Þjóðviljinn - 12.09.1967, Page 1
Sænskur maður
tapaði veski
Fyrir hádegi í gærdag tapaði
sænskur maður seðlaveski með
1200—1500 sænskum krónum og
ýmsum skjölum. Kveðst hann
hafa týnt veskinu annað hvort
í Reykjavík, eða á leiðinni til
Hafnarfjarðar. Er finnandi vin-
samlegast beðinn að hafa sam-
band við rannsóknarlögregluna.
DMUNN
Þriðjudagur 12. september 19i&7) — 22. árgangur — 203 tölublað
Árni FriSriksson kominn fil landsins
Fyrsta rannsóknaskip-
ið í eigu Islendinga
□ Fyrsta skip íslendinga, sem sérstaklega er smíðað til
vísindastarfa á hafinu, sildarrannsóknaskipið M/s Árni
Friðriksson, er komið till landsins og var í gær formlega
afhent Hafrannsóknastofnuninni af sjávarútvegsmálaráð-
herra.
Athöfnin fór fram í Ráðherra-
bústaðnum við Tjarnargötu, þar
sem Eggert G. Þorsteinsson sjáv-
arútyegsmálaráðherra hélt ræðu
og afhenti skipið Hafrannsókna-
stofnuninni, en Davíð Ólafsson
veitti því viðtöku fyrir hönd
stofnunarinnar. Viðstaddir voru
starfsmenn sjávarútvegsmála-
ráðuneytisins og Hafrannsókna-
stofnunarinnar, áhöfn skipsins,
fulltrúar útvegsmanna og sjó-
manna og fleiri.
í ræðu sinni minntist sjávar-
útvegsmálaráðh. þeirra meriAi
tímamóta að nú væri hingað
komið fyrsta skipið sem sér-
staklega hefði verið smíðað fyr-
í dag. kl. 2-*-5, gefst Reykvíkingum kostur á að fara um borð og
skoða nýja sildarrannsóknaskipið Árna Friðriksson, þar sem hann
liggur við Ægisgarð. — Myndina tok ljósm. Þjóðviljans, A. K. i
gaermorgun rétt eftir að skipið lagðist að bryggju.
ir störf vísindamanna í fiski-
fræðum og mundi innan skamms
hef j*a sín mikilvægu störf á haf-
inu umhverfis landið í nánum
tengslum við fiskveiðiflotann.
Hingað til hefðu verið erfið-
ar aðstæður fyrir störf vísinda-
Framhald á 3. síðu. M/s Árni Friðriksson í Reykjavíkurhöfn — (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
18 hljómsveit-
artónleikar á
þessum vetri
Sinfóníuhljómsvéit íslands er
nú að hefja vetrarstarfsemi
sina, og verða fyrstu reglulegu
tónleikar hennar haldnir 28.
september. Á starfsárinu verða
haldnir 18 tónleikar (A-flokkur)
annan hvern fimmtudag í vet-
ur. Aðalhljómsveitarstjóri verð-
ur Bohdan Wodiczko. en aðrir
stjórnendur verða Jussi Jalas,
Róbert A. Ottósson. Shalöm
Ronly-Riklis, Kurt Thpmas, Páll
P. Pálsson og Ragnar Björns-
son.
Sala áskriftarskírteina hófst í
Ríkisútvarpinu 4. sept. Áskrif-
endur eiga forkaupsrétt að kaup-
um aðgöngumiða, og er þeim
ráðlagt að sækja skírteini sín
nú þegar.
Fur&uleg vinnubrögð rá&herra:
Emil kom í veg fyrír tillðgu-
gerð um öryggi sjómannaí
□ Þegar Emil Jónsson gegndi s'törfum sjávar-
útvegsimálaráðherra kom hann í veg fyrir að
nefnd, sem skipuð var til að kanna ákveðna þætti
í öryggismálum íslenzkra sjómanna, skilaði áliti
og tillögum!
Þetta upplýsir Jóhiann J. E.
Kúld í þætti sínum Fiskimálum,
sem birtist á öðrum stað í blað-
inu í dag.
Framangreind nefnd var skip-
uð eftir að Alþingi samlþykkti
Blóðugir bardagar eru háðir á
landamærum Indlands og Kína
i'
— stórskotaliði beitt, mannfall í beggja liði
NÝJU DELHI 11/9 — f dag kom til blóðugra bardaga milli
kínverskra og indverskra hermanna í fyrsta sinn síðan
vopnuð átök urðu á landamærum ríkjanna 1962. Indverjar
segja allmarga sína menn fallna og særða og kinverska út-
varpið segir 25 kínverska' hermenn fallna og marga særða.
Aðilar kenna hvor öðrum um upptökin.
Bardagarnir eiga sér stað á
landamærum Tibets og Sikkims,
smárikis í Himalajafjöllum sem
Indland annast landvamir fyrir.
Báðir aðilar notuðu meiriháttar
vopn, vélbyssur, sprengjuvörpur
og stórskotalið — og er það að
því er bezt vitað í .fyrsta sinn
að stórskotaliði er beitt í átök-
um Kína og lndlands.
Upptök
Pekingútvarpið segir bardaga
hafa byrjað er indverskt lið fór
yfir landamærin og kastaði
6prengjum á kínverska bækistöð.
Hafi hér verið um vopnaða ögr-
un að ræða sem var svarað með
gagnárás. Indverska varnarmála-
ráðuneytið segir hinsvegar að
Kínverjar hafi byrjað árás yfir
syonefnt Nathu-skarð með vél-
byssuskothríð. Hafi Indverjar
svarað og haldið áfram að skjóta
þar til þétta þoku iagði yfir víg-
völlinn. Hafi Kínverjar hinsveg-
ar skotið á indverskar bækistöðv-
ar úr sprengjuvörpum og 76 mm.
fallbyssum og með þvi móti bak-
að Indverjum npkkuð manntjón.
Síðustu fréttir á mánudagskvöld
bentu til þess að bardögum héldi
áfram og hafði indverská stjórn-
in ákveðið að senda hörð mót-
mæli til Peking.
Fréttir um bardaga bessa urðu
strax til þess að verðbréf féllu
í verði í kauphöllinni í Nýju
Dehli og bendir betta til ótta
við meiriháttar átöfc milli rikj-
anna tveggja.
Aðdragandi
Nathuskarð er um 4500 yfir
sjávarmál og var áður býðingar-
mikií samgönguleið frá Tíbet til
Sikkim. Það er aðeins 32 km frá
höfuðborg Sikkims, Gangtak, og
veikur hlekkur í vamarkerfi
Framhald á 3. síðu.
tillögu Péturs Sigurðssonar tim
að athugun færi fram á því, á
hvern hátt bezt yrði fylgzt með
íslenzkum fiskiskipum svo að
auka mætti öryggið í sjósókn-
inni. Ýmis stór félagasamtök til-
nefndu menn í nefndina og kom
hún saman á nokkra fundi og
í'æddí máiið-
Jóhann J. E. Kúld var full-
trúi Alþýðusambands Islands í
nefnd þessari og segir hann svo
frá starfi hennar:
„Samstarf innan nefndarinnar
var ágætt og á síðasta fundin-
um sem nefndin hélt, þá leit út
fyrir að stutt yrði í sameiginleg-
ar tillögur nefndarinnar. En
hvað skeði þá? Jú, einfaldlega
það, að nefndin var ekki kölluð
Hver ók á kyrr-
stæða bifreið?
Um hélgina var ekið á kyrr-
stæðan bH, R-7949 sem er hvít-
ur Volvo, árgerð ’64, við Ból-
staðarhlíð 86. Vatr bíillinn
beyglaður á vinstra frambretti
og vinstri framhurð skemmdist
einnig. Sást greinilega blár lit-
ur á bílnum og eru sjónarvottar
beðnir að gefa sig fram við um-
ferðardeild rannsóknarlögregl-
unnar.
Cullfaxi" lenti í Reykjavík I gærdag
í gærdag kl. 17.20 lenti GuMaxi, Boeing-þota Flugfélags íslands, á Reykjavíkur-
flugvelli, þvií að ekki var hægt að lenda í Keflavík- vegna þoku.
Er þetta í fyrsta sinn sem þotan lendir í Reykjavík í áætlunarfkigi. Gullfaxi var
að koma frá Kaupmannahöfn og Glasgow og var 71 farþegi um borð. — Flugstjóri
var Aðalbjörn Kristbjarnarson.
Gullfaxi flýgur til London klukkan 8 árdegis í dag.
Emil Jónsson. ,
saman oft’ar. Þegar ég spurði
formann nefndarinnar hverju
þetta , sætti, þá sagði hann að
þáverandf sjávarútvegsmálaráð-
herra óskaði ekki eftir áfram-
haldandi störfum í nefndinni, cn
án hans samþykkis gæti hann
ekki kallað saman nefndina að
nýju. Og nefndin var aldrei
kölluð saman aftur“.
í framhalldi af þessum um-
mælum segir Jóhann: „Ég get
sagt það hér, að við (nefndar-
menn) ræddum um svipuð úr-
ræði og nú hafai komið í til-
löguformi frá Slysavarnafélaginu
og Farmanna- og fiskimanna-
sambandinu, og hafi þeir þökk
fyrir að hafa tekið málið upp að
nýju með tiilögum sínum.“
Fyrirlestur um
samanburðar-
bókmenntir
Dr. Steingerður Ellingston
heldur fyrirlestur um saman-
burðarbókmenntir í boði Há-
skóla íslands fimmtudaginn 14.
september kl. 5.30 í I. kennslu-
stofu Háskólans.
Dr. Ellingston hefur dvalizt
hér á landi um nokkum tíma,
en tekur við kennslu í Univer-
sity of California, Berkley, í nor-
rænum málum í haust.
Öllum er heimill aðgangur að
fyrirlestrinum, sem verður
fluttur á íslenzku.
Stúlka slasaðíst
í umferðinni
\
Það slys varð á sunnudags-
morguninn sunnan við Akureyri,
skammt frá Kristnesi, að jeppi
fór út af veginum og fór eina
eða tvær veltur. Ökumaðurinn
slapp ómeiddur en stúlka sem *
var farþegi í bílnum slasaðist
' eitthvað og var flutt á sjúkra-
hús.
Raftengsli brunnu sundur og
Suðurnesin urðu struum/uus
Bilun varð í gaér við Elliðaár-
stöðina og varð straumlaust í
Reykjavik, Kópavogi, Hafnar-
firði og um öll Suðurnesin í um
tvo klukkutima.
Bilunin varð kl. 9.55, þá slitn-
aði eða brann í sundur raf-
taug sem tengir Sogslínuna frá
írafossstöðinni við tengivirkið
við Elliðaár, en slíkar hilanir
geta komið mjög skyndilega,
sagði Ingólfur Ágústsson verk-
fræðingur jjjá Landsvirkjun
Þjóðviljanum.
Viðgerð tók nokkurn tíma og
fengu fyrstu notendur rafmagn-
ið aftur um kl. hálftólf. hinir
síðustu kl. hálfeitt. Rafmagn
var mjög takmarkað meðan á
yiðgerð stóð og var því sem
fékkst eftir gömlu Sogslínunni
veitt til siúkrahúsanna.
Vegna rafmagnsleysisins , urðu
truflanir á síma um tíma, t.d.
fór Grensásstöðin úr sambandi,
en víða hefur síminn ekki full-
nægjandi varaafl ef straum-
laust verður.
i
»