Þjóðviljinn - 13.12.1967, Blaðsíða 7
Miðvik<ud&gur 13. desember 1867 — ÞJÓÐVI3UINN — SlÐA 'J
LúSvlk Jósepsson:
Hvað hugsar Hannibal Valdimarsson?
* Hleypur af miðstgórnarfundi þegar
samþykkt er aS Alþýðubandalagið
skuli gert að flokki
• Rýfur samstöðu við samherja þegar
ríkisvaldið boðar stórfelldar órósir
ó vinnandi fóik
Sá íurðulegi atburður, að
Hannibal Valdimarsson skyldi
hlaupa af miðstjómarfundi Al-
þýðubandalagsins 2. désember
s.l. strax í upphafi fundar eft-
ir að hann hafði sett fundinn
og flutt sína framsöguræðu,
hefur skiljanlega orðið mörg-
um undrunarefni og hrein ráð-
gáta. Eðlilega er spurt hvað
hafi valdið brotthlaupinu, hvað
hafi gerzt og hvað standi til.
t>eir sem fundinn sátu hafa á-
byggilega átt erfitt með að
svara þessum spurningum, þó
að þeir hafi hlýtt á þá ræðu
Hannibals, sem endaði á þeirri
yfirlýsingu að nú viki hann af
fundi og ætlaði sér ekki að
ræða frekar við fundarmenn.
Hannibal hefur tekið þann
kost að endursemja ræðu sína
frá miðstjórnarfuridinum og
birta hana þannig í Verka-
manninum á Akureyri, sem út
'kom föstudaginn 8. desember.
í Verkamannsgreininni bein-
ir Hannibal skeytum sínum all-
mjög að mér og þingflokki Al-
þýðubandalagsins og kemst ég
því ekki hjá að svara þeim
skeytum með nokkrum orðum
og leiðrétta missagnir og bein-
ar villur sem fram koma í frá-
I sögn hans. Ég mun hins vegar
leiða hjá mér þrætur um
auka-atriði, og deilur við Hanni-
Félagasamtökin Vernd munu
eins og að undanförnu haía
jólafagnað á aðfangada'gskvöld
í Góðtemplarahúsinu fyrir þá,
sem ekki hafa tækifæri til að
vera,þetta helgasta kvöld ársins
hjá' vinum eða vandamönnum.
Félagasamtökin njóta að vísu
nokkurs styrks frá ríki og bæj-
arfélögum til starfsehii sinnar.
sem er fyrst og fremnst fanga-
hjálp, en þessum jólafagnaði er
algerlega haldið utan við það.
Það sem stendur undir kostn-
aði við þennan þátt starfsem-
innar er eingöngu hin alkunna
rausn og hjálpsemi Reykvík-
inga, sem æfinlega eru viljugir
að veita þörfum málefnum lið.
Mörgum stofnunum og ein-
staklinguna eigum við það að
þakka að hægt hefur verið að
halda uppi þessari starfsemi, og
jafnframt senda jólagjafir til
þeirra, sem af ýmsum ástæðum
eiga ekki von á þeim frá öðr-
um.
Seinasta jólafagnað Verndar
sóttu yfir 50 manns, sem aliir
fengu jólagjafir. Alls hafa ver-
ið sendar út úm 200 jólapakk-
ar árlega, síðan þessi starfsemi
hófst.
i |
bal Valdimarsson umfram bein
tilefni frá honum, mun ég ekki
taka upp.
Ég hygg, að öllum, sem lesa
Verkamannsgrein Hannibals
hljóti að vera það Ijóst, að það
eina, sem hann færir fram til
afsökunar á framkomu sinni á
miðstjórnarfundinum er það,
að við ýmsir samlierjar hans
höfum ekki metið hann að verð-
leikum, ekki sýnt honum nægi-
legt traust og jafnvel reynt að
halda honum og „hans mönn-
um“ áhrifalausum í samtökun-
um. — Þetta er kjarninn í öllu
þvi sem Hannibal segir og
Mörgum hefur þótt gefast vel
að heita á Vernd, en allar slík-
ar gjafir og áheit eru notuð til
matai-kaupa, því þótt sorglegt
sé frá að segja koma dagilega
mprgir á skrifstofu samtakanna
á Grjótagötu 14, sem eru mat-
arþurfi. • Einnig hefur Vernd
haft forgöngu með að gestum í
fangageymslunni í Síðumúla, sc
gefin heit súpa, áður en þeir
fara útá götuna aftur.
Allt þetta kostar mikið fé, og
treystum við því eins og áður
á hjálp og velvilja Reykvíkinga
til þess að hægt sé að halda
þessari starfsemi áfram, svo að
enginn þurfi að sitja einn
kaidur og svangur, á aðfanga-
dagskvöld.
Jólanefnd Verndar skipa þess-
ar konur: Sigríður J. Magnús-
son, sími 12398, Lóa Kristjáns-
dóttir, s. 12423, Rannveig Ingi-
mundardóttir s. 12385, Hanna
Jóhannesardóttir s. 12677 og
Emilía Húnfjörð s. 81833 og
Unnur /Sigurðardóttir, s- 17880.
Skrifstofa Vemdar er opin
alla daga frá 9tl2 f.h. og frá
4-10 e.h.
skrifar um þessi mál; allt ann-
að eru umbúðir, eða aukaatriði.
Ég skal þá víkja að nokkrum
þeim atriðum, sem Hannibal
gerir að umtalsefni í grein
sinni í Verkamanninum.
Undirbúningur mið-
stjórnarfundarins
Ein er sú af ásökunum
Hannibals á hendur mér og
framkvæmdastjórn að fulltrú-
ar hafi verið valdir þannig í
nefndir fundarins að ákveðinn
„meirihluti" hafi verið tryggð-’
ur fyrirfrarri.
Á fundi, sem haldinn var í
framkvæmdastjórn daginn fyr-
ir miðstjórnarfundinn og
Hannibal' var mættur á, lagði
stjórn framkvæmdastjórnarinn-
ar, þeir Guðmundur Hjartar-
son, Guðmundur Vigfússon og
Gils Guðmundsson fram tillög-
ur um fulltrúaval í þrjár nefnd-
ir miðstjómarfundarins.
Þeir lögðu til að í stjórn-
málanefnd yrðu valdir þessir
menn: %
Hannibal Valdimarsson,
Lúðvík Jósepsson,
Björn Jónsson,
Magnús Kjartansson,
Skúli Alexandersson,
Finnur T. Hjörleifsson,
Hulda Sigurbjörnsdóttir,
Jónas Magnússon,
Jón A. Bjamason, ísafirði,
— og í skipulagsnefnd þessir
menn:
Ragnar Arnalds,
Einar Hannesson,
Jónas Árnason,
Steingrímur Pálsson,
Hjalti Haraldsson,
Hjörleifur Guttormsson,
Garðar Sigurðsson,
Ólafur Jónsson, Kópavogi,
Guðjón Jónsson, «
— og í kjörnefnd þessir menn:
Guðmundur Hjartarson,
Gils Guðmu'ndsson,
Guðmundur Vigfússon,
Þormóður Pálsson,
Sigurður Guðgeirsson.
Enginn ágreiningur kom fram
um fyrri nefndirnar tvær og
gerði Hannibal þar enga at-
liugasemd um val á mönnum
og tók þátt í ákvörðuninni eins
og aðrir.
Sú framkoma Hannibals að
leggja fram á miðstjórnarfund-
inum aðrar tillögur um 9 menn
í hvora þessa nefnd um sig og
knýja fram skriflega kosningu
í upphafi fundar var því næsta
íurðuleg og í litlu samræmi
við það sem á undan var geng-
ið.
Þegar kom til afgreiðslu á
tillögu þeirra þremenninganna
í stjórn ff-amkvæmdastjórnar-
innar um val á mönnum í kjör-
nefnd, gerði ég þá athugasemd
að ég teldi óviðeigandi að í
þeirri nefnd væru einvörðungu
menn frá Reykj avíkursvæðinu
og lagði því til að í þá nefnd
yrðu kosnir 7 menn í stað 5
og þar sem ég vildi gjarnan
styðja þá sem upp á væri
stungið myndi ég stinga upp
á tveimur mönnum til viðbót-
ar. Ég nefndi til utan af landi
þá Bjarna Þórðarson Neskaup-
stað og Sigurð B. Guðbrands-
son úr Borgamesi. Tillaga mín
um að fjölga í nefndinni upp
í 7 var síðan borin upp, en
felld með 5:4 atkvæðum.
Þá varð að kjósa í nefndina
þar sem Björn Jónsson haíði
stungið upp á Ingólfi Árnasyni
frá Akureyri og Finni Torfa
Hjörleifssyni og Jón Hanni-
balsson hafði stungið upp á
Karvel Pálmasyni og ég upp á
þeim tveimur sem áður er
sagt. Þetta leggur Hannibal
Valdimarsson út á þann veg í
Verkamannsgreininni, að ég
hafi fengið „ ... háskamanninn
Sigurð Guðgeirsson felldan úr
tillögu framkvæmdanefndar“.
Ég hafði þó í áheyrn allra
lýst yfir, að ég vildi kjósa Sig-
urð í nefndina eins og alla þá
sem stjórnin liafði gert tillög-
ur um. En það bar ekki á því,
að Björn Jónsson, eða Jón
Hannibalsson gerðu það.
Þá er rétt á það að benda,
að þegar Hannibal flutti á mið-
stjórnarfundinum sérstaka til-
lögu um menn í kjörnefnd, þá
lagði hann ekki til að Sigurður
Guðgeirsson yrði kosinn í
nefndina.
_ Þingflokkurinn
Þá segir Hannibal í Verka-
mannsgrein sinni, að ég hafi
í þingflokknum vandlega haft
í heiðri þá kennisetningu: að
hafa þá með — en áhrifalausa,
og á þá við, að hann og „hans
Á 23. þingi Fanmanna eg
Fiskimannasambands Isl. sem
haldið var dagana 23.-27. nóv.
sl. hér i Reykjavík voru eftir-
farandi samþykktir gerðar:
Að skora á Alþingi er nú sit-
ur að endurflytja tillögu um
radíóstaðsetningakerfi, er al-
þingismennirnir Davíð Ólafsson,
Pétur Sigurðsson og Sverrir Júl-
íusson fluttu á síðasta Alþingi.
Einnig var saimþykkt að skora
á samgöngumálaráðherra ag
vitamálastjóra að endurskoða
reglugerð um leiðsögu Isiands
frá 12. janúar 1934. Ennfremur
aö gefin verði út ný leiðsögu-
bók. Ennfremur skoraði þing
F.F.S.I. á ríkisstjórn og Ailþingi
að fram fari br^yting á lögum
um vita- og hafnarmál og þau
skiptist þannig, að meira tillit
verði tekið til álits heima-
manna, þogar hafnarmannvirki
eru staðsett. Þing F.F.S.I. fer
þess á leit við háttvirtan sjáv-
arútvegsmálaráðherra að hann
hlutist til um að fiskileit verði
starfrækt allt árið, önnur en
síldarleit.
23. þing F.F.S.I. skorar á rík-
menn“ hafi mjög verið settir
hjá í þingflokknum.
f þingflokknum hafa komið
upp þrjú . minniháttar ágrein-
ingsefni á þessu hausti.
Hið fyrsta var um kjör á
formanni þingflokksins. í 11 ár
hefur Hannibal verið formaður
Alþýðubandalagsins en aldrei
hefur það, fyrr en í haust,
komið til mála að hann yrði
jafnframt formaður þingflokks-
ins. Hannibal undi því vel í
mörg ári að Einar Olgeirsson
væri formaður þingflokksins og
síðan einnig í nokkur ár að
ég væri í því starfi. En nú í
haust virtist þetta skyndilega
snúast við og stóð þá ekki á
Birni Jónssyni að sjá til þess
að það kæmi íram að Hanni-
bal naut ekki fylgis til }x>ss í
þingflokknum eins og á' stóð.
Á þetta ágreiningsefni minnist
Hannibal ekki í ásökunargrein
sinni.
Annað ágreiningsefnið í þing-
flokknum var um val á manni
í yfirkjörstjóm í Reykjavík.
Sá háttur var á hafður að
þingmenn úr kjördæmunum
tilnefndu yfirkjörstjórnarmann
hver úr sínu kjördæmi. Þetta
var auðvelt nema í Reykjavík.
Tveir þingmenn úr Reykjavík
vildu hafa ívar H. Jónsson
lögfræðing, en einn var á móti
honum.
Eftir nokkurt þóf var látið
undan kröfum Hannibáls og
nafn ívars dregið til Kaka og
Halldór Jakobsson, sem Hanni-
bal gat íallizt á, settur i stað-
inn.
Þriðja ágreiningsefnið i þing-
flokknum var um val á manni
í Norðurlandaráð til eins árs.
Meirihluti þingflokksins féllst á
að rétt væri, að Magnús Kjart-
ansson yrði séndur á ráðsfund-
inn að þessu sinni, m.a. með
hliðsjón af því að áður hafði
Einar Olgeirsson verið okkar
aðalfulltrúi í Norðurlandaráði
og einnig með tilliti til þess,
að Magnús var nú kosinn í
færri nefndir en Einar ,áður.
Getur það verið að þessi á-
greiningsefni hafi alvarleg á-
hrif á reynda stjórnmálamenn?
Annars skal það tekið fram,
að Hannibal Valdimarsson hef-
isstjórn að hlutast til um aö
Alþingi það er nú situr sam-
þykki Jög um tilkynningar-
skyldu fiskiskipa, samkvæmt
tillögu nefndar er skipuð var
1963. Þing F.F.S.I. þakkar þeim
skipstjórum er frumkvæði áttu
fið því að tilkynningarskylda
komst á á síðustu síldarvertíð.
Þingið kaus nefnd til þess að
ræða við skipaskoðunarstjóra
um hleðslu síldveiðiskipa.
Þingið áréttar fyrri sam-
þykktir sinar varðandi vitamál.
radíóvita á Langanesi, ljósdutl
á Laufósgrunn, radarmei'ki á
Kolbeinsey og fleira.
23. þing skorar á Alþingi að
styðja innlendar skipasmíðar
eftir fremsta megni. Einnig
skorar þingið á sjávarútvegs-
málaráðherra að beita sér fyrir
þvi að nýting á síld, veiddri á
fjarlægum miðum, verði betri
en nú er. Ennfremur að styðja
eftir mætti þau fyrirtæki, er
vinna að fullnýtingu sjávaraí-
urða.
Það eru eindregin tilmæli
þingsins að F.F.S.I. fái að segja
álit sitt á þéim uimsóknum er
ur í haust verið kosinn í allar
þær uefndir og stillt upp í all-
ar þær stöður, sem hann hefur
áður verið nefndur til af þing-
flokknum.
Um val í aðrar trúnaðarstöð-
ur hefur verið fullt samkomu-
lag í þingflokknum og sízt
hallað á þá menn, sem Hanni-
bal virðist bera fyrir brjósti.
Ég læt þessi dæmi um ásak-
anir Hannibals á mig og aðra
samherja sína nægja. Þau sýna
það glöggt, að áfellisdómar
hans eru rangir. Það hefur
ekki verið gengið á hlut hans
eða „hans manna“.
Tillögurnar um menn í nefnd-
ir miðstjórnarfundarins voru
eðlilegar og sanngjarnar og
störf þingflokksins hafa venð
á venjulegan hátt.
Sú staðreynd, að Hannibal
Valdimarsson skuli hafa þotið
af miðstjórnarfundi í upphafi
fundar án þess að gefa mið-
stjórnarmönnum nokkurn kost
á því að ræða við sig um mál-
in, verður að skýrast, ef hún
á að vera afsakanleg, með öðr-
um og haldbetri rökum en
þeim sem fram koma í Verka-
mannsgrein hans.
Það er alltof lítið gert úr
Hannibal Valdimarssyni að af-
saka framkomu hans við mið-
stjórn Alþýðubandalagsins með
því, að hann hafi ekki verið
kosinn í Norðurlandaráð, eða
ekki kosinn formaður allra
stofnana Alþýðubandalagsins.
feað sem sérstaklega kallar á
skýringu á þessarj framkomu
Hannibals er það. að hann
skuli einmitt þjóta út, þegar
fyrir liggur samkomulag um
að breyta Alþýðubandalaginu
í formlegan stjórnmálaflokk,
eins og hann telur sig hafa
viljað. Og ekki síður krefst það
skýtingar hvers vegna hann
telur einmitt nú ástæðu til þess
að rjúfa samstöðu Alþýðu-
bandalagsmanna um það leyti,
sem meir reynir á samstöðuna
i íslenzkri verkalýðshreyfingu
og flokki hennar en nokkru
sinni áður, vegna stórfelldra
árása ríkisvaldsins á kjör al-
þýðunnar í landinu.
Hvað er Hannibal Valdimars-
son að hugsa?
ríkisstjórninni berast varðandi
fjárfestingu í_ fiskiðnaði.
Þing F.F.S.Í. vill beina þeim
tilmælum til beitunefndar sö
hún hlutist til um að ávallt sé
næg og góð beitusíld til, og
ekki endurtaki sig það er gerd-
ist síðast liðið sumar að beita
var keypt af erlendum aðilum
á sáma tíma og íslenzkt skip,
sem lá aðgerðarlaust, gat fryst
jafngóða síld og keypt var. Á
síðustu árum hefur síldarleit
starfað við góðan orðstír og er
þakkarvex't, en að mörgu þarf
að hyggja, ef veiðar á að
stunda með svipuðum hætti og
gert var síðast liðið sumar.
Fyrst og fremst vantar stór-
aukinn flutningaflota, birgða-
skip sem flytja vatn og vistir,
læknaþjónustu, viðgerðarmenn
fyrir síldarleitartæki og smærri
vélabilanir. Ennfretnnr skorar
þingið á ríkisstjórnina að end-
urnýjun togaraflotans dragist
ekki meira en orðið er. Að
endingu að menntamálaráð-
herra hlutist til um að kennsla
á sjálfvirknitækjum vei'ði tek-
in upp við Sjómannaskórann og
Vélstjóraskólann.
Mjólkurumbúðir
Éin áf íyrirsögnum Morgun-
blaðsins — nánar til tekið 10.
þ.m. — má lesa eftirfarandi á
bláðsíðu 31:
„Nefnd kannar mjólkurum-
búðarmálið. — Skipuð hefur
verið nefnd, sem í eiga sæti
fulltrúar úr flestum ráðu-
* neytunum, til að kanna svoj
nefnt mjólkurumbúðarmál".
, Svo mörg eru þau orð. En
Morgunblaðið gleymir aðalat-
riðinu, sem er, að í nefndinni
er enginn fulltrúi frá heil-
brigfiismálaráðuneytinu, frá
því ráðuneyti, sem hefur þó
m’eð þessi mál að gera, eða
frá þeim stofnunum, sem vinna
á þess vegum í mjólkur- og
matvælaeftirliti landsins. Þnr
má til nefna landlæknisembætt-
ið, héraðslækna, heilbrigðis-
nefndir og mjólkureftirlit rík-
isins.
Þegar undirritaður byrjaði
að starfa í mjólkurmálum
landsins fyrir ca 21 ári, þá
voru vörugæðin aðalatríðið en
ekki umbúðirnar. Nú er hins
vegar svo komið hjá „sumum“,
að gæði vörunnar eru auka-
atriði, en umbúfiimar aðalat-
riðið.
Rétt er að geta þess, að um-
rædd grein í Morgunblafilnu er
ófeðruð.
Ég óska öllum landsmönnum
árs og friðar á komandi ári.
Reykjavík, 11. des. 1967.
Kári Guðmundsson.
Vernd heldur jólufagnuð sinn
á aðhngadagskvöld að venju
Ályktanir þings Farmanna-
og fiskimannasambandsins