Þjóðviljinn - 13.06.1967, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÖÐVELJINTST — Þriðjudagur IS. JBní 1967.
/
íslands hefst 19. þ.m.
□ Suridmeistaramót íslands verður háð í hinni nýju
sundlaug í Laugardalnum dagana 19., 24. og 25. júní n.k.
Þing Sambandsins fer fram laugardaginn 24. júní.
Dagskrá Sundmeistaramóts
fslands verður sem hér segir:
19. júní: '
1500 m skriðsund karla, 800
m skriðsund kvenna og 400 m
bringusund karla.
24. júní:
100 m skriðsund karla, 100
m bringusund karla. 200 m
bringusund kvenna, 200 m
flugsund karla, 40o m skrið-
sund kvenna, 200 m baksund
karla, 100 m baksund kvenna.
200 m fjórsund karla, 4x100
m skriðsund kvenna og 4x100
m fjórsund karla.
25. júní: ,
400 m skriðsund karla, 100
m flugsund kvenna, 200 m
bringus. karla, 100 m bringu-
sund kvenna, 100 m baksund
karla, 100 m skriðsund kvenna,
100 m flugsund karla,' 200
fjórsund kvenna, 4x200 m
skriðsund karla og 4x100 fjór-
sund kvenna.
Þátttökutilkynningar berist
S.S.Í. íþróttamiðstöðinni, Laug-
ardal, Siggeiri Siggeirssyni
síma 10565 eða Guðmundi
Gíslasyni síma 17060 fyrir 16.
júní 1967.
(Frá stjórn S.S.Í.).
A thugasemd vegna
ummæla í útvarpi
í útvarpsþættinum „Á rakstöl-
um“ þ. 24. aprfl. sl. var fjallað
um byggingarkostnað í landinu
og leiðir til að lækika hann. Var
m.a. vikið að fjölbýlishúsi því
við Reynimél í Reykjavík, sem
Byggingarsamvinnufélag verka-
manna cg sjómanna hefur reist
og verið hefur orsök talsverðra
umræðna um þessi mál að und-
anfömu. j
Einn þátttakandi umræön-
anna, Bergþór Úlfarsson — íbúi
í otfangreindu húsi, fór ekki dult
með, að hann hefði næsta litla
trú á uppmælingum, sem
tíðkast hjá iðnaðarmönnum.
Kvað hann þær ,,vafasamt at-
riði“ og komst síðan svo að
orði:
„Ég rak mig til dæands á eitt
atriði. Það var í sambandi við
málun á íbúðinni hjá mér,
að ég fékk , málarameistara til
þess að gefa mér upp, hvað
hann mundi álíta, samkvæmt
uppmælingu, að það mundi
kosta að mála þessa íbúð —
fyrir utan efni — og talan, hún
var 43 þúsund krónur — 43
þúsund fyrir að mála fbúðina.
Þessi vinna, hún tók mig 140
klukkustundir, og þá getið þið
nokkurn veginn reiknað það út,
hvað málarinn hefur á kllukku-
stund fyrir að mála íbúð-
ina . . . “
Áður en lengra er haldið, skal
einnig á það bent, að sami
maður sagði fyrr í sömu um-
ræðum um Reynimelsbygging-
una, að „frágangur (væri) al-
menn vandaðri en tíðkast í
fjölbýlishúsum . . . “
Vegna ofangreindra ummæla
Bergþórs Úlfarssonar, fór stjórn
Málarameistarafélags Rvíkur
þess á leit, að hún fengi að
mæla íbúð hans og reikna út,
samkvæmt uppmælingartaxta,
hve mikið hefði mátt taka fyr-
ir að mála hana.
B.Ú. féllst á tillmæli MMFH,
enda taldi hann sig hafa hinn
góða málstað. Niðurstaða mæl-
inga og útreikninga varð sú, að
kostnaður væri kr. 18.326,80 fyr-
ir þetta verk. Á hinn bóginn
var verkið unnið þannig af
eiganda, að ef málarameistan
hefði skilað því í slíku ástandi,
hefði hann orðið að endurgreiða
sem svarar 25-30 prósent af
uppmælingarverði vegna ié-
legra vinnubragða eða taka ella
till við vinnu sína á ný til að
bæta verkið.
En til þess að menn „geti
nokkurn veginn reiknað það út,
hvað mádarinn hefur á klukku-
stúnd fyrir að mála íbúðina",
skal á það bent, að meistara er
heimillt að selja hverja vinnu-
stúnd á kr. 84.30. Sveininum
greiðir hann kr. 62,73 á tím-
ann, svo að sveinninn, sem
unnið hefði hjá BérgþóH Ú\f-
arssyni, hefði hlotið í laun, að
viðbættu ö’rlofi, kr. 13.637,50
(vinnustundir voru 217,4). En
vegna þess, sem sagt er hér að
framan um léleg vinnubrögö,
var verðmæti þeirrar vinnu,
•sem af hendi var leyst, aðcins
kr. 9.546,25—10.228,15.
Rétt er að minna á, að auk
þess sem meistarinn greiðir
sveininum kr. 62.73 af andvirði
hvers selds vinnutíma, verður
hann að greiða fjölda gjalda af
álagningu sinni. Hann verður
að greiða launaskatt, atvinnu-
leysistryggingagjald, almennt
tryggingargjald, endursfcoðunar-
gjald, aðstöðugjald, iðnlána-
sjóðsgjald, sjúkrasjóðsgjald,
veikindadaga, mælingagjald,
aksturskostnað fyrir verkfæri
og margvísleg önnur gjöld, sem
fylgja hverjum atvinnurekstri.
Þegar á þetta er litið, mun
mörgum þykja það rýr hlutur,
sem meistarinn hefur tii að
gjalda skatta og skyldur, og
enn rýrari verður hann, er öf.l
gjöld hafa verið innt af hendi.
Að endingu skal þessu bætt viö:
Fleiri eigendur íbúða í fyrr
greindri Reynimelsbyggingu
hugðust hagnast á að komast
hjá að láta mála stov. taxta MM
FR. Var tiliboða aflað i máJun
stigaganga og varð að sam-
komulagi, að greiða slcyldi kr.
30.000 fyrir að mála hvern
þeirra. Stjóm MMFR lét einn-
ig framkvæma mælingu og út-
reikninga á þessari vinnu, :>g
varð niðurstaðan sú, að hún
ætti að kosta kr. 26.107,70. Þar
skeikaði því um nærri 4000 kr.
Ekki er ástæða til að ræða þessi
atriði nánar að sinni, en stjórn
MMFR fagnar því tækifæri,
sem hér hefur gefizt til að
leiðrétta þann misskilning, sem
virðist æði útbreiddur, að mæl-
ingataxti félagsins sé samin tíl
að féfletta almenning. Dæmin
hér að ofan sanna, einmitt, nð
hann er verkkaupanda trygging
fjtrir wandaðri vinnu við sann-
gjömu verði.
Reykjavík 5. júm' 1967.
Stjóm Málarameistarafélags
Reykjavíkur.
Valsmenn hlutu nú tvö dýrmæt stig
í viðureign sinni við Akureyrínga
Heldur er nú tekið að syrta í álinn fyrir ÍBA í þessu
íslandsmóti. Liðið hefur leikið þrjá leiki og tapað 511-
um. Valsmenn hafa aftur á móti leikið tvo leiki og haft
heppnina með sér. Þeir unnu Akurnesinga óverðskuld-
að í fyrsta leik sínum, en í leiknum s.l. laugardag unnu
þeir Akureyri 2:1 í þófkenndum og leiðinlegum leik.
Valsmenn unnu hlutkestið
og kusu að leika undan rokinu
og rigningunni. Þeir hófu strax
leiftursókn, og á annarri mín.
urðu mikil mistök hjá fBA-
vöminni. Þrír varnarmenn
þeirra klúðmðust með boltann. <s>-
Hermánn Gunnarsson kom að-
vífandi, náði boltanum, lék á
tVo Akureyringa og skaut í blá-
hornið niðri, aílis óverjandi fyr-
ir Samúel markvörð ÍBA. Ak-
ureyringar snúa strax vöm i
sókn sem ber árangur á 5.
mín. Þormóður Einarsson h. út-
herji var kominn inn á miðjuna,
þangað féklc hann góðá send-
ingu utanaf h. kanti og skaut
viðstöðulaust föstu skoti sem
Gunnlaugur markvörur Vals
réð ekki við 1:1. Eftir þetta
sóttu Valsmenn mun meira,
enda höfðu þeir rokið með sér.
Þó sköpuðust engin umtalsverð
tækifæri fyrr en á 30. mín. t>á
myndaðist þvaga inn í vítateig
ÍBA. Úr þvögunni hrökk bolt-
inn til Reynis Jónssonar sem
afgreiddi boltann viðstöðulaust
í markið einkar iaglega 2:1.
Þannig var svo staðan í hálf-
leik, flestir héldu að þetta
nauma forskot Valsmanna
mundi ekki duga. til sigurs,
þar sem fBA sótti undan veðr-
inu í síðari hálifleik. Þó varð
raunin sú að fleiri mörk voru
ekki skort ð. Akureyringar sóttu
heldur meira í scinni hálfleik
"en sóikn þeirra var allan tímann
bitlaus. Það var eiginlega að-
eins eitt marktækifæri sem þeir
áttu. Á 30. mín. stóð Skúli
Ágústsson einn og óvaldaður á
markteig en skaut framh.iá
Þarna áttu Akureyringar gullið
tækifæri til að jafna. Þó ÍBA
ætti meira f þessum hálfleik
áttu Valsmenn nokkrar góðar
sóknir og voru þær öllu hættu-
legri en sóknir norðanmanna.
Leikurinn í heilld var þófkennd-
ur og heldur leiðilegur. Eftir
etvikum má segja að sigur
Valsmanna hafi verið verð-
skuldaður þó maður hefði það
á tilfinningunni að sigurinn
gæti lent hvoru meginn sem
var.
með þeim hvern leik. Beztu
menn í þessum leik voru eins
og sivo oft áður Ámi Njálsson
og Þorsteinn Friðþjófsson. Her-
mann Gunnarsson virðist vera
að komast í sitt fyrr form. f
frarmiíniunni var hægri útherj-
inn mjög veikur hlekkur, Vais-
menn hljöta að eiga betri út-
herja en þetta. Halldór Einars-
son virðist lítið ætla að breyta
þessari leiðinlegu leikaðferð
sinni að hugsa meir um mann-
inn en boltann. Það er leiðin-
leg hugsun hjá íþróttamönnum.
Alkureyringar voru nær ó-
þekkjanlegir frá leik þeiira
við ÍBK á dögunum. Alllur
baráttuhugur virtist úr mönn-
um og þeir náðu aldrei upp
þessu stutta spili sem þeir
sýndu í þeim leik. Útílitið er nú
orðið ískyggilegt hjá þeim, þrír
tapleikir í röð er nokfcuð sem
lið má efcki við ef það ætlar
sér ekki að falla niður. Bezfu
menn þeirra í þessum leik
voru Guðni Jónsson og Skúli
Ágústsson. Dómari var Hreiðar
Ársælsson og slapp sæmilega.
Til gamans má upplýsa Hilmar
ÓHafsson Mijuvörð um það, að
leikmaður er aidrei rangstæður
ef hann fær boltann frá mót-
heyja
S.dór.
Liðin:
Lið Valsmanna hefur sýnt
heldur litlar framfarir frá
fyrstu leikjum sínum í vor. Ég
tel að ef liðið fer ekki að taka
sig á, þá gæti þeir ekki Is-
landsmeistarabikarsins næsta
vetur. Þeir geta ekki búizt við
að gæfan hafi tíma til að leifca
Keppt í frjáls-
um íþróttum á
Melavelii í dag
í dag, þriðjudaginn 13. júní,
fer fram á íþróttavellinum á
Melunum innanfélagsmót í
frjálsum íþróttum á vegum
Réykj avíkurf élaganna.
Klukkan 6 verður keppt í
spjótkasti, 400 m grinda-
hlaupi og þrístökki að beiðni
Frjálsíþróttasambands íslands,
sem óskar eftir keppni í þess-
um greinum vegna vals lands-
liðs fyrir Evrópubikarkeppnina
í Dublin í þessum mánuði.
Klukkan 8 verður keppt í
þrístökki drengja, (f. 195» og
1951) og langstökki og spjót-
kasti stúlkna (f. 1950 og 1951),
og er sú keppni þáttur í und-
irbúningi félaganna af þátt-
töku í Hafniadeu, íþróttamóti
sem haldið er af tilefni 800
ára' afmælis Kaupmannahafn-
ar.
Hægur og ójafn hagvöxtur
er í Rómönsku Ameríku
„Tregða og ójafn hagvöxtur*’
einkenndu efnahagslífið í Róm-
önsku Ameríku á síðasta árí,
samkvæmt nýbirtri skýrsiu
Sameinuðu þjóðanna.
Unnið er með ófullnægjandi
hætti að þróunarverkefnum, og
það vetour „tilfinningu ráðaleys-
is sem veldur félagslegum óróa
og skapar pólitískt ójafnvægi".
segir í skýrsilunni.
Að þvi er snertir erlenda f jár-
festingu, hefur aðstaða Róm-
önsku Ameríku „versnað til
muna á síðustu ái-um“ borið
saman við önnur vanþróuð
svæði. Þar sem Rómanska Am-
eríka tók á móti um þriðjungi-
erlendrar fjárfestingar í heim-
inum á árunum 1960—62, fékk
hún einungis um einn sjöunda
hluta hennar á árunum 1963 —
1965.
Samta/Is jókst brúttó-þjóðar-
framleiðslan í löndum Róm-
önsku Ameríku aðeins um 3%i
árið 1966, en um 6,2 og 5,1% á
áruraum 1964 og 1965.
Vöxturinn var um það bil
jafnmikill og fóiksfjölgunin,
þannig að hann var enginn þeg-
ar miðað er við hwert manns-
bam. Samltovæmt útreikningum
verða íbúar Rómönsku Ameríicu
365 miljónir árið 1980 eða 120
miiljónum fleiri en nú. Að
minnsta kosti 50% af núlifandi
íbúum eða um 120 miljónir
manna þarfnast auk þess betri
nærin-gar. Tekjur lágllaunaflóilks
verða að hækka um 6% árlega,
ef það á að fá jafnnæringar-
ríkan mat árið 1980 og aðrir f-
búar, samkvæmt útreikningum
í skýrslunni. '
Þessu marki verður einungis
náð með víðtækri deilingu
jarðnæðis, breyttri tekjuskipt-
ingu og mikilHi fjárfestingu í
landbúnaði og iðnaði. 1 skýrslu-
unni segir að á árunum 1965 —
1980 verði þörf á nýju fjér-
magni sem nemi um 40 miljörð-
um dollara (1720 miljörðum ísl.
króna).
\ Eins og stendur kemur þró-
unin í verksmiðjuiðnaðinum í
bága við þessa þörf á örri iðn-
aðarþróun — vöxturinn þar, sem
nam 6% á árunum 1955—60,
mlnnkaði niður í 5,6% á ánun-
um 1960—65.
Það var fyrst og fremst aft-
urkippurinn í efnahagsliii Bras-
ilíu og Argentínu sem olliþess-
ari hægu aukningu á svæðinu
öllu í fyrra. f Bolivíu, Ghile.
Cólumbíu, Costa Riea, E1 Salya-
dor, Mexíkó, Panama og Urug-
uay var þróunin aftur á móti
örari en 1965. Dóminíska lýö-
velldið náði sér að nokkru eftir
afturkippinn árið á undan.
Höfuðorsakimar til hinnar
hægu þróunar eru raktar i riti
sem á enstou nefnist „Economic
Survey of Laitin America, 1966“;
óverulegar framfarir í endur-
bótum þjóðfélaigsfcerfisins, mis-
heppnan landbúnaðarins, skort-
ur á öflugu átaki til að virkja
innlendar fjárfestingarlindir,
verðbólga, lítil aukning á raun-
verulegum útflutningswerðmæt-
um og skortur á erlendu fjár-
magni. — (S.Þ.).
<8>-
ÍSLANDSMÖTIÐ
Laugardalsvöllur
í kvöld kl. 20,30 leika
FRAM- VALUR
Dómari: Magnús Pétursson.
II. DEILD
Selfossvöllur
í kvöld kl. 20,30 leika
Selfoss — Þróttur
MÓTANEFND.
TILKYNNING
Athygli skal vakin á því, að næturhólf bankans hefur verið
endumýjað og flutt. Það er nú staðsett vinstra megin við
anddyri bankans við Lækjartorg.
Þeir viðskiptamenn bankans, sem aðgang hafa að nætur-
hólfinu eru beðnir að snúa sér til aðalféhirðis, til þess að fá
afhenta lykla að hinu nýja hólfi.
ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS.
/