Þjóðviljinn - 26.11.1967, Page 1
Umræðufundinum um æskulýðsmál, sem halda átti á morgun, er
frestað um sinn, þar sem m.a. má búast við útvarpsuimræðum um van-
trauststillöguna þetta kvöld.
Magnús Kjartansson í rœðu ó Alþingi um gengislœkkunarmálið:
Gengislækkun Seysir ekki nein vanda-
mál til frambúðar—heldur magnar þau
■ Hæstvirtir ráðherrar munu fljótlega komast að raun um það að sú
hrossalækning sem gengislækkun er nægir ekki til þess að hleypa nýju
lífi í viðreisnardrógina; hún mun aldrei framar ganga í endurnýjun lífdag-
anna. Efnahagsmálafrumvarpið sem lagt var fram í upphafi þings varð
þjóðinni til marks um gjaldþrot viðreisnarstefnunnar, og gengislækkunin
er mun stórfelldari sönnun um hið sama.
■ Vandamál íslendinga verða ekki leyst með stefnu núverandi ríkisstjórn-
ar, heldur aðeins með félagslegri stefnu sem er í samræmi við sérstakar
aðstæður þessarar fámennu þjóðar.
■ Gengislækkunin mun ekki leysa nein vandamál til frambúðar heldur
magna þau — áframhaldandi viðreisnarstefna mun leiða til þess eins að
gengislækkanir verða ekki aðeins þrisvar á sjö árum, eins og núverandi
ríkisstjóm hefur afrekað til þessa, heldur mun hún leiða yfir okkur það
hlutskipti að tekið sé að fella gengið oft á ári, líkt og tíðkast í sumum við'
reisnarríkjunum í rómönsku Ameríku.
■ Enn sem fyrr eru stjórnmálin í brennidepli; engin vandamál verða
leyst nema breytt- verði um ríkisstjórn og stjórnarstefnu.
. Með þessum orðum lauk Magn-
ús Kjartansson ræðu sinni á
kvöldfundi Alþingis á föstudag-
iþn. Hann átaldi ólýðræðislega
rþéðferð gengislækkunarmálsins
Og óvirðingu þá sem ríkisstjórn-
iþ sýndi Alþingi með meðferð
lýiálsins og efnisrýrri framsögu-
ríéðu Bjarna Benediktssonar.
Magnús sagði m.a..
Hvað verður gert?
Það er ákaflega margt. sem
alþingismenn eiga heimtingu á
að vita áður en hægt er að ætl-
ast til þess að þeir fari að sam-
þykkja einn hlekk í keðju sem
þeir þekkja ekki að öðru leytj.
Vlð tökum upp
hægrl umferö
m
26-5.1968
Aljjýðubandaiagil
í Kópavogi
Alþýðubandalagið í Kópavogi
hefur myndasýningu í Félags-
heimili Kópavogs í dag, sunnu-
dag, klukkan 4 síðdegis fyrir
börn félagsmanna og þátttakend-
ur i berjaferð félagsins á sl.
hausti. Sýnd verður m-a. kvik-
mynd sem tekin var í berjaferð-
inni.
Klukkan 21 í kvöld verður
mynda- og kaffikvöld fullorð-
inna í Félagsheimilinu, efri sal.
Allt Alþýðubandalagsfólk og
gestir þess er velkomið en sér-
stáklega er þess vænzt að þeir
sem fóru í skemmtiferð Alþýðu-
bandalagsins á Snæfellsnes sl.
sumar mæti og taki með sér
myndir úr ferðalaginu.
Forsætisráðherra greindi okk-
ur þó frá einu atriði. Hann lét
þess getið í lok ræðu sinnar að
löggjöfin um verðtryggingu launa
yrði afnumin þegar vísitöluhækk-
unin 1. desember væri komin til
framkvæmda. Ætlun ríkisstjórn-
arinnar er sú að stórfelldar verð-
hækkanir skelli á launafólki —
og að minnsta kosti bótalaust
á öllum þeim sem ekki hafa
verkfallsrétt og nægilega öflug
samtök til þess að knýja fram
kauphækkanir.
Verklýðsfélögin hafa með
verkfallshótun tryggt vísitölu-
bætur 1. desember og þau munu
cflaust rétta sinn hlut áfram, ef
til vill oft á ári eins og 1963, ef
með þarf. En hvað með aðra?
Hvað með opinbera starfsmenn?
Ifvað með gamalt fólk, öryrkja
og sjúklinga og einstæðar mæður,
— einmitt þá sem ævinlega bera
skarðastan hlut frá borði þegar
yfir dynja efnahagslcgar koll-
stcypur.
Mörg atriði óljós
Og hvernig verður háttað afla-
hlut sjómanna, fá þeir að njóta
þeirrar fiskiverðshækkunar sem
væntanlega verður afleiðing geng-
islækkunar eða ætlar ríkisstjórn-
in að ganga á samningsbundinn
rétt þeirra? Hvernig hugsarrík-
isstjórnin sér að tryggja
afkomu bænda, þegar allarinn-
fluttar rekstrarvörur landbúnað-
arins snarhækka í verði? Hvað
liugsar ríkisstjórnin sér að gera
til að rétta hlut sparifjáreigenda
— þar á meðal aldraðs fólks sem
geymt hefur skildinga til elliár-
anna og óttast nú réttilega að
rænt verði drjúgum hluta af
sparifénu? Það er ekki ég einn
sem ber fram þessar spurningar
heldur svo til hver einasti lands-
maður.
Og við höfum ástæðu til að
spyrja um margt fleira: Hvernig
ætlar ríkisstjórnin að haga verð-
lagseftirliti á þessum snöggu um-
breytingatímum? Hvernig verður
verðlagsákvæðum hagað; eiga
kaupsýslumenn að fá að sópa til
sín stórfé með frjálsri álagningu
á miklu stærri grunnupphæð en
áður? Hvernig ætlar ríkisstjórn-
in að haga innheimtu sinni á inn-
flutningstollum, eiga þeir einnig
að hækka í hlutfalli. við gengis-
lækkunarbreytinguna?
Og hvernig verða efndirnar á
því Ioforði sem hæstvirtur for-
sætisráðherra gaf hér á þingi í
fyrra með stóryrðum, að ef geng-
ið yrði enn fellt undir hans for-
ustu skyldu gengislækkunar- og
verðbólgubraskarar fá að bera
fyllilega sinn hlut? Hvenær er
að vænta frumvarps ríkisstjórn-
arinnar um það efni, hvað felst
í því, ætlar forsætisráðherrann
að leggja byrðarnar á braskar-
ana?
Fjárplógsmenn
Magnús taldi stjómarfrum-
varpið um nokkur fram-
kvæmdaatriði gengislækkunar-
innar, sem um var fjallað á Al-
þingi á föstudag og laugardag
einungls svo lftlnn hlut alls máls-
ins, að óeðiilegt væri að afgreiða
hana sérstaklega, og hélt áfram:
Hins vegar er þetta frumvarp
mjög fróðleg vísbending um það
hvað fyrir ríkisstjórninni vakir
með svokölluðum hliðarráðstöf-
unum sínum. Eins og Lúðvík
Jósepsson rakti hér áðan er það
einn megintilgangur þessa frum-
varps að heimila hejldsölum og
öðrum innfilytjendum að hækka
vörubirgðir sínar í verði, ef þær
eru taldar keyptar fyrir erlent
lánsfé — en þar er um að ræða
mjög annarlega mismunun og
stórfelld tækifæri til sviksam-
legrar gróðasöfnunar fjárplógs-
manna.
Mér þykir rétt að minna hér
sérstaklega á einn aðila, sem
kemur við þá sögu, olíufélögin
þrjú. Þessi félög hafa um skeið
notið mjög stórfelldra forréttinda
í viðskiptum, fengið stórfelld
vörukaupalán í Sovétríkjunum
með vöxtum sem nema aðeins
broti af venjulegum bankavöxt-
um á fslandi. Með því fyrirkomu-
lagi hefur loksins rætzt í verki
hið mikla og langvinna umtal
um Kússagull á íslandi og sér-
staka umboðsmenn þess. Þetta
fyrirkomulag vilja olíufélögin nú
fá að nota til þess að hækka um-
svifalaust vörubirgðir sínar. En
það eru fleiri vandamál tengd
starfsemi þessara félaga á ts-
landi. Þau halda hér uppi ó-
þörfu þreföldu dreifirigarkerfi,
þreföldum skriffinnskukostnaði,
þrefaldri forstjóralhersingq og
þrefaldri gróðasöfnun. Tilgangur-
inn með þreföldu dreifingarkerfi
er ekki sairikeppni um sem bezta
þjónustu, eins og oft er talað
um til réttlætingar óhagifvæmu
skipulagi; olíufélögin hafa lengi
haft nána einokunarsamvinnu
um alla hluti og sú samvinna
hefur ekki sízt haft þann til-
gang að skerða þjónustuna við
almenning. Það hefði sannarlega
ekki verið neitt harmsefni þótt
þessi félög eða eirihver þeirra
hefðu orðið gjaldþrota, heldur
mikið þjóðþrifamál. Ef ríkis-
stjórn hins frjálsa framtaks get-
ur ekki unað því að framtaks-
menn séu ábyrgir gerða sinna,
þá bar henni einmitt þá skylda
til að þjóðnýta olíufélögin og
koma á einfaldara, nútímalegra
og miklu kostnaðarminna kerfi.
Á þann hátt hefði ríkisstjórnm
getáð vegið mjög mikið á móti
þeirri stórfelldu hækkun á olí-
um og benzíni sem verður af-
leiðing gengislækkuriorinnar. En
svo er að sjá sem ekkert sh'kt
sé fyrirhugað; 'ríkisstjórnin ætl-
ar aðedns að bjarga oliufélögun-
um þFemut? ;úr þeim vanda sem
þau hafa komið sér í á eigin á-
byfgð, svo að bau geti haldið á-
fram hinu úrelta og kostnaðar-
Framhald á 9. síðu.
1959: Kr. 16.32 íslenzkar í
hverjum Bandaríkjadollar
= 100%.
1960: Kr. 38-00 íslenzkar í
hverjum Bandaríkjadollar
= 42.9%
1961: Kr. 43.00 íslenzkar í
hverjum Bandaríkjadollar
= 38%
1967: Kr- 57.00 íslenzkar í.
hverjum Bandaríkjadollar
= 28.6%.
Þannig hefur gengi íslenzkrar krónu
rýrnað gagnvart JoHarnum síðan '59
Hve mikið hefur gengi ís-
lenzku krónunnar verið fellt
frá því árið 1959, er núver-
andi stjórnarflokkar tóku við
völdum í landinu?
Þetta er spurning sem vert
er að íhuga þessar dagana.
Þegar stjórnarsamstarf Sjálf-
stæðisflokksins og AJþýðu-
tlokksins hófst seint á árinu
1959 hafði skráð gengi ís-
lenzku krónunnar haldizt ó-
breytt í 9 ár eða frá því árið
1950 og.voru þá 16.32 íslenzk-
ar krónur í hverjum Banda-
ríkjadollar.
Á þeim 8 árum sem Sjálf-
stæðisflokkurinn og ALþýðu-
flokkurinn hafa farið með
völd í landinu hafa þeir
framkvæmt þrjár gengislækk-
anir, Hin fyrsta og stærsta
var gerð árið 1960 og var þá
gengi íslenzku krónunnar
miðað við Bandaríkjadollar
rýrt um 57.1 prósent — sneið-
in sem eftir var skilin var
aðeins 42.9 prósent af krón-
unni eins og hún var við upp-
haf ..viðreisnarstjómarinnar"
1959.
Næsta ár, 1961, var gengi
íslenzku krónunnar fellt. Að
henni lokinni var samanlögð
rýrnun krónunnar frá 1959
orðin 62 prósent — eftir var
skilin af henni sneið uþp á
38 prósent.
Loks í fyrradag var gengi
íslenzku krónunnar fellt af
„viðreisnarstjórninni. Að lok-
inni þessari þriðju og síðustu
skurðaðgerð hennar á íslenzku
krónunni er heildarskerðingin
verðgildis hennar frá 1959
orðin 71.4 prósent miðað við
Bandaríkjadollar — sneiðin
sem eftir er skilin er ekki
orðin nema 28.6-
I
i