Þjóðviljinn - 09.11.1967, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 09.11.1967, Blaðsíða 1
HODIflUINN Fimmtudagur 9. nóvember 1967 — 32. árgangur — 253. tölublað. Stolið úr peningasendingu í síðustu viku hurfu 67 þúsund úr peningasendingu frá Búnaðar- bahkanum í Reykjavík til útibúsins í Búðardal. Framkvæmdastjóri útibusins uppgötvaði hvarf peninganna s. 1. föstudag, en peningarnir höfðu verið sendir í ábyrgðarpósti. Rannsóknarlögreglan í Reykjavík og sýslumaður Bprgfirðinga, Ás- geir Pétursson, vinna nú að rannsókn málsins og hafa all- • margir verið yfirheyrðir, bæði í Reykjavík og á Búðardal. Aflétta verður hernámi íslands Er varanleg hersefa orSin stefna og œtlun st]órnarflokkann a? Þvottakonum Lands- smiðjunnar sagt upp — ekki endurráðnar nema með verri kjörum :ar vikurnar horfa menn aldið fyrirtæki í eigu rík- Bjargsmólið ekki sent til saksóknara? Mjög erfitt reyndist að fá nokkrar fréttir af rannsókn Bjargsmálsins og er sýslu- maðurinn í Hafnarfirði, sem annast málsrannsókn, ekki til viðræðu dag eftir dag. Hefur hann Iátið hafa eftir sér að þegar yfir- heyrslum og frágangi máls- skjala sé lokið muni hann senda málið frá sér, en hef- ur ekki sagt hvert, þótt eðlilegast sé að málið gangi þá til saksóknara ríkisins. Valdimar Stefánsson sak- sóknari bjóst þó í gær fremur við því að málinu yrði vísað til menntamála- ráðuneytisins og cagði að sér hefði ekkert borizt um málið utan gögn sem bæj- arfógetinn í Kópavogi hefði sent sér, en þau hefði hann sent áfram til sýslumanns- ins í Hafnarfirði, þar sem bezt væri að öll skjöl i sambandi við málið væru þar sem rannsóknin fer fram. Þrálátur orðrómur geng- ur nú um það manna 4 meðal að verið sé að reyna að tefja rannsóknina eða jafnvcl stöðva hana vegna tengsla ýmissa áhrifamanna við málið. isins liðast í sundur, þar sem er Landsmiðjan og er ekki fyrir- sjáanlegt annað en þetta trausta fyrirtæki líði undir lok á næst- unni. Hver deildin eftir aðra hefair verið lögð niður og húsnæðið tekið undir verknám á vegum Iðnskólans eins og trésmíðaverk- stæðið og nafmagnsverkstæðið og starfsfólkið er kvíðið fyrir fram- tíðinni um sinn hag og væntir uppsagna fyrr en síðar eftir ára- langan starfsferil. Einkaframtakið i Sjölfstæðis- flokknum hefur að vísu haft þetta lengi á stefnuskrá sinni, að það beri að leggja niður rfkis- rekin fyrirtæki eins og Lands- smiðjuna og fær nú framgengt sínu þar. Þegar er farið að brydda á uppsögnum starfefólks þama, — þannig hefur þvottakonum fyr- irtækisins verið sagt upp miðað við næstu mánaðamót með eins mánaða fyrirvara og fengu þvottakonurnar uppsagnarbréfin í hendur í síðustu viku. Vikið er að því í bréfinu, að um endur- ráðningu geti verið að ræða, — þó með þvi skilyrði, að þær sam- þykki verri kjör sér til handa eh áður og ekki er vitað, hvað það verður langur starfsferiill. öll ber þessi framkvæmd vitni um siíkan smásálarskap og ná- nasarhátt að engu tali tekur. Samfara þessu hefur svo forstjór- inn verið að belgja sig yfir þvottakonunum og sýndi þeim hvorttveggja í senn ókurteisi og mikillæti. Hér fer á eftir texti uppsagn- atbréfanna til þvottakvennanna og eru þau dagsett yo. október FramhaM á 3. síðu ★ Seglskipið Stormsvalan slitn- aði «pp á Fossvogi í gær og rak upp í fjöru. Gerðist þctta um hádegið í gær og er blaðið hafði samband við lögregluna í Kópavogi seinnipartinn í gær voru eigendur skipsins að setja bönd á sldpið og bjugg- ust við að' ná Stormsvölunni út á flóði. Fjarað hafði und- an skipinu og lagðist það á hliðina en sjáanlcgar skemmd- ir á því voru engar. ★ Eigendur skipsins eru all- margir og flestir þeirra flug- menn. Keyptu þeir Stormsvöl- una í Englandi á sínum tíma og sigldu henni hingað. ★ Skútan náðist út kl. rúmlega 10 í gáerkvöld, en björgunar- báturinn strandaði á skeri. — Sjá bls. 2 — (Ljósm. G.O.) □ Er það orðið viðhorf stjórnarvaldanna að hér- lendis skuli dveljast erlendur her um ófyrir- sjáanlega framtíð eða jafnlengi og útlendum valdsmönnum þóknast að nota land okkar á þann hátt. — Eða er að því stefnt að mörkuð verði ný, íslenzk framtíðarstefna? □ Engin svör fengust við þeim spurningum í fyrirspurna- tíma Alþingis í gær þegar Bjami Benediktsson svar- aði fyrirspurn frá Magnúsi Kjartanssyni um atriði 1 stefnuyfirlýsingu stjómarinnar varðandi „sérfræðilega könnun“ á því hvernig „vömum landsins verði til frambúðar bezt háttað.“ □ Magnús og Jónas Árnason lögðu áherzlu á að það hlyti að verða íslenzk framtíðarstefna að aflétta hemámi og herstöðvum. í framsöguræðu minnti Magn- ús á að engar skýringar hefðu fylgt því atriði stefnuskrár stjórnarinnar að athugun skyldi gerð á hernámsmálunum, og sagði m.a.: „Liðin eru meira en 16 ár síð- an bandarískur her steig hér á land öðru sinni. Þeir þrír flokkar sem stóðu að hernám- inu lýstu þá yfir því, að þeir héldu engu að síður fast við þær yfirlýsingár sem gefnar voru þegar ísland gerðist. aðili að Atlanzhafsbandalaginu, 'þess efnis að hér á landi skyldi ekki dveljast erlendur her á friðar- tímum. Hernámið 1951 var rök- stutt með því að ný heimsstyrj- öld væri alveg að skella á og var einkum vitnað til Kóreustríðs- ins í því sambandi. Málsvarar þessara þriggja flokka lýstu all- ir yfir því að hemámið væri „ill nauðsyn“, og yrði því aflétt eins fljótt og aðstæður leyfðu. Síðan þessir atburðir gerðust hafa orðið miklar breytingar á heimsmálum, en sanlt situr her- inn hér enn sem fastast. Kóreu- styrjöldin er orðin að fjarlæg- um sögulegum atburði í vitund manna. Andrúmsloft kalda stríðsins sem mótaði öll viðhorf 1951 hefur smátt og smátt verið að þoka fyrir raunsærra mati. Stórveldin tvö, sem talin voru pólar andstæðustu viðhorfa fyr- ir 16 árum, hafa tekið upp frið- samleg samskipti á æ fleiri svið- um. Alþjóðlegur liðssafnaður þessara stórvelda hefur sundr- azt að mjög verulegu leyti; til Framhald á 9. síðu. L • !*>•• •*> Pr/o// V7Ö" rœ3ufundurm inn er i dag ★ í gær var boðað til þriðja viðræðufundar fulltr. rík- isstjórnarinnar og samn- inganefndar ASl og BSRB og hefst fundurinn í dag kl. 10.30. ★ A fundinum sem þessir sömu aðilar héldu með sér sl. miðvikudag skýrðu fulltrúar launþegasamtak- anna ríkisstjóminni frá tillögum sínum og sjón- armiðum. Lögðu þeir á- herzlu á, að vísitölu- greiðsla á laun yrði að haldast óskert og báru fram ýmsar tillögur sem miðuðu að því að ráða fram úr efnahagsvanda- málunum. Hefur ríkis- stjórnin síðan haft þessar tillögur Iaunþegasamtak- anna til athugunar. ★ Efjir því sem Þjóðvilj- inn hefur fregnað er ýmis- legt talið benda til þess að ætlun ríkisstjórnarinn- ar sé að þetta verði síð- asti viðræðufundurinn, enda hafa málgögn ríkis- stjórnarflokkanna tekið tillögum launþegasamtak- anna þunglega. Æskulýðs- fylkingin •& Salurinn er opinn í ■fr kvöld. — Félagar, lítið ☆ inn og takið með ykkur ■fr gesti. — Kaffi, gos- ■ír drykkir og kökur á boð- •&• stólum. Iceland Food Centre hefar tapað 4,5 miljónum króna 1 svari við fyrirspurn frá Gils Guðmundssyni gerði Ing- ólfur Jónsson landbúnaðarráð- herra grein fyrir nokkrum at- riðum varðandi Iceland Food Centre í London. Skýrði ráð- herrann svo frá að verið væri að ljúka samningum við enskt fyrirtæki sem kaupa mundi helming lilptabréfanna og tæki að sér rekstur veitingastofunn- ar með þeim skilmálum að hafa íslenzka rétti á boðstólum bæði þar og í öðrum veitingastöðum fyrirtækisins. Ríkið hefur lagt fram hélm- ing hlutafjárins í Iceland Food ______s____________________________ Centre, fjórar miljónir króna, og aúk þess lánað því 2 milj- ónir og ber þær fjárhagsskuld- bindingar gagnvart fyrirtækinu sem hlutafélagslögin segja til um. Rekstrarhalli fyrirtækisins fram til þessa sagði Ingólfur að hefði numið 5.865.000,00 kr. en þar frá mætti draga afskriftir að upphæð 1.346.000,00 kr. svo reksturstapið hæmi um 4,5 milj. króna. Eignarhlutföll hluthafa hafa verið sem hér segir: Ríkið á helminginn, Framleiðsluráð land- búnaðarins fjórðung, Loftleiðir og SÍS einn áttunda hvort. Endurskoðun friðunarlaganna um Þingvelli rædd á Alþingi Úthlutun sumarbústaða á Þing- völlum til útvaldra óverjandi □ Enda þótt það vserj einn megintilgangur laganna frá 1928 um friðun Þingvalla að koma í veg fyrir að einstak- lingar helguðu sér land á Þingvöllum og reistu þar sum- arbústaði, hefur svo illa tekizt til að Þingvallanefndir hafa æ ofan í æ látið undan ásókn einstakra manna í sumarbústaði og sumarbústaðalönd á Þingvöllum, sagði Magnús Kjartansson á Alþingi í gær. í framsöguræðu fyrir tillögu þeirra Gils Guðmundssonar um endurskoðun laganna og stöðvun á frekari sumarbústaðabyggingum þar. □ Skýrði Magnús frá að umhverfis Þiugvallavatn værji nú um 300 sumarbústaðir, og a.m.k. 21 þeirra innan þess svæð- is sem í friðunarlögunum er kallað „hið friðhelga land“. Og á því svæði væri nú verið að reisa tvo sumarbústaði I viðbót. ★ Ríkisábyrgð Alþingis 1 framsöguræðu sinni rakti Magnús tildrögin að setningu friðunarlaganna og deildi fast á framkvæmdir Þir Tvallanefnda, sem iafnan hafa verið skipaðar þremur flokksforingjum þriggja stj órnmáiaf lokka. Færði har.n rök að nauðsyn þess að láta hið frið- helga svæði ná til alls þess lands sem Þingvallanefnd var falið til eftirlits, og að náttúruvemdar- sjónarmið yrði látið ráða mestu um framkvæmdir- Framsöguræð-'- an verdur birt í heild á morgun. Gils Guðmundsson tók í sama streng og taldi að Alþingi bæri óvenjumikla ábyrgð gagnvart friðunarmálum Þingvalla. Þing- vallanefndum hefði mjeg verið misiagðar hendur varðandi fram- kvæmdir þar og væri nú vart um annað að gera en viðurkenna mistökin og leiðrétta þau. ★ Allt. í lagi með sumarbú- staði útvaldra Emil Jónsson varði ákvarðanir lúngvaRanefnda um útíriwtun sumarbústaða, en taldi eðlilegt að lögin um friðun Þingvalla yrðu endurskoðuð. Enga þörf taldi hann á því að stækka þjöðgarð- inn frá þvi sem nú er. Sumar- bústaðimir í Gjábakkalandi spilltu f engú landslagi því þeir væru staðsettir i hraunbollum (!) og hafi Þingvallanefnd veitt öll- um þeim 24 mönnum land sem um sóttu- t Ráðherrann vildi ekki heyra að náttúruverndarráð yrði látið vinna að endurskoðun friðunar- laganna og fór um ráðið niðr- andi skætingsorðum, sem teljast hlýtur óviðeigandi af hálfu ráð- herra. Framhald á 3. síðu. <f <

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.