Þjóðviljinn - 02.12.1967, Side 1
Laugardagur 2. desember 1967 — 32. árgangur— 274. tölublað.
I SOSIALISTA-
FÉLAGI REYKJAVÍKUR
☆ N.k. þriðjudag, 5. desember, verður haldinn fundur
í Sósíalistafélagi Reykjavíkur. Aðalmál á dagskránni
verður: Viðhorf í efnahagsmálum. frummælandi Lúðvík
Jósepsson alþingismaður.
☆ Fleira verður rætt á þessum fundi, sem nánar verður
getið í næstu blöðum.
Stal bankabók
og tók út 125
þúsund krónur
• 1 fyrrakvöld kæröi kona
nokkur til lögreglunnar yf-
ir því að stolið hefði verið
frá henni bankabók með
203 þúsund króna inn-
staeðu. Konan hafði upp-
götvað hvarf bankabókar-
innar þá um daginn og
snúið sér til þankans og
kom þá í ljós, að 23. nóv.
höfðu verið teknar út úr
bókinni 125 þúsund krónur.
• Grunur beindist fljótlega
að pilti nokkrum rúmlega
tvítugum, er komið hafði
í heimsókn til konunnar
sama dag og tekið var út
úr bókinni í bankanum.
Var pilturinn handtekinn í
fyrrakvöld og játaöi hann
að hafa stolið bók-
inni og tekið út úr henni
í bankanum. Fundust í
fórum hans 16 þúsund kr.
er hann átti eftir óeyddar
en fyrir hina peningana
hafði hann keypt sér bíl,
fatnað o.fl. Piltur þessi
hefur áður komið við
lögregluna viðriðinn þjófn-
að o.fl.
SkorinorS og einlœg fullveldisrœSa:
Hvenær fer hinn erlendi
herafli brott af landinu?
Ida Ingólfsdóttir.
Margir árekstrar
Mikil hálka var á götunum
hér í Réykjavík og nágrannabæj-
unum í gaer og árekstrar tíðir.
Frá kl. 12 á hádegi til kvölds
í gær voru skráðir yf ir 30 árekstr-
ar hjá lögreglunni í Reykjavík, en
engin slys urðu á mönnum í
þeim.
I Kópavogi urðu fjórir árekstr-
ar sem þykir mikið þar. I eitt
skiptið ók vörubíll á rafmagns-
staur við Lyngbrekku og brotn-
aði staurinn við áreksturinn og
olli það smá rafmagnstruflunum.
□ Á þessum degi heimtum við fyrst og fremsí
skýr svör við þeirri spurningu hvenær hinn erlendi
herafli hverfi af landi brott. Fáist ekki skýr og
undanbragðalaus svör við því held ég að okkur
væri sæmst að reyna að gleyma bæði fyrsta des-
ember og 17. júní, því þá er það sýnilega 10. maí
sem telst vera örlagadagur íslenzku þjóðarinnar.
Þannig mælti Sigurður A.
Magnússun í ræðu sinni „ísland
á alþjóðavettvangi" á fullveldis-
hátið stúdenta í hátíðasal Há-
skóla Islands í gær, 1- desem-
ber. Var ræða Sigurðar í heild
mjög skorinorð og deildi hann
hart á afstöðu íslenzkra stjórnar-
valda í sjálfstæðismálum Islend-
inga, undirlægjuhátt þeirra og
spillingu. Jafnframt kom fram í
ræðu hans nokkur sjálfsgagn-
rýni. er hann lýsti því að hann
hefði i unphafi verið fylgjandi
aðild Islands að Atlanzhafs-
bandalaginu en illilega látið
blekkjast ásamt fleirum sama
sinnis.
Breytt staða Is-
lands í heiminum
í upphafi máls síns talaði Sig-
urður um hina breyttu stöðu Is-
lands í heiminum, vitnaði m.a. í
enska skáldið W. Auden sem sá
ísland í hillingum sem friðsæla
og einangraða ævintýraeyju langt
úti í hafi; hann vitnaði í ný-
gerða kvikmynd Reynis Oddsson-
ar um hemámsárin á fslandi,
þar 'sem breytingin kæmi skýrt
fram, og minnti á fyrstu alvar-
legu áminningu til fslendinga um
að þeir væri ekki lengur ein-
öngruð eyþjóð: málaleitan Þjóð-
verja um að þýzka flugfélagiö
Lufthansa fengi aðstöðu og
hvernig neitun fslendinga við
þeirri málaleitan hefði vakið að-
dáun um allan hem.
Síðan vék hann að heimsstyrj-
öldinni síðari, hernámi landsins
og því hvernig fslendingar hefðu
samt í lok styrjaldar verið nrðn-
ir fullvalda og sjálfstæð bjóð á
alþjóðavettvangi. Minnti síðan á
afdrifaríka málaleitan Banda-
rikjamanna er þeir föluðu af-
not landsins til 99 ára þrátt fyr-
ir skýlaus ákvæði í sáttmálanum
sem við þau var gerður við her-
námið 1941, þess efnis, að þeir
yrðu á brott af íslandi með all-
an herafla sinn strax að ófriði
loknum- Óskir um 99 ára samn-
inginn báru Bandaríkjamenn
Miðstjórnarfundur Alþýiu-
bandaíagsins hefst í dag
□ Um 70 manns víðsvegar að af landinu munu
sitja fund miðstjórnar Alþýðubandalagsins hér í
Reykjavík nú um helgina.
Fundurinn verður settur kl.
2 síðdegis í dag. laugardag, af
formanni Alþýðubandalagsins,
Hannibal Valdimarssyni, sem
einnig hefur framsögu um aðai-
dagskrármálið á fundinum í dag:
stjórnmálaviðhorfið.
Á morgun, sunnudag, verður
miðstjórnarfundinum haldið á-
fram kl. 1,30 sd. í fundarsal
Torsten Nilson
heim frá Moskvu
MOSKVU 1/12 — Sovétríkin og
Svíþjóð skoruðu í dag sameig-
inlega á Bandaríkin að hætta
loftárásum á N-Vietnam.
Þessi áskorun er sett fram i
sameiginlegri yfirlýsingu sem
gefin var út í Moskvu í dag er
fimm daga opinfoerri heimsókn
sænska utanríkisráðherrans Tor-
stens Nilsons lauk.
Domus Medica við Egilsgötu, og
er gert ráð fyrir að fundi ljúki
um kvöldið.
Auk umræðna um stjórnmáila-
viðhorfið verður fjallað um
skipulagsmál Alþýðubandalags-
ins á fundinum og hefur Lúð-
vík Jósepsson, varaformaður AI-
þýðubandalagsins, framsögu. Þá
verða og rædd önhur mál, sem
upp kunna að verða borin.
Sigurður A. Magnússon
fram 1. október 1945 og átti hann
að taka til þriggja hernaðarlegra
mikilvægra staða, Keflavíkur,
Hvalfjarðar og Reykjavíkur.
Ræður Gunnars
Th. og Sigurðar B.
Rakti Sigurður síðan hvernig
og á hvaða forsendum þessum
óskum Bandaríkjamanna hefði
verið hafnað og vitnaði m.a. í
fullveldisdagsræður Gunnars
Thoroddsens 1- des 1945 og Sig-
urður Bjarnason 1. des. 1946,
þar sem alvarlega var varað við
þeim hættum er af slíkri her-
vernd stafaði fyrir sjálfsforræði,
þjóðemi, tungu, siðferðisþrek,
hugsunarhátt og álit þjóðarinnar
út á við. Einnig vitnaði Sigurð-
ur í þingræðu Gunnars Thorodd-
sens þegar Keflavíkursamningur-
inn var gerður um afnotarétt
Bandaríkjamanna af Keflavíkur-
flugvelli til 6*A árs, er hann
sagði um herstöðvarmálaleitun-
ina að til lítils hefði þá verið
skilnaðurinn við Dani og stofnun
lýðveldsins skömmu síðar, hefði
átt að gera slika skerðingu á
sjálfstæði okkar, og lýsti því yf-
ir að þær raddir sem vildu her-
stöðvar hefðu verið kveðnar nið-
ur í eitt skipti fyrir öll og mál-
staður þjóðarinnar sigrað. Kvaðst
Sigurður rifja upp þessar um-
sagnir til að leiða í Ijós bjart-
sýnina og sjálfstraustið sem ís-
lendingar áttu í frumbemsku
lýðveldisins og svo vegna hins,
að orð Gunnars voru næsta ®pá-
mannlega mælt er hann varaði
við hættunum og lýsti afleiðing-
unum, yrði herstöðvarsamningur-
inn gerður.
Keflavíkursamn-
ingurinn 1946
Síðan lýsti hann hvernig Kefla-
víkursamningurinn 1946 varð
mesta hitamál íslenzkra stjóm-
mála á fyrstu árum lýðveldisins
og þeirri sálsýki, er einkennt
hefði skrif ísl. dagblaða um sam-
skipti íslands og Bandaríkjanna,
ofsanum sem greip um sig þeg-
ar minnzt var á jafnsjál-fsagðan j
hlut og íslenzka reisn og sjáífs- j
virðingu. Hann minnti á aðkast
það er Sigurbjörn Einarsson þá
dósent hefði orðið fyrir eftir full-
veldisræðu sína 1948 og hefði
hann þó sízt tekið dýpra í ár-
inni en Gunnar Thoroddsen við
sama tækifæri þrem árum fyrr.
Hvað hafði þá gerzt? spurði
Sigurður og kvað það verða eitt
af eggjandi verkefnum sagn-
fræðinga í framtíðinni að ráða
þá snöggu og róttæku hugarfars-
breytingu sem átt hefði sér stað
meðal ráðamanna bjóðarinnar á
árunum 1945 til 1951.
Framhald á 3. síðu.
Margrét Margeirsdóttir.
AlþýðubandalagiÓ
í Reykjavík
Umræðufundur verður um
æskulýðsmál n.k. mánudag kl.
20.30 í Lindarbæ uppi. Rætt
verður meðal annars um eftir-
talin atriði:
Hvað er æskulýðsstarfsemi?
Jafnrétti konunnar og móður-
hlutverk hennar.
Samband kynslóðanna.
Menntunaraðstaða unglinga.
Uppeldisáhrif verzlunarstéttar-
innar-
Meðal þátttakenda verða: Jónas
Ámason, Sigurjón Björnsson,
Margrét Margeirsdóttir og ída
Ingólfsdóttir-
Umræðustjóri verður Ólafur
Einarsson.
Fundurinn er öllum opinn, en
sérstaklega eru unglingar og
mæður boðin velkomin.
Rafmagnslaust í gærmorgun
i miðborginni og í Kópavogi
☆ Kl. 8.55 í gærmorgun bilaði háspennustrengur er iigg-
ur milli Grettisgötu og Bókhlöðustígs og fór við það
rafmagn af 6 spennistöðvum, þar af þremur í miðbæn-
um. Viðgerðin tók röska tvo tíma og var komið raf-
magn aftur á síðasta hverfið kl. 11.35.
☆ Um svipað leyti í gærmorgun fór rafmagn af nokki-um
hluta Kópavogs, Bröttubrekku, Lyngbrekku, Auðbrekku
og nágrenni. Þar hafði skurðgrafa rofið háspennustreng
rétt við spennistöðina og við það sprungu háspennu-
öryggi í stöðinni. Tók viðgerð við þessa bilun nokkuð
á annan klukkutíma.
Kristján Thorlacius, formaður B.S.R.B.
Munum leitu nýrru ráSu í buráttunni
Kristján Thorlacius
1 gærdag átti Þjóðviljinn
viðtal við Kristján Thorlacius,
formann B.S.R.B., um úrskurð
Kjaradóms varðandi kjör op-
inberra starfsmanna ríkis og
bæja.
— Hvernig lízt yður á
þennan úrskurð, Kristján?
— Hér er ekki um neina
lausn að ræða varðandi kjör
ppinberra starfsmanna af
þeirri einföldu ástæðu, að
launin standa í stað og eru
óbreytt frá því sem þau voru-
Það tekur varla að ræða hin-
ar óverulegu breytingar á á-
kvæðum um vinnutíma fyrir
einstaka starfshópa innan
samtakanna.
— Hvernig viljið þér svara
þessum úrskurði Kjaradóms?
— Enginn vafi er á því, að
opinberir starfmenn geta ekki
lengur sætt sig við svona úr-
skurði. Stefna ber að því að
afnema svona dóma og ná
fullum samningsrétti fyrir
samtökin. Nú verðum við að
hella okkur af fullum krafti
út í baráttu, — ekkert nema
baráttu, og með ótvíræðri
samstöðu verðum við að knýja
fram réttmæti krafna okkar.
Ríkisvaldið hefur ekki teflt
drengilega við starfsmenn
sína að undanfömu. Barátt-
una verður þessvegna að
herða. Þannig verðum við að
leita nýrra ráða í baráttunni
— verkfallsréttinn verðum við
að fá.
Hitt er nú brýnni höfuð-
nauðsyn en áður að efla sam-
stöðu heildarlaunþegasamtaka
landsins. Þar á ég við Banda-
lag starfsmanna ríkis og bæja
og Alþýðusamband Islands.
Gagnkvæmur skilningur milli
forystumanna þessara sam-
taka eflir hag þess launafólks,
er við höfum verið kjömir
til að starfa fyrir. — g.m.