Þjóðviljinn - 03.12.1967, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 03.12.1967, Blaðsíða 2
2 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 3. desember 1967. Hlutafjárútboð S T Á L V í K H.F. hefur ákveðið að auka hlutafé sitt. Lysthafendur geri svo vel að hafa sam- band við skrifstofu félagsins í síma 51900 og 51619. Aðventukvöld Það er nú orðinn fastur liður hjá Bræðrafélagi Bústaðasóknar að gangast fyrir kvöldskemmtun fyrsta sunnudag í aðventu. Aðventusamkoman verður í Réttarholtsskóla sunnudaginn 3. desember kl. 8.30 e.h. Aðalræðumaður kvöldsins verður séra Jón Thor- arensen. Kirkjukór Bústaðasóknar syngur sálmalög eftir E. Grieg, F. Schubert, Bortriansky, Gísla Pálsson og fleiri. Jón G. Þórarinsson leikur verk eftir Bach og Max Reger, á orgel. Formaðúr Bræðrafélags Bústaðasóknar, Hermann Ragnar Stefánsson flytur stutt ávarp. Kern Wisman, amerískur skiptinemi, sem dvelur í sókninni þetta árið, segir frá undirbúningi jóla og jóiahaldi heima. Hann talar íslenzku. Sóknarpresturinn, séra Ólafur Skúlason hefur helgistund, sem lýkur með því að jólaljósið verð- ur tendrað. — Almennur sálmasöngur. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Hermann Ragnar Stefánsson. Pilkington postu/íns- veggflísar Ávallt í miklu úrvali. Litaver sf. Grensásvegi 22 — 24. — Símar 30280 og 32262. Verz/unarfó/k Nú gefst yður kærkomið tækifæri að auka þekk- ingu yðaf og fæmi i starfinu: Nýjar námsgreinar við Bréfaskóla SÍS og ASÍ: Almenn búðarstörf ________ Námsgjald kr. 400,00 Kjörbúðin ................ Námsgjald kr. 300,00 Bréfaskóli SÍS og ASÍ. ISLENDINGAR OG HAFIÐ Ákveðið hefur verið að efna til SAM- KEPPNI um bugmynd að merki sýningarinnar „íslendingar og hafið“, sem fjalla mun um sjávarútveg og sigl- ingar íslendinga og haldin verður í Sýningarhöll- inni í Laugardal á vori komanda. Merkið er ætl- að sem tákn sýningarinnar og þarf að vera hægt að gera prjónmerki eftir því. Nafn sýningarinnar — Islendingar og hafið — skal fellt inn í merkið. Hugmyndir, sem sé um það bil 20x30 sentimetrar á stærð, sendist undir dulnefni til Skrifstofu Sjómannadagsráðs Hrafnistu, Reykjavík. eigi síðar en 10. janúar 1968. Hverri hugmynd fylgi nafn höfundar í lokuðu um- slagi. sem merkt sé á sama hátt og tillagan. Veitt verða ein verðlaun, kr. 15.000, fyrir þá hug- mynd, sem verðlaun hlýtur eftir úrskurði dóm- nefndar, en hana skipa þrír menn, þar af einn frá Félagi íslenzkra teiknara, og verður samkennninni hagað í samræmi við keppnisreglur þess félags. 1. desember 1967. Framkvæmdastjórn sýningarinnar. Þórarinn Jónsson Fæddur 9. júní 1948 — Dáinn 28. október 1967 Dagblöðin að heiman fluttu mér fregnina um, að Þórarinn Jónsson væri látinn. Ég gat ekki fylgt honum til grafar né vottað foreldrum hans samúð mína, og því kýs ég að minn- ast hans á þennan hátt. Ég sá þennan unga mann í fyrsta skipti, þegar hann inn- ritaðist í Menntaskólann í Reykjavík fyrir þremur árum, lítill, grannvaxinn, laglegur og geðþekkur í framkomu. Þægi- legt viðmót hans bar vott um gott uppeldi góðra foreldra, glaðvær og áhyggjulaus æsku- ár á góðu heimili, enda reynd- ist hann hinn ágætasti nemandi og skólafélagi. Síðastliðinn vet- ur veiktist hann, og okkur varð€> fljótlega ljóst, að alvarlegur' sjúkdómur hafði heltekið hann. Við vonuðumst öll, að örar framfarir læknavísindanna yrðu á undan vágestinum, en sú von brást. Engin orð fá lýst þeirri raun, sem það var kennurum hans og okkur öllum að bíða með honum og vita, að honum var sjálfum ljóst, að hverju stefndi. Ég hafði lítillega kynnzt hon- um, eftir að hann veiktist, vegna þess að hann gat ekki tekið próf sín á réttum tíma. Ég talaði seinast við hann nú í haust. Ég var á förum utan, og við vissum bæði, að við mundum ekki sjást aftur. Á bak við broslegt spjall okkar Endurminningar um LENÍN Höfundar: Anna Úljanóva — Jelizarova. Nadesda Krúpskaja — Maxim Gorkí. ☆ ☆☆☆☆☆ Halldór Stefánsson íslenzkaði. ☆ ☆☆☆☆☆ Bókin er gefin út að tilefni 50 ára afmælis byltingarinnar í Rússlandi. Meginuppistaða hennar eru valdir kaflar úr hinu sígilda riti um Lenin eftir Krúpskaju, konu hans og samstarfsmann, og eru þar raktir ýmsir mikilvægustu atburðir úr stjómmálasögu hans, en um bemskuár Leníns og lífsferil fram að því er Krúpskaja kynnist honum er farið eftir end- urminningum Önnu systur hans. Og loks er tekin upp í bókina hin al- kunna grein sem Gorkí ritaði að Lenín látnum. Verð ib kr. 320,00 (án söluskatts). HEIMSKRINGLA johSo! Misgjörö ir skáidsoga feðranna ^É^^^^Gísli Jónsson.fyrrverandi alþingismaður.kveður sér hljóðs sem skáldsagnahöfundur með bók þessariiEn áður er hann þólöngu þjóðkunbur af ritstörfum fyrir' ferðaþættina í „Frekjnnnl", sem kom út 1941, og hina áhrifamiklu og sérstæðu' frásögn „Frá foreldrum mínum“ sem kom út haustið 1966. Einnig hafa birzt eftir Gísla Jónsson Ijóð og ritgerðir í ýmsum blöðum og tímaritum. I skáld- sögunni MISGJÖRÐIR FEÐRANNArekur hofúndur örlaga ríka íslenzka ættarsögu, — harmsögu, sem nær .út yfir iandamæri lífs og dauða. ©auglýsingastofan SETBERG jðJson Misgjörðir feðranna Skáldsaga < 'W Seiberg var þögull og gagnkvæmur skilningur, gagnkvæm samúð, sem er svo fátíð milli tveggja vandalausra manneskja í misk- unnarlausum heimi. Fyrir þessi augnablik er ég þakklát, þetta var góð stund og falleg. Það er einlæg von mín, að foreldrar Þórarins, frú Gunn- laug Hannesdóttir og Jón Þór- arinsson, svo og aðrir ættingj- ar hans og vinir, beri sorg sína með þeim styrk, sem þeir veittu honum í veikindum hans. Það má vera þeim huggun, að hér lauk lífi, sem aldrei hafði verið nema til góðs eins- Edinborg, 29. nóvember 1967 Guðrún Helgadóttir. Skattar í Danmörku KHÖFN 1/12 — Ætlunin er að minnka hlut óbeinna skatta í dönsku ríkistekjunum, en auka hlut beinu skattanna. Þetta verður ljóst af fjárlagafrumvarpi stjórnarinnar sem lagt var fram á þjóðþinginu í gær. Samkvæmt því á hlutfallstala tekjuskattsins af heildartekjum ríkisins að hækka úr 34,9 prósént í ár í 37,5 prósent næsta fjár- hagsár, en hlutur neyzluskattanna að lækka úr 59,6 prós. í 57,2. Tekju- og eignarskattur mun hækka um meira en fjórðung, eða um 1,8 miljarð d. kr. Tollar og neyzluskattar hækka um 1,4 miljarð króna eða um 23,8 pró- sent. Síðan 1952 hafa skattatekjur danska ríkisins sexfaldazt að krónutölu, en hlutfall skattanna af tekjum skattgreiðenda hefur einnig hækkað mjög eða úr 24 prósentum 1952 í 40 á næstá ári. Viðtðlsbók effiir Stefán fréttamann Ægisútgáfan hefur gefið útbók eftir Stefán Jónsson fréttamann sem nefnist „Líklega verður róið í dag“ og ber undirtitilinn „rabbað við skemmtilegt fólk“, Þetta eru viðtalsþættir, upp- runalega teknir upp fyrir útvarp, en sem Stefán Jónsson hefur síð- ar hagrætt þeim og breytt. til prentunar. Meðal þessa skemmtilega fólks sem lesanda er lofað eru þau Steinþór Þórðarson á Hala, Höskuldur Eyjólfsson á Hofsstöð- um, Jóhannes í Vallholti, Marka- Leifi, Runólfur Pétursson, Rakél Bessadóttir galdramanns. Og annað merkisfólk. Þættir Stefáás hafa eins og kunnugt er veríð eitt vinsælasta efni útvarpsihs. * Bókin er 187 bls. pren'tuð 1 í Prentsmiðju Jóns Helgasonar. Friðrik teflir f jöitefli í dag f dag kl. 2 e.h. teflir Friðrik Ólafsson stórmeistari fjöltefli í Sjálfstæðishúsinu í Kópavogi. Er það Skáksamband íslands sem fyrir þessu gengst og er ætlunin að síðar tefli Friðrik- og fleiri góðir skákmenn fjoltéfli hjá skákfélögunum í Hafnarfirði, Akranesi, Keflavík, Selfossi og viðar og eru fjöltefli þessi eink- um ætluð unglingum. Kaupið Minningakort Slysavarnafélags íslands.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.