Þjóðviljinn - 20.12.1967, Side 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Miðvifeudagur 20. desember W&L
Þeita er mér mjög mikils viröi.
Segjum þé klukkan tóll á mánu-
dag. Saxa frænka?
— Ó, yfefcur fellur þá vel
hvoru við annað, hrópaði frú
Vemier og geislaði.
\
Dane hafði reyndar hugmynd
rnn að kvenfólk gekk í fötum
og mikið tilstand var einatt í
sambandi við tilbúning þeirra.
Hann hafði óljósa hugmynd um
að samkeppni væri milli banda-
rísku tízkuhúsanna og þeirra á
mejginlandinu, og fyrir bragðið
fylgdi þessu feiknarleg leynd.
En hann áttí þó naumast von
á að firma verði í hverjum
krók og kima í stofnun Sheilu
Grey nema salnum sjálfum.
— Þetta er nasstum eins og
hjá CIA, hrópaði hann.
Og samlíkingm var reyndar
ekki fráleit. Þama var að vísu
eðlismunur og allt í smærri stíl,
en sviðið bakvið tjöldin í tízku-
húsinu bar dálítinn keim ' af
sturluðu Pentagon- Karlmenn
með hugsjónasvipmót, konur sem,
virtust hafa numið við kjólfald
Mata Hari, samvizfcusamir -lær-
lingar af öllum þrem kynjunum
og sægur af kvenpersónum sem
hefðu getað verið einhvers konar
áhangendur, sátu yfir teikning-
um, rýndu þreyttum augum í alls
konar riss, þokuðust milli her-
bergja; þau rannsökuðu efnis-
prufur eins og tauið væri leyni-
vopn og horfðu samanbitin á svip
á bráðfallegar sýningarstúlkur,
sem hefðu eins getað verið úr
plasti. Hér voru fötin hið eina
sem var lifandi.
HflRÐVIÐflR
OTIHURÐIR
TRÉSMIÐJA
Þ. SKOLASONAR
Nýbýlavegi 6
Kópavogi
sími 4 01 75
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu- og snyrtistofs
Steinu og Dódó
Laugav 18. III. hæð (lyfta)
Sími 24-6-16
PERMA
Hárgreiðsiu- og snyrtistofa
Sarðsenda 21. SIMI 33-968
ELLERY QUEEN:
fjórða
hliðin
a
Idappað og kSárt Hann fylgdi
henni aftur til Fifth Avenue og
hún talaði um starfið allan tím-
ann og Dane skrifaði hjá sér.
Þegar hann reyrtdi 'að gera sér
grein fyrir þessu eftir á, komst
hann að ýmsum niðunstöðum í
sambandi við Sheilu Grey. Hún
var aðgengileg, að svo miklu
leyti sem það stangaðist ekki á
við vilja hennar sjálfrar. Sheiia
virðist taka það sem henni leizt
á. Hafði samband hennar við
föður hans byrjað á svipaðan
hátt — hreint og beint og um-
búðalaust? Hafði hún rekizt á
Ashton McKell í lyftunni, ákveð-
ið á stundinni: Þetta er maður
eftir minu höfði, og boðið honum
upp á drykk?
Hann óskaði þess að hann hefði
kynnzt henni undir öðrum kring-
úmstæðum. Hann kupni vel við
hve afdráttarlaus hún var. í
þríhyrningnum
— Og þetta er árlegur viðburð-
ur? spurði Dane.
— Já. Ég skal sýna yður- Dane
fylgdist með Sheilu og hlustaði á
skýringar hennar — Mark Roh-
an hjá Dior, Crahay hjá Ninu
Rieci, Castello hjá Lanvin, Car-
din, Cranel, Jacques Heim, Bai-
main, Goma, Vernet og hinn ó-
viðjafnanlegi Yves St. Laurent.
Af raddhreim Sheilu hefði mátt
ætla að St. Laurent gæti lséknað
kirtlaveiki með handayfirlagn-
ingu.
— Og þetta er aðeins Frakk-
land, sagði Sheila.
Hann var reyndar farinn að
skrifa hjá sér.
— Þetta er eins og með vínið,
sagði Sheila. — Hver einasti
Frakki viðurkennir að ýmis
^rönsk vín séu lélegri en sam-
6varandi bandarísk vín. En við
erum þeir dómadags srtóbbar-
Við viljum heldur lepja í okkur
miðlungs gott vín með frönskum
miða en fyrsta flokks vln frá
Califomíu. Eins er þetta með
fötin. Gott og vel, St. Laurent er
listamaður- En það er ekki af
þvi að hann er franskur, það er
vegna þess að hann er St. Laur-
ent. Og það er annað sem gerir
mig Hka fokreiða. Það eru kon-
umar sem vilja ekki ganga í
kjólum nema karlmaður hafi
teiknað þá. Mig langar mest til
að skyrpa á þær?
— Það fer yður vel, sagði Dane.
Og það var satt; reiðin gerði
vanga hennar rjóða og augu
hennar Ijómuðu.
Hún þagnaði og hló snöggt og
hressilega. — Við skulum koma
f. mat.
— Ég var búin að gleyma því
að það gæti verið gaman að
borða hádegisverð, sagði Sheila
Gray. — Þakka yður fyrir, herra
McKell.
— Hvernig væri að segja
Dane?
— Dane. jpg eruð þér í raun
og veru að skrifa bók með per-
sónu sem er tízkuteiknari?
— Af hverju efizt þér um það?
— Mér er lítið um fólk sem
leynir einhverju. Hún hló. — Ég
er alltaf á verði-
— Eina leynda ástæðan mfn
væri mjög persónuleg, og ég
get ekki ímyndað mér að neinni
konu væri illa við það.
— Og núna, sagði Sheila og
reis á fætur, — verð ég að fara
aftur í þrældóminn.
— Getum við ekki endurtekið
þetta bráðum? A morgun?
— Ég ætti ekki......
— önnur lexía f tízkuhúsinu
og svo hádegisverður?
— Vei, ó vei. Allt i lagi, ég
gefst upp, og har með var bað
hugsun og fasi, framkoma henn-
ar stakk í stúf við fas velflestra
kvenna — jafnvel freknurnar
sem hann hefði getað greint í
dagsbirtunni. Hún vaktí engar
sérstakar bdrdagakenndir. Það
var hægt að nálgast hana á eðli-
legan hátt, og hún myndi annað
hvort taka við eða vísa frá sér
án nokkurra vafninga. Honum
féll það vel-
Dane andvarpaði. Milli hans
sjálfs og Sheilu Grey var hroka-
full eigingimi föður hans og
máttvana sjálfsafneitun móður
hans. Þessi kvenmaður hafði kos-
ið að gerast ástmey föður hans
nokkrum metrum fyrir ofan höf-
uðið á móður hans; hún yrði að
taka afleiðingunum af því.
' En einu skuggahliðamar á
auknum kunningsskáp þeirra
reyndust búa í hans eigin hjarta.
Sheila var alveg Ijómandi. Hún
bruddi popkom eins og táning-
amir í kringum þau á útibíói,
horfði á kléssu utan úr geimn-
um merja undir sér örsmáar
mannverur og velta byggingum
þangað til fallegi ungi visinda-
maðurinn og glæsilega aðstoðar-
stúlkan hans tortímdu henni með
splunkunýjum dauðageislum. —
Hún klappaði saman lófum á
litlum stað sem hann tók hana
,með sér á, sem Hindúatrúflokk-
ur rak, og át ysting og mysu
eins og persóna 6r asvintýraibófc <
fyrir böm. Þegar skeggjaði
gestgjafinn bauð henni fíkju-
konfekt og sagði: — Það eykur
reglu, Sahibah, þá brosti Sheila
og þáði það og sagði: — Ég vildi
óska að eitthvað væri hægt að
gera til að auka reglu í ttfzku-
heiminum. Við nöppuðum einn
í morgun með myndavél.' Auðvit-
að var hann rekion og filrnan
eyðilögð- En svo veltirðu fyrir
þér, hvort einhverjum hafi ekki
lánazt þetta í gær. Við vitum
það ef eftirlíkingar af flíkum
bkkar verða til sölu fyrir 7.98
daginn eftir sýninguna hjá okk-
ur.
Það kom á daginn að njósnir
í tízkuheiminum voru stundaðar
af mikilli list- — Ég gæti gefið
þér efni í tíu skáldsögur, sagði
Sheila döpur í bragði.
— Ég á nógu erfitt með þessa
einu, sagði Dane og brosti. —
Og meðal annarra orða, hvemig
væri að borða saman kvöldverð
í kvöld klukkan átta?
Hún leit hvasst á hann. — Þú
ert kjánaprik, sagði hún. — En
indæll samt. Ég skal vem með
mantillu og' rauða rós í munnin-
um.
Dane var að verða um og ó.
Þetta gekk of vel. En svo hristi
hann af sér kvíðann.
Þau börðuðu kvöldverð í litlu
belgísku veitingahúsi, þar sem
verðið var ofsalega hátt, fóru
með ferjunni yfir á Staten Is-
land, fóru til Hoboken þar sem
þau ráfuðu um stunjiarkorn og
voru sammála um að það væri
meginlandssvipur á borginni
sums staðar. Á ferjunni til baka
stóðu þau hlið við hlið í skutn-
um og hann tók um höndina á
Sheilu. Hún hefði getað verið
hvaða stúlka sem var, sem hon-
um féll vel við. Fingur hennar
voru svalir og vinalegir, golan
ýfði hár hennar og lék við það-
Dane sagði ósjálfrátt: j- Hvað
segirðu um Dýragayðinn í Cen-
tral Park á morgun? Þar er hægt
að fá. himneskan mat.
— Það efast ég ekki um.
Sheila hló, en hlátur hennar var
angurvær. — Nei, Dane, ég er
búin að slá slöku við of lengi.
Þú eyðileggur mig.
— Kvöldmat? Ég veit um ar-
menskan stað —
— Nei, það kemur ekki til
mála. Ég er of langt á eftjr. Á
morgun er það óhugsandi.
Á morgun var miðvikudagur.
Hugsunin var eins og rothögg-
Auðvitað. Hún færi ekki út með
Ives St. Laurent sjálfum á
I miðvikudagskvöldi. Miðvikudags-
i
FÍFA aug/ýsir
Þar sem verzlunin hættir verða allar vör-
ur seldar með 10% — 50% afslætti
Verzlunin FfFA
Laugavegi 99.
(inngangur frá Snorrabraut).
i
!
UG-RAUBKÁL - IMIRA GOTT
SKOTTA
Nei, það er ekkert að símasa mbandinu, ég er bara að éta
saltstangir
bílastæði
BÍLLRNN
Gerið við bíla ykkar sjólf
Við sköpum aðstöðuna. — Bílaleiga.
f \
BÍLAÞJÓNDSTAN
Auðbrekku 53. Kópavogi. — Sími 40145.
Lótið stiila bílinn
Önnumst hjóla-, ijósa- og mótorstillingu.
Skiptum um kerti, platínur, ljósasamlokur.
— Örugg þjónusta
BÍLASKOÐUN OG STILLING
Skúlagötu 32. sími 13100
Hemlaviðgerðir
• Rennun; bremsuskálar.
• Slípum bremsudælur
• Límum á bremsuborða.
Hemlastilling hf.
Súðarvogi 14 - Sími 30135.
Bifreiðaeigendur
Þvoið, bónið og sprautið bílana ykkar sjálfir. Við
sköpum aðstöðuna. Þvoum og bónum ef óskað er.
Meðalbraut 18, Kópavogi.
Sími 4-19-24.
Auglýsingasími Þjóðviljans er 17500
■