Þjóðviljinn - 09.11.1967, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 09.11.1967, Blaðsíða 12
Krafa vinnandi fólks i versföSvunum: Síldveiðar verða ai hefjast vii SV- land og bræislan ai hefjast ai nýju — segja stjórnir verklýðsfélaganna í Vestmannaeyjum í ályktunum sínum □ Mikill samdráttur hef- ur átt sér stað í atvinnulíf- inu í Vestmannaeyjum _og horfumar í vetur eru þung- ar. Verkalýðsfélögin hafa ný- verið rætt ástandið' og horf- ur á atvinnumálum bæjarins á fundum sínum og hvað verða megi til úrbóta. 22. október sl. héldu svo stjóm- ir Verkalýðsfélags Vest- mannaeyja. Verkakvennafé- lagsins Snótar, Sjómannafé- lagsins Jötuns og Vélstjóra- félags Vestmannaeyja sam- eiginlegan fund þar sem þessi mál voru rædd og bent á nauðsvnlegar úrbætur. — Hafa ályktanir fundarins verið sendar Alþýðusam- bandinu en hér á eftir fara meginatriði þeirra: Er líða tók á s.l. sumar fór að gseta samdráttar á mörgum sviðum atvinnulífsins í Eyjum, afli var orðinn rýr og hættu bátar veiðum fyrr en venja er á haustin. Vinna var því stop- ul í fiskvinnslustöðvunum og tekjur verkafólks einnig stórum minni þar eð yfirvinna hefur svo ti1 engin verið. En á þessum tíma sigldu stærri fiskibátarnir með óunninn afla á hinn lélega Englandsmarkað og dró það að sjálfsögðu mikið úr fiskvinnu hér heima. Viðgerðarþjónusta við fiskiflotann hefur í vaxandi mæli verið sótt út á land eða erlend- is og hefur því vinna í vélsmiðj- úffi' hér og dráttarbrautum ver- ið mjög ótrygg. önnur stærsta vélsmiðjan er t.d. með menn sína lausráðna þar sem búizt er við frekari verkefnaskorti. Snemma f haust var, að ósk verkalýðsfélaganna, öllu erlendu verkafólki, ásamt aðkomufólki innlendu, sagt upp störfum í fiskvinnslunni, svo að heimafólk fenei notið þeirrar vinnu er til féUi. Bæjarstjórn Vestmannaeyja hsfði forgöngu um að línuveiðar voru hafnar með því að heita aðstoð ef eigi fiskaðist fyrir tryggingu. En beitusíld hefur mjög skort, svo að þær veiðar hafa minni atvinnu skapað en élla hefði orðið. Fjöldi verkafólks hefur því farið héðan austur á land í atvinnuleit eftir að síld- ir, fór að berast þangað. Útlitið hefur þó fyrst versnað fyrir alvöru eftir að útvegsmenn og samtök frystihúsaeigenda hafa boðað stöðvun á öllum sínum at- vinnurekstri um n.k. áramót. Ekki barf þó að undrast bær ákvarðanir nú, þegar harðnað hefur i ári, bví vinnuveitend ur gáfu slíkar tilskipanir út að jafnaði á hverju metaflaári að undanförnu. . . Verður því ekki lengur vikizt undan þeirri þjóðhagslegu nauð- syn að endurskipuleggja þessar atvinnugreinar. Sfldveiðin verður að hefjast við Suðvesturland og sfldarverksmiðjurnar að fara í gang, það er krafa vinnandi fóiks i verstöðvunum. *Til úrbóta i atvinnumállum byggðarlagsins vilja félögin benda á eftirfarandi: 1. Að rekstrarfyrirkomulag hraðfrystihúsanna verði endur- skoðað af ábyrgum aðilum, svo að séð verði hvað veldur hinum sífellda taprekstri þeirra árum saman, sem almenningur hefur orið að greiða. Væri ekki úr vegi í því sambandi að benda á nauð- syn betri geytmsluaðferða á fiski svo að jefnan verði hægt að vinna hann óskemmdan, og koma þannig í veg fyrir lélega og Framhald á 8. siðu. Fimmtudagur 9. nóvember 1967 — 32. árgangur — 253. tölublað. Vígt um síðustu helgi: Lyngbrekka, nýtt fé- lagsheimili á Mýrum □ Sl. sumiudag var vígt við hátíðlega athöfn nýtt og glæsilegt félagsheimili að Amarstapa á Mýrum, en að þvi standa fbúar tveggja hreppa, Álftaneshrepps og Hraun- hrepps. Hlaut félagsheimilið við þetta tækifæri nafnið Lyngbrekka. Ásgrímsafn gefur út litprentað jólakort Jólakort Ásgrímssafns þetta ár er gert eftir oliumálverki úr Svarfaðardal í Eyjafjarðar- sýslu, sem er álitinn vera einn af sérkennilegustu og fegurstu dölum á fslandi, en safnið hefur leitazt við með kortaútgéfunni að kynna ýmsa merka staði á landinu. Frummyndina að málverkinu gerði Ásgrímur í hinztu ferð sinni til Norðurlands 1954. Þetta nýprentaða kort er í sömu stterð og hin fyrri lit- kort safnsins, með íslenzk- um, enskum og dönskum texta á bakhlið, ásamt mynd af Ásgrími. Ásgrímssafn hefur þann hátt á, að gefa aðeins út eitt litkort á ári, en vanda því betur til prentunar þess. Nú í fyrsta sinn er beitt þeirri tækni við gerð listaverkakorf- anna frá safninu, að áferð málverksins kemur greinfflega í ljós í eftirprentun. Mynd- mót er gert í Litróf, en Vík- ingsprent hf. annaðist prent- un. , ............... Einnig hefur safnið gertþað að venju sinni, að byrja snema sölu jólalíortanna, til hægðarauka fyrir þá sem langt þurfa að senda jóla- og nýjárskveðjur. Einnig þá sem hafa hug á að lát^ innramma kortið til jólagjafa. Eins og fyrr hefur verið sagt í sam- bandi við kortaútgáfu Ás- grímssafns, er ágóði seldra korta notaður til greiðslu fyr- ir viðgerð á málverkum þeim, sem fundust í kjallara í húsi Ásgríms Jónssonar að honum látnum: Listaverkakortin eru aðeins til sölu í Ásgrímssafni, Berg- staðastræti 74, og Baðstof- unni í Hafnarstræti 23, þar sem safnið er ekki opið nema 3 daga í viku, sunnudaga, þriðju- og fimmtudaga frá kl. 1,30—4. Síldveiðin: Mörg skipanna eru farin til síldveiða hér í Faxaflóa □ í skýrslu Fiskifélags íslands um síldveiðarnar í síð- ustu viku segir að mestan hluta vikunnar hafi verið bræla á miðunum fyrir austan land og eru nú mörg síldarskip- anna komin til veiða hér í Faxaflóa. Um helgina var heild- araflinn kominn upp í 312.264 lestir og búið var að salta í röskar 200 þúsund tunnur. í vikunni bárust á land 9.164 lestir. Saltað var í 35.553 tunn- ur, 77 lestir frystar, 3.825 lestir til bræðslu, 20 lestum landað í Færeyjum og 78 lestum landað SV-lands, hagnýting ókunn. — Heildarafli^ vertíðarinnar er nú 312.264 lestir og ráðstöfun hans þessi: ' Iestir í salt 29.435 (20,1.612 upps. tn.) í frystingu 1.084 í bræðslu 2.75.085 Landað erlendis 6.660 Landað SV-lands (verk- un ókunn) 78 Á sama tíma í fyrra var afl- inn þessi: lestir í salt 55.904 (382.900 upps tn.) í frystingu 4.800i í bræðslu 515.354 Alls 576.058 Sfldveiðarnar sunnan lands Síðastliðna viku bárust á land 4.399 lestir og fékkst það magn að mestu í Faxadýpi. Heildarafl- inn frá júníbyrjun er nú 51.753 lestir, en var á sama tíma í fyrra 45.164 lestir. Vikusöltun- in nam 8.434 tunnum. Síldinni hefur verið Iandað á eftirtöldum stöðum: Staður: Vestmannaeyj ar Þorlákshöfn Grindavík Sandgerði Keflavík Hafnarfjörður Reykjavík Akranes Ólafsvík Stykki shólmur Bolungavík Siglufjörður Ólafsfjörður, Dalvík Hrísey Krossanes Húsavík Raufarhöfn Þórshöfn Vopnafjö-ður \ lestir 10.980 3.369 7.541 3.435 10.081 2.694 28.183 og 7.193 78 og 5.815 628 17 1.505 58.408 2.011 2.068 330 7.136 2.892 42.088 2.918 16.140 Borgarfjörður eystri 427 Seyðisfjörður 69.654 (auk þess erl. skip) 60 Mjóifjörður 381 Neskaupstaður 32.651 (auk þess erl. skip) 36 Eskifjörður 15.488 (auk þess erl. skip) • 262 Reyðarfjörður 5.567 Fáskrúðsfjörður 7.753 Stöðvarfjörður 3.300 Breiðdalsvík 889 Djúpivogur 1.445 Færeyjar 2.695 Hjaltland 1.766 Þýzkaland 2.199 Vigsluhátíðin hófst með helgi- stund í félagsheimilinu síðdeg- is á sunnudag, séra Leó Júlíus- son prófastur á Borg prédikaði, séra Árni Pálsson í Söðulholti flutti ritningarorð og sungnir voru sálmar. Síðan var sam- koman formlega sett af form. undirbúningsnefndar, Friðgeiri Friðjónssyni á Sveinsstöðum og byggingarannáll hússins var rak- inn af Bjarna Guðjónssyni á Svarfhóli. Húsinu var síðan gefið nafn með þeim hætti að Ingibjörg Friðgeirsdóttir á Hofsstöðum flutti frumsamið ljóð og kom nafnið fram í ljóðinu. Þá fluttu fulltrúar byggingaraðila sitt á- varpið hver. en byggingaraðilar eru fjórir. Álftaneshreppur, Hraunshreppur og ungmennafé- lögin i þessum hreppum, sem bera nöfn fornra söguhetja, Eg- ill Skallagrímsson og Björn Hít- dælakappi. Var síðan setzt að veizluborði og fluttur fjöldi ræða og ávarpa undir borðum, auk þess sem skemmt var með gamanefni og söng. Að lokum var stiginn dans til kl.' 1 um nóttina. Veizlustjóri var Frið- geir Friðjónsson formaður und- irbúningsnefndar. Formaður framkvæmnanefnd- ar hefur verið frá upphafi Brynjólfur Eiríksson frá Brú- arlandi og voru hann og kona hans heiðruð með blómagjöfum á vígsludaginn. Um 300 manns tóku þátt í fagnaðinum, íbúar hreppanna og burtfluttir sveitungar, þeir sem unnið hafa við húsið og fleiri gestir. Fjölmörg heillaskeyti bár- ust til félagsheimilisins svo 'og gjafir, bæði peningar og ýmsir húsmunir. — Meðal gjafa sem heimilið hefur fengið má nefna píanó, sem nokkrar fjölskyldur ættaðar af Mýrum gófu, einnig gáfu eigendur jarðarinnar Arn- arstapa níu hektara lands undir félagsheimilið Að því er Bjarni Guðjónsson Framhald á 3. síðu- arinnar aS hefjast lýst eftir tveimur drengjum á Dalvík Auglýst var í útvarpinu í gær- kvöld eftir tveimur piltum, 15 og lr ára, sem farið höfðu að heim- an frá sér á Dalvík um klukkan fjögur í gær. Bezta i veður var á Dalvík í gær- Þegar Þjóðviljinn hripgdi þangað um átlnleytið höfðu menn ekki íiétt til dreng' '>na. Vetrarhjálpin i Reykjavík er I þann veginn að hefja nýtt starfsár og verður aðsetur henn- ar að Laufásvegi 41. Nokkrar breytingar verða á söfnunar- starfinu í ár þar sem skátafé- lögin hafa ekki treyst sér til að ganga í hús og safna peningum, vegna útþenslu bæjarins. Hins- vegar munu skátar fara á vinnu- staði með söfnunarlista. Jafn- framt taka dagblöðin í Reykja- vík nú við framlögum til Vetr- arhjálparinnar. í fyrra voru peningagjafir til Vetrarhjálparinnar nokkru minni en áður en gjafir ýmissá fyrirtækja á nýjum fatnaði voru meiri en nokkru sinni fyrr. Mat- vælum var úthlutað til 2370 manns og fatnaði til 3267. Mat- vælum og mjólk var úthlutað fyrir rúm 240.000,00 og fatn- aði fyrir rúm 650.00ft,00. Stærsti hópurinn sem leitar til Vetrarhjálparinnar eru ein- stæðar mæður þ.e.a.s. ekkjur, fráskildar og ógiftar mæður. Þá er einnig mikið um það að ein- staklingar og einstæð hjón leiti til Vetrarhjálparinnar, eru það aðallega öryrkjar og aldrað fólk sem fáa eða enga eiga að. Þriðji hópurinn er hjón með mörg böm og fjölskyldur þar sem fyrirvinnan á við veikindi að stríða. Á fundi með blaðamönnum í gær sagði Magnús Þorsteins- son, framkvæmdastjóri Vetrar- hjálparinnar, að þegar væri orð- ið ljóst að mjög mikil þörf væri fyrir slíka hjálparstarfsemi, ekki sizt nú, því að þart væri í ári hjá mörgum. Vetrarhjálpin heitir á alla borgarbúa að láta ekki breytta söfnunaraðferð verða til að minnka framlög sín. Þeir sem ekki hafa aðstöðu til að skrifa á söfnunarlista eru beðnir um að koma peningagjöfum sínum á skrifstofu Vetrarhjálparinnar á Laufásvegi 41, (simi 10785) eða á afgreiðslur dagblaðanna í Reykjavík, þ.e. afgreiðslu Þjóð- viljans, Skólavörðustíg 19, af- greiðslu Tímans, Bankastræti 7, Afgreiðslu Alþýðublaðsins, Al- þýðuhúsinu, Hverfisgötu og af- greiðslu Morgunblaðsins. Aðal- stræti 6. Stjórn Vetrarhjálparinnar, sem kosin er af borgarstjórn, er þannig skipuð í ár: Séra Jón Þorvarðarson, formaður, Kristj- án Þorvarðarson læknir og Þor- kell Á. Þórðarson, fulltrúi. — Framkvæmdastjóri er Magnús Þorsteinsson. BLflÐ- DREIFING Blaðburðarfólk vantar í eftirtalin hverfi: Reykjavíkurveg Blönduhlíð. Lönguhlíð Laugarnes Kleppsveg Tjarnargötu Skipholt Múlahverfi ÞJÓÐVILJINN. Sími 17 500. I I

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.