Þjóðviljinn - 04.05.1967, Blaðsíða 12
Spjall um norræna listsýningu
ÞÁ VERÐUR SKÁUNN
AÐ VERA KOMINN UPP
I
Sýningin „Norræn myndlist
1967“ var opnuð 27. apríl
í Liljevalchs Kunsthall í
Stokkhólmi og stendur hún til
28. maí. Meðal þeirra ís-
lenzkra listamanna sem við-
staddir voru opnun sýningar-
innar var Jóhannes Jóhannes-
son en hann sá ásamt Stein-
þóri Sigurðssyni um að setja
upp íslenzku deildina. Jóhann-
es er nýkominn heim og átti
Þjóðviljinn við hann stutt við-
tal um sýninguna.
Á norrænum myndlistarsýn-
ingum hefur áður verið sá
háttur á hafður, sagði Jó-
hannes, að hvert land hafði
ekki afmarkaða sýningardeild,
en nú var sýningarhúsnæði
skipt milli landa og síðan
dregið um hvað hver aðili
skyldi fá í sinn hlut. Við og
Finnar vorum óheppnir og
lentum til hliðanna, en um
það tjáir að sjálfsögðu ekki
að sakast.
Við íslendingar vorum að
þessu sinni með flesta lista-
menn, ellefu málara og þrjá
myndhöggvara. Hin löndin
höfðu að þessu sinni valið
þann kost að sýna eftir örfáa
menn hvert. Þannig voru
Danir til að mynda með tvo
málara, og var um minning-
arsýningu nokkurskonar að
ræða um annan þeirra, sem
er nýlega látinn. Einnig voru
þeir með gríðarmikið teppi
eftir Asger Jorn og einn
myndhöggvara.
— \/ar búið að skrifa nokk-
» uð um sýninguna áð-
ur en þú fórst?
— Já, það var búið að
skrifa heilmikið, en ég hafði
ekki aðstöðu til að kynna
mér það svo neinu næmi. Mér
skildist þó, að skrifin hefðu
verið mjög misjöfn eftir því
hvaðan þau komu. Danir
voru heldur neikvæðir um
sýninguna í heild en það er
víst fremur jákvætt sem þeir
segja um okkar hluta. Svíar
aftur á móti, þeir sögðu að
við íslendingar værum ekki
nógu nútímalegir, værum í-
haldssamir. Þeir höfðu tekið
þann kost að láta fremur
unga menn hafa sitt pláss
og þeir teljast víst eindregn-
ir framúrmenn: einn hafði
komið fyrir spútnik í myrkv-
uðu herbergi sem hamaðist
þar með hljóðum og ljóseff-
ektum; í annan stað var kom-
ið fyrir búri á miðju gólfi
sem átti að tákna ófrelsi
mannsins — satt að segja ef-
ast ég um að þessir menn hafi
verið á réttum leiðum.
— Hvað fannst þér annars
sjálfum um sýninguna?
— Ég held að við höfum
staðið okkur nokkuð vel. Og
Finnar voru nokkuð góðir,
sérstaklega áttu þeir góðan
skúlptúr eftir kvenmann sem
Nína heitir Terao. Norðmenn
áttu líka góðan skúlptúr
þarna.
Þessar norrænu sýningar eru
haldnar annað hvert ár,
sú næsta verður í Danmörku
og síðan verður komið hing-
að — og þá verður skálinn
að vera kominn upp. Það
verður að vísu í nánd við
kosningar, en það er ekki gott
að vita hvaða áhrif það hef-
ur á svoleiðis framkvæmdir.
Annars blasir það við hve
við erum illa settir hvað að-
búnað snertir í samanburði
við aðra. Finnskir listamenn
virðast til að mynda mjög
duglegir: þeir eiga hús um
allar jarðir, á Ítalíu og Spáni,
og geta sent sína menn þang-
Jóhannes.
að ef svo ber undir. Og nýtt
dæmi: Forstjóri listasafns í
Stokkhólmi hélt nýlega sýn-
ingu sem hann kallaði „Eins
og ég vildi að safnið væri“ •—
og fékk þá lánuð mörg verk
til að uppfylla þær kröfur.
Eftir sýningu bað hann um
15 miljónir króna sænskar til
að geta keypt eitthvað af því
sem á sýningunni var — og
fékk einar tíu miljónir, fyrir
utan fast framlag til safnsins.
Og ef við hugsum til blank-
heitanna á okkar listasafni ...
Engir sáttafundir
!iafa veriS boðaðir
Enginn sáttafundur hefur ver-
ið boðaður i deillu málmiðnaðar-
manna við atvinnurekendur og
ekiki fyrirsjáanlegar á næstunni,
sagði Torfi Hjartarson, sátta-
semjari rfkisins, í viðtali við
Þjóðviljann í gasr.
Siðast var sáttafundur haddinn
með deiluaðilum mi*/ikudag-
inn 26. apríl og var þá breittbil
milli deiluaðila, sagði Torfi.
Þá er sömu sögu að segja frá
deilu lyfjafræðinga og apótékara.
Sáttafundur var haldinn með
þeim aðilum þriðjudaginn 25.
apríl og var þá óbrúanlegt bil
milli deiluaðila.
Orðsending til
lesenda Óska-
stundarinnar!
Lesendum Óskastundar-
innar er bent á að hún birt-
ist ekki í Þjóðviljanum í
dag vegna rúmleysis í blað-
inu. Næsta fimmtudag verð-
ur aftur á móti Óskastund
í Þjóðviljanum og svo
framvegis á hverjum
fimmtudegi eins og verið
hefur.
■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Blaðskák TR:TA
SVART: TA:
Jón Björgvinsson
Þorgeir Steingrímsson.
a b c d e t g n
■ö’ili 5
a b c d e t g h
HVlTT: TR:
Arinbjörn Guðmundsson
Guðjón Jóhannsson
37. — Dxa4
38. Dg8t
„Ítaíska línan" kynnt ís-
lendingum næstu 10 daga
1 dag hefst í Reykjavík ítölsk
sýning, „La Linea Italiana“ eða
Italska línan, menningar- og
viðskiptakynning, sem haldin er
að undirlagi ítalska viðskipta-
málaráðuneytisins og viðskipta-
stofnunar þess (ICE).
Kynning þessi mun standa tíu
daga, 4. — 14. maí, að því er
framkvæmdastjóri hennar, Thor
R. Thors ræðismaður ítala sagði
Þjóðviljamim í gær, og slkiptist í
þrjá aðalllþætti, sýningu í and-
dyri Háskólabiós, útstillingar í
verzlunargluggum og matar-
kynningu á Hótel Sögu.
I anddyri Háskólabíös verður
Blómasala Mæðra-
styrksnefndar
Hafnarf jarðar
Hin árlega blómasaia Mæðra-
styrksnefndar Hafnarfjarðar er
í dag, en ágóðanum af sölunni
er varið til styrktar einstæðum
mæðrum, þeim er við erfiðar
aðstæður búa eða eru á ein-
hvern hátt hjálpar þurfi.
Á mæðradaginn í fyrra barst
Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarð-
ar peningagjöf er verða skyldi
vísir að sjóðstofnun til styrktar
munaðarlausum bömum í Hafn-
arfirði. í bréfi með gjöfinni er
því beint til nefndarinnar að
verja gjöfum er henni kynnu
að berast á mæðradaginn til
styrktar sjóðstofnuninni, engjöf-
ina segir gefandi vera til minn-
ingar um syni sína 2 sem dóu svo
ungir að þeir vissu ekki hvað
móðir er.
Vill Mæðrastyrksnefnd vekja
athygli bæjarbúa á þessari sjóðs-
stofnun, sem gengið verður frá
nú á næstunni, og mun gjöfum
og áheitum til sjóðsins verða
veitt móttaka af nefndarkonum.
Blómasölubörn era beðin að
mæta á skrifstofu Verkakvenna-
félagsins í Alþýðuhúsinu við
Strandgötu kl. 10 f.h.
sýnd ,,ítalska linan“ í ýmiskon-
ar framleiðslu, svo sem fatnaði,
bílum og fleira, auk þess sem
þar eru sýndir þjóðbúningar frá
ýmsum héraðum ItaJíu. 1 sam-
bandi við þessa vörukynningu
verða haldnar tízkusýningar að
Hótel Sögu 11. og 12. maí og
munu ítalskar sýningarstúlkur
og sennillega einnig íslenzkar
sýna þar ítalskan fatnað einsog
hann gerist bezfcur.
í mörgum verzlunargluggum í
miðibænum hefur verið komið
fyrir útstillingum til að minnaá
sýninguna og sýna verzlanimar
i gluggunum þser ítölsku vörur
er þser hafa á boðsfcólum.
Að Hótel Sögu er kominn ít-
alskur matreiðslumaður semmun
sjá um „ítölsku línuna“ hivað
matinn snertir og framreiða þar
ýmsa frægustu rétti þjóðar sinn-
ar. Ætlunin var að fá hingað
óperusöngvara frá Italíu tiJ
skemmtunar, en sennilega getur
ekki orðið af þvi, þar sem óp-
erur era enn fuilstarfandi á It-
alíu.
Föstudaginn 5. maí mun próf-
esson Marco Scovazzo flytja há-
skólafyTirlestur um menningar-
tengsl íslands og Italíu og ítalsk-
ar kvifcmyndir verða sýndar í
Háskólabiói og öðrum kivik-
myndahúsum meðan á sýning-
unni stendur og verða þessar
sýningar auglýstar jafnóðum.
Verndari sýningarinnar er Gyifi
Þ. Gíslason viðskiptamólaráð-
herra og imm hanh opna sýning-
una í Háskólabilói bl. _ 11 f Ji. í
dag ásamt sendiherra ftala á ts-
landi, Di Gropello, sem hingaðer
kcaninn vegna opnunarinnar,
en hann hefur aðsetrar í Osló.
Fimmtudagur 4. mai 1967 — 32. árgangur — 99. tölulblað.
Mæðrablómin seld
í Reykjavík í dag
MÆÐRADAGURINN er í dag,^
uppstigningardag, og stendur
Mæðrastyrksnefnd að venju
fyrir sölu á mæðrablómum I R-
vík þennan dag. Allur ágóði af
sölu blómanna rennur til Hiað-
gerðarkots í Mosfellssveit.
Formaður Masðrastyrksnefnd-
ar, Jónína Guðmundsdóttir sagði
blaðamönnum nokkuð frá sum-
ardvalarheimilinu að Hlaðgerðar-
koti en þar hafa dvalið 1700
mæður með 5—6 þúsund böm á
þeim árum sem nefndin hefur
séð um dvalarheimilið. Reyndar
hofur Mæðrastyrksnefnd hatt
þann hátt á alllt frá 1934 að
bjóða mæðrum, sem erfitt hafa
átt með að komast að heiman,
í sumardvöl. Lengi framan af
vora konumar í ýmsum skólum
úti á landi, en fyrir ellefu áram
var Hlaðgerðarfcot tilhúið til
notkunar. Vegna peningaslkorts
var þó ekki hægt að byggja
samkvæmt teikningunni en í
fyrra var ráðizt í það að bæta
við einni áhnu, ogbætistþví við
í surnar íbúð fyrir 6 konur með
böm og leikstofa. Auk þess er
ætlunin að byggja leikskúr á
lóðinni. AMs verður þá rúm fýrir
15 mæður með böm og heffur
hver kona sér herbergi.
Konumar dvelja þama 15daga
í einu og eru fjórir slikir flold:-
ar á hiverju sumri. Auk þess er
síðasta vikan æifluð fýrir full-
orðnar, einstæðar konur. Sagði
Jónína að þær konur sem vildu
notfæra sér boð Mæðrastyhks-
nefndar um ókeypis sumardvöl i
Hlaðgerðarkoti skyldu snúa sér
sem fyrst til nefndarinnar.
Að lokum sagði Jónína aðsölu-
böm gætu fengið mæðraiblómm
í öllum bamaskólum bæjarinsog
á skrifstofu nefndarinnar Njáls-
götu 3 og mun sala blómanna
hefjast kl. 8,30 á uppstigningar-
dag. Mæðrablómið kostar 25 kr.
að þessu sinni og má geta þess
að í fyrra vora seld blóm fyrir
194 þúsundir kr. auk þess sem
afMestir blómasalar í baanum
láta nefndinni í té 10% af söl-
unni á mæðtiadagmn.
Bikarkeppnin
„Litla bikarkeppnin" í knatt-
spyrnu heldur áfram í dag, upp-
stigningardag. Kl. 3 s.d. leika
Kópavogur Breiðablik og Kefl-,
víkingiar.
Guðmundur
Skaftason
segir upp
Þjóðviljinn hafði spumir
af því fyrir skömmu að yfír-
maður skattalögreglunnar
svonefndu, Guðmundur
Skattason, væri búinn að
segja upp sitarfi sanu vegna
óánægju með starfsaðstöðu
sína.
Þjóðviljinn snéri sér til
Guðmundar vegna þessarar
iregnar og spurði hann að
rví hvort það væri rétt að
íann hefði sagt upp starfi og
af hvaða ástæðum. Guðmund-
ur kvaðst ekkert vilja um
aetta mál segja. Neitaði ekki
að hann hefði sagt upp en
staðfesti það ekki heldur.
Sagði hann aðeins að það
lcæmi í ljós á sínum tíma
ivort það væri rétt. Annað
lefði hann ekki um málið að
segja.
Samkvæmt áreiðanlegum
reimildum sem Þjóðviljinn
hefur aflað sér mun það rétt
að Guðmundur sé búinn að
segja upp starfi. Mun ástæð-
an fyrst og fremst sú, eftir
íví sem blaðið veit bezt, að
iillögur sem hann mun hafa
agt fram við stjórnarvöldin
um breytingar á starfsháttum
skattstofanna og skattstjóra-
embættanna hafi verið alger-
lega hunzaöar en að álitiGuð-
mundar munu þessar breyt-
ingar nauðsynlegar til þess
að tryggja betra eftirlit með
skattsvikum en nú er. Er
Guðmundur duglegur og sam-
vizkusamur embættismaður,
sem ekki mun vilja sitja í
embætti nema hann hafi þá
starfsaðstöðu að hann geti
rækt það í samræmi við til-
gang þess. Væri það vissulega
illa farið ef Guðmundur
irektist úr starfi af þessum
söktrm og hætt við að skatta-
lögreglan verði lítið annað en
sýndarstofnun, ef stjórnar-
völd landsins þrjózkast við
að skapa henni nauðsynlega
starfsaðstöðu.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Lúðrasveitín Svanur heldur tónleika laugardaginn 6. múí
★ N.k. laugardag, 6. maí, held-
ur Lúðrasveitin Svanur tón-
leika í Austurbæjarbíói fyr-
ir styrktarfélaga og aðra vel-
unnara sveitarinnar.
★ Verkefnaskrá verður fjöl-
breytt. M.a. verða verk eftir
Lehar Maneini, Karl Ó. Run-
ólfsson og fleiri. í sveitinni
eru starfandi 28 áhugamenn.
Nokkrir ungir hljóðfæraieik-
arar hafa bætzt við á þess-
um vetri.
★ Einleikarar verða GísH Ferd-
inandsson, Einar Jóhannsson,
Bjarni Gunnaxsson og Jón Sig-
urðsson, trompettleikari sem
einnig er stjórnandi sveitar-
innar. Jón hefur stjómað
lúðrasveitinni síðastliðin 3 ár
með mjög góðum árangri sem
væntanlega mun fara vax-
andi.
★ Núverandi stjóm lúðrasveit-
arinnar skipa: Snæbjörn Jóns-
son, formaður, Guðjón Ein-
arsson, varaformaður, Bjarni
Gunnarsson, ritari, Bragi Kr.
Guðmundsson, gjaldkeri og
Sigmar Sigurðsson með-
stjómandi.