Þjóðviljinn - 09.11.1967, Síða 7

Þjóðviljinn - 09.11.1967, Síða 7
Fimmtuaagar 0. -nóveimiber 1967 — ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA ’J Jónas Árnason alþingismaður: Félagsheimili í eyði Herra forseti. í greinargerð- inni sem fylgir þingsályktunar- tillögu þeirri, sem hér liggur fyrir, segir svo m.a.: „Féiags- og menningarlegur ójöfnuður meðal þjóðarinnar, hvort heldur er milli einstakra stétta eða landshluta hefur hættu í för með sér, sem gefa þarí nánar gætur og hindra sem. framast má verða“. Ég vil taka undir þessv, orð og einnig. þær áðrar röksemd- ■ir, sem fram koma í greinar- gerðinni, og einnig þær rök- semdir, sem fram komu í ræðu flutningsmanns, Ingvars Gíslasonar, hér áðan. Ég verð þó að segja, að enda þótt flutningsmenn hafi, eins og þeirra er von og vísa, mik- inn skilning á nauðsyn menn- ingarlegs jafnréttis allra ís- lendinga, sýnist mér, að tillaga þeirra beri ekki vott um eins mikinn metnað og vert væri fyrir hönd landsbyggðarinnar. Mér finnst þeir séu, ef svo mætti að orði k-omnst, ekki nógn stórtækir. Myndlistm er ekki nema ein grein af mörgum listgreinum, sem verða að teljast til for- réttinda höfuðborgarinnar og hafa orðið það æ því meir, sem höfuðborgin hefur vaxið á kostnað landsbyggðarinnar. Tónlist, danslist og leiklist, allt eru þetta listgreincir, sem einn- ig hafa, eins og myndlistin þró- azt ört í Reykjavík á undan- förnum árum, en hafa hins veg- ar veigrað sér við að láta nokk- uð teljandi að sér kveða fyrir utan hitaveitusvæði höfuðborg- arinnar. Leiklistin verður þó að heita nokkur undantekning. Ágætir leikflokkar frá Þjóð- leikhúsinu og Leikfélagi Reykjavíkur fara um landið ár hvert, en slíkt gerist aðeins að sumrinu tiþ yfirleitt aldrei að vetrinum, og allra sízt í svart^ asta skammdeginu, þegar íbúar landsbyggðarinnar hafa mesta þörf fyrir þá andlegu lyftingu, sem fylgir fögrum listum og vandaðri menningarstarfseimi. Og svipuðu máli gegnir um tónlistiha. Þá sjaldan að okkar beztu tónlistarmenn fara út á landsbyggðina að láta í sér heyra, gerist slíkt helzt þegar lengstur er sólargangur. Þær framfarir sem ^orðið hafa í þessum listgreinum hjá okkur íslendingum á undan- fömum árum, eru ekki að- eins að þakka hæfileikum og dugnaði listamannanna sjálfra heldur einnig hinu, að þeir hafa notið opinbers stuðnings. Þeim hefur veitzt næði til þess áð stunda list sína vegna fjár- ' framlaga, sem tekiíi enu beint eða óbeint úr vasa allra lands- manna; allir eru látnir bera kostnaðinn af því. Landsbyggð- in hlýtur því að krefjast réttar síns í þessum efnum. Það verð- ur að fyrirbyggja með ein- hverjum róðum að listirnar lokist inni í Ijósadýrðinni á hitaveitusvæði höfuðborgarinn- ar strax og dimma tekur, og veður fara að gerast rysjótt úti á landsbyggðinni. Ég vil láta þess getið, að ég hef rætt þessi mál við ýmsa ágæta listamenn og einkum léikara og af þeirra hálfu er ekkert því til fyrirstöðu, að úr þessu yrði bætt. Þvert á móti mundu þeir fegnir vilja flytja landsbyggðinni list sína sem oftast og á öllum tímum árs, enda kemur þéim saman um, að þar sé viða að .finna þakk- látustu áheyrendurna og sýn- ingargestina.. En eins og nú háttar þm starfssamninga þess- ara manna og vinnuskyldu, eiga þeir sjaldan heimangengt úr höfuðborginni að vetri til. En hvað má þá verða trl úr- bóta í þessum Efnum? Magnús Kjartansson, 6. þing- maður Reykvíkinga, skrifaði í fyrra grein í blað sitt, Þjóð- viljann, þar sem hann reif- aði hugmynd, sem ég tel, að vert væri að vekja athygli á í þessu sambandi. Hugmyndin er sú, að her í höfuðstaðnum verði komið á fót stofnun, sem hefði yfirumsjón þessara mála og þá ef til vill í samstarfi við Þjóðleikhúsið og Leikfélag Reykjavíkur og einhverja fleiri slíka aðila, sem vinna að menn- ingarmálum. Stofnun þessi ætti að skipuleggja ferðir lista- manna út um landið, einstakra listamanna eða heilla hópa, söngvara og annarra tónlistar- manna, dansara, leikara og myndlistarmanna og ekki að- eins íslenzkra listamanna, held- sér standa og af þeim sökum hafa mörg félagsheimilin orð- ið að binda sér mjög þunga bagga með lántökum, og þeir, sem bera ábyrgðina á rekstri þeirra, freistast til þess að haga honum með tilliti til þess, hvað gefur mest í aðra hönd. Þeir halda böll á böll ofan, vegna þess að á þeim er mest að græða og þeir mundu ella slig- ast undir skuldbindingum og lái þeim það hver sem viU. Þar við bætist svo, að menn- irnir sem njóta þess trausts að þeim hefur verið falin stjórn félagsheimilanna, eru einmitt oftast þeir sem hafa til að bera mesta hæfileika til þess að hafa á hendi forystu í félags- og mennihgarmálum. Af þessu leiðir, að öll menningarstarf- semi lamast. Þeir, sem helzt gætu beitt sér fyrir henni, eru eða jafnvel flygill, sem kostað hefur eitthvað á 2. hundrað eða 3. hundrað þúsund kr., lær- ir ekki nokkur maður að leika á þetta hljóðfæri. Þau standa þögul, nema þá kannski helzt á þorrablótum, þegar þær kringumstæður skapast, að mönnum finnst þeir endilega verða að taka lagið, og einhver aldraður heiðursmaður, sem lærði á orgel í þann tíð, þeg- ar tónlistariðkun á alþýðuvisu var enn í hávegum höfð á íslandi, er fenginn til að spilá undir „Blessuð sértu sveitin mín“. Og hvers vegna er þetta orð- ið svona? Fyrst og fremst vegna þess, að íslenzk alþýða hefur varla tíma til þess leng- ur að lifa lífinu, ef svo mætti segja. Hún getur varla lengur Iitið upp frá striti sínu stund- Við umræður í sameinuðu þingi 1. nóvember varðandi listasöfn og listsýningar utan Reykjavíkur flutti Jónas Árnason ræðu þá sem hér er birt ur ætti stofnunin einnig að leitast við að veita landsbyggð- inni sem mesta hlutdeild í þeim menningarverðmætum, sem er- lendir listamenn, sem hingað koma, hafa upp á að bjóða. Mér er nú sem ég heyri ein- hvers staðar, að þetta mundi ekki kosta neitt smáræði óg sjálfsagt mun það kosta tölu- vert. En öllum barlómi út af kostnaði í þessu sambandi held ég að verði bezt svarað með tilvisun til þess, að svo er só- að i alls kyns helberan hégóma og vitleysu á íslandi, að kostri- aður vegna menningarmála mundi seint komast í hálfkvisti við þau ósköp. En það hefur lika verið ráð- izt í mikinn kostnað 'í nafni menningarinnar, án þess að menningin hafi nokkuð veru- lega orðið af bættari. Ég á við félagsheimilin, sem reist hafa verið í kauptúnum og sveitum nú á undanförnum árum. Til hvers voru þau reist? Til þess að landsmenn allir ættu kost á því að komast á ball á laugardagskvöldum? Ég spyr svo vegna þess, að þetta er næstum að segja það eina, sem gerist í mörgum fé- lagsheimilanna, ball á laugar- dagskvöldum. Og það er ekki einu sinni víst, að þessi böll íari fram við neitt meiri menn- ingarbrag heldur en böllin hér fyrrum í gömlu samkomuhús- unum. Þó er skylt að geta^þess, að eftir að nýju félagsheimil- in komu til sögunnar, mun eitthváð hafa dregið úr til- hneigingum manna til að fljúg- ast á á böllum, og það er vissu- lega spor í rétta átt. En þó verður að teljast hæpið, að það eitt hafi vakað fyrir frum- kvöðlum félagsheimilalöggjaf- arinnar að draga úr áflogum á böllum. Tilgangurinn er að sjálf- sögðu einnig anpar og meiri, að efla alhliða menningarstarf- semi og veita nýjum þrótti og þroska í félagslíf fólksins. En þetta hefur, ekki tekizt nema að takmörkuðu leyti. Og ein ástæðan er sú, að fjárhag- ur félagsheimilanna margra, ef ekki allra, er mjög bágborinn, og hann er bágborinn vegna þess, að þegar til kastanna kom, reyjidist helzt til lítið hald í þeim fyrirheitum um fjárframlög, sem þeim höfðu verið veitt. Framlögin úr fé- lagsheimilasjóði hafa látið á önnum kafnir við annað, við að halda böll og borga skuld- ir. Mér fyndist ekki til of mikils mælzt, að þessir menn fengju að vita það, hvort þess sé ekki einhver von, að þeir verði leystir úr þessari ánauð, og‘ ég vil því beina þeirri fyrirspurn til ríkisstjórnarinnar hvort hún hyggist ekki eitthvað gera til þess að tryggja það, að sá sjóður sem kenndur er við fé- lagsheimilin geti staðið í skil- um við þau. Þetta má ekki við svo búið standa lengur. Að vísu er tek- ur til menningarinnar má segja, að þrátt fyrir allan sinn ' glæsileik séu félagsheimilin ipörg í- eyði. Sum þeirra , fóru í eyði strax að aflokinni vígslu- athöfninni, og það er ekki seinna vænna, að þau fari að komast í byggð. Ég minntist á þá menn, sem helzt eru til forystu fallnir í félags- og menningarmálum. Það veltur mikið á slíkum mönnum. Það er mikið undir því komið, að þeim gefist tími til þess að beita hæfileikum sínum til skemmtunar og þroska fyrir mannlífið í sínum heimahögum, því að enda þótt miklu skipti, að íbúar lands- byggðarinnar fái sem bezt not- ið þes$, sem þjálfaðir lista- menn að sunnan hafa fram að^, færa til eflingar menningunni, er hitt ekki síður mikilvægt, að listirnar. eigi sér einnig ból- festu úti á landsbyggðinni. Félagsheimilin voru m.a. og ekki hvað sízt reist til þess að svo mætti verða. Með þeim skapaðist glæsileg aðstaða fyr- ir íbúa hinna ýmsu byggðar- laga að efla félagslíf sitt og iðka sjálfir í stórauknum mæli hinar ýmsu listgreinar. Reyndin hefur þó orðið síi, að í sumum byggðarlögum hefur slík starfsemi frekar ver- ið að koðna niður síðan fé- lagsheimilin komu til sögunn- ar. Ég á við það t.d., að þrátt fyrir alla tónlistarskólapa, sem menntamálaráðherra nefndi, er nú víða í sveitum og kauptún- um miklu minna sungið af sannri gleði heldur en löngum fyrr, og færri og færri fást til þess að faóa upp á leiksvið til þess að taka þátt í leiksýn- ingu, sjálfum sér og sveitung- um sínum til ánægju. Og þó að í mörgum félagsheimilum standi gljáandi fagurt píanó arkorn til að leita sér menn- ingarlegrar hressingar og svöl- unar? Hún er bundin á klafa þrældóms, sem herðist fastar og fastar að henni eftir því, sem stjórnarvöld hennar og það sérfræðingastóð, sem þau hafa í þjónustu sinni, upp- hugsa fieiri svonefnd bjarg- ráð til lausnar efnahagsvanda- málum þjóðarinnar. í fáum orðum sagt, íslenzk alþýðu- menning er þrúguð af rang- látum þjóðfélagsháttum og hún reisir sig ekki í fuUa hæð á riý fyrr en þeim þjóðfélagshátt- um verður breytt og réttlætið sigrar. Látum svo þetta nægja ffln þá hlið málsins að sinni. Það er enda engin ástasða til að örvænta. Þrátt fyrir allan þrældóminn er enn lailvíða haldið uppi blámlegri menn- ingarstarfsemi, eins og mennta- málaráðherra minntist á. En starfsemin byggist þá venju- lega mest á því að viðkom- andi byggðarlög eiga á að skipa mönnum, sem haía getu, en þó fyrst og fremst tíma, til að veita hennl forystu. Það sem helzt hindrar þessa starf- semi eru neínilega byrjunár- örðugleikarnir, vandræði við að koma hlutunum af stað, skipuleggja það, sem gera skal. En þegar þessir byrjunarörðug- leikar hafa verið yfirstígnir, reynist það að jafnaði furðu auðvelt, að halda hlutunum gangandi, áhugi þátttakenda eykst jafnhliða ánægjunni af því að vinna saman að skemmtilegu málefni til gagns fyrir allt byggðarlagið, og þetta verður þeim hressing og hvíld frá hversdagsstritinu og eng- inn sér eftir þeim tómstundum, sem í þetta fara, jafnvel þó slíkar stundir séu af skornum skammti. Starfsemi þessi einkennist þó yfirleitt af því að hún er unnin í áhlaupum. Áhlaupið varir meðan stefnt er að ein- hverju marki, leiksýningu, söngskemmtun, kvöldvöku eða öðru slíku. Þegar markinu er náð, sundrast hópurinn venju- lega og starfsemin liggur niðri langtimum saman, jafnvel heilu . veturna og þegar ráða skal í nýtt verkefni, þá verður að. yfirstíga og sigrast á öllum byrjunarörðugleikunum að nýju, og þessir örðugleikar reynast þá æði oft ofviða þeim, sem til forystunnar veljast, þeir gefast upp og ekki verð- ur neitt ur neinu. Ef starfsemin væri stöðug og jöín myndi þetta allt miklu auðveldara viðfangs, en til þess þyrftu þá líka að vera til reiðu menn, sem gætu veitt henni forystu að staðaldri. Hins veg- ar eru takmörk fyrir því, hvað jafnvel hinir áhugasömustu menn geta varið miklu af tima sínum í sjálfboðavinnu. Lífs- báráttan, sá harði húsbóndi, krefst einnig síns af þeim eins og öðrum mönnum. Tímaritið Eimreiðin birti i fyrra langa ritgerð eftir Guð- mund G. Hagalín, ritgerðin nefnist „Menning sveitanna“, og Hagalín setur þar fram ýmsar eftirtektarverðar hug- myndir. Ein þeirra er sú, að íélags- og menningarstarfsemi í sveitum verði skipulögð á grundvelli þess, að héruðin hafi í þjónustu sinni sérstaka ráðunauta í þessum málum, á sama hátt og þeir njóta nú tilsagnar sérstakra ráðunauta í ræktunarmálum og öðru því, er að búskapnum lýtur. Laun slíkra ráðunauta ætti að greið- ast sameiginlega af ríkisins hálfu og viðkomandi sveitarfé- lags. Fyrsta og helzta verkefni þessara manna ætti að vera það, að hvetja fólk til þátt- töku í hvers kyns menningar- starfsemi og skipuleggja hana í lengri eða skemmri tíma, en að sjálfsögðu þyrftu þess- ir menn einnig að geta hjálp- að til við framkvæmdina sjálfa í ýmsum greinum, sérstaklega þyrftu þeir að hafa þekkingu og reynslu til að leiðbeina við leiksýningar og vera nógu vel að sér i tónlist til að æfa kóra og kvartetta og helzt að geta kennt fólki að leika á hljóðfæri. Þeir sem hug hefðu n á slíkum störfum en væru van- búnir til þeirra, sökum skorts á nauðsynlegri reynslu og þekkingu, ættu að eiga kost sérstakrar þjálfunar í þessu augnamiði. Jónas Árnason. Þetta er í stuttu máli það sem Hagalín hefur að segja um þetta atriði. Það, sem fyrir honum vakir er ekki ósvipað því sem virðist vaka fyrir höf- undum þess æskulýðsmála- frumvarps, sem menntamála- ráðherra lagði fram í Nd fyr- ir skemmstu, þar sem þeir gera ráð fyrir sérstökum leiðbein- endum í félagsmálum unga fólksins, en störf slíkra ráðu- nauta, þeirra sem Hagalín stingur upp á, yrðu að því leyti miklu þýðingarmeiri en störf slíkra leiðbeinenda, að þau myndu ná til fólks á öllum aldri, en ekki aðeins ungling- anna, og hlytu þar með að auka þau samskipti milli kyn- slóðanna, sem áreiðanlega eru happasælast lausnin á mörgum erfiðum vandamálum í félags- málum okkar. En ef báðar þessar hugmyndir næðu fram að ganga, finnst mér ekkert því til fyrirstöðu, að tekizt gæti hið giftusamlegasta samstarf milli ráðunauta í menningar- málum almennt og leiðbein- enda æskulýðsins. Hvaða aðili ætti að veita þessum ráðunautum nauðsyn- lega þjálfun? Það hlutverk sýnist mér að gæti vel verið í höndum þeirr- ar stofnunar, sem Magnús Kjartansson, 6. þingmaður Reykvíkinga, stingur upp á í áður nefndri grein sinni. Þeirr- ar útbreiðslumenningarmið- stöðvar, sem starfrækt yrði í þágu allrar landsbyggðarinnar. Þessar hugmyndir má eflaust betrumbæta og fullkomna þeg- ar saman koma fleiri manna ráð. En ég hef hér viljað vekja athygli á þeim, til að undir- strika tilmæli, sem ég vil nú leyfa mér að beina til þeirrar nefndar, sem fær þessa tillögu til 'athugunar. Tilmæli mín eru þau, að nefndin athugi mál þessi öll á breiðari grundvelli en hér er gert. Það er nauðsynlegt að gera stórátak í félags- og menningarmálum landsbyggð- arinnar og það er von mín að þegar nefndin skilar tillögu þessari hingað aftur inn í þing- salinn, þá hafi tillagan breytzt Framhald á 9- síðu. Ný sovézk farþega- þota tekin ínotkun Nýlega bættist i sovézka flugflotann, Aeroflot, ný far- þegaþota, 11-62, sem mun verða notuð á alþjóöaleiðum. Þann 15. september flaug þessi nýja þota milli Moskvu og Montreal á 9 klst., en vega- lengdin er yfir 7000 km og hafði vélin mótvind alla leið. Áður hafði 111-62 verið notuð á flugleiðinni Moskva-Khab- arovsk, pg flýgur hún é 1% klst. skemmri tíma til bargar- innar við Amur heldur en þotan Tu-114, og mun hún verða höfð á þessari leið í framtíðinni. 11-62 tekur 186 manns í sæti. Leonid Sholudev, flugmála- ráðherra, gat þess í blaðavið- tali, að Tu-114 væri enn ein af beztu flugvélum í heimi, en stæði að baki 11-62 hvað snerti bæði flughraða og þægindi. Hann sagði, að 11-62 ætti engan sinn hka hvað varðaði flugöryggi, „aerodyn- amies“ vélarinnar gerðiþaðað verkum, að hún gæti flogið við hvaða veðurskilyrði sem vseri, hún væri búin mjög fullkomnum loftsiglingatækj- um, og tækjum, sem gera mögulega lendingu við svo til hvaða veðurskilyrði sem er. Eins kvað hann flugvélina þurfa mjög stutta lendingar- braut. H-62 mun verða notuð á fllugleiðunum Moskva-París, Moskva-New-York og senni- lega á Moskvu-Tokyo-leiðinni. Enn önnur ný farþegaþota var tekin í notkun nýlega, Tu- 134. Þessi þota mun aðallega veraætluð til innanlandsflugs, einkum á Moskva-Sotsji flug- leiðinni. Þotan flýgur 920 km á klukkustund, og er ekki eins hávaðamikil og aðrarþot- ur af Tu-gerðinni. Guðrún Krlstjánsdóttir. i

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.