Þjóðviljinn - 10.08.1967, Síða 2
■■ -
'■■///'S/.:'
iy\:'
' /M/\
iíííi^iwcwiíiíiiv
/ýj'jý/Sí&ú
£ SlÐA — ÞJÖÐVILJINN — Fimmtudagur lt>. ágúst 1967.
Landsleikur gegn
Bretum á mánud.
LltihátiSir um verzlunarmannahelgina:
Frá Þörsmörk og Galtalækjarskógi
Umdeilt val á landsliði:
■ Landsleikur íslands gegn Stóra-Bretlandi hefst
á Laugardalsvellinum n.k. mánudag kl. 20.00.
Landsliðsnefnd KSÍ hefúr valið liðið, og er það
skipað þessum mönnum:
I nVl C.n ,
Sipfurður Dagsson, Val,
Jón Stefánsson, ÍBA,
Jóhannes Atlason, Fram,
Guðni Jónsson, IBA,
Anton Bjarnason, Fram,
Þórður Jónsson KR,
Bjöm Lárusson IA,
Eyleifur Hafsteinsson KR,
Hermann Gunnarsson, Vai,
Guðni Kjartansson IBK,
Kári Ámason fBA.
VARAMENN:
Guðmundur Pétursson KR,
Sigurður Albertsson lBK,
Baldur Scheving, Fram,
Helgi Númason, Fram.
Ýmisiegt kemur á óvart við
val landsliðsins að þessu sinni.
Fyrst og fremst það, að liðið
hefur nú verið valið með meiri
fyrirvara en nokkru sinni áð-
ur, og er ástæða til að ætla
að landsliðsnefnd hftfi viljað
forðast að álit knattspyrnu-
unnenda á því hvemig lands-
liðið væri bezt skipað, lægi
fyrir áður en nefndin birti lið
sitt, en sem kunnugt er hefur
Þjóðviljinn leitað álits lesenda
um það hvemig þeir teldu rétt
að skipa liðið i landsleiknum
gegn áhugamannaliöi Breta.
Að vísu hafa ekki öll bróf
um þetta efni borizt til Þjóð-
viljans, þar sem frestur var
settur til 11. þ.m., en af þeim
bréfum sem borizt hafa virðist
nokkuð einróma álit lesenda
að landsliðið skuli þannígskip-
að: Sigurður Dagsson (markv.),
Guðni Kjartansson (h.bakv.).
Jón Stefánson (m.framv.), Jó-
hannes Atlason (v.bakv.), Guðni
Jónsson (h.framv.), Þórður
Jónsson (v.framv.), Einar Áma-
son (h.úth.), Eyleifur Hafsteins-
son (h.innh.), Hermann Gunn-
arsson (m.framh). Skúli Ág-
ústsson (v.innh.) og Karl Hei-
mannsson (v.úth.).
Eins og sjá má af þessum
samanburði hafa lesendur val-
ið aðra menn í stöður útherja
en landsliðsnefnd, og áliti
þeirra til stuðnings má nefna
að í síðustu leikum hefur Kán
staðið sig mjög slaklega, og í
leiknum gegn Val á Akureyri
sá þjálfari þeirra Akureyringa
þann kost beztan að taka Kára
útaf. Einnig má benda á að
Bjöm Lárusson hefur átt mjög
misjafna leikkafla, oft tekur
hann góða spretti og er þá
hættulegur hvaða vöm sem er,
en alltof langan tíma er hann
alls ekki með í leiknum, og
sb'kur knattspyrnumaður er
enginn landsiiðsmaður. Karl og
Einar hafa hinsvegar aldrei
brugðizt í neinum leik sem
máli sikiptir, og Einar er mjög
vaxandi leikmaður. Sætirfurðu
sú ákvörðun landsliðsnefndar
að setja Guðna Kjartansson í
stöðu framherja og ,.Jón Stef-
ánsson í stöðu bakvarðar; Jón
leikuf ávallt miðvörð með sinu
liði og á að skipa það sæti 1
landsliði, þótt Anton höggvió-
neitanlega nærri þeirri stöðu.
Guðni var bakvörður í lands-
leiknúm gegn Spáni og í lands-
liðinu innan 24 ára og gerði
þeirri stöðu góð skil í bæði
skiptln.
Landsliðsnefnd hefur hins-
vegar ákveðið liðið eins og að
framan er birt, og óskar Þjóð-
viljinn þvi góðs gengis í leikn-
um gegn áhugamannaliði Stóra-
Bretlands, en það er nú á
keppnisferðalagi til Sviþjóðar
og Irl^nds auk Isllands til und-
irbúnings næstu Olympíuleikj-
um.
Landsleikurjnn hefst n. k.
mánudagsikvöld kl. 20,00, á
Laugardalsvelli, en forsala að-
göngumiða hefst við Útvegs-
bankann kl. 10 á már-*dags-
morgun og kl. 4 við völlinn.
Verð aðgöngumiða er kr. 150
í stúku, kr. 100 stæði og kr. 25
fyrir börn.
★
Dómari verður Svíinn Curt
Liediberg og h'nuverðir Magnús
V. Pétursson og 'Guðjón Finn-
bogason.
I gær var sagt hér í Þjóðvilj-
anum í stuttu máli frá helztu
útisamkomum og skemmtunum
um verzlunarmannahelgina og
birtar alimargar myndir frá
mótinu í Húsafellsskógi. I dag
birtast myndir frá bindindis-
mótinu í Galtalækjarskógi og
úr Þórsmörk, en á morgun
verða hér á síðunni myndir úr
Atlavík.
Eins og getið var í fréttum
blaðsins í gær, munu um þrjú
þúsund manns hafa sótt bind-
indismótið í Galtalækjarskógi.
Fór mótið í alla staði prýði-
lega fram og rómuðu þátttak-
'endur mjög ágæti mótsstaðarins
og framkomu allra gesta. Lög-
regluþjónar voru engir á mót-
inu, en félagar úr bindindis-
samtökunum önnuðust eftirlit
og gæzlu.
□
Mótið var sett á laugardags-
kvöld. Þá flutti Sigurjón Páls-
son, bóndi á Galtalæk, snjalla
' staðarlýsingu. Dansað var af
miklu fjöri í stóru samkomu-
tjaldi. Varðéldur var kveiktur
og tekið lagið.
Á sunnudag hófst guðsþjón-
usta klukkan tvö, séra Bjöm
Jónsson, Keflavik prédikaði.
Síðar um daginn var íþrótta-
keppni, en fjögur handknatt-
leikslið úr Reykjavík, Kópavogi
og Keflavík áttust við. Sigraði
lið ungtemplarafélagsins Ár-
vakurs í Keflavík glæsilega. Þá
sýndi flokkur úr Þjóðdansafé-
lagi Reykjavíkur þjóðdansa.
Klukkan sjö hófst fjölbreytt
kvöldvaka. Þá fiutti ræðu Björn
Björnsson, sýslumaður, Rang-
æinga og fram fóru ýmis
skemmtiatriði. Síðar hófst dans-
inn, en hljómsveitin Pónik og
Einar ááamt Birnum úr Hvera-
gerði sungu og léku af miklum
krafti og við ánægju mótsgesta.
Á miðnætti var glæsileg flug-
eldasýning og mótinu var slitið
klukkan tvö eftir miðnætti.
□
Þulur mótsins var séra Björn
Jónsson, en formaður móts-
nefndar Gissur Pálsson.
Félagar ungtemplarafélagsins Árvakurs í Keflavík voru mjög’
sigursælir í íþróttakcppninni á bindindiismótinu í Galtalækjar-
skógi. — Myndin er af nokkrum hluta tjaldbúða Keflvíkinganna
A fáum stöðum er veðursæld meiri á góðum dögum en í Þórsmörk. — Myndin sýnir fáein tjöid Þórsmerkurfara í skógarkjarrinu i
Húsadal um verzlunarmannaheigina. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.).
Myndin var tekin í Húsadal. Hljómsveit
f Þórsmörk var efnt til dansleiks fyrir unga fólkið, sem þangað sótti hundruðum saman. —
leikur fyrir dansinum. — íLjósm. ÞJóðv. A- KJ.