Þjóðviljinn - 26.11.1967, Síða 10
JQ SIÐA — ÞJÖÐVILJINN — Sunnudagur 26. nóvember 1967.
WINSTON
GRAHAM:
MARNIE
59
húsið okkar, gamla fjölskyldu-
setrið og megnið af innbúinu, og
ég var að flytja inn í ibúðina
í London- Og a'llt í einu þyrmdi
yfir mig, mér fannst ég hvorki
geta né vilja meira. Mér fannst
ég hafa rifið upp allar rætur
minar, Gg það var meira en ég
gat afborið svona stuttu eftir
að Geroge dó og hinn sonur
minn hafði fallið í stríðinu. Ég
gat ekki afborið að eiga heima
í London. Ég gat ekki afborið
að eiga heima neinstaðar. Það
eina sem ég þráði var hlýr og
friðsæll staður þar sem ég gæti
fengið að deyja. Ég sagði Estelle
að ég kæmi til miðdegisverðar,
þvi að ég varð að vera í samvist-
um við einhverja manneskju og
fá ögn af samúð og skilningi ef
hægt væri.
Það var bf dimmt í stofunni.
Ég sá eftir að ég skyldi ekki
hafa kveikt á borðlömpunum.
Það þurfti að festa gardínuhring-
inn þama; frú Leonard gleymdi
UTIHURDIR
TRÉSMIÐJA
Þ. SKÚLASONAR
Nýbýlavegi 6
Kópavogi
sími 4 01 75
fEFNI
SMÁVÖRUR
TÍZKUHNAPPAR
Hárgreiðslan
tiárgreiðslu- og snyrtistofs
Steinu og Dódó
Laugav 18. III hæð (lyfta'
Sími 24-6-16
PERMA
Hárgreiðslu- og snyrtistoía
Garðsenda 21. SIMl 33-968
þvi alltaf. BYú Rutland var með
netta og mjóa fingur; þeir voru
ekki vitund líkir fingrunum á
Mark; hún renndi þeim eftir
borðþrúninni.
— Og gat Estelle gefið þér
samúð og skilning?
— Ég bað hana ekki beinlínis
um það, og þegar ég sat hjá
henni varð mér ljóst að það eru
viss andleg djúp sem maður
verður sjálfur að klifra uppúr
ef maður vill komast uppúr
I þeim. Og brunnurinn sem ég
hafði hrapað niður í var af því
taginu .... Það er ekki hægt að
ætlast til þess að tuttugu og
fimm ára mannsbarn geti klifið
þá skelfilegu einmanakennd sem
getur lagzt að manni þrjátíu ár-
um seinna.
Hún hélt áfram að tala, og ég
horfði á hana og hlustaði á hana
og ég hugsaði með mér, að kann-
ski hefði Estelle aldrei verið ein-
mana — og þó hlaut hún að hafa
verið það þegar hún lá og beið
dauðans.
— Það er vist ekki aldurinn
sem skiptir máli. sagði ég.
— Hvað áttu við? Hún var
komin yfir í eitthvað annað.
— Þetta með einmanaleikann
stendur ekki í sambandi við ald-
ur. Varstu aldrei einmana sem
barn?
Hún hugsaði sig um- — Jú. En
það er dálítið annað. Meðan
maður er ungur á maður ein-
hvem varasjóð af orku og þreki,
sem heldur manni uppi. En þeg-
ar maður eldist, þegar lífið er
að verða búlð, þá er sá vara-
sjóður uppurinn og það er að-
eins tómrúm þar sem orkan var
áður.
Mér datt ekki í hug að spyrja
hana, hvers vegna þessi máls-
I verður okkar minnti hana á það
skipti. Hún fór að tala um eitt-
hvað annað. eins og hún væri
hrædd um að mér þætti hún of
tilfinningasöm.
Stuttu seinna spurði ég: —
Talar Mark nokkum tíma um
mig?
— Áttu við. hvort við ræðum
um þig okkar á milli? Nei. það
gerum við ekki.
— Hefur hann aldrei sagt þér
að þetta gangi ekki sérlega vel
hjá okkur
— Nei .. Gerir það bað ekki?
— Nei, ekki mjög.
Hún sat og sneri vínglasinu
sínu; en hún horfði ekki á mig.
Þá sagði ég: — Það er aðallega
mín sök.
— Fyrst þú segir þetta, þá er
ekki langt í sættir.
— Það er ekki svo að skilja
að við séum alltaf að rífast. Það
er miklu djúpstæðara.
Frú Leonard kom inn. Þegar
hún var farin út aftur, sagði frú
Rutland: — Ég vona að betta
lagist milli ykkar aftur, Mamie
— hvort sem þú átt sökina eða
hann. Ég held hann myndi alveg
bugast. ef hann biði nýjan ósig-
ur.
— Ösigur?
— Já, það er víst ekki fjarri
lagi. Er það kannski ekki ósigur
fyrir forlögunum að missa eig-
inkonuna aðeins tuttugu og sex
ára gamla.
Hún horfði beint á mig og mér
var ekki beinlínis um það; nú
léti hún það koma; augu hennar
voru rök, en aðeins lítillega,
eins og hún hefði á sfðustu
stundu getað haldið aftur af tár-
unum.
— Ég er móðir hans, og þess
vegna er bað víst ekki nema
eðlilegt að mér skuli finnast
hann einstakur f sinni röð. En
ég geri mitt bezta til að dýrka
hann ekki. Sjáðu til, Mark er
einn þeirra sem leggja gjaman
allt í sölumar — fyrir málefni,
fyrir aðra manneskju. Hann er
geysilega viljasterkur, en lfka
óendanlega viðkvæmur. Dauði
Estelle kom mjög illa við hann.
Og að hann skyldi svo fljótt
verða hrifinn af annarri, það
kom mér á óvart — og gladdi
mig. En einmitt þess vegna ..
Ég greip fram í fyrir henni og
mér var órótt. — Hefur Mark
sagt þér frá ráðagerðum sínum
í sambandi við prentsmiðjuna?
Hún sat enn og sneri vínglas-
inu milli fingranna. — Að hann
hafi tekið tilboðinu frá Glaston-
bury? Já. Það var ég sem taldi
hann á það-
— Gerðir þú það? Já, en —
skiptir nafnið Rutland & Co. þá
engu máli?
— Það skiptir afarlitlu máli f
samanburði við allt hitt. Mark
myndi aldrei geta átt skikkan-
legt samstarf við Holbrookfeðg-
ana. Hann er ekki jafnsveigjan-
legur og faðir hans. Það er miklu
betra fyrir alla aðila, að þeir
skilji nú að skiptum.
— Holbrookfeðgamir verða
ekki ánægðir með þetta.
— Nei, þeim líkar trúlega ekki
hvernig málin hafa snúizt- En
þeir vilja helzt vera lausir við
Mark. Annars var Mark tregur
til að stíga þetta spor. Hann
sagðist hafa vissa ábyrgð gagn-
vart starfsfólkinu. Það er ein-
mitt það atriði, sem hann hefur
verið að semja um, oghannhefur
sett viss skilyrði í sambandi við
starfsfólkið ef það á að verða af
sölunni. Það virðist enginn þurfa
að líða fyrir þessa breytingu.
Enginn þarf að líða. Ég hugs-
aði með mér, að þetta léti í eyr-
um eins og grafskrift. Enginn
þarf að líða nema ég og Forio
og Mark og móðir mín og —
þegar fram í sækir, móðir hans.
Á þriðjudaginn ók frú Rutland
mér á sjúkrahúsið. Það var ekki
með glöðu geði sem ég fór þang-
að. Ég hafði ekkert að segja
við Mark. Nema það sem ég gat
ekki sagt. Til að mynda: fyrir-
gefðu. Og ég fer bráðum. Og
vertu sæll-
Hann var á eins manns her-
bergi — hann lá sjálfsagt þama
sem einkasjúklingur. Og það var
stór gluggi á stofunni og sólin
skein inn á eitt rúmshomið. Til
allrar hamingju lét hún mig fara
eina inn. Það kom mér á óvart,
að hann skyldi engar umbúðir
hafa um höfuðið, en hafi mér
fundizt hann veiklulegur begar
ég sá hann í fyrsta sinn, þá
fannst mér það f enn ríkara
mæli í dag; það var eins og
hann hefði létzt um tíu kiló að
minnsta kosti og sagði: — Hæ,
Marnie.
— Hvemig líður bér Mark?
Ég reyndi að ganga óhölt, þegar
ég gekk að stólnum sem stóð
hjá rúminu. og þegar ég var f
þann veginn að setjast, mundi ég
eftir því að hjúkrunarkonan stóð
enn í dyrunum, svo ég laut yfir
hann og kyssti hann.
— Og hvernig líður þér?
— Ö, mér? Mér lfður ágætlega-
Ég er bara dálítið stirð. En þú?
— Höfuðverkur — og svo þessi
handleggur, það er allt og sumt.
Ég vil helzt komast heim.
— Færðu leyfi til þess?
— Ekki næstu daga. Mér þyk-
ir þetta svo leitt með Forio ....
— Mér þykir þetta allt svo
leitt.
— Já, en ég veit hvers virði
Forio var þér.
— Þetta var allt mér að kenna-
— Ef það var þá eleki mér að
kenna. Ég hefði ékki átt að reyna
að ná þér.
Það varð þögn. — En þakka
þér fyrir að þú dróst mig upp úr
leðjunni, Mamie.
— Hver sagði þér það?
— Ég vissi nægilega vel af
mér til þess að finna það. Ég
man líka að þú þurrkaðir leðj-
una úr augunum á mér og eyr-
unum.
— Ég man varla sjálf hvað ég
gerði.
— Þá man ég það þeim mun
betur.
Þetta var allt og sumt. Við
höfðum ekki meira að segja
hvort við annað. Hjúkrunarkon-
an hafði ekki rakað hann sérlega
vandlega, svo að hann yrði kom-
inn með svarta skugga um
hökuna eftir fáeina tíma.
Svo sagði hann: — Hefurðu
sagt Roman frá slysinu
— Nei.
— Gerðu þá svo vel og hringja
í hann- Annars heldur hann, að
þú skrópir í tímunum hjá hon-
um.
Ég spurði: — Hvað er gert við
hest þegar búið er að skjóta
hann, Mark? Er hann grafinn
eða hvað gera þeir?
— Ég veit það ekki.
— Ég má ekki til þess hugsa
að eitthvað annað verði gert við
hann .... hann verði kannski
seldur ....
— Það tel ég ólíklegt.
Það stóðu blóm á borðinu við
rúmið og þar lágu líka nokkur
vínber og tímarit og tvær eða
þrjár bækur. Ég hefði sjálfsagt
átt að muna eftir því að færa
honum eitthvað-
Hann sagði: — Það er kannski
fullsnemt að tala um j>að núna,
en .. það eru til fleiri hestar.
Þegar vorar getum við reynt að
finna handa þér annan hest.
— Það held ég að ég mundi
ekki vilja.
— Við skulum nú bíða og sjá
til. Hann strauk á mér höndina.
Þetta var stórfurðulegt, það
verð ég að segja. Þann tíma sem
við höfum verið gift, hafði hann
hvað eftir annað horft á mig
eins og hann hataði mig — ým-
ist fyrir það að ég var kunnug
Terry eða vegna þess að ég hörf-
aði frá honum þegar hann snerti
mig; það gat gert hann náfölan
af reiði. En nú, þegar ég hafði
næstum orðið bess valdandi að
hann stórslasaðist. nú virtist
hann alls ekki reiður mér.
Frú Rutland fór heim á mið-
vikudaginn. Ég heimsótti Mark á
hverjum degi, bg þeir sögðu að
hann ætti að geta komið heim
á mánudag.
Á miðvikudagskvöld meðan ég
var að hátta, hringdi Terry
Hann sagði að sig tæki það mjög
sárt að ég skyldi hafa orðið fyr-
ir þessu alvarlega óhappi og
hann vonaði að Mark væri á
batavegi og hann hefði spurzt
nokkrum sinnum fyrir um mig
hjá Newton-Smith mæðginunum,
og var þetta ekki slysalegt allt
saman?
Ég viðurkenndi það.
Hann rausaði áfram í nokkrar
mínútur og svo sagði hann: —
Þér hafið sjálfsagt heyrt, að það
verður alvara úr því að Glaston-
bury taki við Rutland & Co-?
— Ég — ég hef ekki haft tíma
til að hugsa um það.
— Nei, þér hafið auðvitað
hvorki hugsað um það — né um
mig.
— Nei, ég hef ekki hugsað um
yður heldur. Þér verðið að fyr-
irgefa það, Terry.
I
I
n
FÍFA auglýsir
Þar sem verzlunin hættir verða allar vör-
ur seldar með 10% — 50% afslætti.
Verzlunin FÍFA
Laugavegi 99.
(inngangur frá Snorrabraut).
MANSIO^-rósabón gefnr þægilegan ilm I stofuna
Einangrunargler
Húseigendui — Byggingameistarax.
Otvegum tvöfalt einangrunargler með mjög stutt-
um fyrirvara
Sjáum um ísetningu og allskonar breytingar 6
lluggum Útvegum tvöfalt gler f lausaföe oe sjá-
um um máltöku.
Gerum við sprungur l steyptum veggjiun með
baulrevndu gúmmfefni
Gerið svo vel og leitið tilboða.
SÍMl 5 11 39.
NÝKOMIÐ
Peysur. úlpur og terylenebuxur.
O. L. Laugavegi 71
Sími 20141.
Gerið við bíla ykkar sjólf
Við sköpum aðstöðuna. — Bílaleiga.
BlLAÞJONUSTAN
Auðbrekku 53. Kópavogi — Sími 40145
Lótið stilla bílinn
Önnumst hjóla- Ljósa- og mótorstillingu
Skiptum um kerti platínur. ljósasamlokur
— Örugg þjónusta
BlLASKOÐUN OG STILLING
Skúlagötu 32. sími 13100
Hemlaviðgerðir
• Rennun, bremsuskálar
• Slípum bremsudælur
• Límum á bremsuborða.
Hemlastilling hf.
Súðarvogi 14 - Sími 30135.