Þjóðviljinn - 15.12.1967, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 15.12.1967, Qupperneq 16
Kaupmenn gerðu harða hríð að forsætisráðherra Álagning mun aftur gefin frjáls □ Blóminn úr reykvískri kaupmannastétt hélt hádegis- verðarfund að Hótel Sögu i gærdag til þess að ræða hin- ar nýju álagningarreglur og fullyrða kaupmenn, að tak- mörkun þeirra jafngildi 20 til 30 prósent tekjuHækkun hjá þeim. □ Margt viirðingarmanna var þarna mætt með forsætisráð- herra í broddi fylkingar. Var gerð hörð hríð að honum á fundinum. Var því haldið fram, að kommúnistum hefði tekizt að herleiða ráðherrann, — og Jónasi Hairalz sérstök- um ráðunaut ríkisstjómarinn- ar í efnahagsmálum var líkt við brezlta njósnarann Kim Philby. □ Þungt var í forisætisráð- herra til andsvara og leidd.i hann athygli kaupmanna að sundrunginni í Alþýðubanda- laginu og taldi sig vera þar með fingurinn í spilinu — hrópaði hann yfir kaupmenn borgarinnar — mínir vinir — lesið Þjóðviljann í gær — lesið Verkamanninn á dögun- um — þar getið þið séð ár- angurinn. Var á forsætisráð- herra að skilja, að tekizt hefði að sundra Alþýðubandalaginu pólitískt og væri verklýðs- hreyfingin lömuð sem stæði. Var. ráðherran drjúgur yfir sínum hlut. Fnndarályktun Kaupmannasam- taka íslands Eftirfarandi ályktun var sam- þykkt einróma á fundi kaup- manna í gærdag að Hótel Sögu. „Almennur fundur Kaupmanna- samtaka Islands, haldinn að Hótel Sögu, fimmtudaginn 14. des. 1967, mótmælir harðlega af- greiðslu verðlagsákvæða á fundi verðlagsnefndar hinn 12. þ.m. ag lýsir allri ábyrgð og afleiðing- um í því sambandi á hendur rík- isstjórninni og þeim verðlags- nefndarmönnum er að samþykkt- inni stóðu. Sérstaklega vitir fundurinn, að verðlagsákvæðin eru sett án nokkurs tillits til þarfa verzlun- arinnar og að ákvarðanir meiri hluta nefndarinnar eru byggðar á því að ná pólitískum samning- um milli aðila, sem standa utan við verzlunina. Slík samþykkt er auglióst og gróft brot á gildandi landslögum, nr. 54 frá 1960- Fundurinn krefst þess af ríkis- stjóm Islands, að án tafar verði hafizt handa um að bæta úr því rnjsrétti sem átt hefur sér stað. Loks beinir fundurinn því til verzlunareigenda um land allt, að með tílliti til þeirrar óvissu sem ríkjandi sé í þessum efnum að rétt mun vera að hafa lausa samninga við verzlunarfólk, en almennur uppsagnarfrestur er 3 •mánuðir“. / Hlutavelta Hlutavelta verður haldin í Tjamargötu 20 á laugardaginn og hefst hún kl. 2 e.h. Margir glæsilegir vinningar. — Ekkert happdrætti. Engin núll. Næsti fundur hér Á ráðherrafundi Atlanzhatfs- bandalagsins, sem haldinn var i Brussel dagana 13. og 14. des- ember var rákveðið að næsti vor- fundur utanríkisráðherra Atlanz- hafsbandalagsins skyldi haldinn í Reykjavík, 24. og 25. júní 1963. Nýjar umbúðir hjá Mjólkursamsölunni: Á laugardag koma „fernur" í biíðir Mjólkursamsalan hefur fengið heimild til að selja mjólk og rjóma í nýjum umbúðum — fern- um — á bráðabirgðaverði, sem gildir til áramóta. Byrjað verður að selja mjólk í fernum á laug- ardag, ení fyirst um sinn verður um lítið magn að ræða daglega. Hyrnumar verða því áfram á markaðnunj- Stefán Björnsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar boðaði til blaðamannafundar i gær af þessu tilefni. Nýju umbúðategundirnar eru tveggja lítra femur sem not- aðar verða fyrir mjólk óg kostar þá hver lítri kr- 9.10, í hymum kostar hver lítri 8.70. 1 lítra og hálfs litra fernur verða fyrst í stað eingöngu notaðar fyrir rjóma og kostar hann kr. 90-55 hver lítri í eins lítra femum, en kr. 45.85 hver hálfur* lítri. 1 þessu verði er ekki hækkun vegna gengisbreytingar þar sem áfyllingarvélar og það magn um- búða sem nú verður notað, var fengið fyrir gengisfellingu en hinsvegar hafa tollayfírvöld úr- skurðað að tollur á femuefni skuli vera 30 prósent til áramóta. Tollur á hymuefni er 15 prósent og er það flutt inn í rúllum. Framhald á 13. síðu. Sósíalistafélag Reykjavíkur: Skipuleggja verður baráttu fyrir veruiegri kauphækkun □ Á fimdi Sósíalistafélags Reykjavíkur í fyrrakvöld var samþykkt ályktun, þar sem skoráð er á verkalýðsfélögin að hefja sem allra fyrst umræður um kjaramálin og gera skipulagslegar ráðstafanir til að undirbúa átök sem fram- undan kunna að vera. Samþykkt fundarins var svo- hljóðandi: „Vorið 1966 var það mat verkalýðssamtakanna, að nauð- synlegt væri að knýja fram hækkun á kaupi verkafólks. Baráttunni var þó ekki haldið til streitu að því sinni, heldur gert „bráðabirgða“-samkomulag um minniháttar lagfæringar á kjara- 6amningum. — Jafnframt var þvi lýst ytfir, að baráttan yrði hafin á ný næsta haust, en sumarið notað ti'l að undirbúa átökin. Raunin er hinsvegar sú, að enn hefur ekkert framhald orðið á þessari kjarabaráttu. Á bessu tímabili hefur þróunin f verð- lags- og atvinnumálum aftur á móti orðið sú, að valdið hefur verulegri kjaraskerðingu hjá al- þýðu manna, — og ofaná það bætist nú sú stórfelda verðhækk- anaskriða, sem hlýtur að leiða af gengisfellingunni, og sem launafólki er ætlað að bera bóta- laust. Með tHvisun til alls þessa ligg- ur i augum uppi, að verkalýðs- samtökin geta ekki lengur vikið sér undan því að hefja harðvít- uga baráttu fyrir verulegri hækk- un á grunnkaupi — ásamt fullri verðtryggingu launa. Sósíalistafélag Reykjavikur skorar þessvegna á verkalýðsfé- lögin að hefja sem allra fyrst umræður um kjaramálin, og gera skipulagslegar ráðstafanir til að undirbúa átökin. Jafnframt skorar fundurinn á alla sósíalista að beita áhrifum sínum, hvar sem þeir geta því við komið, til að etfla áróður t>g vekja baráttuhug fólksins til öfl- ugrar sóknar í þeim stéttaátök- um sem framundan eru‘‘. Loft var lævi blandið þegar i upphafi fundar og stóðu kaup- menn dreifðir út um allan sal í viðræðuhópum — með glas og vindil — og ræddu hugsanlegar aðgerðir til þess að mótmæla verðlagsókvæðunum. Ein hugmynd virtist eiga miklu fylgi að fagna hjá kaup- mönnum og var hún rædd of miklum ákafa með stórsígara á lofti — það er að loka verzlun- um í nokkra daga og fara þann- ig í verkfall til þess að mólmæla hinni miklu frelsissviptingu að mega ekki leggja ótakmarkað á vöruna til neytenda. Síðar kom fram, að stjórn 'Kaupmannasamtakanna hafði lika athugað þennan mögnleika gaum- gæfilega, en hætti við að beita sér fyrir þessari framkvæmd á síðustu stundu — voru þóskipt- ar skoðanir. Kim Philby og- Jónas Haralz Þá kom það fram hjá mörg- um, að þeir höfðu ráðizt í mikla fjárfestingu að undanfömu við húsbyggingar enda búðir þotið upp eins og gorkúlur á haug undir viðreisnarstjórn síðu’stu ár- in — væru útreikningar við þessa fjárfestingu- miðaðar við óbreytt ástand í álagningu. ' Allt í einu er þessu dýrðará- standi breytt á einni nóttu og upptekin takmörkuð verðlagsá- kvæði — hver á að borga bnis- Bnn? 1 einum viðræðuhópnum var formaður VerzlunarmannafélagS- Reykjavíkur upptekinn við að sannfæra nokkra kaupmenn um að Jónas Haralz væri einskonar Kim Philby og væri enn trúr kommúnisti eins og áður — við hverju er að búast frá slifcum manni? Virðist það orðið furðu algengt að ræða aldrei pólitfk r.ú orðið nema á njósnaplani og er það raunar eftir engilsaxneskri hefði. Kim Pfhilby var í þjónustu brezku ríkisstjórnarinnar um 20 ára skeið og var ætíð trúr og dyggur kommúnisti og njósnaði fyrir Rússa. Jónas Haralz var kommúnisti fyrir tuttugu árum — er hann ekki sami góði og gegni komm- únistinn ennþá? — þrátt fynr áralanga þjónustu .við Bjarna Benediktsson — hver útbjóþess- ar álagningarreglur? — svona eru kommúnistar sniðugir. Bjarni í herleiðingu hfá kommum Þegar menn höfðu rennt nið- ur steikinni upphófst sérstákur fyrirspumatími til „forsætisráð- herra og'var það síður en svo hraikinn lýður í útliti, seim þarna sat yfir borðum — stynjandi af velsæld með stórsígara. Það feom fram í ræðu Péturs Guðjónssonar, heildsala — kvæntur Báru í Austurstræti — að kommúnistum hefði tekizt að reka fleyg miílli forystu Sjálf- stæðisflofeksins og hinna óbreyt.tu liðsmanna — efefei sízt kjamans í flokknum, þar sem eru kaup- ménnimir. Engir vinna eins ftt- ullega í kosningum fyrir Sjálf-. stæðisflokfeinn eins ogkaupmenn. Hverjir lögðu fjárhagsgrundvöll- inn undir Morgunblaðið? Hvað- an er auglýsingakapítalið runn- ið tiíl þess? spurði Pétur. fLófa- klapp). Hvað er orðið af forsætisráð- herranum? Þannig er búið að herleiða hann af kommúnistum. fEkkert lófakilapp). Þá mætti kannski minna for- sætisráðherrann á fjöreggið og helgasta vé Sjálfstæðisflokksins. Það er eignarétturinn. Eitt af undirstöðuatriðum Sjálfstæðis- flokksins, sagði Pétur. (Mikið lófaklapp). f»eir sknmmta okkur frelsið Það sló óhug á okkur marga i kaupmannastétt, er það frétt,- Framihald á 13. síðu. Mynd úr bókinni um Edison hugvitsmann. ★ Heimskringla hefur nú hafíð útgáfu á nýjum flokki fallegra, skemmtilegra og fróðlegra foóka fyrir böm og unglinga. Fjalla foækur þessar um ýmis mikilmenni heims og frægar persónur úr mannkynssögunni. ★ Tvær fyrstu bækurnar eru komnar út, önnur um Kristófer Kól- umbus, hin um Thomas Alva Edison. Texta bókanna hefur M. de Lesseps samið, en myndimar eru eftir Raymond Renard- Bækumar em mjög skemmtilega úr^garði gerðar, prentaðar i Belgíu. ------------------- ............... —T íhaldið vísaði tii- lögunum báðum írá Forsíða bókarinnar um Kristófer Kóllumbus. DIODVIUINN Föstudagur W. desember 1967 — 32. árgangur — 285. tölublað. Kólumbus og Edison Á síðasta fundi borgarstjómar Reykjavíkur komu m.a. til um- ræðu og afgreiðslu tvær tillögur borgarfulltrúa Alþýðubandallags- ins, önnur um ráðstöfun á áætl- uðu en ónotuðu fjáirmagni til byggingaframkvæmda, hin um byggingu Iðnskólans í Reykja- vík. Eins og 1 getið hefur verið í fréttum Þjóðviljans fór lang- mestur hluti fundartímans fyrra fimmtudag í umræður um fjár- hagsáætlun Reykjavíkurborgar og borgarstofnana. ^essvegna hafa önnur mál á fundinum nokkuð horfið í skuggann og orðið útundan, m.a. fyrrnefndar tillögur Alþýðubandalagsmanna. Þær virtust bögglast fyrir brjósti íhaldsins, þvi að íhaldsfulltrú- arnir létu vísa báðum frá! Tillagan um ráðstöfun á áætl- uðu en ónotuðu fjármagni til byggingaframkvæmda var svo- hljóðandi: „Boirgarstjórnin ályktar, að það fjármagn, sem áætlað var til býggingaframkvæmda borgarinn- ar á þessu ári og ekki verður til þeirra notað, skuli lagt til hliðar og nýtt til þeirra fram- kvæmda á næsta ári, sem það vair ætlað til í ár samkv. fjár- hagsáætlun“. Hin tillagan, er snerti bygg- ingu Iðnskólans í Reykjavik, var svohljóðandi: ,,Borgarstjórn Reykjavikur iegg- ur ríka áherzlu á, að fram- kvæmdum við byggingu Iðnskól- ans í Reykjavík verði haldið á- Framhald á 13. síðu. *

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.