Þjóðviljinn - 13.10.1967, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 13.10.1967, Blaðsíða 1
ÞaS sem hœkkar: matvœli, tasteigna- g'löld, utbnferSir, tóbak, áfengi, trygg- ingaiSgJöld, sjúkrasamlagsg’iöld, póstur, simi, hlJóSvarp og sjónvarp ÞAD SEM EKKI MÁ HÆKKA: KAUPIÐ ENN EITT OÐAVERÐBOLGUSTOKK: reisnaraiogurnar nema 750 milj. króna á ári Verðlagsvísitalan hœkkar um 14 stig ón þess að kaup eigi nokkuð að hœkka □ I ræðu á fundi Sameinaðs þings í gær kynnti Bjarni Bene- diktsson fyrsta áfangann í, ráðstöfunum ríkisstjómarinnar eftir að viðreisninni hefur tekizt að snúa velgengni í vandræði. Álögur á þjóðina verða auknar um 750 miljónir króna á ári, að því er ríkisstjórnin sjálf telur, en það jafngildir meðalverðhækkun sem nemur 7,2% eða um 14 vísitölustigum. Þessar stórfelldu verð- hækkanir leggjast mest á brýnustu nauðsynjar, mjólk og mjólk- urafurðir, kjöt og kartöflur og bitna því harðast á tekjulágum og stórum f jölskyldum. Þessar verðhækkanir eiga launamenn að bera bótalaust, og yfirlýst að það jafngildi 7% lækkun á kaupmætti. Bjarni Benediktsson flytur tilkynningu ríkisstjómar- innar — (Ljósm. Þjóðv. A.K.). Grein Alexanders Werths: Fimmtíu árum síðar — Bls. 5 i) 2) 3) Aðalráiðstafanirnar eru þessar: Felldar verða niður allar niðurgreiðslur á vöruverði sem teknar hafa verið upp síðan lsta ágúst í fyrra — það er að segja öll „verðstöðv- unin“! Þessi upphæð jafngildir um 410 miljón- um króna eða 6,1% — um það bil 12 vísitölu- stigum. Fasteignamat verður tólffaldað og í sveitum allt að því sexfaldað og á aukinn fasteigna- skattur að færa ríkissjóði 62 miljónir króna. Lagður verður á famtíðaskattur vegna utan- ferða, þrjú þúsund krónur á farseðil, en tekj- ur af því eru áætlaðar 60 miljónir króna. /Q Tóbak og áfengi hækka um ca. 13%, en sú verðhækkun á að færa ríkissjóði um 60 milj- ónir króna. Iðgjöld almannatrygginga v-erða hækkuð um 63 miljónir króna á ári. Q Hækkun daggjalda á sjúkrahúsum og hækk- un sjúkrasamlagsiðgjakla á að nema 40 milj- ónum króna á ári. Söluskattur á að leggjast á póst, síma og út- varp og er áætlaður 40 milj. kr. á ári, og auk Alþinfiismenn Wýfta á „bjargráða“-boðskap rikisstjórnarinnar á þingfundi í gær. (Ljm. Þjóðv. A.K.) þess eiga póstur og sími að skila 20 miljóna króna tekjuafgangi í ríkissjóð. Nýr vísitölugrundvöllur verður tekinn upp lsta marz n.k., en hækkanir þær sem nú verða á gömlu vísitölunni verða að engu bættar. Það kallaði Bjarni Benediktsson „á- framhald á stöðvunarstefnunni“! ! Kjörbréf allra alþingis- manna voru sambykkt Þingsetnlngarfundi var fram haldið i s ær og voru þá greidd atkvæði um kjörbréf- in. Samþykkt voru kjörbréf sextíu alþingismanna og tveggja varaþingmanna. Öll kjörbréfin voru sam- þykkt með sambljóða at- kvæðum, nema kjörbréf Steingrims Pálssonar. Um það krafðist Bjami Bene- diktsson nafnakalls og var kjörbréfið samþykkt með 28 atkvæðum gegn einu, en 31 greiddi ekki atkvæði. Þeir sem sátu hjá voru allir þing- menn stjómarflokkanna nema Pétur Benediktsson" sem gerði grein fyrir atkvæði sínu og kvaðst álíta að Alþýðu- flokknum bæri þingsætið, og hefði sannfærandi ræða Magnúsar Kjartanssonar dag- inn áður orðið sér styrkur til að skera sig úr hópi þeirra sem sátu hjá. Allir þingmenn Alþýðu- bandalagsins og Framsóknar- flokksins greiddu atkvæði með kjörbréfi Steingríms. Magnús Kjartansson gerði svofellda grein fyrfr atkvæði sínu: „Þar sem landskjörstjórn lýsti yfir því í qpphafi kosn- ingabaráttunnar að atkvæði I-listans í Reykjavík yrðu Iögð við atkvæði Alþýðu- bandalagsins við úthlutun uppbótarþingsæta, og þar sem málsvarar og málgögn stjórn- arflokkanna beggja og Fram- hj sóknarflokksins lýstu sam- J þykki við þá niðurstöðu fyrir kosningar, tel ég kjósendur eiga siðferðilega og Iýðræðis- lega heimtingu á því að við þau fyrirheit verði staðið í verki að kosningum loknum, og segi þvi já, jafnframt því sem ég ítreka þá afstöðu að óhjákvæmiicgt sé að endur- skoða kosningalög, svo að jafn fráleitir atbwðir endur- taki sig ekki“. I Nýr „málefnagrundvöllur" Þegar kosningum var lokið á fundi sameinaðs þings í gær kvaddi forsætisráðherra sér hljóðs og las yfirlýsingu um framhald á stjómarsamvinnu Sjálfstæðisflokksins og Alþýðu- flokksins og skýrði fr(i þeim ráð- stöfunum sem hér hefur verið sagt frá og auk þess alllmörgum mólum öðrum sem stjórnarflokk- arnir hefðu samið um að vinna að á kjörtímabilinu. Verður þessi tilkynning róðherrans um nýjan málefnasamning stjórnarflokk- anna birt í heild í næsta blaði til glöggvunar lesendum blaðsins. Gylfi Þ. Gíslason lýsti yfir i fáum orðum að miðstjóm Al- þýðuflokksins hefði einróma samþykkt að halda áfram stjóm- arsamvinnu við Sjálfstæðisflokk- inn á grundvettli yfirlýsingarinn- ar sem forsætisráðherra las. Eysteinn Jónsson lýsti yfir Framiliald á 4. s.óu. 1968 Nokkur stjórnarfrum- vörp voru lögð fram á Al- þingi í gær. Fyrst þeirra var fjárlagafrumvarpið bg telur stjómin í athuga- semdum að tvö séu megin- einkenni frumvarpsins. •— Annað séu ráðstbfanirnar í efnahagsmálum og hins vegar sé gagnger breyting á skipulagi frumvarpsins bæði að formi og efni, í samræmi við ný lög um ríkisbókhald, gerð ríkis- reiknings og fjárlaga. Sé stefnt að því að gefa heild- armynd af nær öllum rekstri ríkisins, ef undan- skildar eru hreinar lána- stofnanir, bankar og lána- sjóðir Gjöld á rekstrarreikningi á fjárlögum ársins 1968 eru áætluð 6.120.431.000 kr., en tekjur 6.195.296.000 kr. eða tekjur umfram gjöld 74.865.000 kr. Greiðslujöfn- uður á lánahreyfingum er 37.565.000 kr., og greiðslu- afgangur verður 37.300.000 krónur. i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.