Þjóðviljinn - 05.12.1967, Side 7

Þjóðviljinn - 05.12.1967, Side 7
Priðjudagur 5. dosember 1967 — ÞJÓÐVTLJINN — SÍÐA ^ Rögnvaldur Hannesson: Arásarstríð gegn Laos og Kambodíu Bandarískar herflugvélar dreifa eiturefnum yfir gróðursvæði og skóga í Vietnam. Hróarskeldu 29/11. — Árás- arstyrjöld Bandaríkjanna gegn Laos og Kombodíu er, auk Víet- nams, á dagskrá dómstólsins. I vor gerSi ég grein fyrir ásök- unum yfirhershöfðingja Kam- bódíuhers á Bandaríkjaher fyr. ir morðárásir á óbreytta borg- ara í landi hans. Margir hér í Vestri tóku frásögn Kombódíu- mannsins með afslætti, en nokkrum dögum seinna sendi fréttamaður Dagens Nyheter pistil frá Kambódíu, sem í veigamiklum atriðum kom heim og saman við frásögn hershöfðingjans. Bandaríkja- menn hafa lengi haldið því fram, að FLN hafi bækistöðvar í Kambodíu, en bví hefur verið neitað af hálfu Kambódíu- stjórnar. Hún bauð bandarísk- um blaðamönnum að koma til landsins og rannsaka málið. Sem ég nú rita þessar línur berast fregnir um það í blöðum, að þeir hafi í fylgd með tveim mönnum úr Kambódíu- her fundið fylgsni FLN af hreinni tilviljun á afskekktum stag í frumskóginum. Þessi fundur virtist koma Kambodíu- mönnunum algjörlega á óvart, segja hinir bandarísku blaða- menn. En ekki þarf litla for- herðingu til að halda því fram, að slíkir felustaðir í blóra við Hróarskeldu 29/11 — Dóm- stóllinn fékk óvænta heimsókn í dag, þýzki læknirinn doktor prófessor Erick Wulff starfaði í Hue í Suður-Vietnam frá því í september 1961 til 20. nóvem- ber 1967; daginn sem dómstóll- inn hóf störf sín hér í Roskilde. ,,Ég greip þetta tækifæri til að segja frá ástandinu í Suður- Vietnam. Margir vietnamskir vinir mínir, sem ekki geta látið skoðun sína í ljós, hvöttu mig óspart til að fara hingað.“ Wulff sagðist fyrst og fremst hafa séð afleiðingar styrjaldar- innar en ekki beinlínis sjálfan gang hennar. Landið líktist helzt hörundi sjúklings, sem þjáist af bólusótt. Þetta eru af- leiðingar loftárásanna og eitur- hernaðarins gegn gróðrinum, stór svæði hafa verið gert að auðn með eitri þessu. í borgun- um eru sannkallaðir skógar af gaddavír. Hver sá, sem vinnur fyrir stjórnina í Saigon víggirð- ir hús sitt rammlega með gaddavír. Bandaríkjamenn og stjórnin í Saigon gátu engum treyst úti á landsbyggðinni. Þá var gripið til þess ráðs að „hreinsa upp landsbyggðina“ eða „dæla sjón- um frá fiskunum" eins og stundum er sagt útfrá kenning- um Maós formanns. Banda- ríkjamenn varpa niður dreifi- bréfum og skora á fólkið að taka saman föggur sínar og koma til næstu víggirtu borgar. Hér má bæta inn í, að kúb- anska blaðakonan MARTA ROJAS hafði heim með sér svo- hljóðandi dreifibréf frá S-Viet- nam: „Vinir, herforingjar og her- menn Viet-Cong. Þið hafið orð. Kambódíustjórn réttlæti villi- mannlegar árásir á óbreytta borgara landsins. Rannsóknarnefnd, sem fór til Kambódíu á vegum Russell- dómstólsins, yfirheyrði m.a. hermann af Khmer-þjóð- flokknum í S-Víetnam. Hann hafði barizt með Bandaríkja- mönnum. Hann sagðist hafa flúið vegna þeirra ofsókna, sem þjóðflokkur sinn sætti; Khmer- þjóðin fengi ekki að nota tungumál sitt í skólum og bænahúsum, heldur yrði að taka upp víetnömsku. Fólk væri neytt til að taka upp víetnömsk nöfn. í Kombódíu eru margir flóttamenn frá S-Víetnam af þessum þjóðflokki. Ástralski blaðamaðurinn Wilfred Burchett rakti sögu átakanna í Laos allt frá Genf- arráðstefnunni 1954. Um tíma leit svo út, að sendinefndin frá Laos ætlaði ekki að undirrita vopnahléssamninginn. Mendes. France, þáverandi forsætisráð- herra hafði lýst því yfir, að vopnahlé yrði að nást í Indó- Kína fyrir 20. júlí, ella mundi hann segja af sér. Andsoyrna Dullesar, utanríkisráðherra Bandaríkjanna gegn vopnahlés- sapiningnum var velbekkt. Skömmu fyrir miðnætti 20. júlí undirritaði annar fulltrúi frá ið fyrir hræðilega lífsreynslu. Þið hafið séð með eigin augum þann myrka harmleik, sem kommúnistar leyna bak við hin eldfimu orð sín bylting og frelsi í Suður-Víetnam. Aðgerð- ir B-52 flugvélanna, sem þið hafið nú séð, munu halda áfram x stærri stíl. Stríðið verður smám saman hert, unz komm- únistastjórnin í Norður-Víet- nam fellst á friðarumleitanir. Hættið stríðinu í S-Víetnam eða þið munið komast að raun um, að uppreisnin í suðri verð- ur algjörlega bæld niður. Hugs- ið máíið, farið með þetta bréf til næstu herstöðvar og félags- skapar, sem hefur gefið ykkur skioun um stuðning og hjálp.“ En Víetnamar eru ekkert á- fjáðir í að yfirgefa hús sín og heimili, landsskika sinn og forðabúr. Þá koma amerískir herflokkar á vettvang með þyrlur og flytja fólkið á brott rneð valdi og kveikja í húsun- um. Til sumra þorpa þora Bandaríkjamenn ekki að fara, því Þjóðfrelsisfylkingin er tal- in of sterk. Þá er gripið til þess ráðs að „búa til flóttamenn," eða „generate refugees", eins og það heitir á amerísku tækni- máli. Til þess eru ýmsar að- ferðir. Ein er flugmiðar af áð- urnefndri tegund. Önnur að gera svæðið „free fire zone“, og er þess áður getið, hvað það merkir. Það var á Wulff að skilja, að S-Kóreuhermenn gengju harð- ast fram í herferðum gegn víet- nömskum þorpum. Ef skotið var á þá frá þorpi, drápu þeir alla íbúa þess. Þessa sögu hafði Wulff eftir bandarískum vini sinum, sem hann vildi ekki Laos vopnahléssamninginn. Sá hét Kou Voravong. Hét, segjum við, því tveim mánuðum seinna var hann skot. inn til bana í kvöldverðarboði í Vientiane. Gestgjafi hans var Phoui Sananikone hinn fulltrúi Laos í Genf. Níu dögum áður hafði Voravong upplýst á þingi Laos, að ein miljón Bandaríkja- dollara hefði verið greidd á bankareikning Sananikone i Sviss. Það var þókunin fyrir að skrifa ekki undir vopnahlés- samninginn. önnur „yfirsjón“ Vorovangs var að hafa komið til leiðar fundi þeirra Souvanna Phouma forsætisráðherra og hálfbróðir hans, Souphanou- vong, leiðtoga Pathet Lao. Samkomulag þeirra var skilyrði friðar og þjóðlegrar einingar í Laos. Stjórn Souvanna Phouma féll, og við tók Bandarikjasinn. inn Katay Don Sasorith. Eftir tveggja ára innanlandsófrið komst Souvanna Phouma aftur til valda. Hann fylgdi svipaðri utanríkisstefnu og Síhanúk prins í Kambódíu. Burchett fékk nú persónulega reynslu af áhuga Bandaríkjamanna á að koma í veg fyrir samninga milli Souvanna Phouma og Sou- nhanouvong. í janúar 1957 kom Burchett til Vientiane með nafngreina, þar eð hann væri enn í S-Víetnam. Wulff sagðist hafa skrásett sögu margra þeirra, sem komið var með í hjúkrahúsið í Hué og naut við það aðstoð- ar víetnamskra vina sinna. Hann tilgreindi tvö tilfelli: Þrí- tugur bóndi hafði setið þrjú ár í fangelsi. Hann yar kvæntur og átti tvö börn. Hann var í aumu ástandi og þjáðist af beri-beri. Hann hafði verið barinn í kvið- inn, brjóstið, bakið og höfuðið og pyndaður með rafmagni, begar hann var tekinn til fanga. Eftir þessa meðferð skrifaði hann undir játningu, sem var lögð skrifuð fyrir hann. Tvítug stúlka, ógift, hafði verið tvö ár í fangelsi. Hún hafði verið bar- in meg priki og neydd til að drekka sápuvatn. Hún fékk líka játningu til að skrifa undir. „Þetta eru mjög venjuleg til- felli,“ sagði Wulff. „Þeir sem ekki játa, sæta ennþá verri meðferð.“ „Um tvær miljónir eru í flóttamannabúðum í S-Víet- nam“ áleit Wulff. „Sumir gizka jafnvel á 4 miljónir. Aðeins fáir geta fengið vinnu. Konurnar gerast hórur, börnin reyna að hafa ofan af sér með vasaþjófn- aði og öðrum stuldi. Það ætti ekki að þurfa að hafa mörg orð um þá upplausn, sem hlýtur að leiða af þessu ástandi þegar það stendur árum saman.“ Stór hluti „flóttamannanna" er staðsettur umhverfis her. stöðvar Bandaríkjamanna, hef- ur framfæri sitt a.f þeim og er efnahagslega háður þeim. Þarna hefur skapazt eins konar „lumpenproletariat". Þó eru þessi efnahagslegu bönd ekki tveggja vikna vegabréfsáritun. Á flugvellinum hitti hann bandarískan blaðamann, og þeir ákváðu að eiga tal saman yfir hádegisverði næsta dag. Þeim fundi aflýsti Bandaríkjamaður- ævinlega áhrifarík. Wulff sagði frá tilviki, þar sem Þjóðfrelsis- hreyfingunni hefði tekizt að ná ítökum í víggirtu þorpi nálægt bandarískri herstöð. Wulff lýsti þeirri hugarfars- breytingu, sem verður meðal bandarískra hermanna í Víet- nam. Þegar þeir koma eru þeir fullir af ákafa að vernda víet- nömsku þjóðina gegn árás kommúnista. Eftir þrjá til fjóra mánuði er þeim orðið ljóst, að þeir hafa þjóðina á móti sér. Þeir fara þá að hata hana, nota um víetnama skammaryrðið „gooks“ og hreyta því framan í hvern sem er. Þeir skjóta fanga í þlindri reiði og fleygja þeim lifandi út úr þyrlum. En Banda- ríkjamenn eru hreinlátir og kjósa yfirleitt að láta suður- vietnamska hermenn pynda fanga fyrir sig. „Mér finnst þetta eitthvað það viðurstyggi- legasta í fari Bandaríkjamanna í Víetnam.“ sagði Wulff. Hann sagði frá því, að banda- rískir flugmenn hefðu eitt sinn boðið hjúkrunarkonum frá þýzka spítalaskipinu Helgoland með sér á mannaveiðar í þyrl- um. Er þá farið inn yfir „free fire zone“ og skotið á allt sem hreyfist. Aðspurður um, hvern- ig hjúkrunarkonurnar hefðu tekið þessari sérstæðu skemmt- un sagði Wulff, að Bandaríkja- mönnum hefði tekizt að skapa þær hugmyndir meðal útlend- inga í Saigon, að Vietcong væri ómannleg ófreskja, og svo væri þyrlan svo hátt uppi í loftinu, að þetta liti ákaflega ópersónu- lega út. Þetta virtist sér hin sál- fræðilega skýring á þessari skemmtun“. Hinn nvi vfirmað- Framhald á 9. siðu. inn síðar, því „hann gat ekki látið sjá sig í samræðum við mig.“ Hann skýrði frá því, að þeir í bandaríska sendiráðinu væru ævareiðir yfir nærveru Burchetts í Víentiane og hann væri álitinn „eiga sök á því að prinsarnir (Souvanna Phouma og Souphanouvong) hittust á ný.“ Skömmu seinna var Bur- chett vísað úr landi að undir- lagi Bandaríkjamanna. Næstu ár voru tímar valda- baráttu í Laos. Þar kom CIA ekki lítið við sögu. Margir muna eftir bardögunum um hina þýðingarmiklu Krukku- sléttu 1961. Á þeim tíma voru þrjú meginöfl í landinu, Banda- ríkjasinnar undir forystu Boun Oum prins og Nosavan hers- höfðingja, hlutleysissinnar und- ir forystu Souvanna Phouma, og Pathet Lao undir forystu Souphanouvong. Loks var skotið á ráðstefnu í Genf að undirlagi Sihanouk prins í Kambódíu. Loks var samið um vopnahlé og samsteypustjórn í Laos. Þrátt fyrir það blossuðu bardagar upp af og til. Þann 24. maí birti Times í London eftirfarandi klausu undir fyrir- sögninni „CIA á sök á erfiðleik. unum í Laos.“: „Bandaríkja- stjórn er þess fullviss, að CIA hafi nú gripið til sinna gömlu ráða og beri mikinn hluta á- byrgðarinnar á ástandinu í Laos .... Það er augljóst, að margir útsendarar CIA hafa að yfirlögðu ráði barizt gegn opin. berum áformum Bandaríkjanna að koma á laggirnir hlutlausri stjórn í Laos.“ Samsteypustjórnin átti við marga erfiðleika að etja. Emb- ættismennirnir í ráðuneytunum voru fylgismenn Nosavan hers. höfðingja, þótt ráðherrarnir væru hlutleysingjar eða Pathet Lao menn. Árið 1963 var utan- ríkisráðherrann og hlutleysing- inn Quinim Pholsena skotinn til bana fyrir utan hús sitt í Vientiane. Kona hans tjáði Burchett, að hún væri viss um, að ódæðið hefði verið unnið að undirlagi Bandaríkjamanna, því maður hennar hefði hafnað mútufé, sem honum hefði verið boðið í Washington. Ráðherrar Pathet Lao flýðu úr höfuðborg- inni, en hlutleysingjar klofnuðu og skiptust milli Nosavan hers- höfðingja og Pathet Lao. Síðan hefur ríkt stvrjaldarástand í Laos. Hershöfðinginn Thanh Sav- anvilay, einn þeirra hlutleys- ingja, sem snerust á sveif með Pathet Lao, lýsti hernaði Bandaríkjamanna og banda- manna þeirra í Laos. Þar var um að ræða smækkaða mynd af Víetnamstyröldinni. Fréttastof- an UPI skýrði frá því 24. sept. s.l. að Laos færi engan veginn varhluta af því sprengjuregni, sem slengt væri yfir Suðaustur- Asíu. Þar koma B-52 flugvél- arnar við sögu. Hershöfðinginn upplýsti, að frá maí 1964 til ma£ 1967 hefðu bandarískar flugvél- ar lagt í eyði meira en 1000 þorp af 7000 í þeim héruðum, sem Pathet Lao ræður. New York Times birti fréttaskeyti frá Sai- gon dagsett 15. febr. 1966, sem skýrði frá því, að 20 sérstaklega útbúnar flugvélar hafi verið sendar í kemiskan hernað yfir Laos. Reuter skýrir frá því 18. okt. sl. að Bandaríkjamenn ætli að nota nýtt eiturefni í Laos, sem muni gera allsendis ófært að rækta neinskonar jurtir í jarðveginum. „Friðunaraðgerðir" svipaðar þeim sem svo mjög hefur verið rætt um í sambandi við Viet- nam, eru í gangi á vegum Bandaríkjamanna í Laos. UPI tilkynnti 8. jan. 1964: „Laos hefur tekið Suður-Víetnam sér til fyrirmyndar og komið á fót víggirtum þorpum.“ Og svo þessar endalausu sög- ur um dráp á saklausum konum og börnum. Hershöfðinginn seg- ir, að í einni friðunaraðgerðinni sumarið 1965 hafi íbúum sex borpa í héraðinu Luang Pra- bany venið raðað upn og slátrað með vélbvssum af leiguher Bandarikiamanna. Þeim sem ekki gáfu upp öndina strax var drekkt í Nam An ánni. Nokkrir Suður-Víetnamar, sem sætt hafa pyndingum Bandaríkjamanna og stjórnar- hermanna hafa sagt frá revnslu sinni. Hún er { samræmi við framburð bandarísku hermann- anna hér um daginn, gengur bó i sumum atriðum lengra. Ein kona grét begar hún lýsti því, begar ættingi hennar var pvnd- aður að henni ásiáandi til að fá hana til að tala. íhaldblöð hér í Danmörku hafa getið þess, að líklega væri vitnisburðurinn undirbúinn fyrirfram óg'lagað- ur til af fulltrúum FNL. Kannski gráturinn hafi veríð leikinn lika? Rögnvaldur Hannesson: Þýzkur læknir ber vitni > i í i

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.