Þjóðviljinn - 31.03.1968, Page 2
2 SfÐA — ÞJÖÐVTEJINN — Sunnftxtegur 31. stnarz 1965.
V. Kortsnoj sigraii með yfír-
burðum í Beverwijk
Sovézki stórmeistarinn, Vict-
or Kortsnoj, sigraði með mikl-
um yfirburðum í hinu árlega
skákmóti í Beverwijk í Hol-
landi. Hlaut hann 12 vinninga
af 15 mögulegum, tapaði aðeins
fyrir Portisch í 12. umferð, en
hafði þá 10 V2 vinning. Kortsnoj
er frekar misjafn skákmaður;
þegar honum tekst upp, vinnur
hann með miklum yfirburðum,
en getur þess á milli lent í
neðri sætum á skákmótum.
Kortsnoj er einn af átta kandí-
dötum til heimsmeistarakeppni
og mætir Reshewsky frá Banda-
rikjunum í 1. umferð í 10 skáka
einvígi í vor. í 2.—4. sæti komu
Hort (Tékkósl.), Portisch (Ung-
verjal.) og Tal (Sovétr.) með
9 vinninga. Hort tapaði engri
skák. en vann ekki nema þrjár.
Portisch tefldi ekki eins örugg-
iega og oft áður, lék t.d. grófum
afleik í byrjun gegn Donner og
stóð uppi með gjörtapað tafl
eftir aðeins 11 leiki. Tal var
ekki svipur hjá sjón, virtist
þreyttur. í 5. sæti kom Gheorg-
hiu (Rúmeníu), S’/á v. 6.—7.
Ciric og Matanovic (báðir
Júgósl.), 8. v. 8—9 Ivkov
(Júgósl.) og Ree (Hollandi),
7VZ v. 10.—12. Bobotzov, Pad-
evsky (báðir Búlgaríu) og
Donner (Hollandi), 7 v. 13.
Karaklajic (Júgósl.), 6% v. 14.
Rossolimo (Bandar.), 6 v. 15.
Langeweg (Holl.), 5 v. 16. van
Geet (Holl.), 3 v. Athyglisverð
er frammistaða Ree, skákmeist-
ara Hollands, sem aðeins er
rúmlega tvítugur að aldri.
Við skulum svo líta á skák
Kortsnoj við Tal, skákir þeirra
eru yfirleitt mjög harðar og er
þessi engin undantekning.
Hvítt: Kortsnoj. Svart: Tal.
NIMZOINDVERSK VÖRN
1. d4
2. c4
3. Rc3
4. Rf3
5. e3
6. Re2
Rf6
e6
Bb4
c5
0—0
d5
Eftir þennan leik getur hvít-
ur frestað stuttri hrókun og
leikið 7. a3. Athugandi hefði
verið 6. —, b6
Nýjar
uppsprettulindir
Styrmir Gunnarsson blaða-
maður Morgunblaðsins var
um skeið mikill sérfræðingur
í málefnum Alþýðubandalags-
ins. Birti hann margar grein-
ar og frásagnir um innan-
flokksmál bandalaigsins, og
duldist ekki að hann hafði
heimildarmann eða heimild-
anmenn innan samtakanna,
þótt ekki hefði Styrmir heið-
arleikann eða áttavita við
notkun heimildanna. Eftir að
fáeinir menn gengu af mið-
stjómarfundd Alþýðubanda-
lagsins í fyrrahaust og hafa
síðan ekki tekið þátt í störf-
um flokksins hefur hins veg-
ar brugðið svo við að upp-
sprettulindir Styrmis hafa
þrotið með öllu á þeim vett-
vangi. En nú er hann tekinn
að leita sér' fanga annar-
sitaðar. 1 gær birti , Morgun-
blaðið • herlsíðu grein eftir
þennan ötula spæjara sinn,
en þar er rakið hvað gerð-
ist ínnan samninganefndar Al-
þýðusambandsins í verkföll-
, unum miklu í þessum mán-
uði. Telur Styrmir sig hafa
hinar nákvæmustu heimildir
um það hvernig ..Eðvarð Sig-
urðsson hafi þagað svo til
alla fyrstu viku verkfallsins".
hvemig Hannibal Valdimars-
son hafi „varpað fram hug-
myndum um hugsanlegar til-
slakanir", hvernig Eðvarð
Sigurðsson hafi „sett fram
hótun“ en Bjöm Jónsson séð
„þegar í stað við þessum
klækjum kommúnista" o.s.frv.
Fer ekki mllli mála að Styrm-
ir Gunnarsson hefur þaft
heimildarmann eða heimildar-
menn innan sjálfrar samn-
inganefndar verklýðsfélaganna,
þótt hann noti enn sem fyrr
heimiidimar á svipaðan hátt
og ónefnd persóna heilaga
ritnnngu.
Mann-
jöfnuður
Styrmir hefur engan áhuga
á þeim kjaraatriðum sem um
var barizt í verkföllunum,
heJdur býr harm til reyfara
um skuggaleg og dularf uil á-
tök innan samninganefndar-
innar. Skiptir hann mpnnum
í sikúrka og vammlauisar hetj-
ur, eins og góðum reyfara-
höfundi saemir, Dg lætur hetj-
umar sigra að lokum eins og
vera ber. „Með tilliti til þess
takmarks, sem kommúnistar
hugðust ná í samningaviöræð-
unum hafa þeir beðið algjöran
ósigur . . . En óneitanlega
voru broslegir tilburðir komm-
únista daginn áður en samn-
ingar tókust er þeir breiddu
út hetjusögur um frammi-
stöðu Eðvarðs f samningun-
um sem enginn fótur var fyr-
ir“. En það er fótur fyrir
öðru: „Einn maður kemur
sterkari og áhrifaimeiri út úr
þessum samningum og verk-
föllum en nokkru sinni fyrr,
en það er Sverrir Hermanns-
scm, formaður Dandssambands
fslenzkra verzlunarmanna, sem
átti verulegan. þátt í þvl að
þoka málum áleiðis og greiða
fyrir samninigum. Með starfi
sínu í þessum samningum
hefur Sverrir Hermannsson
tvímælalaust áunnið sér sess
sem einn helzti forustumaður
launþega í Sjálfstæðistflokkn-
um ásamt Pétri Sigurðissyni
alþingismanni, og er Ifklegt
að hann láti að sér kveða f
vaxandi mæli, bæði innan
verkllýðssamtakanna og á
stjórnmálasviðinu". Það er að-
eins einn maður sem Styrmir
Gunnarsson setur framar
Sverri Hermannssyni, at-
vinnurekanda og „verklýðs-
leiðtoga“: „Niðurstaða samn-
inganna varð sú, að Bjöm
Jónsson kemur sterkari út úr
þeim og er líklegur til auk-
inna vegsemda innan verka-
lýðssamtakanna".
Al-
vörumál
Það er mikið alvörumál
fyrir verklýðssamtökin ef frá-
sagnir af lokuðum samninga-
nefndarfundum fara beina
boðleið til atvinnurekenda og
birtast í málgagni þeirra, þótt
í reyfarabúningi sé. Hins veg-
ar gebur .gæðamat Morgun-
blaðsins á forustumönnum
verklýðssamtakanna orðið
fróðlegt fyrir ýmsa. — Austri.
7. a3 cxd4
8. axb4 dxc3
9. bxc3 Dc7
10. Db3 Bd7
Vafasamur leikur.
11. Bb2 Hfc8
12. cxd5 —
Tal áleit 12. c5, b6 13. c4, bxc5
14. Bxf6, gxf6 15. cxd5 enn
betra fyrir hvítan.
12. exd5
13. 0—0 Be6
14. Rd4 Rbd7
15. Ha5 afi
16. Hfal Hab8
17. Ddl Re5
18. Hc5 Db6
19. Rxe6 fxe6
Nauðsynlegt var 19.—,
20. c4! —
Þennan leik tók Tal ekki með
í reikninginn.
20.-----Rxc4
Heldur skárra er 20. —, Hxc5
21. Bxe5, Hcc8 22. Bxb8,Hxb8
23. Db3. Hc8 o. s. frv.
. 21. Bxf6 gxf6
22. Bxc4 dxc4
23. Dff4t Kh8
24. Dd4 Dd8
25. Dxc4 Hxc5
26. bxc5 Dd7
Meiri jafnteflismöguleika
hafði svartur í hrókaendatafli
eftir 26. —, Dd5 27. Dxd5, exd5,
þrátt fyrir að svörtu peðin
væru þá mjög veik.
27. Df4 Hf8
28. h4 Dd5
29. Hbl!----------
Endatöfl með þungu mönn-
unum (þ.e.a.s. drottningum og
hrókum) eru mjög erfið og að-
alvandinn fólginn í að sameina
sókn og vöm.
29. e5
30. Df5 a5
31. Hb6 a4
32. Hd6 Df7
33. Hd7 Dg6
34. De6 Dblf
Tal var í mikilli tímaþröng.
35. Kh2 De4
36. g3 ------
Betra hefði verið ag leika 36.
Kh3, Dbl 37. Hd8 eða jafnvel
36. Hd4.
36. Dc2
37. Kg2 De4f
38. Kfl Dblf
39. Ke2 Dc2f
40. Kf3 Dxc5
41. Hxb7 Dc8
42. Hd7
Biðleikurinn, sem Tal bjóst
ekki við og rannsakaði ekki.
Tal var hræddur við 42. De7,
Df5f 43. Kg2, Hg8 44. Hb6, Hg6
45. Hþ8t, Hg8 46. Hf8 og hvítur
vinnur.
42------------- De8
Nú lendir svartur í töpuðu
endatafli. Betra var að reka
hvíta kónginn frá miðborðinu
með 42. —, Da8f (43. Kg4, De4f
og svartur þráskákar) og síðan
43. — De8.
43. Dxe8 Hxe8
44. Ha7 Hb8
45. h5 Kg8
INNHEIMTA
LÖOFKÆOt&TÖHW
TÞOfZ
Mávahlíð 48. — S. 23970 og 24579.
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMI 32-101.
„Leikhús ó geimferðaöld"
46. Hxa4 Hb7
47. Kg4 Kg7
48. Ha2 Hh6
49. Kf5 Hb6
50. e4 Hc6
51. f4 exf4
52. gxf4 Hc5f
53. Kxf6 Kxh5
54. e5 Kg4
55. f5 h5
56. Ha4f Kg3
57. e6 h4
58. e7 Hc8
59. Kf7 og Tal gafst upp.
(Skýringar eftir Kortsnoj úr
Deutsche Scachzeitung).
FRÉTTIR:
Gagnfræðaskóli Kópavogs
sigraði í skákkeppni gagn-
fræðaskólanna 1968, sem haldin
var dagana 9., 10. og 16. marz
í Skákheimili T.R. í samvinnu
Æskulýðsráðs Reykjavíkur og
Taflfélags Reykjavíkur. Hlutu
Kópavogsmenn 3314 vinning af
42 mögulegum. 2. Hagaskóli
28% v. 3. Gagnfræðaskóli Aust-
urbæjar, 26% v. 4. Réttarholts-
skóli 24. v. 5. Hlíðaskóli, 19 % v.
6. Langholtsskóli, 18 v. 7. Aust-
urbæjarskóli, 9% v. 8. Gagn-
fræðaskólinn við Lindargötu
8% v.
Laugardaginn 23. marz tefldi
Leifur Jósteinsson fjöltefli við
26 unglinga í Skákheimili T.R.
Hann vann 22, en tapaði 4. Þeir,
sem unnu Leif, voru Benedikt
Zoega, Sigurður Sigurjónsson,
Torfi Stefánsson og Ragnar Jó-
hannesson.
Leikhús á geimferðaöld er
nafnið á námskeiði, sem Nor-
ræna leikhússambandið gengot
fyrir í Hásselbyhöll í Stokkhólmi
dagana 12.—13. miaí í vor. Um-
ræðuefni námskeiðsihs verða um
tæknileg hjálpartæki leikhús-
amn.a, svo sem hljómtæki, skugga-
myndir, filmur og elektronik.
Þátttakendur geta fengið her-
bergi og mat á Hásselby meðan
námskeiðið stendur. Félagar í
Norræna leikhússambandinu
eiga rétt á bátttöfcu eftir þvi sem
húsrúm leyfir.
Aukakeppni Stein (Sovétr.),
Hort (Tékkósl.) og Reshewsky
(Bandar.) um eitt sæti í kandí-
datamótinu lauk í marzbyrjun
í Los Angeles í Bandaríkjunum.
Urðu allir jafnir að vinningum,
allar skákir jafntefli, nema
Stein og Hort unnu sína skák-
ina hvor í innbyrðis keppni
þeirra. Reshewsky kemst því í
kandídatamótið, vegna þess að
hann hafði bezt stig í milli-
svæðamótinu í Túnis sl. haust.
Bragi Kristjánsson.
Góðar gjafir til
Skálatúns
• Nýlega veitti stjóm sund-
laugarsjóðs Skálatúns móttöku
stórgjöf frá kvenmadeild Sálar-
rannsóknarfélagsins, pen. að
trpphæð kr. 66.080.00. Einnig
pen. að upphæð kr. 10.000,00
frá Erlu Sigurðard. Skálatúni.
Þessum gefendum þakkar
sitjóm sjóðsins aif alhug góðan
stuðning við málefnið.
Verkamannafélagið
Dagsbrún
Reikningar Dagsbrúnar
fyrir árið 1967 liggja frammi í skrifstófu
félagsins.
3.1 c / ,.*
Aðaifundur Dagsbrúnar
verður í Iðnó mánudaginn 8. apríl kl. 20,30.
STJÓRNIN.
KIRKJUTÓNLEIKAR í
KÓPAVOGSKIRKJU
2. apríl 1968 klukkan 21,00.
Aðalheiður Guðmundsdóttir,
mezzosopran.
Páll Kr. Pálsson,
orgelleikari.
Aðgöngumiðar við innganginn.
Vegna flutnings
verða skrifstofur bæjarfógetans í Hafnarfirði og sýslumannsins i
Gullbringu- og Kjósarsýslu lokaðar mánudaginn 1. apríl n.k.
Frá og með þriðjudegi 2. apríl verða skrifstofumar í húsinu nr.
31 við Strandgötu, Hafnarfirði 2. og 3. hæð (inngangur frá
Gunnarssundi).
Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu,
bæjarfógetinn í Hafnarfirði