Þjóðviljinn - 13.06.1967, Blaðsíða 4
4 SÍDA — ÞJÓÐVELJINN — Þriðjudagur 13. júní 1967.
Otgefandl:
Sósíaliataflokk-
Sameinlngarflokkui aiþýðo.
urinn.
Ritstjórar: Ivai H- Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurðui Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurðui V. Friðþjófsson-
Auglýsingastj.: Sigurður T. Sigurðsson.
Framkvstj-: Eiður Bergmann.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja Skólavörðust XB.
Sími 17500 (5 linur) — Askriftarverð kr. 105.00 á mánuði. —
Lausasöluverð kr. 7.00.
FyrírhoBi
f^egar þetta er skrifað eru kosningaúrslit aðeins
* kunn í Reykjavík, Reykjaneskjördæmi og Vest-
milli ára. Eins og oft hefur verið bent á hér í
blaðinu hefur orðið mjög eindregin borgaraleg
þróun á þéttbýlissvæðinu við Faxaflóa áratugina
eftir stríð, í fyrsta skipti í sögu landsins. Mikill
meirihluti íbúanna hefur verið þeirrar skoðunar
að unnt væri að leysa vandamál þjóðfélagsins með
borgaralegum ráðum, með aðferðum gróðaskipu-
lagsins, eins og kosningaúrslitin 1963 sönnuðu
einkar eftirminnilega. Sú skoðun hefur haldizt
óbreytt allt fram undir síðustu áramót, vegna vel-
gengni sem fyrst og fremst stafaði af verðhækkun-
um á afurðum okkar erlendis. Það er einkar eðli-
legt að þegar efasemdir vöknuðu síðan, birtust
þær í því að kjósendur sem trúa á hið borgaralega
gróðakerfi flytji' sig frá Sjálfstæðisflokknum til
Alþýðuflokksins, sem hefur verið með sterkari
félagslegan þátt í áróðri sínum. Engu að síður vit-
um við Alþýðubandalagsmenn að sjónarmið okk-
ar hafa haft æ sterkari byr að undanförnu. Við
hefðum átt vísan mjög stórfelldan kosningasigur
í þéttbýlinu, ef ekki hefði gerzt sá óvænti atburð-
maður sá sem var kjörinn forimaður Alþýðu-
bandalagsins á landsfundi í haust, Hannibal Valdi-
marsson, bauð sig fratn til þess að spilla fyrir
G-listanum í Reykjavík. Afleiðingin hefur orðið
sú að enda þótt kjósendur í Reykjavík ákvæðu
með atkvæðum sínum að Sjálfstæðisflokkurinn
skyldi tapa þingsæti í Reykjavík, hélt flokkurinn
sætinu samt — aðeins vegna þessarar sundrung-
ar — Ólafur Bjömsson var kjörinn í stað Eðvarðs
Sigurðssonar. Af sömu ástæðu glataiði Alþýðu-
bandalagið þingsæti sínu á Vestfjörðum. Slíkir
atburðir þurfa raunar ekki að koma á óvart; hvað
halda menn að hefði gerzt ef Bjarni Benedikts-
son hefði boðið sig fram gegn D-listanum í Reykja-
vík, eða Eysteinn Jónsson gegn B-listanum?
Oá sem þetta skrifar hefur sérstaka ástæðu til
^ þess að þakka Alþýðubandalagsfólki í Reykja-
vík dugnað og baráttuþrek við mjög óvenjulegar
og erfiðar aðstæður. Við höfðum alltaf vitað það,
vinstri menn í Reykjavík, að styrkur okkar er
ekki fólginn í einstaklingum þeim sem sæti kunna
að eiga á þingi, heldur í samtökum okkar sjálfra.
Þau ánægjulegu tíðindi gerðust í kosningabarátt-
unni að félögum í Alþýðubandalaginu í Reykja-
vík f jölgaði örar en dæmi eru til og eru þeir nú um
þúsund talsins og störfuðu á mjög þróttmikinn
hátt á kjördag. Þau samtök eru nú og framvegis
grundvöllur að baráttu okkar í höfuðborginni, þar
sem fjöknennið er mest. Það fólk sem kaus G-
listann og I-listann er að yfirgnæfandi meirihluta
samherjar, þótt skammsýnum stjómmálabröskur-
um tækist aið þessu sinni að spilla þeim árangri
sem var innan seilingar. Málstaður okkar er rét't-
ur, og einmitt þess vegna eru kosningaúrslitin nú
fyrirboði um samstöðu og styrk sem ráða mun
miklum úrslitunn í stjórnmálaátökunum á næstu
árum. — m.
Minningarorð
Axel Oddsson
fulltrúi
í dag er kvaddur frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík Axel
Oddsson, fulltrúi hjá Almenna
byggingafélaginu. Axel fæddist
að Tumastöðum í Fljótshlíð
13. maí 1906. Foreldrar hans
voru Oddur Benediktsson bóndi
þar, sem andaðist fyrir nokkr-
um árum, og kona hans Her-
borg Guðmundsdóttir, sem
dvelst, háöldruð og farin að
líkamskröftum, á heimili son-
ar síns og tengdadóttur að
Tungu í Flóa.
Axel ólst upp í foreldra-
húsum fram um tvítugsaldur,
en þá fluttist hann til Reykja-
víkur og gerðist fljótlega bif-
reiðastjóri hjá Bifreiðastöð
Reykjavíkur en síðar skrif-
stofumaður þar. Árið 1946
hóf hann störf hjá Almenna
byggingafélaginu og starfaði
þar, þangað til heilsan brást
skyndilega.
19. maí 1934 kvæntist Axel
eftirlifandi konu sinni, Laufey
Jónsdóttur. Þeir eru margir
frændurnir og vinirnir, og ekki
sízt börnin, sem eiga ljúfar
minningar frá heimili þeirra
hjóna, Bergstaðastræti 42. Ég
er þess viss að bömunum,
sem þau hjónin buðu ævinlega
til sín á jóladag, gleymast
seint þær stundir. Þá var geng-
ið kringum jólatré, sungnir
jólasálmar og leikið við börnin;
gleði þeirra var mikil en glöð-
ust voru hjónin sjálf. Það er
mín skoðun að bamgóður mað-
ur sé góður maður, og það var
Axel Oddsson, góður og traust-
ur maður, sannur maður.
Axel var mjög virkur félagi
í frímúrarareglunni í mörg ár,
einnjg vaþ .bann . í Verkstjóra-
félagi Reykjavíkur á síðari ár-
um.
Axel hlaut mjög takmarkaða
skólamenntun á æskuárunum,
eins og þá tíðkaðist víða í
sveitum landsins, en hann
bætti sér það upp síðar með
sjálfsnámi og lestri góðra bóka.
Hann las mikið og helzt ekki
nema góðar bækur, en hann
hugsaði það sem hann las og
reyndi að kryfja hvert mál til
mergjar. Það ‘skorti því aldrei
umræðuefni á Bergstaðastíg
42, hjónin bæði mjög greind,
víðlesin og með afbrigðum
gestrisin. Axel mun láta eftir
sig mikið ritað efni, bæði í ó-
bundnu og bundnu máli, hann
var prýðisvel ritfær og mjög
vel skáldmæltur, eins og hann
átti kyn til, þótt hann flíkaði
því ekki við hvern sem var.
Kæri vinur! Það leitar svo
margt á huga minn við þessi
vegamót. Það veldur stundum
kvíða að kveðja góðan sam-
ferðamann; við vorum í raun
og veru samferðamenn í lífinu,
aldir upp hvor á sínum bæn-
um í sama túni, lékum saman
börn, stöfuðum báðir í ung-
mennafélagshreyfingunni, gift-
umst sinni systurinni hvor.
Síðan bjuggum við hjónin í
þínu húsi í 14 ár sem aldrei
bar á skugga. í þínu húsi lifðu
drengirnir okkar að miklu
leyti sín bemsku- og æskuár,
og þið hjónin reyndust þeim
ætíð seiji beztu foreldrar. Fyr-
• ir þetta og allt annað vil ég
og fjölskylda mön þakka við
leiðarlok. Kæri vinur, haf þú
þökk fyrir allt og allt.
Svo að lokum, kæra Laufey
mágkona mín, ég bið guð að
styrkja þig í þungri raun. Ég
er þess viss að ástvinur þinn,
sem horfinn er þér um sinn
og naut styrks þíns í veikind-
um sínum, hann mun rétta þér
styrka hönd og leíða þig fyrstu
sporin þegar þú að lokum flyt-
ur yfir á nýtt tilverustig.
Tómas Sigurþórsson.
John Charles Daly jr. hefur
verið sikipaóur yfirmaður Voice
of America, útvarpsdeildar Upp-
lýsingaþjónustu ,Bandaríkjanna.
Tekur hann við af John Chan-
cellor, sem tekur aftur til starfa
hjá NBC National Broádcasting
Company.
John Baly er kunnur frétta-
maður úr útvarpi og sjónvarpi
cg einnig hefur hann verið
stjórnandi spurningaþáttarins
What is My Line frá stófnun
þáttarins. Þessi þáttur er með-
a:l þeirra þátta, sem lengsthafa
verið við líði í amerísku sjón-
varpi. og nýtur stöðugra vin-
sælda.
Daly var fréttamaður í Eng-
’.andi, Itallíú, fyrir botni M'ð-
jarðarhafs og í Afríku í heims-
styrjöldinni siðari. SíðÞ.n varð
hann fréttamaður í Evrópu og
Suður Ameríki’ fyrir Columbia.
Frá 1953 til 1960 var hann yf-
irmaður frétta- .og upplýsinga-
deildar Amerioan Broadcasting
Company.
Mexíkanskur lista-
ntaður sýnir hér
All sérstæð sýning verður
opnuð á Mokka-kaffi við Skóla-
vörðústig I dag, sunnudag. Þar
sýnir mexíkanski listmálarinn
Maciel svartlistarmyndir og
myndir málaðar á blöð af kók-
oshnetupálma — eru málverk
hans yfirleitt skreytíngar við
ljóð.
Blaðamönnum gafst kostur á
að hitta Maciel — sem er ung-
ur maður, fæddur 1939 nálægt
Acapillco i Mexíkó — á heimili
Barböru og Magnúsar Á. Áma-
sonar nú fyrir skemmstu. Kom
listamaðurinn hingað til Eands
fyrir áeggjan sonar þeirra hjóna,
Vifils, sem stundar nám í Mexi-
kó. Mun Maciel dveljast hér
a.m.k. í hálfan mánuð en halda
síðan í lengra ferðalag. Ætlun
listamannsins er semsé að fara
til Niðurlanda, Italiu, Spánar
og jafnvel til Japans og halda
ekki heim til Mexikó aftur fyTr
en -eftir 2 ár.
Maciel stundaði nám í E5sou-
dla Esmeralda í Mexíkó City og
hefur hann haldið fjórar sýn-
ingar i heimalandi sínu.
•4r
Á Mokika sýnir Maciel teikn-
ingar sem hann gerði við kúb-
anskt þjóðlag er fjallar um
naut og ber heitið ,,Ég er að veröa
gamaH“ — ofe fimm ljóð eftir
Carcia Lorca sem Maciel dáir
mjög. Einnig verða sýndarfimm
myndir sem hann málaði á
.pálmablöð og eru þær gerðar
sem skreytingar við sjö ljóð
eftir Marqarito Ledesma.
' ' * - ' . '■ * ,1
KOMMÓÐUR
— teak og eik.
Húsgagnaverzlun Axels Eyjólfssonar
Skipholti 7 — Sírni 10117.
ATHUGIÐ!
Breytið verðlítilli krónu
í vandaða vöru
Húsgagnaverzlun Þorsteins Sigurðssonar,
Grettisgötu 13 (stofnuð 1918) sími 14999, leysir vandann.
GeriS við bíla ykkar sjélf
Við sköpum aðstöðuna. —
Bílaleiga.
BÍLAÞJÖNUSTAN
Auðbrekku 53. Kópavogi — Sími 40145.
Latið stiila bílinn fyrir »/orið
Önnumst hjóla-. Ijósa- og mótorstillmgar. Skiptum um
kerö. platínur ljósasamlokur o.fl: — Örugg þjónusta.
BÍLASKOÐUN OG STILLING
Skúlagötu 32. siml 13100.
Frá Raznoexport, U.S.S.R.
Aog B gæðaflokkar Laugaveg 103 ^
sími 1 73 73
Bólstruð húsgögn
SEL Á VERKSTÆÐISVERÐI; Sófasett, Svefn-
bekki. — Tek klæðningar.
Bólstrunin,
Baldursgötu 8