Þjóðviljinn - 05.12.1967, Page 1

Þjóðviljinn - 05.12.1967, Page 1
Þriðjudagur 5. desember 1967 — 32. árgangur Gerið skil í Happdrætti Þjóðviljans. Dregið verður eftir 18 daga Einróma samþykkt miðstjórnarfundar Alþýðubandalagsins: Alþýðubandalagið verði gert að formlegum sósíalískum flokki □ Á miðstjórnarfundi Alþýðubandalagsins sem haldinn var laugardag og sunnudag var samþykkt tillaga þar sem segir m.a.: □ „Miðstjórnin telur að reynslan hafí sýnt, að óhjákvæmilegt sé að hefja nú þegar undirbúning að því að gera Alþýðubandalagið að formlegum sósíalískum stjórnmálaflokki, er ekkí heimili með- limum sínum þátttöku í öðrum stjómmálaflokk- um eða samtökum sem telja má flokkspólitísk“. □ í þessu skyni voru kosnar skipulags- og laga- nefnd og stefnuskrámefnd sem eiga að undirbúa þau mál til umræðu innan Alþýðubandalagsins og til endanlegrar ákvörðunar á landsfundi næsta ár. Einnig var á fundinum kosin framkvæmdastjórn^ Alþýðubandalagsins til eins árs. Tillagan uim skipulagsmálin var í heild á þessa leið: ,,Miðstjórn Alþýðubanda- lagsins telur einsýnt, að á þeim viðsjárverðu tímum, sem framundan eru, verði að gera etrangari kröfur en til þessa um baráttuhæfni Alþýðu- bandalagsins, eigi það að vera fært um að veita þá forustu, sem til verður að ætlast í réttinda- og kjarabaráttu al- þýðunnar og sjálfstæðisbar- áttu þjóðarinnar. Þess vegna telur miðstjóm- in, að ekki megi lengur drag- ast að gera nauðsynlegar ráð- stafanir til að treysta starfs- grundvöll Alþýðubandalagsins til frambúðar. Miðstjórnin telur, að reynsl- an hafi sýnt að óhjákvæmi- legt sé að hef ja nú þegar und- irbúning að því að gera Al- þýðubandalagið að formlegum sósíalískum stjórnmálaflokki, er ekki heimili meðlimum sínum þátttöku I öðrum stjórnmálaflokkum eða sam- tökum, sem telja má flokks- pólitísk. í þessu skyni kjósi fundur miðstjórnar tvær nefndir, 7 manna skipulags- og Iaga- nefnd og 9 manna stefnu- skrámefnd. Er lögð áherzla á, að nefndirnar hraði störfum og skili áliti til framkvæmda- stjómar eigi síðar en fyrir Framhald á 2. síðu. Bazar - Bazar - Bazar - Bazar Q Bazar verður í Tjamargötu 20 í dag, þriðju- Q dag, kl. 2-5 síðdegis. — Margir fallegir, nyt- Q samlegir og eigulegir mumir, heppilegir til Q jólagjafa. — Kvenfélag sósíalista. Frá miðstjórnárfimdi Alþýðubandalagsius um hielgina. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.) Útvegsbankinn lætur sig ekki í Eyjum Átti ai gera þar að Sjö innbrot um he/gina Brotizt var inn á sex stöðum um helgina, þar af tvisvar á sama stað, en yfirleitt Jitlu stol- ið, nokkram hundruðum króna og matvælum. Flest innbrotin voru framin aðfaranótt sunnudagsins, þá var brotizt inn í verzlunina Sild og fisk við Hjarðarhaga, stolið það- an 30-40 krónum í peningum, sinnepi, fistobolludósum og súpu- pökkum. Einnig var farið inn í mjólkurbúð í sama húsi og stol- ið 300-400 krónum auk nokkurra gosdrykkjaflaska. Sömu nótt var brotizt inn í Melabúðina og stol- ið 2500 krónum og vindlingum og í Smurstöðina Saetúni 4 og stolið um 40 kr. í skiptimynt. Þá var brotizt inn í Múlakaffi bæði aðfaranótt sunnudagsins og aðfaranótt mánudagsins og stol- ið 5-800 kr. fyrri nóttina og 1500 kr. i síðara skiptið. Eftir hádegi á sunnudag var svo brotizt inn f Bananasöluna, en engu stolið nema banönum sem étnir voru. □ Allt situr við það sama í verkfalli Verkakvennafélags- ins Sóknar í Vestmannaeyjum gegn fjórum frystihúsum í Eyjum. Hefur enginn sáttafundur verið boðaður ennþá, sagði Guðmunda Gunnarsdóttir, formaður Sóknar í við- tali við Þjóðviljann í gærdag. Síld barst hingað til Eyja á laugardaginn og var ætlunin að panna og frysta eitthvað af þess- ari síld í stóru frystihúsunum. Var farið fram á að láta karl- mennina vinna störf verkakvenn- anna, en enginn karlmaður fékkst til þess að brjóta slíkt af sér gagnvart okkur konunum, — er verkfallið nú algjört hjá frysti- húsunum, — nær ekkert síður til karlmanna en kvenfólksins, Sósíaiistafélagið rœðir efnahagsmólin í kvöld — og viðbrögð verkalýðshreyfingarinnar 1 kvöld heldur Sósíalistafé- lag Beykjavíkur félagsfund í Tjamargötu 20. Helzta mál fundarins er viðhorfið í efna- hagsmáium og verður fram- mælandi Lúðvík Jósepsson, alþingismaður. Reykvískra sósíalista bíður nú ekki annað verkefni brýnna en að hrinda þeirri órás sem ríkisstjórnin hefur gert á lífs- kjör adls almennings i land- inu. Á fundinum í kvöld verða þessi mál ítarlega skýrð og rædd af þeim er gleggst þekkja til. Auk Lúðvíks Jós- epssonar mun Eðvarð Sigurðs- son, allþingismaður ög formað- ur Verkamannafélagsins Dags- brúnar, ræða þá hlið þessara mála, sem að verkalýðshreyf- ingunni snýr, en um fátt er nú' meira talað en afstöðu og aðgerðir þeirra samtaka. .Vísi- töíugrundvöllinn hefur mjög borið á góma í þessum um- ræðum, en fjarri mun þvi fara, að allir hafi lagt þau mál niður fyrir sér eins ítar- ega og vert væri. Hjaiti Krist- geirsson, hagfræðingur, mun ræða það mál á fundinum. Félagsmenn í Sósíalistafé- lagi Reykjavíkur eru hvattir til að fjölmenna, mæta stund- vísléga og sýna félagsskírteini við innganginn. Fundurinn hefst klukkan 8.30. þó að karlmennirnir séu ekki í verkfalli ennþá, sagði Guð- munda. Síldin er barst hingað á laug- ardag var hinsvegar söltuð og fryst hjá minniháttar fiskverkun hér á staðnum. Þannig beinist verkfallið ein- göngu að þeim fjórum frysti- húsum hér í Eyjum, sem ein- skorða sig yið greiðslufyrir- komulag, er Útvegsbankinn hér heimtar að sé við líði til þess að geta náð í sparifé fólksins. Á laugardag birtu hinir fjór- ir frystihúsaeigendur tilkynnipgu í ríkisútvarpinu þess efnis, að samskonar greiðslufyrirkomulag sé við lýði annars staðar á land- inu og tiltóku þar sérstaklega SÍS og Samvinnubankann í Reykjavík, sagði Guðmunda. Hér er farið með rangt mál af hálfu frystihúsaeigenda, þar sem dæmið er tekið af mánað- arkaupsfólki í Reykjavík og get- ur viðkomandi mánaðarkaups- maður ráðið því. hvort hann fær kaupið greitt í peningum. Við erum hins vegar rígbund- in við Útvegsbankann og okkur gert að skyldu að kaup okkar renni annaðhvort inn á ávísana- reikning eða sparisjóðsreikning hiá hnnnm Bráðabirgðasamkomulag okkar um þetta greiðslufyrirkomulag rann út 15. nóvember 1967 við frystihúsin og vildum við ekki endurnýja samninginn aftur. Við öfluðum okkur verkfallsheimild- ar á sínum tíma með tilliti til þess að í odda skærist út af þessu. Það gerði Verklýðsfélagið hins vegar ekki og sögðust karl- mennirnir ekki trúa því, að þess þyrfti út af þessu formsatriði. Verkamenn eru ekki síður óán- ægðir yfir þessum hætti mála en við verkakonurnar. Forstöðumaður Sparisjóðs Framhald á 2. síðu. (sland-Búlgaría Félagið Island-Búlgaría heldur fund í kvöld, þriðjudag, kl. 8.30 í Hótél Sögu (hliðarsal við Súlnasal). Fjölbreytt dagskrá, m, a. ferðasögur, þjóðsögur og kvik- myndasýning. Fylkingin N.k. fimmtudagskvöld kl. 9 flytur Brynjólfur Bjarnason er- indi í Tjarnargötu 20 er nefnist: Forsaga Kommúnistaflokks ís- lands og starfsár hans. — ÆFR. Tveir 14 ára unglingar aivar- lega slasaðir eftir ákeyrslu Alvarlegt umferðarslys varð í Hvassaleiti á laugardagskvöld er bíi var ekið af miklum hraða aftan á tvo 14 ára unglinga, pilt og stúlku, sem bæði slösuðust mikið. Slysið varð rétt fyrir kl. 9 um kvöldið og voru unglingam- ir á leið vestur Hvassaleitið. Úr- hellisrigning var þetta kvÖld og mikið vatnsrensli og krapi við götubrúnina, en gatan auð, og býst lögreglan við að þau hafi gengið eftir götunni, en málið er ekki fullrannsakað. Bifreið- in var einnig á vesturleið og mun hafa ekið mjög hratt, og varð áreksturinn svo harður að annar unglinganna kastaðist upp á húdd bifreiðarinnar og lenti með höfuðið á framrúðunni. sem brotnaði við höggið. Pilturinn. Ingi Jón Hauksson, Hvassaleiti 19, var fluttur beint á Landakot. fótbrotinn og meidd- ur á höfði, en stúlkan, Mjöll Björgvinsdóttir, Miklubraut 16, á slysavarðstofuna og lá þar áfram til rannsóknar, og var ekk; vitað nákvæmlega um meiðsl hennar er blaðið talaði við lögregluna í gær, en hún hafði slasazt. á höfði.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.