Þjóðviljinn - 11.11.1967, Qupperneq 4
I
4 SlÐA — ÞJÓÐVmiNiN — laMg/aacða&ucr M.. nówambec WSO.
OtgeEandi:
alþýdu — SósialistaQokk-
Eitstjórar:
Fréttaritstjóri:
Auglýsingastj.:
Framkvstj.:
Magnús Kjartansson,
Sameinmgarflokkur
urinn.
Ivar H. Jónsson, (áb.),
Siguröur Guðmundsson.
Sigurður V. Friðþjófsson.
Sigurður T. Sigurðsson.
Eiður Bergmann.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja Skólavörðustíg 19.
Sími 17500 (5 línur) — Áskriftarverð kr- 105.00 á mánuði. —
Lausasöluverð krónur 7.00.
Fráleitar tillögur
^amkvæmt vísitölu þeirri sem nú er bundin í lög-
um og samningum verklý.ðsfélaga á kaup-
gjald að hækka um 8% eftir þær stórfelldu verð-
hækkanir sem dunið hafa yfir og álögur þær sem
boðaðar hafa verið, og á talsverður hluti þeirrar
hækkunar að koma til framkvæmda um næstu
má aðamót. Samkvæmt nýju vísitölunni, sem rík-
isstjómin leggur til að lögfest verði, ætti kaupið
að hækka um 4—5%. í tilboði því sem ríkisstjórn-
in lagði fyrir íulltrúa launamanna í fyrradag eru
báðar þessar vísitölur sniðgengnar. Ríkisstjórnin
leggur að vísu til að nýja vísitalan verði lögfest
en vill að tekið sé að falsa hana um leið og hún tek-
ur* gildi! Á að hagræða henni svo að hún sýni
aðeins 3% hækkun, og í þokkabót k, sú óverulega
hækkun að koma til fraimkvæmda í þremur áföng-
um á hálfu öðru ári. Launamenn eiga að fá einn
hundraðshluta eftir rúmlega hálft ár, annan
himdraðshluta sex mánuðum síðar og þriðja
hundraðshlutann að liðnu rúmlega hálfu öðru ári.
í þokkabót fylgdi það skilyrði að ekki mætti verða
nein grunnkaupshækkun á þessu tímabili. Full-
trúum launamanna var semsé ætlað að fallast á
verulega kjaraskerðingu og auk þess kaupbind-
ingu í hálft annað ár, en engin kaupbindingar-
ákvæði voru í hinum upphaflegn tillögum ríkis-
stjómarinnar. Auk þess bauðst ríkisstjómin til að
hækka fjölskyldubætur með tveimur eða fleiri
bömum um 5% og nemur sú rausn 180 krónutm á
bam á ári; ennfremur skyldu ellilaun og örorku-
bætur hækka um sömu hundraðs’tölu eða 135 kr.
á mánuði. Alþýðuflokkurinn er sannarlega stór-
tækur í hinni margauglýstu umhyggju sinni fyrir
ungum og öldruðum.
það kemur naumast nokkrum launamanni á óvart
að fulltrúar A.S.Í. og B.S.R.B. höfnuðu þessum
fráleitu tillögum — allir nema varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins, Guðmundur Garðarsson ’for-
maður Verzlunarmannafélags Reykjavíkur. Þeir
11 fulltrúar sem að neituninni stóðu eru frá hin-
um margvíslegustu sam’tökum verkafólks og opin-
berra starfsmanna og úr öllum stjómmálaflokkum,
og er sú víðtæka samstaða mjög mikilvæg. Fyrir
því er full reynsla að einhuga verklýðshreyfing
hefur afl til að hrinda öllum árásum ríkisvalds og
atvinnurekenda. Verklýðssamtökin munu nú
leggja á ráðin um það hvemig þeirri baráttu skuli
háttað; stjóm Alþýðusambands íslands hefur þeg-
ar ákveðið að kalla saman ráðstefnu forustumanna
verklýðsfélaganna á mánudaginn kemur. Full á-
stæða er ’til að taka þessi mál föstum tökum þegar
í upphafi, því öllum má vera ljóst að enn er ríkis-
stjómin aðeins að þreifa fyrir.sér — hún á eftir
öll svokölluð bjargráð sín í þágu útgerðar, fisk-
yinnslu og innlends iðnaðar. — m.
HjálmtyT Pé+ursson:
Hægri eða vinstri
Svíar og Danir sögöu: „Haf-
ið þið Islendingar ekkert þarf-
ara við peningana að gera en
að breyta um akstur? Þið, sem
búið í ykkar eigin heimsálfu
norður undir heimsskauti".
Bretar sögðu eftir að hafa
kynnt sér allan fyrirganginn
og erfiðleikana við breytinguna
í Svíþjóð: „Það, sem við sáum
er nóg til þess, að við breyt-
um ekki, ökum áfram á vinstra
kanti, við búum á eylandi. Við
athugum málið á naestu -öld“.
„Den tid den sorg“.
Ekkert mælir mcð breyting-
unni — allt móti.
Það má segja, að „Islands
óhamingju verði allt að vopni“.
Ef Sviar hefðu ékki breytt um
akstur, hefðum við þá farið að
breyta um yfir tiil hægri? Nei,
áreiðanlega ekki. Aliir vita, að
Svíar voru neyddir til þess að
breyta, þeir eru innilokaðir
milli þriggja landa með aðrar
akstursvenjur, miljón bifreiðir
fara árlega' yfir landamæri
þeirra. Sænskir sálfræðingar
.telja, að árið 2030 verði Svíar
fulll«>mlega búnir að aðlagasig
hægri umferðinni, þannig tek-
ur það heilan mannsáldur að
venjast breytingunni. Kostnað-
ur þeirra við breytinguna er
talinn nema um 8000,00 miljón-
um ísl. króna, hækkaði uni
helming miðað við áætlun.
Hvað á allt þetta hægra
„brambolt“ að þýða hér uppi á
íslandi? Þarfnast þjóðin einsk-
is annars nauðsynlegar, en
þessara breytinga á umferðar-
kerfinu? Allir vita, að flestir
okkar vegir eru ónýtir malar-
vegir. Spottinn til Hafnarfjarð-
ar er svo dýr, að þeirri fram-
kvæmd verður að fresta, þótt á
þeirri leið sé um fulHkomið
neyðarástand að ræða.
Áróðursmenn fyrir hægriuim-
ferð halda því fram, að kostn-
aður við breytinguna yrði um
49 miljónir króna og það skipti
ekki svo miklu því að bíleig-
endur borgi þetta sjálfir, ann-
ars mundu þeir bara eyðapen-
ingunum í eitthvað annað.
Finnst mörgum þessi kenning
hæfa máístaðnum. Á Alþingi
kom fyrir nokkru fram beiðni
frá hægri mönnum um litlar
60 miljónir kr., til þess að
greiða Bílasmiðjunni fyrir yf-
irbyggingu á nokkrum bilgrind-
um. Sagt er að þingmenn hafi
sett hljóða við fréttina og hafi
einum hrokkið af vörum: „Dýr
mun Hafliði allur, áður en við
komumst á hægri kantinn“.
öll meðferð þessa máls er
meðhreinumendemum. Alþingi
er blekkt á fölstoum forsendum,'
til þess að greiða breytingunni
atkv. Á hinum geysifjölmenna
Selfoss-fundi var bannað, að
fundarmenn gerðu ályktan, þar
voru allir á móti breytingunni.
Fjölmörg félagasamtök hafa
mótmælt breytingunni, áskrifta-
listar hafa verið sendir viða um
land til þess að mótmæla.
Hægrinefndin hér kúgaði for-
stjóra olíufélaganna, til þessað
banna að listar lægju frammi
á benzínafgreiðslum. Það má
segja, að lýðræðislega sé unn-
ið og mikið liggi við að und-
iroka þjóðina með þessari breyt-
ingu. Alþingismenn vita velum
hug þjóðarinnar til þessarar fár-
ánlegu breytingar. Þeir vita að
ef þjóðdn fengi að segja áli/t
sitt væru 90% á móti.
Það er mannlegt að gera
mistök, en stórmannlegt að við-
urkenna þau. Þingmenn okkar
eru aðeins venjulegir menn,
sem við höfum kosið til trún-
aðarstarfa. Þeim ber skylda til,
að leyfa þjóðinni að segja álit
sitt í þessu _ máli, sem má
segja að varði hvern einasta
borgara. Það er staðfest að 800
til 1000 miljónir manna í heim-
inum í dag aka á vinstrakanti
og rnunu gera það áfram. Bret-
landseyjar, sem eru okkarnæsti
nágranni með 52 miljónir manna
ætla ekki að breyta um akst-
ur. Ekkert land í víðri veröld
hefur jafn litla ástæðu til þess
að breyta öllu sínu umferða-
kerfi eins og við, aðeins 200
þúsund á lítilli eyju við heim-
skautsbaug. Bflafloti stórþjóð-
anna getur aldrei heimsótt
okkur. Við höfum reynslu af
bílum hins erlenda herliðs, sem
dvelur hér, og virðast stjórn-
endur þeirra hafa aðlagazt okk-
ar umferð. Sama er auðvitað að
segja um aðra ferðamenn, sem
koma hingað. Engin þjóð fer
að breyta umferðarreglum sín-
um, til þess að geðjast nokkr-
um ferðalöngum.
Hægrihandarmenn halda þvi
mjög á lofti, að breytingin hafi
gengið vel í Sviþjóð, slys orð-
ið fá. Ég var staddur í Svfþjóð
daginn eftir að breytt var. 1
öllu landinu stóðu vörð á veg-
um og gatnamótum 20 þúsund
lögregttumenn og hermenn, auk
þess skátar og fjöldi skólanem-
enda, sem voru sjálfboðaliðar.
Ekið var á 30—40 km hraða,
mikill fjöldi fólks hreyfði ekki
bíla sína og eldra fólk hætti
akstri. 1 fréttum frá Svfþjóð í
útvarpinu hér var sagt, að benz-
innotkun hefði minnkað um
25% og atvinna hjá bifreiða-
stjórum um dlíka mörg pró-
sent. Enginn þarf að undrast,
þótt slysum fækfci, meðan slíkt
ástand ríkir. „Margs þarf bú-
ið með bóndi“, og okkar þjóð-
Framhalld á 6. siðu
Byggt vfö Yöggustofu
Thorvaldsensfélagsins
Thorvaldsensfélagið efnir til
skemmtikvölds á Hótel Sögu,
sunnu dagsk völdið 12. nóvem-
ber, til ágóða fyrir húsbúnað
í hina nýju viðbylggingu við
vöggustofu félagsins við Sunnu-
torg.
Þessi nýja deild er ætluð
fyrir börn á aldrinum 2—3%
árs. Fyrst og fremst fyrir þau
þörn, er nú dvelja á Vöggu-
stofunni og engan samastað
eiga til að vera griðastaður
fyrir börn á þessu aldursskeiði,
sem einhverra hluta vegna geta
ekki dvalið hjá mæðrum sín-
um um stundarsakir, vegna
veikinda mæðranna eða ann-
arra erfiðleika. Þessi deild á
að laka til starfa seint næsta
haust, að öllum líkindum um
mánaðamótin nóvember-desem-
ber 1968 og rúmar um 18
til 20 böm.
Thorvaldsensfélagskonur hafa
aflað peninga til byggingarinn-
ar með ýmsu móti, t.d. með
sölu á jólamerkjum félagsins
árlega, og leikfangahappdrætti.
Basar félagsins sem hefur
starfað í Austurstræti 4, í rúm
60 ár, hefur gefið góðar tekj-
ur og hefur hann oft og á
margan hátt getað liðsinnt
hjálparþurfa fólki.
Félagskonur vonast nú eins
og endranær til að bæjarbúar
bregðist vel við og fjölmenni á
skemmtun þessa á Hótel Sögu
annað kvöld.
Mjög verður vandað til
skemmtiatriða og happdrættis
þess sem á skemmtuninni verð-
ur. Dagskrá skemmtunarinnar
var auglýst í dagblöðunum 1
gær.
Vöruleifar
frá bruna í Borgarskála
31. ágúst 1967.
Svo sem kunnugt er, hefir Fjármálaráðuneytíð
ákveðið, að ekki sfculi innheimtir tollar af vörum
þeim, er eyðilögðust af völdum eldsvoða í Borgar-
skála 31. ágúst 1967.
Vöruleifar úr brunanum voru fluttar undir toll-
eftirliti í vörugeymslu Eimskipafélagsins við
Skúlagötu, þ.e. í Skúlasikála og á útísvæði við
skálann. Verða vöruleifamar, að viðstöddum um-
boðsmanni tollstjóra, tíl sýnis fyrir innflytjendur
dagana 13.—17. nóvember, kl. 14—17, þannig að
réttir eigendur getí tekið ákvörðun um, hvort
þeir vilja taka vöruleifar þær, er þeir eiga, gegn
greiðslu á lögmætum tollum samkv. mati dóm-
kvaddra manna.
Að loknum framangreindum fresti, þ.e. eftír 17.
nóvember 1967, verður litið svo á, að þeir aðiljar,
er ekki gefa sig fram, samþykki, að vöruleifam-
ar verði eyðilagðar undir eftirHtí toHvarða eða
afhentar tollgæzlunni upp í aðflutningsgjöld.
Reykjavík 9. nóvember 1967,
H.F. EIMSKIFAFÉLAG ÍSLANDS.
HJOLBARÐAR frá
' ’ RASIMOIMPORT MOSKVA
VERÐLÆKKUN:
hjólbarðar slöngur
500x16 fcr. 625,— kr. 115,—
650k20 fcr. 1.900,— kr. 241,—
670x15 kr. 1.070,— kr. 148,—
750x20 fcr. 3.047,— kr. 266,—
820x15 kr. 1.500,— kr. 150,—
EINKAUMBC
IMARS TRADIIMG
Laugavegi 103 SIMI 17373
I
{gnttnental
SNJÓHJÓLBARÐAR
MEÐ NÖGLUM
sem settir eru £, með okkar full-
komflu sjálfvirku neglingarvél.
veita fyllsta öryggi í snjó og
hálku.
Nú er allra veðra von. — Bíðið
ekki eítir óhöppum, en setjið
C0NTINENTAL hjólbarðá, með
eða án nágla, undir bílinn nú
þegcir.
Vinnustofa vor er opin alla daga
írá kl. 7,30 til kl. 22.
Kappkostum að veita góða þjón-
ustu með fullkomnustu vélum
sem völ er á.
GÚMMÍVINNUSTOFAN h.f.
Skipholti 35 — Sími 3-10-55.
r
V