Þjóðviljinn - 29.12.1968, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 29.12.1968, Blaðsíða 4
4 SlÐA — ÞJÓÐVIiLJTNN — Sunn.udagur 29, desember 1968. Ctgefandi: Sameiningarflokknir alþýöu — Sósialistaflokkurinn. Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb), Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjóísson. Auglýsingastj.: Ölafur Jónsson. Framkv.stjóri: Eiður Bergmann. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustfg 19. Sími 17500 (5 línur). — Askriftarverð kr. 150,00 á mánuði. — Lausasöluverð krónur 10,00. Sjómenn húast til varnar pulltrúar sjómannafélaga víða af landinu koma saman á ráðstefnu 1 Reykjavík í dag til að ræða og móta kröfur sjómanna í væntanlegum samn- ingum. Ráðstefnan kemur saman eftir að sjómenn hafa orðið fyrir lúalegri og einstæðri árás af hálfu meirihluta Alþingis. Þingnnenn tveggja stjórn- málaflokka, Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokks- ins, samþykktu þá og bundu í löggjöf gerbreytingu á hlutaskiptakjörum íslenzkra sjómanna, afnámu samningsbundin ákvæði allra sjómannafélaga í landinu um sjóimainnshlutinn, ákváðu. allir sem einn að hundruð miljóna af samningsbundnum launum sjómannastéttarinnár skyldi afhent út- gerðarmönnum; taka skyldi af aflahlut sjómanna til þess að borga fiskiskip, án þess að sjómenn eign- ist í þeim nokkurn hlut, og taka skuli verulegan part af sjómannshlutnum haCda útgerðarmönnum í sjálfari útgerðarkostnaðinn. Viðurkenndu þó jafn- vel þingmenn úr hópi þeirra sem þetta óhæfuverk unnu, að sízt væru útgerðarfyrirtækin rekin þann- ig mörg hver, að rétt væri að ausa í þau peningum. ^jómenn hafa átt í vök að verjast með kjör sín á undanförnum áruim. Það hefur ekki verið í neitnu samhengi við aflabrest og verðfall á afurðum að fé- lagsskapur sem kallar sig Landssamband íslenzkra útvegsmanna hefur áratugum saman róið að því öllum árum að rýra og skerða aflahlut sjómanna, og beitt til þess hinum fáránlegustu röksemdum. Þó hefur þessum samtökum orðið lítið ágengt í hlutar- skerðingarherferðunum neima þegar þau hafa get- að misnotað vald ríkisstjórnar og Alþingis til að framkvæma árásirnar á sjómannshlutinn. Alræmt er meðal sjómanna að ríkisstjórn Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins greip inn í kjaradeilu með gerðardómslögum um kjör síldveiðisjómansna, en þau lög voru notuð til að rýra hlut sjómanna veru- lega. Sjómenn bættu þó fyrir sér í næstu samning- um en náðu ekki fyrra hlut að fullu. Emil Jónsson hlaut imiklar óvinsældir af þessu verki meðal sjó- manna, en það var þó að sjálfsögðu ríkisstjórnin öll sem ábyrgð bar á verkinu, og lét einn forystu- manna íhaldsins í sjómannasamtökunum, Pétur Sigurðsson, vel af á Alþingi. Nú er enn beitt til ó* hæfuverks gegn sjómönnum sjávarútvegsmálaráð- herra Alþýðuflokksiins, Eggert G. Þorsteinsson og allir Alþýðuflokksþingmennirnir gerðust samsekir með því að samþykkja árásina á sjómannshlutinn. Og von er að sjómönnum og vandamönmum þeirra þyki hart að ájá Alþýðuflokkinn í því hlutverki, þó að sjálfsögðu beri Sjálfstæðisflokkurinn einnig alla ábyrgð á þessuim ljótu aðförum; og enn sam- þykkti trúnaðarmaður sjómannasamtakanma, Pét- ur Sigurðsson, þessa árásarlöggjöf og skerðingu á sjómannshlutnum, ^jómannasamtökunum er mikil-1 vandi á höndum að svara slíkri árás. En þess skyldi minnzt, að þimg Alþýðusambands íslands mótmælti árásinni eindregið og hét sjómönnum stuðningi verkalýðs- hreyfingarinnar allrar. — s. Æ SKAN ★ 0! G SOSiAL ISMINN 1 Ritnefnd: Ölafur Ormsson og Páll Halldórsson. Löfrregluþjónar hafa borið að ofbeldisaðgerðir þeirra hafi verið framdar að tilskipan dómsmálaráðuneytisins. Hér birtist aðeins ein hlið almennrar valdbeitingarstefnu ríkisstjórnarinnar. — Á myndinni má sjá lögxeglulið brjóta niður með kylfum kröfugöngu til stuðnings lífskjarabaráttu launþegastéttarinnar s.l. mánudagskvöld. — Ljósm. Þjóðv. A. K. PRÓFMÁL Málflutningur lögreglunnar eifitir DÍbeldisaögerdirnar s. 1. laugardag og mánudag hefur verið heldur óburðu'gur og lítiis samrseimis hefiur gætt. Hér skulu nefnd dæimi um þetta: 1. Á laugardaig var borið e.f.: a) Lögreglan þynflá að forða ó- spektum (Guðm. Hermannsson). Ath. Eftir fundinn í- Tjamar- búð sl. laugardagskvöld átti að ganga um miðbæinn til banda- ríska sendiráðsins. Engum heil- vita manni dettur í hug, að til óspekta hefði getað komið i miðbænum, og það ber einnig að hafa í .minni að á svipuðum tíma í fyrravetur efndi Æs'ku- lýðsfylkingin til hópgönigu eftir fund á Hótei Borg frá Alþingis- húsinu til bandarísika sendi- ráðsins. Sú gamga fór einnig um miðibæinn og kom hvorki til ó- spekta þar né heidur uppi við bandaríska sendiráðið. Samstarf við lögregluna var mjög gofct. b) Lögreglan gæti ekki leyft gön.gu á móti umferðinmi. — (Bjarki Elíasson). Ath. Lögreglumni var boðið á laugardag, að leið göngunnar yrði breytt þannig, að hún fylgdi ætíö umferðinni og yrði genigin Lækjargata, Austur- stræti, Hafnarstræti, Lækiar- gata og að bandaríska sendi- ráðinu. Þessari málamiðlun hafnaði Bjarki Elíasson þegar i stað, og svaraði með briðja fyrirslættinum: c) Lögreglan gæti ekki* yfir- leitt leyft göngu um miðtoæinn vegna umferðarinnar (Bjarki Elíaisson). Til lesenda Æskulýðssáða Þjóð- viljans sikorar á fólk að seíida skriflegar frá- sagnir af ofbeldisað- gerðum lögreglunnar laugardaginn 21. des. og mánudaginn 23. des. Einkum er æskilegt að númer viðkomandi lögregluþjóna fylgi skýrslunni, ásamt nafni, heimilisfangi og símanúmeri þess er skýrsluna sendir. Ath. Hér sitendur hnífurinn í kúnni, og verða ekki höfð fleiri orð um það, en tekið skal fram að ætli lögneglan og yfirvald hennár, dómsmálaráðuneytið, að áskilja sér slíkan rétt til að hrekja kröfugöngur út í hliðar- _gpt,ur eða jafnvel óbyggðir, þá stöndum við frammi fyrir stór- felldri lýðræðisskerðingu, sem brýtur í bága við íslenzka stjórnarskrá ag ekiki er hægt að þola. 2. Á mámudag var e.f. borið við: a) Ekki væri hægt að leyfa göngu um miðbæinn, því að lokað væri fyrir alla umferð þar og hefðu engir hópar manna neln sérréttindi í þeim efnum (Guðmundur Henmanns- son). b) Aðeins væri hægt að leyfa gönigu um miðbæinn, af því að lokað væri fyrir umferð í hon- um hvort sem var. (Bjarki Elí- asson). c) Ekki væri hægt að leyfa göngu á móti umferð (Bjarki Elíassan). \ . Ath. Þessu banni lögreglunn- ar var sivarað með því að bjóða göngu um Austurstræti, Aðal- stræti, Hafnarstræti, Hverfis- götu, Fraikkastíg, Laugaiveg og Bamkastræti, þannig að gainigian fylgdi umferðinni. En þessari málamiðlun' hafnaði lögreglan einnig. Hér hefur verið drepið á, hversu málfflutningur lögregl- unnar hetfur verið ósamhljóða og órökréfctur. Ástæðan er sú, að lögreglan hefúr almennar fyrirskipanir frá dómsmálaráð- herra um að kwna í vag fyrir Framhald á 13. síðu. Dreifibréf á Þorláksmessu Bréfið, sem dreitft var fyrir fundinn í Sigtúni á Þorláks- messu var svohljóðiandi: Samkvæmt íslenzku stjómar- sikránni er ekki hægt að leggja bann við því, að borgarar safn- ist saman óvopnaðir á almanna- færi í friðsamlegum tilgangi. Með þessu er reynt að tryggja lágmarksréttindi í fólagslegum og stjómmálalegum efnum. Engu siður átti sér stað sl. laugardag sá atburður, að gestir á fundi í Tjamarbúð vöknuðu upp við þann vonda draum, að lögreglan hafði umkringt húsið á meðan á flundinum stóð, og hóf handtökur um leið og fólk byrjaði að tínast út. / Fundur þessi hafði verið haldinn í tilefni 8 ára afmælis Þj óðfrelsi sfylkingarinnar í Suð- ur-Víetnam, og hafði banda- rískur stúdentaleiðtoigi haft fraimsögu, ásamt Sveini Hauks- syni stjórnarmanni í Stúdenta- félagi Háskóla íslands. Enn- fremur hafði verið lesið víet- namskt ljóð í þýðingu Þorsteins Valdimarssonar og ljóð um Víetnam eftir Hannes Sigfús- son. Markmið lögreglunnar var að hindra kröfugöngu, sem átti að fara um miðbæinn að banda- ríska sendiráðinu, þar sem mót- mælaályktun fundarins skyldi afhent. Á lögreglustöðinni báru lög- regluibiónar, að tilskipun um að stöðva göniguna hefði komið frá dóms- og iðnaðarmálaráð- herra Jóhanni Hafstein. Hér birtist aðeins ein hliðin á vald- stjómarstefnu Viðreisnarstjóm- arinnar. Eins og hún hefur ó- gilt samnimg verkalýðsfélag- anna með stiómarfarslegum ráðstölfunum, eins og hún hefur beitt sjómenn lögþvin'gunum, bannig brýfcur hún einnig mannréttindaákvasði stjómar- skrárinnar til að bóknast yfir- boðurum sínum i Washington. Framtíðarsýnin birtist svo í Ál- verinu í Straumsvík, þar sem íslenzkir launþegar eru beittir meiri harðneskju en dæmi þek'kjast til á Islandi í langan tíma. Launiþegar í Straumsvík hatfa hengt upp í snöru ■ sam- festing merktan ISAL með á- festri húfu til aðvönunar er- lendum yfirboðurum sínum. Barátta fyrir fundafrelsi og frelsi til kröfugangna er aðeins einn þáttur f almennri réttinda- baráttu íslenzkrar albýðu gegn ríkisstjóm, sem hyggst láta harðstjóm erlendra auðhringa leysa óstjóm sjáltfrar sin af hólmi. Þessi rfkisstjóm eða er- lendir yfirboðarar hennar eiga vafalaust eftir að beita gamla nazistanum, Sigurjóni Sigurðs- syni, lögreglustjóra, gegn is- lenzkri verkalýð.shreyíingu. Við erum minnug þess, að Sigurjón Sigiurðtsson, fyrrverandi ritari íslenzka nazistaiflokksins gekk gæsagang i einkennisbúningi um götur Reykjavíkur fyrir stríð. Við erum einnig mdnnug þess, að flokkstoræður hans brutu niður verkalýðshreyfing- una í Þýzkalandi. Að dreifinigu bréfs þessastóðu Æskulýðsfylkingin og Félag róttæfcra stúdenta. Reykjavíkurgmga Æskulýðsfylkingin, samband ungra sós- íalista, og Félag róttækra stúdenta, boða til REYKJAVÍKURGÖNGU 5. janúar. MEGINKRÖFUR GÖNGUNNAR: 1. Vemdun skoðanafrelsis á íslandi og rétt- ur til að koma skoðunum á framfæri samkv. ákvæðum stjómarskrárinnar. 2. Valdbeitingarstefnu ríkisstjórnarinnar í kjaramálum launþega verði hrundið. Innrás erlendra auðhringa í landið verði stöðvuð. Mótuð verði þjóðleg efnahags- málastefna á grundvellj markvissrar heildarstjórnar atvinnumála og utanrík- isverzlunar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.