Þjóðviljinn - 11.11.1967, Qupperneq 3
Laugardagur 11. nóvember 1967 — ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA J
Alger einhugur á norska þinginu um
al kref jast stöivunar loftárásanna
Aðeins ágreiningur um hve iangt eigi að ganga í gagnrýni á stefnu
Bandaríkjanna — Þingmenn Verkamannaflokksins vilja ganga lengst
OSLÓ 10/11 — Alger einhugur ríkir um það á norska Stór-
þinginu að krefjast beri þess af Bandaríkjunum að þau
hætti loftárásum sínum á Norður-Vietnam, hvort sem
vísbending hefur verið gefin urn það eða ekki að stöðvun
loftárásanna muni leiða til samningaviðræðna. Á þinginu
er aðeins ágreiningur um hve langt skuli ganga í gagn-
rýni á framferði Bandaríkjamanna í Vietnam.
Fyrir Stórbinginu liggur til-
laga frá varafortmanni Vinstri-
flokksins, sem er einn stjórnar-
flokkanna, og er hún á bessa
leið:
„Stórþingið ályktar í samræmi
við ræðu Lyngs utanríkisráð-
herra á alls'herjarþingi Samein-
uðu þjóðanna 4. október 1967 að
sem fyrsta skref í átt til samn-
ir aviðræðna og friðar í Vietnam
er það nauðsynlegt að Bandarík-
in hætti skilyrðislaust loftárásum
á skotmörk í Norður-Vietnam.
Stórþingið fer þess á ileit við
ríkisstjórnina að hún komi þess-
ari ályktun á framfæri við
Bandaríkjastjórn."
Utanríkismálanefnd Stórþings-
ins hefur nú fjallað um þessa
tillögu og leggur meirihluti henn-
ar, þ.e. fulltrúar stjórnarflokk-
anna, til að tillagan verði bók-
uð jafnframt því sem Stórþingið'
lýsi stuðningi við ummæli Lyngs
utanríkisráðherra um Vietnam á
allsherjarþinginu. 1 áiiti meiri-
hiuta nefndarinnar er vitnað til
þeirra ummæla hans og bætt við
að ekki sé ástæða til að efast
um að hugur fylgi máli þegar
Bandaríkjastjórn hafi lýst yfir
að markmið hennar sé að
tryggja rétt Suður-Vietnams til
að ráða örlögum sínum sjálft.
Hins vegar sé ljóst að eins og
stríðið hafi þróazt muni því eklci
verða ráðið til lykta með her-
valdi. Þess vegna megi ekki láta
neitt það ógert sem geti orðið t.il
þess að aðilar taki upp viðræð-
ur og það því fremur sem áfram-
haldandi hernaður leiði ógurleg-
ar hörmungar yfir vietndmsku
þióðina og stofni heimsfriðnum
í hættu.
Fulltrúar Verkamannaflokks-
ins í nefndinni skila séráliti.
Þeir leggja til að Stórþingið
samþykki ályktun sem sé í sam-
ræmi við þá sem þing flokksins
samþykkti nýlega. Stórþingið lýsi
yfir í samræmi við ummæli
Lyngs utanrfkisráðherra á dlls-
herjarþinginu í haust að norska
ríkisstjórnin eigi að taka undir
vaxandi kröfur um að loftárás-
unum á Norður-Vietnam verði
hætt, enda þótt ekki ?iggi fyrir
vísbending um að stöðvun loft-
Gólfteppahreinsun
Hreinsum gólfteppi og húsgögn í heima-
húsum. Sími 13261. Geymið auglýsinguna.
árásanna muni leiða til samn-
ingaviðræðna.
Nauðsynlegt sé að draga úr
hernaðaraðgerðum til að binda
enda á þá óheillaþróun sem nú
eigi sér stað. Stöðvun loftárás-
ar.na verði að fylgja á eftir með
því að leggja fast að báðum að-
ilum að setjast að samninga-
borði.
Minni'hluti nefndarinnar legg-
ur eins og meirihlutinn til að til-
‘laga Botnens verði bókuð.
í ályktuninni um Vietnam á
lándsþingi Verkamannaflokksins
sem minnihluti utanríkismála-
nefndarinnar vísar til var m.a.
komizt svo að orði að þingið
lýsti andstöðu sinni við stefnu
Bandaríkjanna í Vietnam. Lögð
var áherzla á að- mögnun stríðs-
ins gæti leitt til árekstra við
Kína en það aftur stofnað heims-
friðnum í hættu. Sagt var að
stefna Bandaríkjanna í Vietnam
torveldaði, mjög vestræna sam-
vinnu og lýst var fullum stuðn-
ingi við tillögur Ú Þants um
hvernig koma eigi á friði í
Vietnam.
Ágreiningur um orðalag
Það er þannig ljóst að enginn
ágreiningur er um það á Stór-
þinginu að Bandaríkjunum beri
að hætta loftárásum sínum á
Norður-Vietnam. Það er aðeins
um það deilt hve eindregna af-
stöðu Stórþingið eigi að taka
gegn framferði Bandaríkjanna i
Vietnam. Verkamannaflokkurinn
vill lýsa yfir andstöðu gegn
stefnu Bandaríkjanna þar, eins
og landsþing hans gerði, en
stjórnarflokkarnir hafa orðið
sammála um að veita Banda-
ríkjastjórn þá viðurkenningu að
ekki sé ástæða til að vefengja
að hún beri fyrir brjósti sjálfs-
ákvörðunarrétt- fbúa Suður-Viet-
nams.
Vitað er að þetta samkomulag
stjórnarflokkanna varð eftir all-
hörð átök. Lyng utanríkisráðherra
hafði gert þetta mál að fráfar-
aratriði, að líkindum vegna
kröfu meiribluta þingmanna
Hægri flokksins, sem þótti ráð-
herrann hafa gengið of langt f
gagnrýni sinni á Bandaríkin.
Hins vegar er talið víst að marg-
ir þingmenn Vinstri flokksins séu
óánægðir með samkomulag
stjórnarflokkanna um málsmeð-
ferðina, og muni þeir jafnvel
ganga í lið með stjórnarandstöð-
unni. Verkamannaflokknum og
SF, þegar málið verður tekið
fvrir á þingfundum í næstu viku.
Hugsanlegt er, segir „Dagbladet"
í Osló, að þingmenn SF muni
taka upp tillögu Botnens og
krefjast þess að greidd verði at-
kvæði um hana í stað þess að
lóta bóka hana án atkvæða-
greiðslu.
Áhugi er á aðildað Efta og
viðskiptasamningi við EBE
OSLÓ 10/11 — Gylfi Þ. Gíslason
skýrði frá því í Osló í dag að
ríkisstjórn íslands hefði áhuga á
að kanna möguleika á aðild ís-
lands að Fríverzlunarbandalaginu
(EFTA) og á viðskiptasamningi
við Efnahagsbandalag Evrópu
(EBE)
Ummæli þessi lét ráðherrann
falla á sameiginiegum fundi
þeirra ráðherra Norðurilanda sem
fjalla um markaðsmálin og
efnahagsmálanefndar Norður-
landaráðs. Gylfi Þ. Gíslasoa
sagði að íslenzka ríkisstjórnin
teldi að ísland gæti ekki staðið
fyrir utan efnahagsbandalögin og
hefði því áhuga á að Xeita eftir
samningum við þau. Hann tók
fnam að ríkisstjómin hefði haft
samráð við stjómarandstöðuna
um þessi mál.
fSurveyor 6.'
á tunglinu
PASADENA 10/11 — Bandaríska
geimfarið „Surveyor 6“ lenti á
tunglinu kl. 4 í morgun að ísl.
tíma og tókst lendingin ágætlega.
Lent var á miðbiki jarðhverfu
tunglsins, þar sem heitir Sinus
Medii, og tæpum kilukkutíma eft-
ir lepdinguna hófst myndatakaog
barst fyrsta myndin sem yar
mjög skýr, til jarðar skömmu
sfðar. Lendingin hefur enn auk-
ið líkur á að Bandaríkjamenn
sendi mannað geimfar til tungls-
ips á þessum áratug.
HVER VAR AÐ TALA UM LEVI'S STA-PRESI HEFUR
VARANLEG BUXNABROT? VARANLEG BUXNABROT
SPYRJIÐ EFTIR lElll'S STfl-PRESI BUXUM.
FYR1RLIGGAIMDI í ÖLLUM STÆRÐUM OG FJÖLBREYTTU LITAVALI,
LEVIS STRAUSS. UPPHAFSMENN NÝTÍZKU VINNUFATNAÐAR.
EINKAUMBOÐSALI FYRIR LEVIS STRAUSS &CO.
VöNNOJFATTA® Œ[R© 5SILANIDS %
Larsen enn efstur
TÚNIS 10/11 — Bent Lansen er
enn efstur á millisvæðamótinu í
skák sem fer fram í Túnis. Ung-
verjinn Lajos Portisoh er annar
eftir að hafa sigrað sovétmeistar-
ann Stein í 19. umferð. Larsen
sigraði heimamanninn Bouaziz
auðveldlega . í þeirri umferð.
Efstu menn eftir 19 umferðir eru
þessir: Larsen 13,5 (17 tefldar
skákir), Portisch 12 (17), Gligoric
og GeMer, báðir 11,5 (báðir 17),
Ivkov 11 (18), Matanovic, Hort,
Kors-tnoj, atöir 10,5 sög.
Tilkynning
frá Lögregiu og Slökkviliði
Að gefnu tilefni tilkynnist öllum, sem hlut eiga að
máli, að óheimilt er að hefja hleðslu áramótabál-
kasta eða safna saman efni í þá fyrr en 1. desem-
ber n.k., og þá með leyfi lögreglu og slökkviliðs.
Tilskilið er að fullorðinn maður sé umsjónarmað-
ur, ^með hverri brennu. Um brennuleyfi þarf að
saskja til Stefáns Jóhannssonar, aðalvarðst'jóra,
íögreglustöðinni. (Viðtalstími kl. 13,00—14,30).
Bálkestir, sem settir verða upp í óleyfi, verða taf-
arlaust fjarlægðir.
Reykjavík 9. nóv. 1967
Lögreglustjóri
Slökkviliðsstjóri
Hin miklu vegamót
nefnist erindi, sem
JÚLÍUS GUÐMUNDSSON
flytur í Aðventkirkjunni
sunnudaginn 12. nóv. kl. 5.
JÓN H. JÓNSSON
og félagar hans
syngja nokkur lög.
BARNAGÆZLA
í félagsheimili UMF
í kjallara kirkjunn-
ar meðan á samkom-
’unni stendur.
Blaðburður
Þjóðviljann vantar fólk til blaðburðar í
Kópavogi. — Sími 40753.
ÞJÓÐVILJINN.
Frímerki-Frímerki
íslenzk, notuð og ónotuð. — 1. dags umslög, inn-
stungubækur, tengur og margt fleira.
FRÍMERKJ A VERZLUNIN
Grettisgötu 45 (Verzlun Guðnýjar).
Loftskeytamenn
Loftskeytamann vantar til starfa við
vaktavinnu hjá Símatseknideild Pósts og
síma í Reykjavík.
Upplýsingar í síma 236 gegnum 11000.
Póst- og símamálastjórn,
10. nóv. 1967.
Vatteraðir nylonjakkar
hettuúlpur, peysur og teryleríebuxur. —
Athugið okkar lága verð. — Póstsendum.
O. L. Laugavegi 71
Sími 20141.