Þjóðviljinn - 29.02.1968, Side 10
10 SÍÐA — >JÖÐVII«nNN —• MHimtitdaguir 29. fébiröair 1968.
SAKAMÁLASAGA
Eftir
J. B. PRIESTLEY
22
— Innan tíðar. Kannski íbyrj-
un næstu viku. Ég á smávegis
ógert enn.
— Búnir að losa yður við
íbúðina?
— Já. Hjón bíða eftir þvi
að flytja inn strax og dótið
mitt er farið.
— Indaelt fólk? spurði Gooch
vongóður.
— Ekki indaelt, ekki sæmt.
Brúður. Nei, þetta er ekki sann-
gjarnt, flýtti Salt sér að bæta
við- — Hef aðeins hitt þau tvisv-
ar sinnum. Þau eru ef til vill
ágæt.
— Þér eruð feginn að kom-
ast frá Birkden, er ekki svo?
— Ég er svo sem búinn að
fá nægju mína eftir sjö ár.
Og þó er það varla verra hér
en í tuttugu 'eða þrjátíu öðrum
borgum af sömu stærð.
— Þetta er ég alltaf að segja
við Joan — konuna mina — en
hún vill óð og uppvæg kom-
ast héðan. Alltaf að nauða í
mér. Þér vitið hvemig konur
eru.
— Líffræðilega — já. Annars
ekki. Nema ég þekki þær vel
auðvitað.
— Finnst yður þær ekki all-
ar eins? Gooch virtist forviða.
— Síður en svo. Það eru karl-
'menn sem álítai allar konur eins,
sem eru í rauninni alveg eins.
— Þér valdið mér furðj, lækn-
ir. En ég verð að fara og vinna
fyrir nokkrum pensum. Sælir.
Salt læknir blés nokkrum reyk-
skýjum á eftir hinum harðstíga
Gooch, og síðan fór hann inn
til að hringja í kunningia sinn,
Broadbent liðþjálfa, á lögreglu-
stöðinni. — Það er í sambandi
við tvennt, liðþjálfi, ef þér viljið
vera svo góður. Ég held að Hurst
yfirlögregluþjónn ætli að koma
hingað að finna mig um fimm-
leytið í dág. Gætuð þér gefið
mér staðfestingu á því? Hitt er
þetta. Gætuð þér komizt að því
fjrrir mig, hvort sjújcrabíll hafi
komið í verksmiðjuklúbbinn ein-
hvem tíma síðdegis á mánu-
dag? Og ef svo var, hvert fór
hann þá? Hér þætti vænt um
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laugav 18. III hæð (lyfta)
Sími 24-6-16.
PERMA
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21. SÍMl 33-968
að þér hringduð til mín hingað
strax og þér getið það með
hægu móti — Birkden 52317.
Þér hafið það. Þakka yður kær-
lega fyrir, Broadbent liðþjálfi.
Hann tók fram af borðinu og
þvoði upp mataráhöldin, hægt,
viðutan, en mjög snyrtilega. Hann
tíndi upp nokkra reikninga, fór
með þá að skrifborði sínu úti
í enda á setustofunni, skrifaði
ávísanir og utaná viðeigandi um-
slög- Síðan horfði hann á ringul-
reiðina í stofunn.i, plöturnar og
bækumar og komst að þeirri
niðurstöðu að hann gæti ekkert
átt við það núna. Síminn hringdi
og það var Broadbent liðþjálfi.
— Yfirlögregluþjónninn kemur
að finna yður um fimmleytið í
dag, Salt læknir. Og ég er bú-
inn a<ð láta hann hafa heimilis-
fang yður. Ég sagði honum ekki
frá fyrirspum yðar um sjúkra-
bílinn. Enda er svarið neikvætt.
Það var ekki beðið um neinn
sjúkrabíl í Verksmiðjuklúbbinn
eða nágrenni hans á mánudag.
Það er alveg víst. Kemur það
yður á óvart?
— Nei- Ékkert kemur mér á
óvart að morgni dags. En stöku
sinnum þegar líða fer á kvöldið
verð ég dálítið hissa.
— Þér eruð skrýtinn fugl, Salt
læknir, er það ekki?
— Nei, en ég þákka yður
kærlega fyrir, Broadbent lið-
þjálfi'.
— Ekkert að þákka. En þér
vilduð kannski segja mér núna,
hvers vegna þér voruð að spyrj-
ast fyrir um þetta?
— Þér mynduð ekki hafaneinn
áhuga á því. En ég þakka yður
enn.
Salt lagði frá sér heymartól-
ið Og sat grafkyrr nokkur and-
artök. Hann var að reyna að
rifja upp nafnið á hinum lækn-
inum — ekki Bennett lækni —
sem Dews hafði minnzt á. Svo
mundi hann það — Lemmert.
í skyndi fletti hann því upp
í símaskránni og honum létti
þegar hann fann það. Hann vildi
ekki tala við Lemmert lækni í
sjúkraskýli verksmiðjunnar, und-
ir sama þaki og Aricson og Sir
Amold Donnington. Hann flýtti
sér að hringja í númerið sem
hann hafði fundið í skránni.
— Þetta er Salt læknir, sagði
hann við stúlkuna sem svarað<.
— Ég þarf að tala við Lemmert
lækni- Það er dálítið áríðandi,
en það tekur aðeins sksmrna
stund, en ég get verið kominn
eftir fimm eða tíu mínútur.
Eftir stutta bið sagði stúlkan
að Lemmert læknir væri í þann
veginn að fara, en ef Salt lækn-
ir, sem mætti ekki tefja hann
lengi, kæmi undir eins, þá myndi
Lemmert læknir tala við hann.
Af raddhreim stúlkunnsr mátti
ætla, að Salt lækntr gæti • álitið
sjálfan sig stálheppinn mann.
Hann sá hana fyrir sér sem
dökkhærða stúlku með sál í and-
litinu og stór dökk augu sem
sátu sig aldrei úr færi að hvíla
á hinum dásamlega Lemmert
lækni. Og þe<ttá kom allt heim
og saman.
Salt læknir hafði aldrei séð
Lemmert fyrr og eftir fyrsta
tillit komst hann að þeirri n<ð-
urstöðu, að honum væri sama
þótt hann sæi hánn aldrei aft-
ur. Lemmert læknir yar hár og
grannur ungur maður með langt
nef og heldur lítilfjörlegt og
mjósaralegt enni og andlit. Flest-
ir ungir læknar voru ýmist
hjartanlegir og hressilegir eða
með tilhneigingu til yfirlætis.
Lemmert var af yfirlætisgerðinni.
Salt læknir ákvað samstundis
leiftursókn.
— Þegar þeir sendu eftir yð-
ur í Verksmiðjuklúbbinn á mánu-
dag, sagði hann og hvessti aug-
un, — hvað gerðuð þér þá við
sjúklinginn?
— Afsakið —
— Þér sögðuð að tími yðar
væri dýrmætur — og nú eruð
þér að sóa honum og mínum
tíma líka, hélt Salt lækniráfram,
þungur í brúnina. — Hann heit-
ir Culworth. Hann er bóksali
í Hemton. Ég er fjölskylduvin-
ur. Dóttir hans kemur að finna
mig í dag. Þess vegna er ég
kominn hmgað. Jæja, Lemmert,
hvað um hann?
Yfirlæti Lemmerts læknis á-
samt hinum nýlega virðingar-
votti frá Sameinuðu verksmiðj-
unum, sherryglösunum með Benn-
ett gamla og ef til vill
augun dökku í næsta herbergi,
gerði það að verkum að ha<nn
stóð berskjaldaður fyrir þess-
ari óvæntu árás. Ef Sált læknir
hefði raaskt sig, verið afsakandi
og feimnislegur í fyrirspumum
sínum, bá hefði Lemmert haft
tíma til að taka ákvörðun og
segja síðan gesti sínum að vfira
ekki með neina vitleysu heldur
hafa sig á brott. Hann varð
hvumsa. hikaði við og fyrir
bragðið gat hann ekki komið
með afdráttarlausa neitun.
— Jæja? Salt læknir hvessti
enn augun.
— Hann varð fyrir slysi ekki
langt frá Verksmiðjuklúbbnum,
á lóðinni kringum stóra, mann-
lausa húsið —
— Worsleyhúsið gamla?
— Já. Höfuðhögg. Mér líkaði
ekki hjartað. Og þegar hann
komst til meðvitundar, reyndist
hann vera í miklu andlegu upp-
námi- Alger hvíld — róandi lyf
að sjálfsögðu. — Og Lemmert
læknir lækkaði röddina enn unz
hún dó út.
— En enginn sjúkrabíll?
— Það sparaði tíma að nota
einn af bílum fyrirtækisins —
— Þvættingur, sagði Salt
læknir. — Það sparaði eitthvað,
en ekki tíma. Hvert fóruð þér
með hann?
— Þar sem hann fær full-
komna aðhlynningu —
— Ég bjóst ekki við að hanr.
værj bundinn í kjallarakompu.
En ég vil fá að vita hvar hann
er.
Lemmert læknir var búinn að
jafna sig eftir fyrstu óvæntu
árásina. — Hann fær fullkomna
læknishjálp og aðhlynningu, Salt
læknir. Fyrirtækið tekur á sig
allan kostnað, jafnvel þótt hann
hafi engan rétt haft til að vera
á ferli á þessum slóðum. Hann
er sjúklingur minn, ekki yðar,
og ég sé enga ástæðu til að ég
sé að segja yður hvar hánn er
— enda hefur hann hresstst mjög
siðustu tvo dagana. Og ef þér
viljið hafa mig afsakaðan —
— Andartak, Lemmert. Ég
skal ekki ganga á yður út af
dvalarstað hans. Ég á auðvelt
með að komast að því. Og þeg-
ar þar að kemar, verður dóttír
hans með mér. En ef það er
eitthvert grugg í þessu máli —
og það finn ég á augabragði —
þá getið þér og heilsuhælið kom-
izt í fjandans klandur. Þér send-
uð ekki eftir sjúkrabíl. Þér haf-
ið ekki komið boðum til neins
af aðstandendum hans. Þér haf-
ið nú neitað að gefa upplýsing-
ar, sem fjölskylda hans hefur
faríð fram á. Og ef þér eða for-
stöðukonan gefið honum svo mik-
ið sem eina sprautu að óþörfu,
til að haida honum rænulausum
eða róiegum, þá eruð þér illa
á vegi staddur. Ég get gert yður
einn greiða, Lemmert læknir.
Ég skal finna hann sjálfur —
svo að þér getið sagt Aricson
eða Donnington að það sé ekki
yðar sök. En ef þér reynið ein-
hver undarlegheit eftirleiðis —
þá eigið þér eftir að óska þess
að þér hefðuð aldrei heyrt
minnzt á Sameinuðu verksmiðj-
umar. Sælir
Hanh flýtti sér svo mjög út
að hann rakst á dökkhærðu
stúlkuna sem stóð rétt við dym-
ar. Hún leit á hann með • við-
b.jóð í svipnum, þennan mann
sem hafði verið að gera sig breið-
an við Lemmert lækni, þennan
dásamlega mann. — Bless. elsk-
fen, kallaði hann glaðlega.
2.
Þegar hann kom upp í bílinn
sinn, ók hann ekki af stað undir
eins, kveikti sér í pípu meðan
hann var að velta fyrir sér
hvort hann ætti að fara í aðra
heimsókn til frú Pearson í Olt-
on stræti 45. Hann ók varlega
eftir löngu strætinu sem sægur
af ungum bömum var að reyna
að nota sem leikvöll. og hann
hugsaði með sér og ekki í fyrsta
sinn, að fólkið sem sætti sig við
þessi Olton stræti kynslóð eftir
kynslóð án þess að kasta nokkr-
um múrsteinum, þegar 3.000.000
sterlingspundum var sóað í tvö
hús í Downing Street, ætti senni-
lega skilið það sem það fékk. Frú
Pearson var fegin’ að sjá hann.
þótt hún væri ekki klædd til að
taka á móti gestum.
— Peggy er búin að skrifa,
sagði hún þegar þau voru búin
að koma sér fyrir í litlu, loft-
þungu setustofunni. — Hún er
hjá frænku sinni í Birmingbam,
þangað til hún fær vinnu — og
hún er að reyna fyrir sér í kvik-
myndahúsi, hún nefnir ekki hvað
það heitir, en auðvitað er sæg-
ur af þeim í Birmingham og
Peggy hefur reynsluna, já, það
hefur hún. Og hún fór burt af
því að einhver andstyggilegur
strákgaur sagði henni að stein-
halda kjafti og sló hana utan-
undir og velti um kpll fötunni
sem hún setti miðana í. Hún
heldur að það hafi staðið í ein-
hverju sambandi við Noreen
Wi4ks. Getur það verið. lækn-
ir?
— Já, ég held það, frú Pear-
son. En þér getið sagt henni frá
mér, að ef hún vill koma til baka,
þá getur hún það — kannski
ekki í þessari viku, en í næstu
viku.
— Ég skal skrifa og segja
henni það, lækmir. Þér segið, oð
henni sé það óhætt, eða hvað?
Þá skrifa ég henni strax í dag.
SKOTTA
Þvoið hárið ár LOXENE-Shampoo — og flasan fer
— Analussvipur þinn er enn dapurlegri en hann var fyrtr 5 mín-
útum, svo að ég labba af stað heim!
Trilla óskast
1 — 2ja tonna trilla óskast til kaups. Tilboð
sendist afgreiðslu Þjóðviljans merkt: Á sjó.
UmboBssaia
Tökum i umboðssölu notaðan kven- og
herrafatnað.
Verzlun GUÐNÝJAR, Grettisgötu 45.
FRÍMBRKI- FRÍMERKI
innlend og erlend i úrvali.
Ötgáfudagar — irinstungubækur — Tengur og
margt fleira. — Verðið hvergi lægra.
Verzlun GUÐNÝJAR, Grettisgötu 45.
BÍLLINN
Gerið við bíla ykkar sjólf
Við sköpum aðstöðuna. — Bílaleiga.
B í L AÞ JÓNUSTAN
Auðbrekku 53, Kópavogi — Sími 40145.
Lótið stilla bílinn
Önnumst hjóla- Ijósa- og mótorstillingu
Skiptum um kerti, platínur, ljósasamlokur.
— Örugg þjónusta.
bílaskoðun og stilling
Skúlagötu 32. sími 13100
Hemlaviðgerðir
• Rennum bremsuskálar.
• Slípum bremsudælur.
• Límum á bremsuborða. :
Hemlastilling hf.
Súðarvogi 14 — Sími 30135.
»
•4
«