Þjóðviljinn - 28.10.1967, Síða 7

Þjóðviljinn - 28.10.1967, Síða 7
Laugardagur 28. oJctöber 1967 — í*JÓÐVXLJINN — SÍÐA 7 \ * Ræðtr Jónasar Árnasonar Fnamhald af 5. sí5u. hontun standa. Það, sem til að mynda veldur einna flestnm grátim hárum á höfðum ís- lenzkra foreldra nú til dags, eru áhyggjur út af því hvað böm þeirra eru einþykk og ó- ráðþæg. Samþandið milli kynslööanna hefur rofnað. Þær umgangast ekki lengur hver aðra eins og eðlilegt væri, taka lítinn sem engan þátt í lífi hver annarr- ár, hafa lokazt inni hver í sinni stíu. Og hvað hefur valdið þessu? Ég hef nefnt eina ástæðuna. Nú skal ég nefna aðra. Sú viðleitni sem að undan- fömu hefur verið höfð í frammi til hjálpar æskulýðn- um í félagslegum efnum, virð- ist byggð á þeirri meginhugs- un að vandamál hans verði helzt leyst með því að halda honum sem mest aðskildum frá öðru fólki. Sérstök æskulýðs- heimili eru að sjálfs^gðu góðra gjalda verð, og æskulýðsdans- leikir undir eftirliti sam- vizkusamra manna munu sjálf- sagt geta minnkað nokkuð hættuna á því að unglingar lendi á glapstigum. Þó hef ég séð mörg dæmi þess í sveit- inni, þar sem ég á heima, að þau böllin heppnast einmitt bezt, þar eem kynslóðimar, ungir jafnt sem gamlir, dansa ■4> Tannlæknafélagið B'ramlhald af 4. síðu. upphrópunum um svíðdngshátt stéttarinnar. Einnig mættu blöð- in gæta meiri hófsemi í skrif- um sínum um starfsemi tann- lækna og ekki nema að' athug- uðu máli. FóBk er orðið vant því að læknishjálp sé að meira éða minna leyti greidd af sjúkrasamlögum og finnst þá oft á tíðum að greiðsla sú sem tannlæknar taka fyrir störtsín sé allt of há, þar eð enginn aðili hleypur þar undir bagga með hjálp. Sanni nær mun vera að þjónustugjaldi íslenzkra tannlækna fyrir störf þeirra sé mjög í hóf stillt, sé miðað við þjónustugjald kdllega þeirra í nágrannalöndum okkar; er þar ekki aðeins átt við að „taxti“ íslenzkra tannlækna sé mikiu lægri en samsvarandi „privat" taxtar erlendra starfs- bræðra þeirra, heldur er taxii oklcar efcki hærri — og í mörg- um tilfellum lægri — en sjúkra- samlagsgjaldskrár þær, sem tryggingastofnanir og tann- læknar hafa samið um sín í milli hjá nágrannaþjóðum okk- 95% þjóðarinnar þjást af tannskemmdum Tannlæknafélag Islands lít- ur yfir farinn veg undangeng- inna 40 ára og telur að þótt ýmislegt megi að finna og sumt betur mátt fara, þá hafi á hinn bóginn miklu meira á- unnizt og framfarir á sviði tannlækninga verið stórstígar hér sem annarsstaðar. Okk- ur er ofarlega- í huga að koma menntun og kennslu tann- smiða og aðstoðarstúlknatann- lækna í sómasamlegt horf í náinni frámtíð. Væri- í því sambandi æski- legt og raunar sjálfsagt að hið opinbera taki á sig að ein- hverju eða öllu leyt.i, og helzt þá í samráði við Tannlækna- deildina þær skyldur og fjár- hagsilegu byrgðar, er slíkri bjálf- un fylgir. Það er fynrsjáanlegt að Tann- læknafélag íslands verður að bafa samráð og samvinnu við aðrar stéttir heilbrigðisbjónust- unnar um uppbyegingú og end- urbætur á heilbrigðismálum bjóðarinnar, einkum þó þeirri hlið er að tannheilsu og tann- vemd - snýr. Þetta er stórmál. er varðar- heilbrigði og veilfarð allra landsmanna, ekki sízt, ef haft er f huga að meira en 95% bjóðarinnar þjáist meira os minna af tann- og mimn- sjúkdómum. í einum sal. Og ég fullyrði hiklaust, að margt það til- stand, sem gert er með æsku- lýðinn, sem slíkan og sér á parti, er alveg ástæðulaust og sumt mjög varhugavert. Þegar til að mynda Sinfóníuhljóm- sveit íslands vill bæta tónlist- arsmekk ungs fólks, sem sann- árlega er ekki vanþörf á, með því að bjóða því afsláttarmiða, færi bezt á að hún gerði það án þess að auglýsa endilega sérstaka æskulýðstónleika, eins og hún hefur gert. Enda sýnist mér, að ungt fólk ætti að geta haft sömu ánægju af klassískri músik, þó að einhverjir full- orðnir séu viðstaddir. Og þó að ég þykist vita að gott eitt vaki fyrir þeim prestum sem nú eru í vaxandi mæli famir að auglýsa sérstakar æskulýðs- guðsþ j ónustur, efast ég ekki um að Guð almáttugur mundi kunna bezt við að sjá unga sem gamla sitja hlið við hlið í húsi sínu. Slik dæmi mætti nefna fjöldamörg fleiri, og enda þótt þau kunni að virðast smávægi- leg hvert fyrir sig, á þetta þó allt sinn þátt í þeirri sortér- ingu sem tvímælalaust er kom- in út í öfgar. (Sérstakar æsku- lýðsguðsþjónustur gætu jafn- vel virzt vottur þess, að far- ið sé að reikna með því að til sé sérstakúr æskulýðsguð). Víst er að þessi sortéring er, vægast sagt, ekki líkleg til þess að draga úr þeirri sannfæringu æskulýðsins, að hann sé sér- stök manntegund, — og minn- ít reyndar óskemmtilega mikið á það sem gerist í löndum þar sem kynþáttamismunun ríkir og tilteknu fólki er bannað að láta sjá sig nema á tilteknum stöðum. Aðbúð unga fólksins Og hér er ég kannski kom- inn að sjálfum kjama málsins. Allar hinar miklu umræður um vandamál 'æskulýðsins og tilstandið sem stundum er ver- ið að gera út af honum, — hvað sannar það? Að eldri kynslóð- in og það þjóðfélag sem rekið er á hennar ábyrgð láti sér í raun og veru annt um þetta fólk? í þessu sambandi væri freist- andi að taka t.-d. skólamálin til .rækilegrar athugunar. Um þau væri margt acf segja og ekki allt par fallegt. Fjárveitingar til þeirra eru skomar svo við nögl, að margir skólar mundu án efa lognast út af með öllu, ef ekki væri fyrir þrautseigju og fórnfýsi þeirra manna sem stjóma þeim. Ég kenndi tvo undanfama vetur við hehnavistarskála, þar sem ekki er að heitið geti nein aðstaða fyrir unglingana að nota tómstundirnar sér til gagns og þroska, og er þó slik aðstaða engu þýðingarminni á slíkum skóla en sjálfar kennslu- stofurnar. (Og þó hefur þessi skóli búið við batnandi hag að því er aðstöðu snertir undan- farin ár, en samt er ástandið enn eins og ég sagði) Og fyr- ir fáeinum árum kenndi ég við skóla hér i Reykjavík, sem hafði fyrir náð og miskunn fengið inni hjá fyrirtæki sem annaðist bílaviðgerðir á neðstu hæð hússins. Það voru stund- Um böll á laugardagskvöldum. og þá urðu nemendurnir að dansa í einni kennslustofunni og í þröngum gangi fyrir ír'am- an hana og jafnvel niðri í stigunum. Kennslan var stunl- um við stöðugt undirspil frá skröltandi vélum og hömrum sem dundu á stáli. Og þegar vindur stóð upp á útidyruar fylgdi þessum skarkala siybba af margskyns málningartegund- um, benzíni pg olíum. Þetta sérkennilega skólanús- næði mun r.ú að vísu afiagt sem slíkt, en þó er enn víða kennt við aðstæður sem eru litlu betri en þessar. Og Jvetta gerist á sama tíma og bif- reiðainnflytjendur byggja sér æ stærri og glæsilegri hallir þar sem þeir hafa tfl. sýnis sína fjórhjóluðu gæðinga. Sam- anburður á þeim höllum og skólum okkar tala sínu máli um það, hverjir velþóknunar njóta í þessu þjóðfélagi. Lúxus- bílar búa við miklu glæsilegri húsakynni, meðan þeix bíða eft- ir kaupendum sínum, heldur en íslenzkur æskulýður, meðan hann býr sig undir lífið. Ég held að ég láti þetta nægja um skólamálin að sinni. Það gefst án efa tækifæri til að ræða þau nánar, og það frekar i fyrr en síðar, á þessu þingi. % í slæmum félags- skap í framhaldi af þessu væri þó kannski ekki úr vegi að minn- ast hér á annað atriði sem veldur mér áhyggjum, og það er aðstaða hæstvirts mennta- málaráðherra. Aðsiaða hans veldur mét áhyggjum, vegna þess að hún er svo óskemmti- leg, að ég ekki segi átakanleg, og mér finnst að maðurinn eigi, vegna margra góðra kosta, miklu 'betra hlutskipti skilið. Ég veit, að það er honum metn- aðarmál að láta sem mest gott af sér leiða í þessum efnum. Ég er viss um, að hann mundi feginn vilja reisa marga skóla, sem að glæsileik væru sam- bærilegir við a.m.k. miðlungs- bílasölur. En hann hefur orðið að sæta þeim hörmulegu örlög- um að vera ekki 'aðeins menntamálaráðherra heldur og ráðherra viðskiptamála í rik- isstjóm sem fyrst og • fremst lýtur vilja þeirra þjóðfélags- afla sem alla hluti meta sam- kvæmt sjónarmiðum gróða- hyggjunnar, en hafa litinn sem engan skilning á skólamálum eða öðru því sem til menningar horfir. Það er eins og þar stendur: Illt er tveim herrum að þjóna. Það getur enginn þjónað menntagyðjunni af trúmennsku án þess að valda um leið styggð í röðum þeirra sem dýrka Mammon. Og samstarf- ið í þeirri stjóm, ' sem hæstvirtur (ráðherra á aðild að, byggist á því fyrst og fremst að í þeim röðum ríki gleði og fögnuður. Hann hefur sem sé lent í slæmum félags- skap, og fyrir þá sök getur hann ekki komið í framkvæmd nema litlu einu af öllu því góða sem hann vill í menning- armálum. Hann mundi án efa verða miklu hamingjusamari maður i öðrum og betri félags- skap, sem hann og ætti skil- ið, í annarri og betri ríkis- stjórn. En það er sennilega til lítils að benda honum á það. Kannski er það orðið um sein- an. En þessi staðreynd, þessi vafasami félagsskapur sem hæstvirtur ráðherra hefur valið sér, veldur mér einnig nokkr- um beyg í sambandi við fram- kvæmd þeirra mála sem ráð- gerð eru í þessu frumvarpi. Það er talað um fjárveitingar. Það er hinsvegar lítið talað um það hve háar þær eigi að vera né heldur hvemig þær verði tryggðar. Margt bendir sem sé til þess, að eftir að hæstvirtur menntamálaráðherra hefði fengið, frumvarp þetta sam- þykkt, færi fyrst verulega að reyna á einlægni hans í málinu og dugnað, hvemig honum tækist til með að fyrirbyggja óæskileg áhrif þess Mamm- onssafnaður, sem mestu ræð- ur um aðgerðir hæstvirtrar ríkisstjórnar, og að tryggja nægan stuðning fjárveitingar- valdsins. Það hygg ég að verði þrautin þyngri. Það er nefni- lega fast sem . . . e . . . sum- ir halda. Sízt vildi ég þó gerast sek- ur um ástæðulaugar hrakspár. Ég leyfi mér að vona allt hið bezta um framkvæmd þessa frumvarps. Maður er manns gaman En, sem sagt. árangurinn veltur að mínum dómi fyrst og fremst á því að þeir, framkvæmdinni eiga að stjóma, hafi hliðsjón af þehn grund- vallaratriðum, sem ég hef hér reynt að gera grein fyrir. Fram- kvæmdin verður að miða að því að venja æskulýðinn af þeirri hugsanaskekkju að hann sé sérstök manntegund. Eldri kynslóðin verður þá líka að hætta að haga sér gagnvart honum eins og svo sé. Hún verður að hætta að stugga hon- um frá sér. Hún verður að taka meiri þátt í lífi hanS. Áður en tímabil hinnar skefjalausu sortéringar hófst, var það helzta einkennið á fé- lagslífi okkar íslendinga að ungir sem gamlir tóku jafnan þátt í því. Aldursmunur var þá ekki talinn neinn þröskuld- ur i vegi fyrir því að menn gætu verið góðir félagar. Og þannig er þetta raunar enn í vissum byggðarlögum. En ég á hér við ungmennafélögin. Mörg þeirra hafa að vísu dá- ið drottni sínum, en það eru líka til ungmennafélög sem enn starfa af furðu miklu tápi og fjöri. Ég get um það borið af eigin raun. Tvo undanfarna vetur starfaði ég í tveim ung- mennafélögum, og ég hef ekki í annan tíma fundið betur sannleiksgildi hins fomkveðna, að maður er manns gaman. Starfsemi þessara félaga bygg- ist á því gamla og 'góða við- horfi að aldursmunur þurfi ekki að vera til trafala í sam- skiptum manna, heldur geti hann þvert á móti orðið til að auka ánægjuna af slíkum samskiptum og efla þroska allra aðila. Menn teljast vera jafngóðir og nýtir ungmenna- félagar, hvort sem þeir era 50 eða 15 ára. • / Ég vek athygli á þessu hér vegna þess að mér sýnist, að starfshættir ungrnennafélag- anna gætu um margt orðið til fyrirtnyndar við framkvæmd þessa frumvarps. Raunar er gert ráð fyrir einhverjum stuðningi við ungmennafélögin, sem og önnur skyld samtök í frumvarpinu, og gott er það. Þeim mun meiri sem sá stuðn- ingur verður, þeim mun betra. Kannski yrði það einmitt happasælasti árangurinn af þessu frumvarpi, ef það gæti blásið nýju lífj í ungmenna- félögin og hafið aftur til vegs hinar gömlu hugsjpónir þeirra. í>ví yrði þó eflaust haldið fram, að starfshættir ung- mennafélaganna mundu ekki eiga við í Reykjavik eða ann- arsstaðar í þéttbýlinu. Og það er sjálfsagt rétt, — að þeir hæfi.betur þar sem færra fólk saman komið og minni gauragangur í daglegu lífi, — úti á landsbyggðinni —■ í kaup- stöðum og í sveitum. En þess ætti maður þó að mega æskja að einnig í Reykjavík yrði sem mest reynt að starfa í þeim anda sem enn einkennir ung- mennafélögin. Þar — í þétt- býlinu, — kallar líka mest að um lausn vandans. Þar er mest í húfi . að kynslóðimar fari aftur að gefa vinsamlegan gaum hver að annarri. Þar ríður á mestu að rofin verði einangrun þeirra hverrar um sig, felld niður spilverkin. og afnumdar stíurnar. Að endingu þessi ítrekun: Þó að frumvarp þetta nefnist „Frumvarp til laga um æsku- lýðsmál11, lít ég, svo á, að framkvæmd slíkra laga eigi ekki að vera bundin einvörð- ungu við æskulýðsmál í þröngri merkingu. Ég vil vona, að framkvæmdin verði með þeim hætti að frumvarpið hefði eins mátt nefnast: .'.Fxumvarp til laga um heilbrigð samskipti og sættir milli ungra og gamalla íslendinga“. ÓSKATÆKI Fjölskyldunnar Sambyggt útvarþ-sjónvarp GRAND FESTIVAL 23” eða 25" KRISTALTÆR MYND OG HLJÓMUR • MeS innbyggðri skúffu fyrir piötuspilara • Plötugeymsia • Ákaflega yandað verk, — byggt með langa notkun fyrir augum. • Stórt útvarpstæki með 5 byigjum, þar á meðai FM og bátabyigju. • Allir stillár fyrir útvarp og sjónvarp í læstri veltihurð • ATHUGIÐ, með einu handtaki má kippa verkinu innan úr tækinu og senda á viðkomandi verkstæði — ekkert hnjask með kassann, lengri og betri ending. ÁRS ÁBYRGÐ Fást víöa um land. AöalumboS: EINAR FARESTVEIT & CO Vesturgötu 2. SER.VÍETTU- PRENTUN SÍMI 32-101. Smurt brauð Snittur vlð Oðinstorg — Síml 20-4-90. INNH&MTA tÖGFRÆQtSTðfíl? óodhmmoK Mávahlíð 48. Síml 23970. AHt til RAFLAGNA ■ Rafmagnsvórur. ■ Heimilistækl. ■ Útvarps- og sjón- varpstækl Rafmagnsvöru- búðin s.f. Suðurlandsbraut 12. Síml 81670. NÆG BÍLASTÆÐl. VAUXHALL BEDFORD UMBOÐIÐ ÁRMÚLA 3 5ÍM1 38900 HÖGNl JÓNSSON Lögfræðl- og fasteignastofa Bergstaðastræti 4. Sími 13036. , Heima 17739. SIGURÐUR BALDURSSON hæstaréttarlögmaður LAUGAVEGl 18, 3. hæð. Símar 21520 og 21620. BRIDGESTONE HJÓLBARÐAR Síaukin sala sannargæðin. BiRIDGESTONE veitir aukið öryggi í akstri. BRI DGESTON E ávailt fyririiggiandí. GÓÐ ÞJÓNUSTÁ Verzlun og viðgerðír Gýmmbarðinn h.f. Brautarholti 8 Sími 17-9-84 Laugavegi 38 Skólavörðustíg 13 Mjög vandaðar og fallegar unglinga- og kvenbuxur. Efni: 55% térylene 45% ull. Stærðir: 10 — 12 — 14 — 38 — 40 — 42 og 44. Verð frá 675,00. Póstsendum um allt land. KH«X9

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.