Þjóðviljinn - 13.05.1967, Blaðsíða 12
Ágætir rithöfundar og listamenn eru
enn útilokaðir frá listamannalaunum
□ _Við útihlutun listamannalauna 1967 hafa m.a. verið
útilokaðir frá listamannalaunum Halldór Stefánsson, Jakob-
ína Sigurðardóttir, Gunnar Benediktssmi, Jónas Árnason,
Geir Kristjánsson, Ingimar Erlendur Sigurðsson, Jón frá
Pálmholti, Jón Dan, Kjartan Guðjónsson, Elías Mar, Er-
lingur Halldórsson, Þorkell Sigurbjomsson, Atli Heimir
Sveinsson, Friðjón Stefánsson, Þórunn Elfa Magnúsdóttir
— svo nokkur nöfn séu nefnd.
□ Átta voru fluttir í efri úthlutunarflokkinn, þeir Snorri
Hjartarson, Ólafur Jóhann Sigurðsson, Sigurjón Ólafsson,
Jón Engilberts, Jóhann Briem, Haraldur Bjömsson, Jakob
Jóh. Smári, Sigurður Þórðarson.
Nú var í fyrsta sinn úthlutað
samkvæmt löggjöf um lista-
■mannalaun í tveimur flokkum,
sem nefndin ákvað 60 þúsund
kr. og 30 þúsund kr., fimm fá
100 þús. kr. samkvæmt sér-
stakri ákvörðun Alþingis sem
fyrr.
í 60 þúsund króna flokkinn
komu allir þeir, sem áður voru
í efsta úthlutunarflokki og að
auki þeir átt sem fyrr eru tald-
ir.
Fulltrúi Alþýðubandalagsins,
Einar Laxness cand mag. lagði
ma. til að þrír rithöfundar yrðu
teknir í efri flokkinn, Thór
Vilhjálmsson, Indriði G. Þor-
steinsson og Hairnes Pétursson,
en þeir hlutu ekki nægilegt
fylgi.
* Hneykslanleg útilokun
Eins og fyrr segir eru í þess-
ari úthlutun útilokaðir með öllu
frá listamannalaunum menn
eins og Halldór Stefánsson,
Gunnar Benediktsson, Jakobína
Sigurðardóttir, Jónas Árnason,
Geir Kristjánsson. Ingimar Er-
lendur Sigurðsson, Jón Dan,
Friðjón Stefánsson, Erlingur
Halldórsson, Kjartan Guðjóns-
son, Þórunn Elfa Magnúsdóttir,
Elías Mar, Jón frá Pálmholti,
Þorkell Sigurbjörnsson, Atli
Heimir Sveinsson, svo nokkrir
séu nefndir; og mun ekki verða
komizt hjá því að nöfn þeirra
og verk þeirra verði borin sam-
an við þá sem veitinguna fá.
Má sannarlega segja að illa hafi
til tekizt að fella þessa menn
frá listamannalaunum.
* Greinargerð Einars laxness
cand mag.:
Einar Laxness lét bóka eftir-
farandi greinargerð um úthlut-
unina:
„Þótt nokkuð hafi áunnizt
með samþykkt nýrra laga um
listamannalaun, m.a. fækkun út-
hlutunarflokka, tel ég þó Ijóst,
að sá stakkur, sem úthlutun er
sniðinn hafi enn ýmsa vankanta
í sér fólgna, er geri úthlutunar-
nefnd mjög erfitt um vik í
starfi sínu. Veldur hér mestu,
að núverandi fjárveiting til
listamanna er allsendis ófull-
nægjandi og í engu samræmi
við vaxandi grósku hinna ýmsu
listgreina. Af þessum sökum er
eigi unnt að veita miklum fjölda
listamanna viðunandi úrlausn
og verðskuldaða.
Um úthlutun þessa ár skal
sérstaklega tekið fram, að þótt
ýmsar breytingar séu þar vissu-
lega til bóta, tel ég mjög miður
farið
Blaðskák TR:TA
SVART: TA:
Jón Björgvinsson
Þorgeir Steingrimsson.
abcdef gh
HVÍTT: TR:
Arinbjörn Guðmundsson
Guðjón Jóhannsson
47. Kh3 g4f
48. fxg4 gefið.
Þjóðviljinn þakkar keppend-
um fyrir vel teflda skák og mun
blaðið birta hana í heild síðar
með skýringum Arinbjamar
Guðmundssonar.
Séð yfir sýningarsvæði Ungverjalands. Búið er að stilla upp sýn-
ingarstúlkum en vörurnar ókomnar. Gínumar standa enn naktar
og bíða þess að verða klæddar þeim fatnaði sem ungverskar
stújkur helzt skarta með í dag. — (Ljósm. Þjóðv. H. G.).
Vörusýning fimm Ausfur-
Evrópuþjóða í Laugardal
□ Þessa dagana er mikið um að vera í LaugardalshöB-
inni, þar sem unnið er að uppsetningu stærstu vörusýning-
ar sem haldin hefur verið hér á landi. Kaupstefnan í
Reykjavík stendur fyrir sýningunni, og verða þar sýndar
vörur frá verzlunarsamböndum fimm Austur-Evrópuríkja:
Póllands, Tékkóslóvakíu, Sovétríkjanna, Þýzka Alþýðulýð-
veldisins og Ungverjalands.
Sýningin hefst næsta laugar-
dag hinn 20. maí og stendur til
4. júní og verða sýndar þar all-
ar helztu framleidsluvörur fyrr-
taldra þjóða, allt frá minnstu
smávöru upp í 16 tonna krana og
stór flutningatæki. Sýnináar-;
svæðið er um 4 þús fermetrar
úti og inni. Stór hópur manna frá
hverju landi bemiur hdngað til
starfa í sambandi við sýninguna.
Þegar enu komnir menn til að
virma að uppsetmngu og auk
þess koma 40-60 verzlunarfuHtrú-
ar og fagmenn sem sýna hvemíg
vélamar vinna auk annars starfs-
liðs.
Margt verður gert til að gera
sýninguna skemmtilega og þægi-
lega fyrir sýningargesti. Þar
verður veitingasalur fyrir 300
manns, klvi!kmyndasýningaí, fflmim
sinnum á dag í sal sem tetour
140 manns í sæti,
tóztoassýnángar þar sem koma
fnam póHstoar sýningarstú lbur og
herrar og síðast en ektoi sízt lista-
sýning á auglýsingaplakötum frá
Póllandi, en þedr standa ailra
þjóða fremsit á því siviði. Að-
göngumiðar, sem seldir verða á
40 tor. gikla sem happdrættismið-
ar, en vinningar em ýmsar af
þeim vörum sem á sýningunni
eru og verður dregið daglega.
Kaupsit§£nain Reytkjavfk sem
stendur fyrir sýningu þessari var
stofnuð fyrir 13 ámm, og er þetta
fjórða vömsýnirtg á hennar veg-
um, framfcvæmdastjóirar eru
Hautour Bjömsson og Isíleiifiur
Högnasom, en framtovæmdastjóeri
sýningarirmar er Östoar Óstoars-
son stud. ökon.
1) að ýmsir kunnir listamenn,
sem verið hafa á úthlutunar-
skrá árum saman, sknli hafa
verið felldir niður
2) að eigi skyldu hækkuð laun
til nokkurra fremstu rithöf-
unda okkar af yngri kynslóð,
3) að fjölmargir ágætir lista-
menn, eldri og yngri, skuli
vera afskiptir ár eftir ár, —
kemur það ranglæti hvað
berlegast fram varðandi hina
•yngri listamannakynslóð.
Væri þar hægt að tilgTeina
ótal marga, þótt engin nöfn
skuli nú nefnd.
Það fer því ekki milli mála,
að úthlutunin mun hjakka í
sama gamla farinu, þrátt fyrir
nýja löggjöf, ef ríkisvaidið
hækkar ekki framlag sitt til
listamannalauna að miklum mun
á næsttu árum. 1 þessu sam-
bandi skal einnig leggja þunga
áherzlu á, að sem skjótast verði
efnt það fyrirheit að koma á
starfsstyrkjakerfi til handa
listamönnum, en slík ráðstöfun
gæti mjög suðlgð að því að leið-
rétta það óréttlæti, sem í ljós
kemur við hverja úthlutun.
Með tilvísun til þessarar
greinargerðar undirritá ég út-
hlutun listamannalauna 1967.“
Skrá um úthlutunina er birt
á 6. síðu.
Laugardagur 13. maí 1967 — 32. árgangur
106. tölublað.
Krabbaleit í maga með Ijós-
myndun að hefjast hérlendis
Á næstunni munu hefjast hjá
Krabbameinsfélaginu í Leitar-
stöð A rannsóknir í því skyni
að leita uppi magakrabbamein
á byrjunarstigi. Verða notuð við
þessar rannsóknir ný tæki sem
stöðin hefur fengið, japanskar
litmyndavélar, sem kallast „gas-
trocamera“.
Rannsóknaraðferð þessari er
hægt að beita við fjöldarann-
sóknir án gífurlegs kostnaðar,
en l'æknarnir Tómas Árni Jóns-
son, Haukur Jónasson og aðal-
læknir Krabbameinsfélagsins
Bjarni Bjarnason munu annast
þessar rannsóknir og hafa þeir
allir verið erlendis, hver í sinni
heimsálfu, til að kynna sér og
læra meðferð þessara tækja.
Fyrst um sinn verður lögð
aðaláherzla á að ná til þeirra
sem eru með pýrulausa maga
eða gömul magasár, en fólki
með þessi einkenni er hættast
við að fá krabbamein í maga.
ísland er þriðja hæsta land í
heimi vað tíðni magakrabba
snertir, en hærri eru Japan og
Chile.
Auk þessara rannsókna og
annarra sem fram hafa farið í
leitarstöð A þau 10 ár sem hún
hefur nú verið star^rækt, verður
nú bætt við lýsingu upp í enda-
þarm, en á því svæði sem
þannig er hægt að rannsaka,
myndast helmingur allra krabba-
meina í þörmum.
Þessar upplýsingar komu fram
í ræðu sem Bjarni Bjarnason
læknir fluitti í gær er' tekið var
í notkun nýendurbyggt húsnæði
fyrir leitarstöðvar krabbameins-
félaganna og verður nánar skýrt
frá starfi leitarstöðvanna og á-
rangri þess í blaðinu á næstunni.
WASHINGTON 12/5 — Lögregl-
an í Washington handtók í dag
23 unga menn sem fjóra daga
í röð höfð uhaft uppi mót-
mælaaðgerðir gegn styrjöldinni
í Vietnam við og inni í Penta-
gon, byggingu hermálaráðuneyt-
Ódýr strigaskófatnaðui
Fjölbreytt
og fallegt
úrval
fyrir börn og unglinga
kvenfólk og karlmenn
Verð frá kr. 48 til kr. 99
SKÓVAL. Austurstrœti 18 1
( Eymundssonarkjallara)
Þýzkir kvenskór
frd
IRUS
í stórfenglegu úrvali
Vor og sumartízkan '67
Ný sending í dag
SKÓVAL
Austurstræti li8 (Eymundssonarkjalfera)
V