Þjóðviljinn - 02.06.1967, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 02.06.1967, Blaðsíða 6
g SÍÐA — ÞJÖÐVTLJINN — Fö&tudaaur 2. júni 1967. Skúli Guðjónsson á Ljótunnarstöðum: Trú þú aldrei á tudda náð Nýlega lét Bergur Sigur- bjömsson að því liggja í Frjálsri þjóð, að fingraför for- sætisráðherrans og félaga hans • hefðu sézt á úrskurði þeim, Bsnnað að skrifa úr veggblöðunum PEKING — 31/5 — Kínversk yf- irvöld hafa gert ráðstafanir til að koma í veg fyrir að erlendir fréttamenn og sendifulltrúar noti sér veggblöð Rauðra varðliða tii upplýsingasöfnunar. Hafa skrif- færi 'verið tekin af þeim undan- fama daga er þeir gerðu tilraun til að skrifa upp úr veggblöð- unum. Picasso og Sartre eru með ísrae! PAR.1S 31/5 — Ýmsir franskir menntamenn og lista, þ.á.m. Pa- blo Picasso og Jean-Paul Sartre hafa skrifað undir ávarp þarsem segir að try.ggja verði frjálsar siglingar til Israels, svo og ör- yggi og fullveldi landsins — um Xeið og hvatt er til þess aðdeilu- aðilar jafni ágreining sinn við samningaborð. Ætiaði konung- ur að flýja land? KAUPMANNAHÖFN 31?5 Danskt hasarblað, „Ekstrabladet“ telur sig hafa heimildir fyrir þvf að Konstantín Grikkjakóngur hafi ætlað að flýja land í þyrlu þeg- ar herforingjar frömdu valdarán sitt fyrir nokkrum vikum. Enn er þjarmað að Súkarnó DJAKAR.TA 3175. Hópur indó- nesiskra þingmanna hefur kraf- izt þess að Súkamo fyrrum ft>r- seti flytji úr glæsilegri sumar- höll sinni i Bogor fyrir sunnan Djakarta, og verði um leið svipt- ur öllum titlum og eigum. er yfirkjörstjórn Reykjavíkur felldi um lista Hannibals Valdi- márssonar. Vel gæti ég trúað, að þessi tilgáta Bergs hefði við nokkuð að styðjast. Hinsvegar finnst mér, að hann hafi ekki reikn- að dæmið til enda. Hann hrós- ar landskjörstjórn fyrir rétt- sýni og telur, að hún hafi ekki látið kúgast af neinum utan- aðkomandi áhrifum eða ann- arlegum sjónarmiðum. Hannibal Valdimarsson hef- ur marglýst því yfir, að hann bjóði sig fram fyrir Alþýðu- bandalagið og þau atkvæði, sem lista hans áskotnast, muni koma því að notum við út- hlutun uppbótarþingsæta. Væri nú ekki hugsanlegt, að hinir tveir ósamhljóða úrskurð- ir kjörstjórnanna í Reykjavík . væru tveir þaulhugsaðir leikir í sama tafli? Það þarf ek’ki mikið hugmyndaflug til þess að varpa því fram, sem senni- legri tilgátu, að þeir gætu ver- ið lesnir fyrir af sama manni. ,Vel mætti hugsa sér, að dæmið hefði verið sett þann- ig upp: Úrskurður yfirkjörstjórnar, einn út af fyrir sig er gagns- lítill, til þess að hnekkja gengi Alþýðubandalagsins. Fáir myndu þora að fóma atkvæði sínu í svo vonlaust fyrirtæki sem listi Hannibals myndi verða utarj flokka. Hinsvegar myndi gegna allt öðru máli, fengi Hannibal vonarbréf upp á, að hann yrði i tekinn inn í Alþýðubandalagið að kosning- um loknum. Þessvegna er gott, að hafa úrskurð landskjör- stjórnar sem agn, til þess að hæna sem flesta kjósendur að lista Hannibals. á silfurdiski þau atkvæði, sem Hannibal hefur með súrum sveita, aðdáanlegri bjartsýni og baráttugleði, aflað lista sínum í Reykj avík. Meðferð stjórnarvalda á lista Hannibals Valdimarsson- ar, er þvi öll hin hraksmánar- legasta. Fyrst er hann af yfir- kjörstjóm upp festur utan- garðs, sem hver annar óbóta- maður, síðan er honum af landskjörstjórn gefið fyrirheit um að hann skuli, að kosning- um loknum, niður skorinn úr sriörunni, og ef til vill aðeins til þess að verða uppfestur á ný og endanlega á sjálfu Al- þingi. Slík meðferð á þeim ágætu mönnum, er skipa listann og styðja hann, ætti í rauninni að varða við lög. Mér skilst þvi, að væntan- legir kjósendur I-listans, eigi fárra kosta völ og engra góðra, að þeirra dómi, því engir þeirra muni gera sér vonir um það í fuUri alvöru, að listi þeirra fái mann kjörinri. Eru þá aðeins tveir eftir. Sá hinn fyrri er að skila atkvæði sínu, hljóðlátlega og i kyrr- þey, miUiliðalaust á lista Al- þýðubandalagsins, eða standa stöðugir í trúnni, kjósa sinn lista og gefa þar með atkvæði sitt í yald og miskunn forsset- isráðherrans og þeirra manna. er kæmu öl með að styðja við bak hans á hinu háa nýkjöma Alþingi. Ég ætla ekki að leggja þeim I-listamönnum ráð. Það væri tilgangslaust, af þeirri einföldu ástæðu, að menn breyta venju- lega þveröfugt við þau ráð, sem þeim eru lögð. Slíkt getur líka oft verið mannlegt, jafn- vel stórmannlegt. En stæði ég í þeirra sporum, finnst mér sem ég myndi minnast hins gamla vísuparts er ég gengj að kjörborðinu: Trú þú aldreí á tudda náð taktu í hornin á bola. 28. maí, 1967. Skúli Guðjónsson. Fleiri )«iki í þessu tafli þarf ekki að leika íyrir kosriingar. Síðasti leikurinn verður svo leikinn á Alþingi, að kosning- um loknum, og það verður mátleikur. Spurningin er að- eins: Mátar Hannibal Bjarna, eða mátar Bjarni Hannibal? Það þarf raunar ákaflega mikla bjartsýni til þess að trúa þvi, að meirihluti Alþing- is verði þannig skipaður, að hann hafi brennandi áhuga fyrir því að færa Alþýðu- bandalgginu, svo sem eins og Kögglar úr kjósanda „Nú er heima!“ Mikið lét stjórnin af því afreki sínjj að stofna skatta- lögreglu, því orð lék af því i- stjórnarherbúðunum að þjóð- in sviki skatt í allstórum mæli. Ég veit ekki hvað þessi skattalögregla hefur afrekað, en þjóðsögur 'ganfea af starfi hennar, þar sem hún bank- aði > á kletta og álfar voru innifyrir sem lágu á gulli. Eitt dæmi blasir við augum, fullkomlega staðfest, hvernig skattalögreglan hefur litið á málin, eða þá tollyfirvöld, ef skattalögreglan hefur ekki komið hér nærri. Á þessu ári, eða fyrirfarandi, sannaðist það, að danskur heildsali hafði haft skipti við íslenzka kaupmenn. Þetta, ásamt kanski með fleiru, varð til þess að hann kveikti í kont- órnum sínum, að talið er sannað, og ætlaðist til að eld- urínn hirti bókhaldið. Þetta mistókst og bókhaldið komst í hendur lögreglunnar. Þar sáust viðskipti við íslendinga, að minnsta kosti einn allstór- an, og kom í ljós að þessi viðskipti fóru fram með þeim hætti, að gefnar voru tvenns- konar verðskrár, og önnur lægri, og þá verðskrá sýndi sá íslenzki tollyfirvöldunum og greiddi toll af því verð- lagi. Síðan, við rannsókn, er þess getið í opinberum blöð- um, að hér hafi sá íslenzki haft af ríkinu um 2 miljón- ir króna með þessum hætti. Hvar var nú skattalögregla og önnur tollyfirvöld? Það er nefnilega þannig mál með vexti, að Danir hafa alveg fullkomið gjaldeyriseftirlit. Opinberir aðilar vita ná- kvæmlega um það verð, sem er á útflutningi þeirra til ann- arra landa, og sá Dani, sem ekki skilar gjaldeyrinum fyr- ir útflutning, fær makið um bakið og er ekki síðan getéð í dönsku þjóðlífi. Mega rfík- ir Danir sakna þess mjög að vera ekki íslendingar! Skattayfirvöld á íslandi geta samstundis fengið frá Dönum rétt verð á öllum- þeirra útflutningsvörum og þurfa ekki að taka við fölsk- um verðskrám og nota í ís- lenzkum tollreikningi. Hér vaða spumingarnar uppi: Hvemig var þetta hægt, að sleppa manninum með falska verðskrá í tollinum, þegar svona auðvelt var að fá rétt- ar upplýsingar um rétt verð? Hvar var skattalögreglan og tollayfirvöldin? Eiga þau sín- ar réttmætu afsakanir? Það þyrfti að koma í ljós ef svo væri, þvi annars svara menn spurningunum mjög á einn veg og ekki vinsamlegan. Og fyrst þannig er með verð- skrá frá Danmörku, hvað er þá með önnur ríki? Og fyrst þetta gerir einn kaupmaður með fullum árangri gagnvart íslenzkum tollyfirvöldum, hvað er þá með aðra kaup- menn? Engilhreinn og sak- laus hefði þessi kaupmaður verið enn í dag hefðu Dan- ir ekki farið að „grufla út í þetta“. En þetta veldur því sem von er: Stjómar- flokkarnir hafa ekki sett upp skattalögregluskrautfjöðr- ina ennþá. — b. Krag hræddur við Russeff’ dómstóffnn KAUPMANNAHÖFN 31/5. Jens Otto Krag, forsætisráðherra Dan- merkur, hefur tilkynnt danska Bertrand Russell-ráðinu, að ef til komi muni danska stjómin neyta allra bragða til að koma í veg fyrir að Russelldómstóllinn um stríðsglæpi Bandaríkjamanna í Vietnam haldi næsta fund sinn í Danmörku. Danska nefndin til stuðnings við réttarhöldin tekur afstöðu til yfirlýsingar Krags í dag. Einn af meðlimum hennar, Erik Vagn- Jensen, útgáfustjóri, segir í við- tali við blaðið Information í dag, - að þessi afstaða dönsku stjómar- innar sé óviðeigandi gagnvart hinni sænsku bræðraþjóð — í Sví- þjóð var stjómin ekki heldur hrifin af Russell-réttarhöldunum, en þar var samt virt hefðbundið tjáningarfrelsi á Norðurlöndum. Krag segir að þessi ákvörðun stjómarinnar byggi á þeirri skoðun hennar að réttarhöldin geti ekki stuðlað að friðsamlegri lausn mála í Vietnam. Nýr ráðuneyiis- stjori i fjar- málaráðuneytinu i Guðlaugi Þorvaldss., ráðuneyt- ísstjóra í fjármálaráðuneytinu, hefurýverið veitt lausn frá emb- ætti að eigin ós'k, frá 1. júlí n.k. að telja. Jafnframt hefur forseti Islands i dag skipað Jón Sigurðsson, lög- fræðinig, til að gegna embætti ráðuneytisstjóra f fjárapálaráðu- neytinu fró 1. júttí n.k. Jón Sigurðsson er fæddur í Rvík 1934, stúdent frá Menntaskólan- um í Reykjavík 1954 og eand. jur. frá Háskóla Islands 1958. Hann var skipaður fulltrúi i atvinnumálaráðuneytinu 1958 og deildarstjóri 1962, og starfaði í þvi ráðumeyti til 1966, að frátöldu einu ári, sem hann dvaldist við framhaldsnám í opinberri st.iórn- sýsiliu við héslvóla ,í Bandaríkjun- um sem styrkþegi Fulbrig’nt- stofinunarinnar. í marz 1966 var Jön Sigurðsson settur til að gegna nýstofnuðu embætti hagsýslustjóra ri'kisins og skipaður í það emibætti í apr- ít s.L (Frá fjármálaráðuneyfiinu). iiíU'imÉliiíiMiiilMÍ ir Á landsfundi Alþýðu- bandalagsins, sem haldinn var í Reykjavík á sl. hausti, var mörkuð sú stefna í landsmál- um sem bandalagið mun berj- ast fyrir að farin verði. ★ „ í dag og næstu daga mun Þjóðtviljinn rifja upp helztu atriði stefnuyfirlýsingar lands- fundar Alþýðubandalagsins og birtist þá fyrst upphaf stefnu- skrárinnar: „Alþýðubandalagið berst fyr- ir því, að landinu verfti stjórn- að með hag og heiil alþjóðar fyrir augum. Alþýðubandalagið berst r- ir auknu lýðræði og jafnrétti á öllum sviðum þjóðlifsins. Auka verður áhrif almennings á stjórn Iandsins með því með- aJ annars að Jögbinda þjóðar- atkvæðagreiðslu um mikilvæg máJ, þegar tilskilinn fjöldi þingmanna eða kjósenda krefst þess. Koma verður í veg fyrir einokun fárra manna á stjórn- tækjiun efnahagskerfisins og skapa sem mest Jýðræði í efnahags- og atvinnuiífi. Æsku- fólki verður að skapa fullt efnahagslegt jafnrétti til menntunar með námslauna- kerfi og jafna verðtir aðstöðu manna til að njóta Iífsgæðanna með réttlátari skiptingu þjóð- artekna. Alþýðubandalagið tclur það eitt helzta hlutverk sitt að verja sjálfstæði þjóðarinnar gégn hvers konar erlendri á- sælni og knýja fram breytta stefnu í sjálfstæðismálum ís- lcndinga, nýja og óháða utan- rikisstcfnu. Ef Islcndingar eiga að varð- veita þjóðerni sitt og þjóð- menningu verður framvegis að tryggja, að allar menningar- miðstöðvar í landinu séu und- ir íslenzkri stjórn. Einnig verð- ur þjóðin að hafa 4ull og ó- skoruð umráð yfir atvinnnulífi landsins, auðiindum þess og efnahagskerfi. Alþýðubandalag- ið er eindregið andvígt þeirri stefnu að hleypa erlendum auð- hringum í íslenzkt atvinnu- líf. Atvinnutæki og náttúru- auðæfi á íslandi eiga lands- menn einir að eiga. Jafnframt ber að stefna að því, að land- grunnið umhverfis Island verði friðað fyrir rányrkju og hag- nýtt af íslendingum einum. Þjóðin verður að móta nýja. og sjálfstæða stefnu í utanrík- ismálum í stað þess að eftir- láta erlendu stórveldi ákvörð- - unarvald um afstöðu íslands á alþjóðavettvangi. Afnema verð- ur herstöðvar á íslandi, og ís- lendingum ber að segja sig úr Atlanzhafsbandalaginu strax og samningstimabiiinu lýkur. Þjóðin þarf að taka virkan þátt í störfum Sameinuðu þjóð- anna og efla norræna sam- vinnu á sem flestum sviðum. Jafnframt eiga íslendingar að stuðla að því, að öll hemaðar- bandalög verði leyst upp og fordæma afdráttarlaust beit- ingu hervalds í samskiptum ríkja, hvar sem er í heiminum og hver sem í hlut á. Alþýðubandalagið álítur það höfuðnauðsyn, að tekin verði uþp heildarstjórn á þjóðarbú- skapnum samkvæmt fyrirfram gerðum áætlunum til lengri og skemmri tíma. í stað þess að láta blind peningalögmál og gróðasjónarmið ráða stefnunni, verður að skipuleggja fjárfest- inguna með hag alþjóðar fyr- ir augum. Viðurkenna þarf forystuhlutverk ríkisvaldsins í atvinnumálum og gera verður haldgóðar ráðstafanir til að stöðva hinn sívaxandi fólks- flótta utan af landi og inn á Faxaflóasvæðið. Setja ber inn- flutningsverzlunina undir yfir- stjórn og eftirlit hins opin- bera til þess að hefta sem mest gróða milliliða á kostnað almennings, og ríkið á sjálft að annast mikilvægar grein- ar innflutningsverzlunarinnar. Jafnframt ber að taka útflutn- ingsverzlunina undir eftirlit og yfirstjórn rikisins til þess að tryggja sem víðtækasta mark- aðskönnun erlendis. Alþýðubandalagið leggur á það áherzlu, að rikisvaldið stuðii að félagslegri lausn hinna margvíslegu vandamála nútímaþjóðfélags. Komið verði á lífcyrissjóði og ókeypis heil- brigðisþjónustu fyrir alla landsmenn. Sérstaklega ber að tryggja framfærslurétt barna og öryrkja, einstæðra mæðra og ekkna. Húsnæðisvandræði aimennings séu ekki gróðalind húsaleiguokrara og fasteigna- hraskara. Efld sé félagsleg byggingarstarfsemi og nægar leiguibúðir reistar. Gert verði stórátak til aft bæta aðstöðu kvenna til þátttöku í atvinnu- liflnu og tryggt aft reist séu nægilega mörg dagheimili, leikskólar og vistheimili fyrir, börn. Alþýðubandalagið er til þess stofnað að vera á stjórnmála- sviðinu málsvari verkalýðs- hreyfingarinnar og allra vinn- andi manna við sjó og í sveit, vera þeim samtakavopn í bar- áttu þeirra fyrir hagsmunum sinum og réttindum. Alþýðu- bandalagið vill sambæfa bar- áttu sína þörfum og heUl vinn- andi stétta til þess að tryggja fulla atvinnu í landinu og veita alþýðunni meiri og réttlátari hlutdeild i þeim auði sem hún skapar." Á i k V

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.