Þjóðviljinn - 11.05.1967, Side 3
Fimmtudagur H. mai 1967 — ÞJOÐVILJXNN — SlBA 3
Niðurstaða fyrstu lotu Vietnamrétrarhaldanna:
RanJaríkin hafa gerzt sek um
brot á ákvæðum alþjáðaréttar
STOKKHOLMI 10/5 —
Bandaríkin heyja árásarstríð
í Vietnam og hafa þar gerzt
sek um framferði sem brýt-
ur í bága við alþ’jóðalög.
Þetta er meginniðurstaðan
eftir fyrstu lotu réttarhald-
anna í Stokkhólmi fyrir
dómstóli þeim sem kennd-
ur er við Bertrand Russell.
Hlé hefur nú verið gert á
réttarhöldunum, en þau munu
hefjast aftur síðar og þá sjálf-
sagt í Stokkhólmi. Ekki er al-
veg 1 jóst af fréttum hvenær
næsta lota réttarhaldanna verð-
ur. Einn af riturum dómstóls-
ins sagði í gær að búast mætti
við að það yrði eftir þrjá mán-
uði eða svo, en í frétt frá
Stokkhólmi í dag segir að dóm-
stóllinn muni aftur koma sam-
an í oktöber. *
Þeir sautján menn sem sæti
áttu í dómstólnum komust ein-
róma að þeirri niðurstöðu sem
áður var nefnd. Ðómstóllinn
byggir þennan úrskurð sinn á
ýmsum milliríkja- og alþjóða-
sáttmálum, Briand-Kellogg samn-
ingnum frá 1928, stofnskrá Sam-
einuðu þjóðanna, meginreglum
sem lágu til grundvallar dóm-
unum yfir þýzku stríðsglæpa-
mönnunum í Núrnberg eftir síð-
ari heimsstyrjöldina og Genfar-
samningunum frá 1954.
Áuk árásarstríðsins gegn víet-
nömsku þjóðinni hafa Bandaríkin
margsinnis gerzt sek um órétt-
lætanlegar árásir á Kambodja,
segir dómstóllinn, sem bætir því
við að Ástralía, Nýja Sjáland
og Suður-Kórea, sem öll hafa
sent herlið til Víetnams, séu
samsek Bandaríkjunum. Hins
vegar var talið að ekki lægju
fyrir sannanir um sök Thaiiands.
í lok réttarhaldanna las Ralph
Schoenman, ritari Bertrands Russ-
ells, upp boðskap frá hinum
aldraða heimspekingi, þar sem
hann lýsir yfirgangi Bandaríkja-
manna og líkir þeim helzt við
sveitir Gengis Khans sem engu
lífi eirðu.
Skýrsla dómstólsins verður
ekki birt í heild fyrr en eftir
tvo-þrjá daga.
Norðurlöntf ítreka andstöðu
1rið valdaránið í Grikklandi
OSLÓ 10/5 — Forsætisráðherrar
Noregs, Danmerkur og Svíþjóð-
ar, Borten, Krag og Erlander,
hafa á fundi í Osló orðið sam-
mála um að fara fram á að
kvaddur verði saman sérstakur
fundur í ráðherranefnd Evrópu-
ráðsins til að fjalla um valda-
ránið í Grikklandi og verða slík
tilmæli send til Strassborgar þeg-
ar ríkisstjómir og þingnefndir
landanna þriggja hafa veitt því
samþykki sitt.
Þeir Krag og Erlander notuðu
tækifærið til viðræðna við Bort-
en þegar þeir komu í dag til
Oslóar vegna sjötugsafmælis Ein-
ars Gerhardsens leiðtoga norska
Verkamannaflokksins.
Stjómir Noregs og Danmerkur
Bifreiðaeigendur
Framleiðum áklæði á sæti, hurðarspjöíd og
mottur á gólf, í allar tegundir bíla,
Úrvalsefni, innlend og erlend.
OTUR
Hringbraut 121
Sími 10659.
Mosfellshreppur
Tilkynning um lóðahreinsun
Samkvæmt heilbrigðissamþykkt fyrir Mosfélls-
hrepp, er lóðaeigendum skylt að halda lóðum sín-
um hreinum og þrifalegum, og að sjá um, að lok
séu á sorpílátum.
Umráðamenn lóða eru hér með áminntir um að
flytja nú þegar þrott af lóðum sínum allt, sem
veldur óþrifnaði og óprýði, og skal því vera lokið
eigi síðar en 1. júní n.k
Að þessum fresti liðnum verða lóðirnar skoðaðar,
og þar sem hreinsun er ábótaýant, verður hún
framkvæmd á kostnað og ábyrgð húseiganda. án
frekari viðvörunar.
ATHUGIÐ að sorptunnur og lok fást keyptar hjá
verkstjóra hreppsins.
Hlégarði, 9. maí 1967.
Sveitarstjóri Mosfellshrepps.
hafa lýst andúð sinni á fram-
ferði grísku herforingjanna sem
þær segja að ekki samrýmist
meginreglum Nato-sáttmálans, en
féllu þó frá þvi að bera þau
mótmæli upp í fastaráði banda-
lagsins.
Herskip ekki sent
Af umræðum á norska Stór-
þinginu í dag virðist mega ráða
að norska stjórnin muni leggja
bann við því að varðskip sem
er i smíðum í Noregi handa
gríska flotanum verði sent til
Grikklands, en smíði þess er nú
að ljúka. Þetta er síðasta varð-
skipið af sex sem Norðmenn hafa
smiðað fyrir Gri'kkí. Einn af
þingmönnum Verkamannaflokks-
ins vakti máls á þessu í dag og
komst m.a. svo að orði að frétzt
hefði að hinir nýju valdhafar í
Grikklandi nptuðu varðskip til að
flytja þúsundir andstæðinga í
fangabúðir á grísku eyjunum.
Það væri óhugnanlegt til þess
að vita að Norðmenn sendu her-
gögn til þeirra sem vægju að
hinu gríska lýðræði.
Formaður utanríkismálanefnd-
arinnar, Röiseland, sagði það
sína skoðun að ekki ætti að af-
henda 'Grikkjum varðskipið.
Brezka þingíð
samþykkfi EBE-
aðld, 488:62
LONDON 10/5 — Brezka þingið
samþykkti seint í kvöld eftir
þriggja daga umræður að heim-
ila ríkisstjórninni að sækja um
aðild að Efnahagsbandalagi Evr-
ópu. Heimildin var samþykkt
með miklum meirihluta, 488 at-
kvæðum gegn 62- Um 35 þing-
þingmenn Verkamannaflokksins
greiddu atkvæði á móti, og eiga
þeir nú á hættu að verða vikið
úr flokknum. Það er þó talið
ólíklegt að Wilson áræði að víkja
svo stórum hópi þingmanna úr
flokknum.
Nál höfðað §egn Andreasi
Papandreu fyrir landráð
Herréttur mun fjalla um mál hans sem sakaður
er um að hafa tekið þátt í „Aspidasamsærinu“
AÞENU 10/5 — Andreas Papandreú, sonur Georgs, fyrr-
verandi forsætisráðherra, og sjálfur einn helzti leiðtogi
Miðbandalagsins, var 1 dag formlega ákærður fyrir land-
ráð og mun herréttur fjalla um mál hans.
isnar Gerh»rdsen
siötugur í gær
OSLÓ 10/5 — Einar Gerhardsen,
leiðtogi norska Verkamanna-
flokksins, varð sjötugur í dag og
bárust honum kveðjur úr öllum
áttum, bæði utan lands og inn-
an. Gerhardsen varð forsætisráð-
herra Noregs í stríðslokin og
gegndi því embætti að heita má
samfellt í ein tuttugu ár, þar til
samsteypustjórn borgaraflokk-
anna tók við völdum, en áður
hafði hann um langt skeið verið
formaður Verkamannaflokksins í
Osló.
GU ATEM ALABORG 10/5 — ör-
yggislögreglan í Guatemala leit-
ar nú að þýzka nazistaforingjan-
um Martin Bormann, en spurzt
hefur að hann fari huldu höfði
þar í landi. Bormann hvarf í
Berlín rétt eftir sjálfsmorð Hitl-
ers 1945 og hefur síðan verið
þrálátur orðrómur um að hann
hafi ktjmizt lifs af og sé enn á
lífi-
Skotið í Aden
ADEN 10/5 — AÍtur í dag var
skotið á og varpað sprengjum
að brezkum hermönnum í ný-
lendunni Aden, þar sem allt er
í lamasessi vegna allsherjar-
verkfalls, þess ellefta sem þar
hefur orðið á þessu ári. Brezkir
hermenn voru hvarvetna á verði
með aivæpni.
Ákæran á hendur Papandreú
yngra er ekki ný af nálinni, en
það er fyrst nú að formlega hef-
ur verið höfðað mál á hendur
honum. Hann er sakaður um að
hafa verið einn af forsprökkum
hins svonefnda „Aspidasamsær-
is“. Fyrir tveimur árum þegar
Georg Papandreú reyndi að
taka stjórn hersins í sínar hend-
ur, neitaði konungur honum um
það og neyddi hann til að segja
af sér. Konungur notaði þá
þetta meinta samsæri sem fyrir-
slátt. Því var haldið fram að
nokkrir liðsforingjar í hernum
hefðu bundizt samtökum sem þeir
kölluðu „Aspida“ (skjöld) um að
FaktúrufölsunarmáliS
Framhald af 1. síðu.
þeim hætti sem alkunnugir eru
og fyrst var lýst á eftirminnileg-
an hátt í Atómstöð Kiljans.
Hinn íslenzki heildsali fær
mismunandi reikninga fyrir vöru
sína, svokallaðar faktúrur. Einn
reikningur sýnir hið raunveru-
lega verð vörunnar 6g er hann
sýndur gjaldeyrisyfirvöldum til
að fá yfirfærðan nauðsynlegan
gjaldeyri til að borga vöruna.
Annar reikningur með lægri
upphæð er sýndur tollyfirvöid-
um til að lækka aðflutnings-
gjöld, þ.e. toll og söluskatt. á
vörunni.
Hinn íslenzki heildsali Páll
Jónsson hefur með þessu
móti sannanlega hagnazt um
rúmar 1,6 miljónir kr. Ólán
hans er það eitt að hinn er-
Iendi kaupsýslumaður sem
hann skipti við varð gjald-
þrota og mistókst íkveikjan,
svo að dönsk yfirvöld fóru að
rekast í málinu.
Athugaðar hafa verið 79 vöru-
sendingar frá Nielsen til Páls
á árunum 1962 til 1965, og telja
Starfsmenn tollstjóra og ríkis-
endurskoðunar að þar af hafi
reikningar verið rangir í 33 til-
vikum. Skv. lægri faktúrunum
var upphæð þessara vörusend-
inga 254 þús. kr. danskar og
greiddur toMur af þeim 743 þús.
ísl. kr. Hærri faktúrurnar voru
hins vegar upp á 588 þús. d.
kr., og hefði því tollur átt að
vera tæpar 1,8 milj. kr. Van-
greiddur tollur af þessum 33
sendingum nam því rúmri 1 milj.
ÍS'I. kr. Gjaldeyrisyfirfærsiur
Páls skv. lægri faktúrunni námu
um 237 þús. d. kr. en að auki
hefur hann fengið gjaldeyrisyf-
irfærslu í bönkum með því að
sýna hærri faktðruna.
Greiði við húshóndann
Við 16 vörusendingar er Þor-
björn Pétursson starfsmaður
Páls skrifaður sem innflytjandi,
en í bókhaldi E. Nielsens er
Páll talinn kaupandi vörunnar.
Innkaupsverð þessara sendinga
er talið skv. lægri faktúrum 26
þús. kr. d. og 17 þús. kr. ísl.
og voru þá greidd aðflutnings-
gjöld kr. 169 þús. En skv. hærri
faktúrum var innkaupsverð
þessara vörusendinga 339 þús.
d. kr., og átti því að greiða
rúml. 1 milj. kr. í aðflutnings-
gjöld. Vangreidd aðflutnings-
gjöld af þessum 16 vörútegund-
um voru því rúmlega 1.3 milj.
króna.
Þorbjörn ber það að hann
hafi ekki verið kaupandi að
þessum vörum en gert það að
beiðni Páls að skrifa nafn sitt
sem innflytjandi. Þó bar þeim
Páli saman um það að Þorbjörn
hafi einn verið innflytjandi að
fjórum vörusendingum en van-
greidd aðflutningsgjöld af þeim
voru 275 þús. kr.
Nælonsokkar og plastvörur
Einnig kom fram við rann-
sóknina að nokkrum sinnum
hafi verið skráð mismunandi
vöruheiti á reikninga, og er það
gert til að fá vöruna í lægri
tollflokk. Nælonsokkar voru t.d.
fluttir inn sem plastvörur og
húsgögn sem harðviður.
Stundum voru sendar þrjár
mismunandi faktúrur yfir sömu
vöruna með þrenns konar verði.
Lægsta faktúran var ?ýnd toll-
yfirvöldum og aðflutningsgjöld
greidd skv. því. Hæsta faktúr-
an sýndi hið raunverulega
verð, en faktúran með verðinu
þar á milli notuð til að fá gjald-
eyrisleyfi í banka auk lægstu
faktúrunnar.
Engir aðrir sekir
Að lokum gat saksóknari að
ekki hefði komið í ljós við
rannsókn málsins að fleiri ís-
lenzkir kaupsýslumenn reki lúið-
stæð viðskipti og ekki ástæða
til frekari rannsóknar. Varðandi
annað sem fram hefði komið í
máli þessu væri sök fymd.
Þegar Páli og Þorbirni starfSA
manni hans var sleppt úr gæzlu-
varðhaldi hinn 3. maí sl. var
þeim tilkynnt, að þeim væri 6-
heimil brottför af landinu þar
til öðruvísi verður ákveðið.
steypa stjórn landsins og hefði
Andreas Papandreú verið aðal-
forsprakkinn. Sumir þessara
liðsforingja voru dæmdir í marz
s.l. eftir hneykslanleg „réttar-
höld“ þar sem hver meinsæris-
maðurinn bar vitni af öðrum.
Liðsforingjamir . hlutu allir
falgelsisdóma, en ákæran á hend-
ur Papandreú er þannig orðuð
að hægt væri að dæma hann til
dauða ef hann verður sekur
fundinn — og herrrétturinn mun
ekki eiga erfitt með það.
Að- svo stöddu má þó telja
ólíklegt að herforingjamir þori
að taka hann af lífi. Andreas
Papándreú á marga og áhrifa-
mikla vini á vesturlöndum; hann
er víðkunnur hagfræðingur, fyrr-
verandi forseti hagfræðideildar-
innar við hóskólann í Berkeley i
Kalifomíu, kvæntur bandarískri
konu.
Georgi föður hans var sleppt
úr fangelsi í gær, ásamt nokkr-
um öðrum, en þeir verða þó
ekki frjálsir ferða sinna, heldur
mun þeirra gætt á heimilum
þeirra.
Framboðslisti
„óháðrau í Rvík
Tólf efstu sæti listans eru
gagns Óháða Lýðræðisflokksins
kom út í gær. 1 blaðinu er m.a.
birtur framboðslisti flokksins í
Reykjavík til Alþingiskosníng!
anna 11. júní n.k.
Þriðja tölublað Lögréttu, mál-
þannig skipuð: 1. Áki Jakobsson,
lögfrasðingur, 2. Benedikt Sigur-
bjömsson, framkvæmdastjóri, 3.
Guðvarður Vilmundarson, sikip-
stjóri, 4. Ingibergur Sigurjónsson,
húsasmiður. 5. Einar Matthías-
son, skrifstofumaður, 6. Petrína
Jakobsson, teiknari, 7. Ólafur
Guðmundsson, verkamaður, 8.
Heimir Br. Jóhannsson, prentari,
9. Jóhanna J. Thorlacius, hjúkr-
unarkona, 10. Haraldur Gísilason,
trésmiður, 11. Jens Pálsson, vél-
stjóri, 12. öm Karlsson, iðnnemi.
Fiytjið vöruna flugleiðis
Flugfélagið heldur uppi áætlunarflugi milli 13 staða á
landinu. Vörumóttakatil ailrastaða alla daga. í Reykjavík
sækjum við og sendum vöruna heim.
1 - m a.-‘
iiiiiÍÍiiiÍÍiÍiÍnÍiÍúi'ÍÍiÍÍöhiiLÍInÍÍjiÍiiÍ
Þér sparið tíma
Fokker Friendship skrú-
fuþoturnar eru hrað-
skreiðustu farartækin
innaniands.
Þér sparið fé
Lægri tryggingariðgjöld,
örari umsetning,
minni vörubirgðir.
• I ______________ . ... * **a
Þér sparið
fyrirhöfn
Einfaidari umbúðir,
auðveldari meðhöndlun.i
fljót afgreiðsla.
FLUCFELAC ISLANDS
Gerið
góðan mat
betri
með
BÍLDUDALS
niáursoómi grrsenmeti
4