er, sætafjölda og tegund þeirra bifreiða,
sem umsækjandi sækir um hópferðárétt-
indi fyrir. — Reykjavík, 2. maí 1967.
AÐALFUNDUR
KAUPFÉLAGS HAFNFIRÐINGA
verður haldinn föstudaginn 5. maí kl. 20.30
í fundarsal Kaupfélagsins. — Dagskrá sam-
kvæmt samþykktum félagsins.
STJÓRNIN.
Gúmmívinnustofan h.f.
Skipholti 35 — Símar 3T055 og 30688
ATHUGIÐ
Getum bætt við okkur klæðningum og við-
gerðum á bólstruðum húsgögnum. — Gróðir
og vanir fagmenn.
Húsgagnav. Porsteins Sigurðss.
Grettisgötu 13. — Sími 14-0-99.
Auglýsingasími Þjóðviljans 17 500
PADimNETTL
henta þar sem erfið skilyrði
eru. —- Byggð fyrir fjalllendi
Noregs.
Sérhæfðir menn frá verk-
smiðjunum í Noregi annast
þjónustuna af þekkingu.
Radionette-verzlunin
Aðalstræti 18 sími16995
Aðalumboð:
Einar Farestveit & Co. hf.
Vesturgötu 2.
,Hunangsilmur' á
sviðinu í Lindarbæ
Fimmtudaginn 11. mai n. k-
frumsýnir Þjóðleikihúsið leik-
ritið „Hunangsilm“ eftir enáku
skáldkoriuna, Shelagh Delaney;
verður leikurinn sýndur á
„Litla sviðinu“. Þýðandi leiks-
iiis er Ásgeir Hjartarsrin.
Höfundur leikritsihs, Shelagh
Delaney, var aðeins 19 ára
■þegar hún skrifáði það og vann
þá í verksmiðju í Manchester.
Hún sendi leikinn til Joan
Littlewood og setti Littlewood
hann á svið í leikhúsi sínu
Theatre Workshop í Tlieatre
Royal Stratford. Leikritið hlaut
strax mjög góða dóma og var
sýningin síðan flutt til Lon-
don. og sýnt þar í 18 mánuði
Leikurinn var .frumsýndur í
maí ’58 og hlaut verðlaun sem
bezta nýja leikritið sem sýnt var
í London það leikár. Síðan var
leikritið kvikmyndað og gerði
höfundurinn sjálfur kvik-
myndahandritið. Myndin var
sýnd hér fyrir nokkru.
Shelagh Delaney hefur skrif-
að fleiri leikrit og má í þvi
sambandi nefna leikritið „The
Lion in Love“, sem var frum-
sýnt árið 1960 og hlaut ágæta
dóma. Auk þess hefur hún
skrifað margar smásögur.
Ýmsir segja að leikritahöf-
undarnir Jóhn Osborne og
Shelagh Delaney hafi valdið
stefnubreytingu í nútíma enskri
leikritun. En eins og kunnugt
er varð John Osborne heims-
frægur fyrir fyrsta leikrit sitt,
„Horfðu reiður um öxl“, sem
sýnt var í Þjóðleikhúsinu árið
1958. Það sama má segja um
Shelagh Delaney, hún hlaut á-
Shelagh Delaney.
líka lof fyrir leikri.t sitt, „Hun-
angsilm'* á sínum tíma.
Leikpndur í „Hunangsilmi“,
eru aðeins fimm, þau Brynja
Benediktsdóttir, Helga Valtýs-
dóttir, Bessi Bjamason, Gísli
Alfreðsson og Sigurður Skúla-
son. Leikstjóri er Kevin Palm-
er, en leikmyndir og búninga-.
teikningar em gerðar af Una
Collins.
Byggingarlóðum úthlutað
Borgaryfirvöld hafa nýlega
samþykkt eftirfarandi lóðaút.-
hlutun:
Efstasund 2: Brynhildur Þor-
kellsdóttir, Krossamýrabl. 14,
skv. bréfi lóðanefndar, dags.
17. f.m.
Haðaland 22: Gu.mundur Þeng-
ilsson, Vonarlandi v/Sogaveg,
skv. bréfi sömu, dags. s.d.
Geitland 29: Haukur Zóphoni-
asson, Álftamýri 8, skv. bréti
sömu, dags. 12. f.m.
Geitastekkur 3: Grétar R.
Kristjánsson, Keflavíkurfflug-
velli, skv. bréfi sömu, dags.
17. f.m.
Helhiland 10: Gisli Guðmunds-
son, Háteigsvegi 22, skv. bréfi
dags. s.d.
Haðaland 19: Ámi Sigurbergs-
son, Melgerði 8, skv. bréfi,
dags. s.d.
Haðaland 21: Jón Einarsson,
Bergstaðastræti 46, skv. bréfi,
sömu, dags. s.d.
Haðaland 14: Gunnar Gíslason,
Grundargerði 12, skv. bréfi
sömu, dags. s.d.
Bjarmaland 3: Hallidór Matthf-
asson, Unnarstíg 8, sfcv. bréfi
sömu, dags. s.d.
Einþáttungar Matthisar Jóh.
sýndirí nágrenni Reykjavíkur
Lárus og Valur í hlutvcrkum sínum í „Jóni gamla"
• Þjóðleikhúsið hefur nú haf-
ið sýningar utan Reykjavíkur
á einþáttungum Matthíasar Jó-
hannessen. Eins og þér sáið og
Jóni gamla. Fyrsta sýningin
var í Keflavik í fyrrakvöld
þriðjudag, en síðar verða svo
sýningar á Selfossi, Minniborg í
Grimsnesi og Hvolsvelli.
Einþáttungamir voru sýndir
á „Litla sviði“ Þjóðleikhússins
■ í vetur og urðu sýningar þar
alls 20. Nú fyrir skömmu var
annar einþáttungurinn, Jón
gamli, tekinn upp í sjónvarpinu
og verður honum sjónvarpað
síðar. Leikendur eru Valur
Gíslason, Lárus Pálsson og
Gísli Alfreðsson. Leikstjóri er
Benedikt Ámason.
Frá barnaskólum Kópavogs:
Innritun nýrra nemenda
Börn fædd árið 1960 eiga að hefja skólagöngu á
þessu ári.
Innritun þeirra fer fram í skólum kaupstaðarins
föstudaginn 12. maí 1967 kl. 2—4 eftir hadegi. —
Verða þau síðan nokkra daga í vorskóla.
Eldri skólaböm, er verið hafa í öðrum skólum,
en ætla að hefja skólagöngu 1 Kópavogi að hausti,
eru einnig beðin að láta innrita sig á sama tíma.
Fræðslufulltrúi.
Námskeið i hlástursoðierð
Námskeið i hjálp i viðlögum fyrir almenning
hefst þriðjudaginn 9. maí n.k. Áherzla lögð á að
kenna lífgun með blástursaðferð.
Þátttaka tilkynnist strax í skrifstofu R.K.Í., Öldu-
götu 4. sími 14658. Kennarar verða frú Unnur
Bjarnadóttir og Jón Oddgeir Jónsson. — Kennsla
er ókeypis.
Reykjavíkurdeild Rauða kross
íslands.
Uppboð
Eftir kröfu Sakadóms Reykjgvíkur, fer
fram opinbert uppboð að Borgartúni 7, hér
í borg laugardaginn 6. maí 1967 og hefst
kl. IV2 síðdegis, og verða þar seldir ýmsir
óskilamunir, svo sem reiðhjól, úr, lindar-
pennar, fatnaður, töskur o.fl.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Hafnarfjöriur
Benzínsala ESSO við Reykjavíkurveg verð-
ur framvegis opin til kl. 12 að kvöldi og í
hádegi á sunnudögum.
Olíufélagið
Tilkynning
frp yfirkjörstjórn Vestfjarða-
kjördæmis
Ákveðið er að aðsetur yfirkjörstjórnar
verði á ísafirði.
Framboðslistum við kosningar til alþingis,
sem fram eiga að fara 11. júní 1967 skal
skila til formanns yfirkjörstjórnar, Guð-
mundar Karlssonar, Urðarvegi 8, ísafirði
fyrir miðnætti 10. maí 1967.
YFIRKJÖRSTJÓRN
VESTFJARÐAKJ ÖRDÆMIS.
Kuldajakkur, úlpur
og terylene buxur í úrvali. — Póstsendum.
______
O. L. Traðarkotssundi 3
(móti Þjóðleikhúsinu) — Simi 23169.
jL