Þjóðviljinn - 19.05.1967, Blaðsíða 7
PeSstodagw 19. xaai IÖ67 — ÞJÖÐV’BEiJSNN — Stt>A J
Ölafur .lensson, læknrr, vid smásjá sána.
Undanfarin ár hefur þriggja manna nefnd
starfað á vegum Læknafélags Reykjavík-
ur og unnið að gagnasöfnun og kynningu
á æskilegu framtíðarskipulagi lækna-
þjónustu á sjúkrahúsum hér.
í þessari nefnd hafa starfað læknarnir
Guðjón Lárusson, Jón Þorsteinsson og
Ólafur Jensson og er nefndarálit þeirra
birt í síðasta hefti Læknablaðsins, —
febr.-apríl 1967.
Um áratugaskeið hefur ekki birzt hvassari
ádeila á skipulag læknaþjónustu á sjúkra-
húsum, — jafnfraimt er bent á skynsam-
legar leiðir út úr þessu öngþveiti.
Aðalrits’tjóri Læknablaðsins er Ólafur
Jensson, en það blað er gefið út af
Læknafélagi íslands óg Læknafélagi
Reykjavíkur, — fer hér á eftir viðtal við
Ólaf um sjúkrahússkortinn og fleiri þætti
í heilbrigðismálunum, — jafnframt eru
birtir kaflar úr áðurgreindri skýrslu, sem
verður áreiðanlega sögufrægt plagg með
tímanum.
Ragnheiður Jónsdóttir
9. apríl 1895 - 9. maí 1967
Þrotlaus vinna
lækna
Eins og áöur er getið hafa
læknafélögin látið heilbrigðis-
málin tdi sán taka síðuetu ár
vegna sérstakrar óstjórnar ð
þessum málum.
Gagnrjmi þeirra og tillögu-
gerð til úrbóta hafa ekki nað
nema að litlu leyti til allimenn-
ings í blöðum svo að maður
sleppi nú útvarpinu.
Þeim sem voru á stúdenta-
fundi. — er stafnað var tii með
Jóhanni Hafstein, heilbrigðis-
málaráðherra fyrir nokkrum
vikum, — gat þó ekki duiizt é-
hugi lsekna og gagnrýni þeirra
á frammistöðu stjómaxrvalda 1
þessum máiaflokiki.
Sá fundur var þó aðeins svip-
mynd af þrctlausri vinnu og
gagnrýni undanfarin ár, sem
farið hefur fram í nefndum á
vegum Læknafélags Reykjavík-
ur og Læknafélags íslands op
á fundum í þessum félögum.
Hvað eftir annað-er búið að
kynna helztu niðursitöður og til-
lögur þessa starfs fyrir hlutað-
eigandi yfirvöldum, — en þessi
mál halda áfram að draignast
niður fyrir lágmaric þess er
leyfist í siðmeiwiingarþjóðfélög-
um.
Til þess að dreipa á einn mik-
ilvaegan þátt í starfi Læknafé-
lags Reykjavfkur, — skal
minnzt á nokkur atriði úr
skýrslu einnar nefndar á þess
vegum, en álit hennar birtist
í síðasta tbl. Læknablaðsins, —
feb. — apríl 1967.
Frumdrög að þeirri skýrslu
vqtu reyndar rædd þegar á ár-
inu 1965 í Morgunblaðiniu, en
þá hafði nefnd þessi starfað um
tíma og gaf þá bréðaibiorgða-
skýrslu um sitarf sitt.
Sfðan höfúm við táðum haldið
vikuiega fundi i þessari nefnd
og unnið að gagnasöfnum og
kynniTxgu efnis fyrir iæknum og
opinberum emibættismönnum, —
er fjalla um heilbrigðismál.
Píramíðakerfið
Hér á landi er sxvonefnt pnra-
míðakerfi í skipun lækna á
opimberum sjúkrslhúsium að fyr-
irmynd frá Norðuriönduim og
Þýzkallandi um árabil. Læknum
er raðað niður eftir gráðum og
tign eins og í her, — eísbuir er
yfirlælcnir, deildarlæknir, 1. að-
stoðariæknir, 2. aðstoðairlæknir
og síðan kandídaitar og hafa
launakjör þeirra sem opinberra
starfsmanna verið miðuð við;
þessa skiptingu og hefur ríkt
þaoma mikil mismunun á starfs-
maiti og launum og yfiriseil^n-
amir löngum skipaðir eftir
pólitík.
Svona skipun gat gengið fyrir
fjörutíu til fimmtíu árum, þeg-
ar góður læknir vissi nokkurn
veginn ai'lt það, s^p vitað var
í læknisfnæðii.
Lælcnisfræði nútímans er
hinsvegar orðin víðtæk og há-
þróuð vísdndagrein, sem enginn
einstakilingur getur fengið fuflla
yfirsýn yfir. Því er undirstaða
góðrar læknásfræði í dag sairn-
vinna Sleiri eða fæm lækna.
sem hafa afiað sér sérþekking-
ar á afmödkuðum sviðum
hennar. Engil^axneskir læknar
FrdWhaM á 9. síðu.
Huldukonur Frakklands ...
í Frakklandi voru á i.yrri
öldum huldukonur margar, sem
Frakkar kölluðu fées, og álitið
var að sköpuðu mönnum örlög,
því nafnið, fée, er úr latínu
fatum, forlög. Alphonse Daudet
segir þær allar dauðar vera og
hafi þau leiðindi, sem kallást
upplýsing og skólahald, gengið
a£ þeim dauðum.
Mikinn skaða segir hann
þetta hafa verið landi sínu,
sem seint muni bætast. Með
þessum huldukonum segir aann
horfið hafa allt yndi af þessu
landi, börnin eigi þar ekki
framar föðurland, eftir að
töfrastafur Fatímu eða Melus-
ínu hætti að hreyfa við nokkru
og gefa því glit. í staðinn séu
þeim fengnar rykfullar skræð-
ur sem byrgi þeim sýn á það
sem gaman er að skoða.
Hpldukonur þessar voru
fagrár á að líta, undursamlegá
vel til fara og töfrastafurinn
lék í hendi þeirra með Ljarma
sem ekkert annað hefur. Ef
trúin á þser hefði ekki verið
svo dauf orðin, sem var, segir
Eaudet, hefði heill landsins
ekki verið svo misboðið sem
var á þessum árum (1870—71).
og hefði þá mátt veitast auð-
velt fyrir Frakka að reka- af
höndum sér þær innrásarsveit-
ir heimskra manna, sem þeim
unnu grand, hreinsa landið af
þessum ófögnuði, svo hulduljós-
ið fengi að vaka þar yfir í
næði.
... og huldukona fslands.
Hún líktist þeim að and-
litssvip og augum, að hári, lit
og látum ... Aldrei sá ég töfur-
inn hennar, en engu að síður
vissi ég það að hún átti hann.
að öðrum kosti hefði ekki bor-
ið slíkt glit af, sem gerði. Það
fannst langt að. — Nú hvarf
það. Okkur, sem þekktum það.
varð svo hverft. Þegar horfinn
er af bjarminn sem prýddi hús-
ið. svo það varð einstætt og
aldrei kemur neitt framár sem
bæti það. þá er af því gleðinn-
ar þokki — hví er dimmt í
húsi?
Verk hennar.
„... et obram tuam“. Svo
mælti páfinn við séra Friðrik
Friðriksson og klykkti út með
þeim orðum, hafandi sagt að
guð skyldi blessa hann og
vandamenn hans, föðurland og
þjóð. En enginn ræður, sam-
kvæmt trú páfa, verkum sínum
sjálfur, heldur er honum gefið
það af guði sínum, að vinna
þau.
Hver sem það er gefið af
guði sínum að kunna að lesa
bók. hann hverfur úr heimi
þessum á meðan og inn í heim
bókarinnar og því betur tekst
þetta til sem lesandinn er
jmgri. Sá sem ekki les skáld-
sögu þannig að hún verði hon-
um að reynslu sem jafngildi
lifandi lífi, hann á ekki að lesa
skáldsögu. Ungu lesendumir
hennar hafa lifað og hrærzt í
þessu lífi, sem hún skapaði í
skáldsögum sínum og öðrum
bókum. að ógleymdum ævin-
týraleikjunum, þessu eftirlæti
margra bama, svo hugfangnir
sem þeir eru við lesturinn, og
ekki þykir mér ólíklegt að þeir
mæti þessu fólki þegar minnst
varir og þykist þekkja húsin.
úti og inni. Einneigin sé þetta
þeim leiðarstjarna á lífsbraut-
inni: hversu hugsa skal, hversu
vinna skal, hversu kjósa skal
eða hafna, og svo hversu tala
skal.
Þetta var um, lesendurna.
nú er að geta um höfundinn.
Hann skráir það sem hann
þekkir til og veit um og sem-
ur úr því heild. Og hvort sem
hann fer nærri um það, eins
og ljésmyndavél, eða miklu
nær, eins og abstrakt lista-
verk af góðu tagi, þá kemur
það ekki að góðu gagni nema
það komi úr hendi hans líkt
því sem aðrir ættu að geta
séð, að viðbættu lífi hans
sjálfs.
Á þessa lund réðust verk
hennar, og mundi páfinn hafa
gizkað á að hún hafi ekki ver-
ið með öllu ein í ráðum.
Minningargreinar mundu
verða langtum íróðlegrii að lesa
þær eftir hundrað ár ef alsatt
mundi mega segja um þann
sem minnast skal, og ekki lát-
ið hallast neitt á um það sem
lofsamlegt er talið og miður
lofsamlegt, en svo óríflegan
skerf afglapa og vansæmdar
getur einn maður hlotið, að
þetta komi að engri sök. Var
það töfurinn hennar, sem bægði
frá því sém ekki átti að vera
og hún vildi ekki hafa? Und-
antekningu má þó kalla þessa
vanheilsu, sem hún hafði lengi,
en annars held ég ævina hafa
liðið henni í rósrauðu skini
góðvildar og gleði, svo sem
vera ber og er til fyrixmjmdar.
Minningargreinaskrjf eru eitt
hið vonlausasta verk, svo erfitt
sem er að lýsa manni'með orð-
um, enda þqtt móðurmál okk-
ar sé afbragð til þeirra hluta.
Enda er ekki öllum gefið að
sjá í annars barm, og kunna að
rekja aðalatriði æviferilsins,
og ekki þó hann liggi ljóst fyr-
ir svo sem vænta má hjá þeim
sem ekki hefur margs að dylj-
ast.
Fyrr en varir er sá sem lýsa
skal, hrokkinn undan og stend-
ur einn sér, að líkindum í veldi
og tign. ótilkvæmilegur, og orð-
in sem hafa átti til að lýsa
honum, dauð og ómerk, eins og
kveðinn hafi verið yfir þeim
dómur, og sá sem a pennan-
um heldur stendur eftir eins
og sá afglapi, sem má skamm-
ast sín og þarf ekki til að
vammlaus afbragðsmaður eigi
í hlut, svo sem hér — við hin
hrökkvum líka undan orðum.
Þessvegna ætla ég ekkert að
:egja framar, jafnvel þótt móð-
urmál okkar beggja sé þess
heldur fýsandi — tungan sem
hún rækti svo vel — og skilst
mér á tungunni að hún haldi að
það muni geta tekizt með til-
hjálp sinni, en það verður ekki
gert. Hinsvegar fannst mér sem
verið væri að semja lag um
burtför hennar — tout chargé
d’adieux — en þeim sem skort-
ir heyrn og róm helzt ekki á
lagi. og lagið leið út í geim
burt frá mér og ég heyri það
ekki framar.
Málfríður Eirxarsdóttir.
Fyrstu kynni mín af Ragn-
heiði Jónsdóttur voru gegnum
Rithöfundafélag fslands, og
framan af voru þau kynni
mjög takmörkuð, við vorum að-
eins málkunnug. Síðar átti það
fyrir mér að liggja að eiga
samstarf við hana sem rithöf-
und og kynnast vinnubrögðum
hennar að nokkru. Það gerð-
ist með þeim hætti, að ég las
ásamt henni prófaritir að nokkr-
um bóka hennar og varð upp
frá, því öðru hverju gestur á
hennar fallega 'heimili. Við-þau
kynni komst ég að raun um
að hxm var ekki aðeins góð
og gestrisin húsmóðir sem
gaman var heim að sækja held-
ur einnig mjög vandaður rit-
höfundur. Mér var að vísu 6-
kunnugt um, og er enn, hvort
hún- átti það sem kallað er
„auðvelt með að skrifa“, en
hitt get ég borið um nokkurt
vitni, að hún var mjög gagn-
rýnin á sjálfa sig; án þess að
vera smámunasöm átti hún það
til að lagfæra fram í síðustu
próförk það sem henni þótti
mega betur fara. Ég hygg að
einnig sé óhætt að segja að
hún hafi verið í vexti sem
höfundur svo lengi sem kraft-
ar entust.
Eftir Ragnheiði Jónsdóttur
liggja ekki færri en^nfu skáld-
sögur og tuttugu og tvær
barna- og unglingabækur, auk
leikrita og aninarra ritsmída 6-
bundins máls í blöðum og tíma-
ritum. Þetta eru ekki lit.il af-
köst þegar tekið er tillit til
þess. að hún átti einatt við
heilsuleysi að stríða, en gegndi
einnig um langt árabil tíma-
frekum kennslustörfum, að ó-
gleymdum störfum húsmóður-
mnár. En með tímanum varð
Ragnheiður einn af vinsælustu
og mest lesnu rithöfundum
landsins, sem einkum eignaðist
hugi æskufólks til sjávar og
sveita; um það vitnar ekki að-
eins sala bóka hennar, heldur
og útlán þeirra af söfnum um
land allt. Ekki alls fyrir löngu
kom ein skáldsiagna hennar, „Ég
á gull að gjalda", út á norsku
og hlaut ágætar móttökur.
Um langt árabil var Ragn-
heiður einn af traustustu fé-
lagsmönnum í Rithöfundafélagi
fslands, og var ræktarsemi
hennar við félag sitt til mikill-
ar fyrirmyndar. Þegar hún var
löngu komin á þann aldur, að
flestir eru orðnir áhugalausir
eða þreyttir á allri félagsstarf-
semi. þá var hún enn sá félagi
sem aldrei lét sig vanta á fund,
ef hún gat því við komið að
mæta. Hún var fjarri því að
vilja trana sér eða sínum skoð-
unum fram, en hún skoraðist
heidur ekki undan þegar henni
var fyrir nokkrum árum falin
formennska Rithöfundafélags-
ins. Sjálfri kom henni það mjög
á óvænt og taldi þá ráðstöfun
jafnvel miður góða; en hún var
áreiðanlega ein um þá skoðun.
Formannsstarf sitt leysti hún
l’fka af hendi eins og bezt varð
á. kosið, áhugasöm, tillögugóð,
vildi hag og sóma félagsins
sem mestan. <
Það féll í hennar hlut að
stjórna hátíðarfundi sem hald-
inn var fyrir aðeins rúmu ári
í tilefni af aldarfjórðungsaf-
mæli félags okkar. í minnis-
stæðri ræðu sem hún flutti við
það tækifæri rifjaði hún það
upp m.a. hvert viðhorf sitt og
sinnar kynslóðar hefði verið
til bókarinnar sem slíkrar á
þeim árum sem hún var að al-
ast upp; hversu mikil virðing
hefði þá verið borin fyrir
hverju því rituðu máli sem tal-
izt gat til góðra bókmennta,
hve slíkar bækur hefðu orðið
gott vegarnesti. Sú afstaða til
bókmennta fyigdi hemii sjálfri
ævilangt, það var hún sem
Frarhald é 9. síðu.
■iHnmiimHnmHnB
Eftir
niiiKUHHiHmiiHo
w
Ragnheiði Jónsdóttur
Dimmir til kveldáttar;
dagur er af grundum,
dvali á brám. —
Skiptast ný og nið,
skipta stjörnur giftu,
sínum heillum hver.
Bókin, stjarna þín,
sem ræður hugar heiði, —
hún skóp þér örlög,
drauma fjaðurham,
styrk og skyggni;
stöfum hennar fólgið
þreyði líf vort
lengstar nætur af.
ÞORSTEINN VALDIMARSSON.
Ragnheiður Jónsdóttir
Þó kæmi haust með hel og þögn
og hélu felldi á jarðarblóm
pg fölni fegurst rós
svo hrein og skær sém hvítamjöll,
í huga vorum lifir þó
mynd þessa bjarta blóms,
því aðeins þeirri einu rós
gaf auðna þennan bjarta lit
sem skópu ljós og líf.
HALLDÓRA B. BJÖRNSSON.
tminiiii
lainiihaaimnHmiimuiiiimiiiiMi
»
i