Þjóðviljinn - 10.11.1967, Side 5

Þjóðviljinn - 10.11.1967, Side 5
Pösfcudagur 10. nóvember 1067 — ÞJÓÐVTLJINN — SÍÐA J irtgax, vegi, naiíeiðslur eða öonur mannvirki má gera á himi friðlýsta svæði, eða í landi jarðanna Kárastaða, Brúsastaða, Svartagils og Gjá- bakka, nema með leyfi Þing- vaHanefndar". Einnig gera lögin írá 1928 ráð fyrir því að allt það land sem þar er fjallað um komist smátt og smátt í almennings- eigu. Um það sogir svo i 3ju grein laganna: „Nú takast eigi samningar milli Þingvallanefndar og ábú- enda jarða þeirra, er að nokkru eða öllu falla undir hið frið- lýsta land, og skal þá Þing- vallanefnd taka afnotarétt jarð- anna eða jarðahlutanna eignar- námi samkvæmt lögum og á- búendum greitt fyrir afnota- réttinn samkv. óvilhallra, dóm- kvaddra manna mati. Svo skulu og metnar bætur til Þingvallahrepps fyrir íþynging fjallskila og rýrnun útsvara, enda náist ekki samningar. — Heimilt skal Þingvallanefnd að kaupa jörðina Gjábakka, eða ef ekki nást viðunandi samn- ingar um verð, að taka jörð- ina eignamámi samkvæmt lög- um“. Þessi lagagrein sýnir ljóslega að ætlun löggjafans var sú að allt það land sem lögin náðu til yrði þjóðareign, jafnframt því sem sett voru ströng á- kvæði um að því landi mætti á engan hátt raska. Þannig var eftirkomendunum gert kleift að sameina Þingvalla- svæðið alit í einn samfelldan þjóðgarð, og ég vil endurtaka það sem ég sagði áðan að þessi lagasetning bar vott um fram- sýni og stórhug. ' Nauðsyn á upp- landi Ég álít að nú sé tirpabært að láta ein og sömu ákvaeðin ná til Þ3 n gval ] asva?ðisiTis allii það verði í heild „friðlýstur helgi- staður aUra ísk>ndinga“. Siðan lögin voru sett fyrir naerri fjórum áralugum hafa orðið miklar breytingar á högum ís- lendinga. Þá voru Þingveilir næsfca afskekktur staður fyrir allan þorra landsmanna; það þótti mmnisverður og frásögu- verður atburður að ferðast þangað. Nú er svo komið að meirihluti þjóðarinnar er bú- settur í næsta nágrenni Þing- valla, og sú gerbreyting hefur orðið á samgöngum að það þykir ekki mikið ferðalag að skreppa þangað. íbúarnir á þéttbýlissvæðinu við Faxaflóa þurfa á miklu upplandi að halda, ef þeir eiga að komast í snertingu við land sitt, og Þingvallasvæðið er öðrum stöðum betur til þess fallið að verða mönnum slíkur þjóðgarð- ur. En sá hluti Þingvallasvæð- isins sem kallaður er „hið frið- helga land“ í lögunum er þeg- ar orðinn of litill til þess að nægja sem slíkur þjóðgarður, ef menn eiga að geta notið þeirrar friðsældar og einmana- legu tignar sem er aðal ís- lenzkrar náttúru. Af þessum á- slæðum einum er orðið tíma- bært að gera allt Þingvalla- svæðið að samfelldum þjóð- garði, og engin ráðstöfun önn- ur mun tryggja það að Þing- vellir verði til frambúðar sá friðlýsti helgistaður allra ís- lendinga sem lögín msela fyrir um Fjáröflun t sambandi við endurskoðun laganna þarf jafnframt að huga að fjáröflun. Fjárveiting- ar til Þingvalla hafa alltaf ver- ið af mjög skomum skammti og torveldað mjög störf Þing- vallanefnda. Verði nú unnið markvisst að því að gera allt Þfngvallasvæðið að samfélld- ®i þjóðgarði mun þurfa á verulegum fjárupphæðum að halda. Nátlúruvernd er ekki einvörðungu í því fólgin að forða nátfcúru frá spjöllum; til- gangur hennar er einnig sá afi tryggja almenningi sem bezt not af þeim svæðum sem sér- staklega eru vernduð og er J>örf á margskonar þjónustu- starísemi í því sambandi. End- urskoðun laganna mun ekki ná tilgangi sínum nema nauðsyn- legar tekjur séu jafnframt tryggðar Tilgangur alþingis Þegar lögin um friðun Þing- valla voru sett var ein ástæð- an sú að einstaklingar höfðu sólzt mjög eftir því að tryggja sjálfum sér einkaafnot aí landi á Jxíssum helgistað þjóðarinnar. Þegar árið 1919 hafði alþingi raunar samþykkt áskorun á rikisstjórnina um „að koma i veg fyrir að einstakir menn eða félög reisi sumarbústaði eða nokkur önnur skýli á svæð- inu sem í I. lið getur“, en þar er átt við „svæðið frá Þing- vallavatni milli Almannagjár og Hrafnagjár norður á móts við Ármannsfell og Hraína- björg“. Nefndin sem undirbió friðunarlögin 1928 lýsti sér- stakri andstöðu sinni við sum- arbústaðabyggingar einstak- linga á Þingvallasvæðinu öllu, og það kom ákaflega skýrt fram í umræðunum á þingi að ástæðan til þeirra ströngu ákvæða sem sett voru um lönd jarðanna Kárastaða, Brúsa- staða, Svartagils og Gjábakka var einmitt sú að alþingi vildi koma í veg fyrir að þar risu sumarbústaðir einstaklinga. Mig lang.vr í þessu sambandi að tilfæra ummæli nokkurra þeirra manna sem einkum beíttu sér fyrir setningu lag- anna. Þáverandi dðmsmálaráð- herra, Jónas Jónsson/ komst svo að orði í umræðunum: „En )>etta friðlýsta svæði er ekki stærra on svo, að utan við það gæti risið upp eins konar Grímsstaðaholt í skjóli skipulagsleysis og stundarhagn- aðar einstakra listsnauðra manna. .Bændur gætu óátalið leyft að byggja út um allt hraun, svo að þar risu upp ló- legir sumarbústaðir". Annar hvatamaður málsins, Bernharð Stefánsson. komst svo að orði: „En .frumvarpið gerir auk þess ráð fyrir, að friða eigi allstórt svaeði utan þinghelg- innar gömlu. Og um það er ágreiningurinn, hvort aðeins skuli íriða þingstaðinn sjálfan cða allt það svæði, sem frum- varpið garir ráð fyrir“. Og Bernharð heldur áfram um ástæðurnar fyrir því að ákveð- ið er er að friða svæðið allt: „Annað er það líka, að hugsa mætti sér þau mannvirki gerð í nágrenni Þingvalla sem ekki ættu heima á J>eim stað . . . Þess konar mannvirki, þó að góð kunni að vera í sjálfu sér, eiga ekkí við á þessum forn- helga stað. Sama er, þó að þau séu ekki í sjálfri þinghelginni, ef þau eru í þeirri nálægð, að þau blasa við frá Þingvöllum, því að þá eru þau til helgi- spjalla. Ef nokkur staður er hér á landi, þar sem náttúr- an á að vera í fullum friði og án þess að henni sé raskað af mönnum. þá eru það Þingveli- ir“ Jón Baldvinsson sagði: „Frumvarpið er borið fram með fortíðina fyrir augum, svo að komandi kynslóðum gefist kostur á að skoða hin- ar fornu menjar sögualdarinn- ar á Þingvöllum og að hin stórfenglega náttúrufegurð Þingvalla verði ekki skemmd með framkvæmdum, svo sem byggingum og jarðraski, sem hæglega getur orðið ef ekki er fyrir það girt í tkna“. Þannig var það einn megin- tilgangur laganna að koma í veg fyrir að einstaklingar helg- uðu sér land á Þingvöllum og reistu þar einkabústaði. í sam- rícmi við það sjónarmið hljóð- aði fyrsta grein laganna svo: „Frá ársbyrjun 1939 skulu Þingvellir við Öxará og grenndin þar vera friðlýstur helgistaður allra íslendinga". og 4ða grein hljóðar svo: „Hið friðlýsta land skal vera undir vemd Alþingis og ævinlega eign íslenzku þjóðarinnar. Það má aldrei selja eða veðsetja". Með öðrum orðum: Helgistað- ur allra íslendinga en ekkert óskipulagt eða skipulagt sum- nrbústaðaland. Látið undan ásókn Enda þótt svona tryggilega væri frá þessum málum geng- ið, jafnt við meðferð málsins sem orðun laganna, hefur svo illa til tekizt að Þingvalla- nefndir hafa æ ofan í æ látið undan ásókn cinstakra manna í sumarbústaði og sumarbú- staðalönd á Þingvöllum. Um- hverfis Þingvallavatn eru um 30a sumarbústaðir, og að minnsta kosti 21 þeirra er inn- an þess svæðis sem í lögunum er kallað „hið friðhelga land“, frá Valhöll suður með Þing- vallavatni vestanverðu. Á J>essu svæði, hinu friðhelga landi, er nú verið að reisa tvo bústaði í viðbót, að vísu á lóð sem veitt hafði vcrið leyfi fyrir löngu áður. Ég held að það geti naumast verið álita- mál að þessir bústaðir eru al- gert brot, ekki aðeins ó anda laganna um friðun Þingvalla, heldur og á orðum þeirra. Því gerum við. flutningsmenn þess- arar tillögu, ráð fyrir að í hin- um endurskoðuðu lögum um friðun Þingvalla skuli „sett á- kvæði sem mæla svo fjrrir að sumarbústaðir einstaklinga skuli fjarlægðir af því svæði sem lögin ná til innan ákveð- ins tíma og samkvæmt tiltefcn- um reglum“. Mér þætti eðli- legt að þeir einstaklingar sem þama eiga hlut að máH fengju rúman frest til þess að breyta högum sínum; nokkur ár til eða frá skipta að sjálfsögðu ekki máli, heldur hitt að sett- ar séu skýrar og undantekn- ingarlausar reglur. Ég kann ekki skil á samningum þeim sem Þingvallanefndir hafa gert við þessa einkaaðila, en ég trúi ekki öðru en að það fólk sem nú nýtur mjög óeðlilegra for- réttinda á helgistað allra ís- lendinga muni fúslega fallast á að afsala sér þeim ef eftir verður leitnð Líta ,,illu auga" Ég geri ekki ráð fyrir að á- greiningur verði um þetta at- riði í tillögu okkar, að minnsta kosti ekki frá Þingvallanefnd. Formaður Þingvall<mefndar, Emil Jónsson utanríkisráð- herra, sagði í viðtali við Al- þýðublaðið 9dá júlí í fýrra: „Þeir bústaðir sem eru irm- an Þjóðgarðsins voru reistir áður en lögin um friðun Þing- valla voru sett og við í Þing- vallanefndinni litum þá illu auga“. Nú er það að vísu ekki rétt hermt að bústaðir þessir hafi allir verið reistir áður en lög- in voru sett, en það kann að vera missögn blaðamanns; ég tilfæri þessi ummæli aðeins vegna þess að utanríkisráð- herra segir Þingvallanefnd líta þessa bústaði illu auga — þótt það augnaráð hafi að vísu komið fyrir lítið. 30asta júlí í fyrra endurtók utanríkisráð- herra þessa skoðun sína í i\amhaid á 7. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.