Þjóðviljinn - 13.12.1967, Blaðsíða 2
I
2 SÍÐA — WÓÐVTUIM — Miðvikudagar 13. desember 1967.
Séð yfir taina nýju kjörbúð SS að Háaleitisbraut 68.
SS opnar nfja og fullkomna
kjörbúð að Háaleitisbraut 68
Sláturfélag Suðurlands opn-
aði í gær nýja kjörbúð að
Háaleitisbraut 68, en þar er
fyrirhugrað að verði verzlunar-
miðstöð í hverfinu. Þegar hef-
ur verið opnað þar bakarí og
vefnaðarvöruverzlun og síðar
verður opnað þar apótek,
mjólkurbúð, blóma- og gjafa-
vörubúð og fleiri fyrirtæki.
í nýju kjörbúðinni verður
einkum lögð áherzla á fjöl-
breytt úrval kjöts og kjötvara
og einnig verða á boðstólum
margar vörutegundir í stórum
einingum á hagkvæmara verði
en þegar minna er keypt í
einu. í búðinni eru ýmsar nýj-
ungar í verzlunarrekstri. Búð-
in er rúmgóð, breiðir gangar
svo að unnt er að gera mikil
vöruinnkaup í einu á þægileg-
an hátt.
f ræðu sem Jón H. Bergs,
forstjóri SS flutti við opnuú
verzlunarinnar rakti hann í
stuttu máli sögu Sláturfélags'
Suðurlands sem stofnað var
fyrir 60 árum. Fram til 1922
höfðu verzlanir SS fátt á boð-
stólum annað en innlendar af-
urðir, kjöt og kjötvörur en
vöruvalið hefur orðið fjölþætt-
ara með ári hverju. \ Fyrsta
verzlun SS, Matardeildin x
Hafnarstræti tók til starfa 1908
en nú eru matarbúðir félagsins
í Reykjavík lo og ein á Akra-
nesi.
Margir hafa lagt hönd að
byggingu verzlunarmiðstöðvar-
innar að Háaleitisbraut 68 svo
að ekki er kostur á að rekja
nöfn þeirra í þessari stuttu
frétt, en rétt þykir að geta
þess að það voru arkitektar
Teiknistofunnar Ármúla 3, þeir
Gísli Halldórsson, Jósef Reynis
og Ólafur Júlíusson, sem gerðu
teikningarnar.
í hinni nýju kjörbúð SS
starfa fyrst um sinn 15 manns.
Verzlunarstjóri er Guðjón Guð-
jónsson, sem starfað hefur í
verzlunum SS sJ. 20 ár.
Concordeþotan fer
á loft í febrúar
TOUIiOUSE 11/12 — I dag var
skínandi björt brezk-frönsk risa-
þota dregin út úr miklu flug-
skýli I borginni Toulouse í Frakk-
landi. Áður en Iangt um líður
verður flugvél þessi Concorde
fyrsta farþegaflugvél heims sem
getur flogið mcð tvöföldum hraða
hljóðsins.
Franskar og brezkar herhljóm-
sveitir léku þjóösöngva land-
anná þegar gul dráttarvél dró
þotuna fram í dagsljásið.
Concorde-vélin verður tekintil
farþegaflugs 1972 og getixr hún
flogið frá París til New York á
þrem stundum. Fyrir þremur ár-
um var ákveðið mgð samningi
milli brezikra og franskra aðdla
að flugvélin skyldi fyrst fara á
loft 28. fébrúar. Aðstandendur
Concorde eru sagðir þremur ár-
um á undan bandarískum keppi-
nautum sínum, Boeing ST, og
hinum sovézka Túpolö-144.
Framihald á 9. síðu.
Hrein-
skilni
I síðasta tölublaði „Verka-
mannsins“ á Akureyri er birt
ávarp frá stjórn kjördæmis-
ráðs Alþýðubandalagsins í
Norðurlandskjördæmi eystra
um nauðsyn þess að efla
„Verkamanninn" og auka ÚV
breiðslu hans. Sú naijðsyn er
rökstudd í Ávarpinu m-;ð
þessum orðum:
„Vart þarf það langra skýr-
inga fyrir Alþýðubandalags-
menn x Norðurlandskjördæmi
eystra né heldur frjálslynda
stuðningsmenn þess um land
allt, hver nauðsyn er á því
nú fremur en nokkru sinni
áður, að lítili hópur, sem enn
telst til bandalagsins, en er
að meira eða minna leyti and-
vífeur höfuðmarkmiðum þess
og þeim breyttu starfsháttum,
sem nú verður upp að taka,
hafi einn yfir málgagni að
ráða og geti þar rangfært og
mistúlkað þau viðhorf, sem
þorrj fylgismanna vill miða
stefnu sína og starfshætti við.“
Trúlega nýtur þessi nýstár-
lega kenning um nauðsyn þess
að efla rangfærslur og mis-
túlkanir takmarkaðrar sam-
úðar, en engu að síður birtist
í henni hreinskilni sem vert
er að meta og þakka.
Ein-
falt ráð
Þegar framkvæmdar eru
efnahagslegar kollsteypur á
íslandi, beita stjómarvöld-
in ævinlega sálfræðilegum
vinnubrögðum sem vert er að
veita athygli. Fyrst eru látn-
ar koma til framkvæmda stór-
felldar verðhækkanir sem
valda ólgu og > reiði. Þegar
menn taka að lýjast á for-
mælingum sínum og hækkan-
irnar eru orðnar hluti af
hversdagsleikanum, slaka
stjómarvöldin ofurlítið til. Og
síðan er tilslökunin gerð að
meginatriði í áróðrinum —
mönrtum er ætlað að muna
eftir henni, en gleyma hækk-
ununum sem áður voru komn-
ar. Nú ér það til að mynda
kunnugt að eftir að gengis-
lækkunin hefur hækkað verð
á öllum lífsnauðsynjum, ætl-
ar ríkisstjómin að láta nokkra
tollalækkun koma til fram-
kvæmda — hún ætlar þannig
að skila aftur svolitlu broti
af því sem hún hefur tekið.
Og síðan verða tollalækkan-
imar básúnaðar i blöðum sem
sönnun þess að húsbændum-
ir í stjómarráðinu séu verð-
lækkanamenn, miklir and-
stæðingar verðbólgu og dýr-
tíðar. Sama máli gegnir um
almann atryggingam ar., Við-
skiptavinir þeirra, sem eru
að meginhluta til tekjulægsta
fólk þjóðfélagsins, hafa að
tmdanfömu mátt þola mjög
þxmgbærar búsifjar. Hvers-
dagslegustu matvæli hafa ver-
ið hækkúð meira en nokkuð
annað, og þær hækkanir bitna i
fyrst og fremst á þeim sem
hafa minnst fé handa á milli.
Eftir þessa stórfelldu kjara-
skerðingu sá svo að koma
nokkur hækkun á bótum al-
mannatrygginga, og síðan er
ætlazt til þess að viðskipta-
vinir almannatrygginga mæli
blessunarorð um þá ágætu
pólitíkusa sem hafj hækkað
bæturnar lítið eitt, þótt hækk-
unin vegi engan veginn upp
þá skerðingu sem áður var
komin. Þannig hugsa stjórn-
arvöldin sér að losna við rétt-
mæta áfellisdóma með því
einfalda ráði að skila aftur
fimmeyringi eða tíeyringi af
hverri krónu sem rænt hefur
verið úr vasa launafólks.
— Austri.
AISKÝLOS
AGAMEMNON
Hér birtist í fyrsta sinn í íslenzkri þýðingu
einhver frægasti harmleikur fomgriskra bók-
mennta. Dr. Jón Gíslason skólastjóri hefxxr
þýtt leikritið úr frummálinu og ritað ræki-
legan inngang og skýringar. — Verð kr. 172,00.
mmm JÓHANN BRIEM
TIL AUSTURHEIMS
* f bók þessari segir Jóhann Briem listmálari frá för sinnj um Arabalönd, þar sem hann þræddi ýmsar slóðir, sem íslendingum eru lítt kunnar. — Vel rituð og fróðleg bók, einkar notalegur lestur. — Bókin er myndskreytt af höfundi, og eru sumar myndimar í litum. Verð kr. 387,00.
■ WiLu DURANT
GRIKKLAND HIÐ FORNA ■ ■ ••• • / ' ■• ’
Jóhann Briem
Will Durant er höfundur Rómaveldis sem
Bókaútgáfa Menningarsjóðs hefur áður gefið
út. Sú bók hlaut frábærar viðtökur og er nú
nær uppséld í stóru upplagi. Bók Durants um
gríska menniúgu er ekki síðri. — Þýðinguna
gerði Jónas Kristjánsson cand. mag. Mun ekki
ofsagt, að hún sé með miklum égætum.
Verð kr. 408,50.
HANNES PÉTURSSON
Hannes Pétursson
EYJARNAR ATJAIM
Hannes Pétursson skáld dvaldi sumarlangt í
Færeyjum, ferðaðist um eyjarnar og kynntist
landi og fólki. f þessari afbragðs vel rituðu
bók bregður hann upp myndum af færeysku
mannlifi og fæieyskri náttúni. Þessi bók um
frændur okkar, sem byggja eyjarnar átján í
miðju Atlantshafi, á brýnt erindi við ís-
lenzka lesendur. Hinn snjalli danski listamað-
ur Sven Havsteen-Mikkelsen, sem er af ís-
lenzkum og færeyskum ættum, hefur mynd-
skreytt bókina. — Verð kr. 279,50.
HELGI HJÖRVAR
KOINIUR A STURLUNGAOLD
Þessi litla en snotra bók hefur að geýma
fimm útvarpserindi eftir Helga Hjörvar, hinn
frábæra útvarpsmann og snjalla rithöfund. —
Verð kr. 172,00.
AÐRAR ÚTGÁFUBÆKUR:
Frakkland eftir Magnús G. Jónsson me/inta-
skólakennara,
Almanak Þjóðvinafélagsins fyrir 1968,
Andvari 1967.
Helgi Hjörvar
Bókaútgáfa Menningarsjóðs
°g Þjóðvinafélagsins.
Nú eru aðeins tíu dagar þar til
dregið verður í Happdrætti Þjóð-
viljans um tvær bifreiðir — Kaupið
miða! Gerið skil fyrir seldum miðum!
i
t
f