Þjóðviljinn - 10.11.1968, Side 4
4 SÍÐA — ÞJöÐVTLJINN — Suamudaigur 10. nóvetmber 1068.
Ctgefandi: Samemingarflokk/ur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb), Magnús Kjartansson.
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastj.: Ölafur Jónsson.
Framkv.stjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjóm, afgredðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19.
Sími 17500 (5 línur). — Áskriftarveirð kr. 130,00 á mánuði. —
Lausasöluverð krónur 8,00.
Innlimun ís/ands í EFTA
graskaralýður íhaldsins hefur fyrir löngu ákveðið
að nota stjómmálavald Sjálfstæðisflokksins til að
þvæla íslandi inn í efnahagsbandalögin sem stofn-
uð hafa verið í Evrópu, án alls tillits til hinnar gífur-
legu hættu sem sjálfstæði 200 þúsund manna þjóðar
stafaði af slíkri innlimun. Ekki vantaði mikið á að
íhaldinu tækist með hjálp Alþýðuflokksins að
lauma íslandi beint inn í Efnahagsbandalag Evrópu
fyrir nokkrum árum; undirbúningsáróðurinn var
kominn í fullan gang. Að það fórst fyrir í það skipt-
ið eiga íslendingar að þakka frönsku ríkisstjórninni,
sem hafnaði þátttöku Breta og Norðurlandaríkja.
Þá var stefnan tekin á Fríverzlunarbandalagið.
Höfð var sama aðferðin og við alúmínsamningana
alræmdu. Fyrst tekur braskaravald íhaldsins sína á-
kvörðun og reynt er að tryggja að Alþýðuflokkur-
inn dragnist með. Svo er sett á laggirnar til mála-
mynda virðuleg nefnd með mönnum úr öllum þing-
flokkunum og hún athugar málið í hjáverkum í
nokkra mánuði, safnar hinum og þessum gögnum,
setur þau saman í skýrslu. Loks er svo hin fyrirfram
gerða ákvörðun braskaralýðs íhaldsins rekin gegn-
um Alþingi, í einum áfanga eða tveimur, með hin-
um nauma meirihluta stjómarflokkanna, og að
engu haft það sem fram hefur komið í athugunar-
nefndinni, rnálið afgreitt algerlega að geðþótta og
á ábyrgð stjómarflokkanna. Einmitt vitundin um
þá afstöðu ríkisstjórnarinnar í alúmínsamningun-
um að hún ætlaði að gera samningana hvað sem það
kostaði, gerði samningaimennina íslenzku að við-
undri og setti þá í þvílíka klemmu að þeir þóttust
verða að taka við auðmýkjandi nauðungarákvæðum
af hálfu hins erlenda auðfélags.
jyú á að leika sama leikinn með innlimun íslands í
EFTA. Ekkert tillit er tekið til athugunamefndar-
innar sem heildar. Ekkert tillit tekið til þess þó báð-
ir stjómarandstöðuflokkamir, tæpur helmingur Al-
þingis, telji ekki tímabært að Alþingi taki nú aðild-
aruimsókn íslands til afgreiðslu, því raunar sé allt
það ógert sem gera þyrfti í íslenzkum efnahagsmál-
um ef til þess ætti að koma að ísland gerðist aðili.
Stórhættuleg „jafnréttisákvæði“ EFTA, sem auð-
velda myndu auðvaldi stórveldisins Bretlands inn-
rás í atvinnulíf íslendinga, virðast engin hindrun.
Eitt þúsund miljóna tekjumissi ríkissjóðs árlega af
niðurfellingu tolla segir Gylfi Þ. Gíslason hægt að
fá með stórhækkuðum söluskatti og fas’teigna-
gjöldum. Ráðherrann viðurkenndi að afleiðing af
inngöngu íslands í EFTA yrði m.a. að heilar grein-
ar íslenzks iðnaðar sem nú veita nokkrum þúsund-
um manna vinnu hlytu að hrynja í rúst. Um „hagn-
að“ íslendinga af aðild er allt á reiki, einungis sagt
að komi íslendingar í framtíðinni upp nýjum út-
flutningsiðnaði, megum við allramildilegast keppa
við Bretland, Norðurlönd, Sviss og Austurríki, sem
öll eru með háþróuðustu iðnaðarríkjum álfunnar,
á heimamörkuðum þeirra!
^kvörðun braskaralýðs íhaldsins er löngu tekin.
Fyrst skal íslandi þvælt inn í EFTA, síðar ef færi
gefst í Efnahagsbandalag Evrópu. — s.
18. olympíuskákmótið í Lugano:
Þegar Ingi sigraði
Tékkann V. Hort
Ingi peð á drottnirugarvæng
□ Loks eru íamar að berast
skákir frá Olympíuskákmót-
inu í Lugano.
ö Munum við reyna að birta
sem mest af jæim á næst-
unni. Sökum þess hve okkur
bárust skákimar seint get-
um við aðeins birt tvær
skákir í dag.
□ Sú fyrri er viðureign Inga R.
Jóhannssonar við tékkneska
stórmeistarann Hort. Sú skák
er að ýmsu leyti mjög sér-
kennileg. Svartur virðist fá
nokkurt fmmkvæði út úr
byrjuninni og býst til sókn-
ar á kóngsvæng, en þá legg-
ur Inigi út í næsta furðuleigt
ferðalag með kóng sinn.
Ferðast kóngurinn yfir þvert
borðið frá gl til a2 og reyn-
ist þar skjólgott.
□ Hort gerir ítrekaðar tilraun-
ir að komast áleiðis en verð-
ur ekkert ágenigt. Skyndilega
snýst taflið við og vinnur
Æ. F. R:
í kvöld kl. 8,30 verður Jóni
Rafnssyni heiðursfélaga ÆF hald-
ið samsæti í Tjamargötu 20. Les-
ið og kveðið verður úr verkum
Jóns auk þess sem hann mun
sjálfur flytja frumort atómljóð
tileinkað félaga Stalán.
Félagar eru hvattir til að fjöl-
menna.
Æ. F. K:
Leshringur. Kapitalískt hag-
kerfi. Einar Olgeirsson. Miðviku-
dag kl. 9 í Þinghól. — Æ.F.K.
Kvenfélag
sósíalista
Fundur í Kvenfélaigi sósíalista
miðvikudaginn 13. nóvember.
Fundiarefni auglýst síðar. •—
Stjórnin.
og brýzt á sama tíma í gegn
kónigsmegin, vinnur mann og
öllu er lokið.
□ Seinni skákin er sýnishom
af taflmennsku áskorandans
Spasskys. — Andsfæðingur
hans, Israelsmaðurinn Porat,
en svo bjartsýnn að velja
byrjun sem Spassky þekkir
liklega manna bezt eftir ein-
vigi sitt við Petrosjam. Og út-
koman er auðveldur sigur^
hjá Spassky.
Hvítt: INGI R. JÖHANNSSON
Svart: HORT.
BENONI-VÖRN.
1. d4 Rf6
2. c4 c5
3. d5 e5
4. P«3 d6
5. e4 Be7
6. Bd3 0-0
7. Rf3 Rbd7
8. 0-0 Re8
9. a3 g6
10. Dc2 Rg7
11. b4 f5
12. Hbl b6
13. Rd2 Bg5
14. Rb3 Bxcl
15. Dxcl f4
16. f3 h5
17. Hf2 g5
18. Kfl g4
19. Ke2 Rf6
20. Kdl Bd7
21. Kc2 Rh7
22. Kb2 Rg5
23. Hfl Hf6
24. Ka2 Hg6
25. Hb2 Re8
26. Del Hg7
27. Kal Df6
28. Ka2 Hc8
29. Rd2 Hc7
30. bxc5 Hxc5
31. Bc2 gxf3
32. gxf3 Rh3
33. Bd3 Hc8
34. Rb3 Rc7
35. a4 Ra6
36. Ka3 Rc5
37. Rxc5 Hxc5
38. Hhl Kh7
39. Bfl Kh6
40. Bd3 Dd8
41. Bfl DÍ6
42. Hb4 Hg8
43. Hb3 De7
44. Hb4 Hg6
45. Hb2 Dd8
46. Hb4 Hc8
47. Rb5 Rg5
48. Df2 a6
49. Rc3 Hc5
50. Hgl Rh3
51. Hxg6f Kxg6
52. Db2 b5
53. cxb5 a5
54. Hb3 Dbð
55. Bxh3 Bxh3
56. Df2 Kg5
57. Rdl h4
58. Dglt Kf6
59. Rf2 Bfl
60. Rg4t Ke7
Alþýðubanda/agið
Kópavogur
Almennur fundur 1 félagsheimilmu, uppi í dag
kl. 15.
Gils Guðmundsson, alþingistmaður filytur ávarps-
orð.
Adda Bára Sigfúsdóttir, varaform. Alþýðubanda-
lagsins, ræðir urn nýafstaðinn landsfund.
Guðjón Jónsson, ritari Alþýðubandalagsins, ræð-
ir um atvinnu- og kjaramál.
Lúðvík Jósopsson, al'þm., svarar spurningunni.
Hvað er að gerast í efnahagsmálunum?
i
61. Rh6 Kd7
62. RÍ7 Bg2
63. Rg5 Dc7
64. Dxg2 Gefið.
★
Hvítt: SPASSKY.
Svart: PORAT.
FRÖNSK-VÖRN
1. e4 e6
2. d4 d5
3. Rc3 Rf6
4. Bg5 dxc4
5. Rxe4 Rbd7
6. Rf3 Be7
7. Rxf6t Bxf6
8. Bxf6 Dxf6
9. Bc4 c5
10. De2 0-0
11. 0-0-0 a6
12. De3 cxd4
13. Hxd4 b5
14. Bd3 g6
15. Hdl Rc5
16. Re5 De7
17. Be2 f6
18. Rc6 Dc7
19. IId8 Rb7
20. IIxf8t Kxf8
21. Bf3 Kg7
22. Da3 Kf3
23. g3 c5
24. Bd8t Kg8
25. Bd5t Gefið.
DANISH
GOLF
Nýr stór! góctur
smávindill
Smávindill í réttrí stærd, fullkominn smávindill, fram-
leiddur úr gædatóbaki. DANISH GOLF, nýr, stór!
SmávindilljSem ánægja eradkynnast.DANISHGOLF
erframleiddur afstærstu tóbaksverksmidju Skandina-
viu, og heíir í mörg ár verid hinn leidandi danski
smávindill.
Kauþid i dag DANISH GOLF í þœgilega 3 stk.þakkanum.
SCANDINAVIAN TOBACCO COMPANY
DENMARK