Þjóðviljinn - 03.12.1967, Side 7

Þjóðviljinn - 03.12.1967, Side 7
Sunnudagur 3. desember 1967 — X>JÓÐVILJINN — SlÐA J Miðstöö sovézkrar upplýsingaþjónustu Fréttastefan APN í Moskvu var sett á laggirnar í febrúar 1961. Að stofnun hennar stóðu nokkur félagasamtök, þar á meðal Blaðamannasamb. Sov- étríkjanna, Rithöfundasamband- ið og samband menningar- og vináttutengsla Sovétríkjanna við önnur lönd. APN er starf- rækt af þessum samtökum og er því ekki ríkisfyrirtæki, eins og t.d. b’ASS. Tilgangurinn með stofnun APN var fyrst og fremst sá, að veita sem beztar og sannastar upplýsingar um sovézkt þjóðlíf á erlendum vettvangi, enda hefur engin vanþörf verið á slíkri fræðslu á Vesturlöndum, þar sem lygisögur og ýkjur haía löngum verið aðaluppistaðan i hugmyndum fólks um þetta víðlenda ríki í austri. APN á ekki lítinn þátt í þeirri ger- breytingu, sem orðið hefur á þessum hugmyndum nú á síð- ustu árum. Fréttastofan hefur vaxið ört og dafnað og er nú orðin að voldugu fyrirtæki, sem teygir arma sína um allan heim frá aðalstöðvunum við Púskintorg í Moskvu. APN veitir eriendum frétta- stofum og útgáfufyrirtækjum upplýsingar um innan- og ut- anríkispólitík Sovétríkjanna, efnahags- og menningarlíf þjóð- arinnar, og um afstöðu sovét- borgara tiil mikilvægra atburða og málefna innanlands og utan. Ennfremur dreifir APN upplýs- ingum um önnur lönd til sov- ézkra blaða, sjónvarps og út- varps. Á vegum APN eru gefin út tímarit, blöð og bækur um Sovétríkin í 110 löndum i öll- um heimsálfum. Sterkustu og víðlesnustu tímaritin eru: Sovi- et Land (gefið út í Indlandi á 12 indverskum málum, nep- ölsku og ensku). Soviet Life (gefið út í Bandaríkjunum), Soviet Weekly (í Englandi). Þá hefur APN samstarf við erlend útgáfufyrirtaeki um útgáfu á bilöðum og bókum um Sovétrík- in. Af slíkum bókum má nefna t.d.: „Sovétríkin, Spurningar og svör“, „Saga Moskvu og fbúa hennar“, „Sovézk félagsfr,æði“, „Saga rússneska ballettsins", Alfræðiorðabók um Sovétríkin. APN gefur út árbók á mörgum tungumállum. Þar getur að líta í samþjöppuðu formi efni, sem fréttastofan hefur viðað að sér yfir árið. Nýlega hófst útgáfa á mánaðarritinu „Spútnik11, sem er svipað að formi og „Readers Digest" og hefur að geyma úr- val greina og fróðleiksmola úr sovézkum blöðum og tímarit- um, ríkulega myndskreytt. Um 7500 manns vinna hjá APN. Meðal þessa fólks eru margir frægir blaðamenn, rit- höfundar og vísindamanna, sov- ézkir og erlendir. 1 ár hefur þetta fólk meira að gera en nokkru sinni fyrr vegna fimm- tíu ára afmælis Októberbylting- arinnar og heiminn þyrstir í fréttir af afmælisbarninu. Fréttaritarar APN eru á þönum um Sovétríkin og þefa hvar- vetna uppi fréttir af bylting- unni; hverju hún hefur komið til leiðar á þessum 50 árum, geta sér til um hvensu henni muni vegna á næstu 50 árum. Skrif þeirra birtast í bóka- flokknum „Sovétrfkin í gær, í dag og á morgun“. Þar er fjall- að um efnaihagsmál, vísindi, uppeldis-mál, menningu og al- menn lífskjör þjóðarinnar. APN er blómleg og vaxandi stofnun. í stónhýsinu við Púsk- intorg þagnar síminn hvorki að nóttu né degi og glerhurðin i anddyrinu leggst sjaldan að stöfum. önnum kafnir bílaða- menn þjóta um gangana, hróp og köll blandast við ritvéla- kliðinn og suðið í símritanum. 7. nóvember er á næsta leiti þegar þetta er skrifað og þann dag skal allur heimurinn lífca til Sovétríkjanna, föðurlands byitingarinnar, þangað sem vinnandi fólk hefur jafnan sótt sér fordæmi og stuðning. Ingibjörg Haraldsdóttir APN. Nokkur tímaritanna sem út eru gefin af sovézku fréttastofunni APN. Hugleiðingar um ó-í-munn-beranlegan stað í sumar er ég skrifaði pistilinn um hinn eilífa kvalastað for- dæmdra, sem segja má að- síra Snorri á Húsafelili hafi sannað að sé þar undir sem hann lifði mestallan aldur sinn (er þetta sagt Borgfirðingum til guðræki- legrar umþenkingar), þá vissi ég þa_ð ekki að kirkjuhöfðingj- ar á íslandi eru aftur farnir að boða þessi eilífu sannindi, sem hlé hefur orðið á að boðuð væru síðan sú furöa gerðist hér og ámátleg undarlegheit, að anda trúarmaður varð prófessor í guðfræði við Háskóla Islands, og hélt því embætti til dauða- dags, enda blöskraði prófessor Hallesby ákaflega, þegar hann kom, trúarástandið á Islandi og sagðist vona að (kaldir) vindar trúarvakningar færu að næða um íslands þurru þorp ogsveit- ir. Hversu fagnaðarríkt, að Hall- esby skyldi verða ofan á! Hallelúja skulum vér hrópa með hæstum gný! Og boðið þér nú Helvíti, þér klerkar, boðið það vel! Ekki mun af veita. Fyrst mundi tiltækilegt að gæta þess hvað Helvíti er, síð- an hvar það er. Samkvæmt Helgakveri er Heílvíti: „ævinlegur kvalastaður í sambúð við illa anda, án vonar um frelsun". Samkvæmt Dante Alighieri, sem manna fróðastur var um Helvíti því hann var einn hinna fáu sem þangað hafa komið í lifanda lífi, (og eftir það dróg- ust munnvik hans um allt að því 90 gráðu horn niður á við), samkvæmt hans vitnisburði er Helvíti merkilegur vitnisburður um algæzku (il primo amore), réttlæti (giustizia) og alvizku (la somma sapienza) guðs, og hefur hann engan stað skapað, sem varanlegri eigi að vera. 1 gömlum prestaræðum frá 17. öld og 18. og allt fram að þessari kvað vera mikla auð- legð að finna um þennan ógn- arlega dvalarstað og skelfilega pyndingapláss, og mætti þar margt fagurt til tína til sann- indamerkis um þann ágapa (kærleika) réttlæti og vizku, sem hvatti il alto fattorc til að gera þennan eilífðar-kvalastaö. En því get ég þeirra Snorra og Dantes fyrst, að þeir höfðu „syn for sagn“ svo sem komizt er að orði í dönsku. Fór annar niður, en hinn horfði niður. I mínu ungdæmi voru Hel- vítisboöendur flestir fyrir bí, að mig minnir, nema einn (að mig minnir), og hann var á vegum danskra samtaka. Minnir mig hann tala heldur hógværlega, og segja færra en efni stóðu til, nema hvað hann laumaði út úr sér þessari setningu: En ef það væri! En þar með var líka nóg sagt. I Danmörku hélt ég vera mikla trú á Helvíti, og fannst hana leggja að úr ýmsum átt- um. Ekki fylgdi henni svo sem neitt, að ég fann, nema óskil- greinileg ónot, eins og þegar vond kona vill gera óvelkomn- um gesti (þó að hún hafi boð- að hann á sinn fund) illt til, og setur einhvern rækals ófögnuð í matinn (eöa hefur komið slíku í matinn með langvinnri geymslu og mulli), svo gestin- um verður illt og ætlar að deyja. En allir trúðu, eins og vera ber, á Helvíti. Nú vildi ég vita á þessum stað nánari skil af munni þess- ara réttlátu kvenna, sem á Hel- víti trúðu. Ég spurði þær hvar sá staður væri: Ein svaraði með þjósti: Om Helvede vil jeg ikke udtale mig, for det er Det Onde. — Ég segi ekkert um Helvíti, því það ér Hið illa. — Og á- fram hélt ég að jagast um að ég skyldi frædd um þetta tópó- grafiska atriði, unz öllum kom saman um að mér skyldi sökkt þangað niður. Svar fékk ég aldrei neitt. En þó að fáfróðar hjúkrunar- konur gætu ekki svarað þessu, gat ítalska skáldið sem fræg- ast er allra skálda, gert það því betur. Halvíti er, sam- kvæmt vitnisburði hans, langt í jörð niðri og gerði hann af því uppdrátt. Það er stærst um sig efst, og heitir þar fyrst Limbo, þaðan eiga menn afturkvæmt sumir, en sumir ekki. Þangað fara óskírð börn, og góðir heið- ingjar, og aðrir meinlausir menn, sem ekki hafa uppfyllt skilyrðin fyrir upptöku annars- staðar (í skárri stað). Á næstu hæð fyrir neðan Limbo (Limbó er raunar á tveim hæðum) er hið vægasta Helvíti, þar svífa frægir elskendur brotlégir um eilífð í lofti með hníf í gegnum sig, og stingur sami hnífurinn bæði í gegn. Aldrei verður lát á þeirra svifi, aldrei losna þau við hnífinn. Þar fyrir neðan telst mér vera 17 hæðir, og harðnar atlætið eftir því sem. neðar kemur, enda verður þar hver þrjóturinn öðrum argari, Allra neðst situr Satan og er þríhöfðaður þurs eins og í ís- lenzkum þjóðsögum og hefur uppi í sér þrjá höfuðþrjóta og tyggur þá, en þetta eru bana- menn Júlíusar Sesars og sá ó- lánsmaður, sem sveik herra sinn með kossi, nú fær hann makleg málagjöld. (Rafaello Santi hefur gert mynd af Dante þar sem hann er sýndur allur sótugur í fram- an úr ferðinni, krýndur lárvið- arlaufi, óhagganlega sannfærð- ur um hið eilífa böl, og dregur munnvikin fjarskalega niður). Þarna á Satan góða ævi, svo sætir sem honum eru í munni höfuðþrjótar allra þrjóta, og aldrei verða þeir fulltuggnir, sá veizlufagnaðar varir um eilífð. M.E. Félag áhugamanna um fiskirækt: Tryggður sé f járhagsgrund- völlur klak- og eldisstöðva Fyrsti aðalfundur Félags á- hugamanna um fiskrækt var haldinn 9. nóvembcr síðastlið- inn, en félagið var stofnað af nokkrum áhugamönnum um fiskrækt 6. júní 1966. í félag- inu eru nú 170 félagsmenn. Síðastliðið starfsár hélt fé- lagið 2 útbreiðslufundi. Á þeim fyrri hélt veiðimálastjóri, Þór Guðjónsson, erindi um fiskrækt en á hinum síðari hélt Aðal- steinn Sigurðsson fiskifræðing- ur erindi um fiskeldi í sjó og skýrði frá tilraunum Breta við ræktun skarkola. Einnig var sýnd kvikmynd frá þeim til- raunum. Hafði ræðismaður Breta, Brian Holt, lánað fé- laginu þessa kvikmynd. Auk þess hafa verið haldnir nokkrir stjórnarfundir. Félagið beitti sér fyrir því að fjárveiting til ráðstafana vegna fiskeldis og fiskvega varð hækkuð úr 350 þús. kr. í 700 pús. kr. Frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1967 hafði hinsvegar gert ráð fyrir kr. 350 þús. Formaður íélagsstj. Bragi Eiríksson las skýrslu stjómar- innar og bar fram nokkrar til- lögur til samþykktar. Eftir nokkrar umræður voru eftir- farandi tillögur samþykktar: ITm fjáröflun til klak- og eldisstöðva Fundurinn benti á aðkallandi nauðsyn þess að skapaðir verði fjárhagsmöguleikar fyrir stofn- un og rekstur klak- og eldis- stöðva laxfiska í landinu hið allra fyrsta. Benti fundurinn í þessu sambandi á eftirtalin meginatriði í þessum efnum: 1) Að á fjárlögum verði stór- hækkaður styrkur sá, sem landbúnaðarráðherra er heimilað að veita til þess- arar starfsemi einstaklinga og félaga. 2) Að skylda beri þá aðila, sem virkja fallvötn landsins og þannig hindra fiskigengd, að þeir leggi fram ríflega upphæð til þessara mála, svo sem gert er í nágranna- löndum vorum á Norður- löndum. 3) Framkvæmdasjóður ríkisins láni til þessarar starfsemi og þróunar þessara mála í landinu hagkvæm ián tii langs tima, innan ákveðinn- ar upphæðar frá ári til árs, í samræmi við þróun þeirra og vöxt. 4) Að Stofnílánadeild landbún- aðarins verði heimilt að verja ákveðnum hluta láns- fjárs síns til þessara mála árlega til að örva þróun þeirra og íramgang. Þá skoraði fundurinn á Al- þingi það, sem nú situr, að taka mál þessi föstum tökum og tryggja vöxt þeirra og við- gang í þessum efnum á eðli- legan og sjálfsagðan hátt, svo sem nú er viðurkennt og við- tekið meðal allra menningar- þjóða heims. Um fræðslu í fiskrækt Fundurinn beindi þeirri á- skorun til Alþingis og ríkis- stjórnar, að tekin verði sem fyrst upp kennslugrein við búnaðarskólana í landinu um uppbyggingu og rekstur klak- og fiskeldisstöðva. Jafnframt verði hafinn undirbúningur að því að Háskóli íslands geti veitt vísindalega fraeðslu og brautskráð kunnáttumenn í málefnum þessum. Cm þingsályktunartillögur Fundurinn fagnaði þings- ályktunartillögu þeirri, sem fram var borin á 87. löggjafar- þingi 1966 um fiskeldisstöðvar. Jafnframt lýsti fundurinn stuðningi sínum við þingsálykt- unartillögu. sem fram var bor- in á 86. löggjafarþingi 1965 um stofnun klak- og eldis- stöðvar fyrir laxfiska við Laxá í Aðaldal, Suður-Þingeyjar- sýslu, enda sé tryggt aukið fjármagn til reksturs þeirra fiskeldisstöðva, sem þegar eru starfandi í landinu. Þá var það eindreginn vilji fundarins að skora á Alþingi Framhald á 9. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.