Þjóðviljinn - 25.01.1969, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 25.01.1969, Blaðsíða 2
2 SfÐA — ÞJÓÐVILJTmr — Laiu@apdiaguir 25. jaaiúiar 1960. Handknattleikur: Ssland verður að vinna lands- leikinn við Spánverja í dag! Það er ekkert sem heitir, í dag verðum við að vinna lands- leikinn við Spánverjana. Við höfum verið að tapa fyrir siterk- GEIR — hvernig tekst honum upp gegn Spánverjimum? ÍBK og Breiðablik leika í Kópavogi í dag, laugardag, fer fram aef- ingaleikur á Kópavogsvellinuim rnilli knattspyrnuliða Breiða- bliks og ÍBK. ustu handknattleiksþjóðum hcims undanfarin ár með þetta einu og tveim mörkum og það er orðið mál að því linni og að við förum að sigra. Að vísu er varla hægt að segja að Spán- verjar séu eia af sterkustu handknattleiksþjóðum heims, en þeir hafa sýnt miklar fram- farir i íþróttinni að undan- förnu og m.a. sigrað Ungverja fyrir stuttu, og það gera engír skussar. Eins og sagt var frá hér í blaðinu fyrir landsleikina við Tékka, þá hafa orðið algjör kynslóðaskipti £ ísl. landsliðinu í handlkinattleik í ár. Nú tfyrir þennan leik við Spánverja komur þetta enn greinilegar í ljós, því að Ingólfur Óskarsson, sem verið hefur einn af „stór- köllunum" í handknatiíleiknum á undanfömum árum, er ekki í liðinu að þessu sinni. Og í hans stað kemur algjör nýliði í landsliðinu. Nöfn eins og Gunnlaugur Hj., Karl Jóh., Ingóifur Ósk., Birg- ir Björnss., Guðjón Jónsson, svo einhverjir séu nefndir af þeim sem þorið halfa uppi landsliðið alit til þessa, enu horfin úr liðinu. I þeirra stað eru svo komnir ungir menn sem koma til með að vera burð- arásar liðsins á naestu árum. Þetta er hin rétta þróun og það lið sem sent ér gegn Spán- verjunum í dag er áreiðan- lega það sterkasta sem við get- um teflt fram að þvi undah- sklldu að Jón Hjaltalin er far- Hvatningaróp áhorfenda eru íslenzka liðinu mikils virði. inn utan til náms og lei'kur því ekki með að þessu sinni. Leikurinn í dag hefst kl. 15.30 í íþróttahúsinu í Laugar- dal og er mönnum ráðlagt að fá sér aðgöngumiða í tíma, því að þegar fyrri leikurinn við Tékka fór fram komiust ekki allir að sem vildu, Að lolkum skal áhorfendum bent á einu sinni enn, hversu gífurlegur stuðningur það er fyrir íslenzka liðið að heyra hvaitningarópið: ÁFRAM ISLAND! S.dór. Knattspyrnan á morgun: Landsli&ið gegn íslandsmeisturum A morgun kl, 1.30 hefst leik- ur landsliðsins við KR og fer hann fram á Valsvellinum. Að þessu sinni hefur sá háttur verið tekinn upp að leyfa fé- lagsliðinu, sem Ieikið er við, að halda sinum mönnum sem ann- ars ættu að leika með Iandslið- inu. Því munu þeir Eyleifur Hafsteinsson, Þórólfur Beck og Halldór Bjömsson Ieika með KR cn ekki landsliðinu, eins og þeir hafa gert síðan þessir æf- ingalcikir hófust. Hvort þetta er rétt eða ekiki síkal látið ósagt, þar sýnist sitt hverjum. En sé það rétt sem heyrzt hefur að KR-ingar ihafi neitað að leika við landsliðið nema að þeir héldu öllum sín- um mönnum, þá er farið inná hættiuilega braut. Ef einu félag- inu líðsit að setja skilyrði, þá er vist að önnur koma á eftir og þá er KSl komið í varnar- stöðu gagnvart félögunum sem er eittfhvað það versta sem sambandið getur hent. Hitt er svo annað mál, hvort leyfa á félögunum sem leikið er við hverju sinni að halda sínum mönnum; það er sjón- armið útaf tfyrir sig en fnum- kvæðið í því á að koma' fró KSl en ekki félögunum og þá verður einnig að láta jafnt yfir Framhald á 9. síðu Sovézka sjónvarpið keypti Sögu Forsytanna Bætt úr hneyksli Fyrir nokkru var greint frá þeim furðulegu tiðindum að framkvæmd hefði verið mjög tiifinnanleg og ósæmileg skerðing á tryggingakerfinu. Daggjödd og fæðingairstofu- gj ald voru hækfcuð mjög veru- lega á fæðingairstofn'Unum, en fæðingarstyrkurinn hélzt ó- breyttur. Með þessu var lagt á sængurkonur sérstakt gjald sem nam hátt í fimm þúsumd- um króna, og mátti þá segja að ríkisstjórnin væri farin að seilast furðu langt í skatt- heimtu sinni þegar nýjum ríkisborgurum var fagnað með innheimtuseðli. Auðvitað bar tryggingamálaráðherrann, Eggert Þorsteinsson, ábyrgð á þessari þróun; hún er til marks um það hvemig verð- bólgustefna viðreisniarinnax grefur sí og ae undan öllum félagslegum viðhorfum. Alþýðubilaðið hiefur nú greint frá því að Eggert Þor- steinsson hafi hug á að bæta úr þessu hneyksli og muni flytja frumvarp þess efnis er þinjg kemur saman; er það samnarlega fagniaðarefni að hann á eftir snefil af blygðun- arkennd, og stafar það eflaust af því að ráðberrafeTÍll bans er skemmri en annaxra. Hitt er svo til marks um áróðurs- aðferðir Alþýðublaðsins að það birtir sérstaka forustu- grein Eggerti til lofs og dýrð- ar af þessu tilefni; hefði verið maklegra að blaðið hefði snuprað ráðherra sdnn þegar hneykslið gerðist. Þó ma að vísu viðurkénna að það heyr- ir til undantekninga í fari við- reisnairráðherra að þedr leið- rétti afglöp sin. Or líknarsjóði Enn hefur ríkisstjómin tek- * ið erlent lán ofan á skulda- ldyfjar sem arðmar eru þjóð- inni litt bærilegar, því vextir og afborganir af stouldiunum nema nú svipaðri upphæð og árlegar gjaldeyristekjur lands- manna af freðfisksölu. Þetta nýja lán er tekið úr sjóði sem tengdur er Evrópuráðinu, og í opinbeirri tilkynningu er f j ár- hirzlu þessari gefið nafndð „viðreismarsjóður". Hið raun- verulega nafn er hins vegar flóttamannasjóður; hann var til þess stofinaður að aðstoða fólk sem orðið hafði að yfir- gefa heimiabyggðir sínar í Evr- ópu af ýmsum ástæðum, póli- tískum og efnahagsiegum. Þetta er sem sé líknarsjóður og fjárfestingar úr honum mannúðarsitairfsemi, hliðstæð þeirri sem ástunduð er af Rauða krossinum og öðrum áþekkum góðgerðarstofnun- um. Ríkisstjómin hefur áður lotið að því að þiggja fé úr þessum sjóði, og hiafa þá stjómendur hans orðið að leggja fslenddnga að jöfiau við bágstöddustu þegna Evr- ópu. enda hafa þeir vafalaust persónuleg kynni af sumum viðreisnairráðberrunum. — Austri. — Ég held því enn fram, Emilía, að það sé mikil áhætta sem við leggjum okkur í, bara til að sjá þennan kafla sem þú misstir úr sögunni okkar megin. (tJr ,,Information“). Sjónvarpið næstu viku Sjónvarpið, sunnudag 26. jan. 18.00 Helgistund. Séra Gísli Brynjólfsson, fyrrum prófast- ur. 18.15 Stundin okikar. Kyneir: Svainhildur Kaaiber. Yndis- vagninn — teiknimynd frá finnska sjónvarpiniu. Þýðandi og þulur Silja Aðalsteins- dóttir. Séra Bemharður Guð- mundssom segir sögu. Eldfær- in eftir H. C. Andersen. Is- lenzka brúðuleikhúsið. — Stjórnandi Jón E. Guð- mumdsson. 19.05 Hlé. 20.00 Fréttir. 20.20 Fjölsíkyldurnar. Spum- ingaþáttur. Spyrjandi: Mark- ús Á. Einarsson, veðurfr. Dómari: Bjami Guðnason, prófessor. 1 þættinum koma fram fjölskyldur frá Kóp*- vogi og Seftossi. 20ö0 Maður í skrýtnum fötum. (Man in the funny Suit). — Bandariskt sjónvarpsleikrit. . Aðalhlutverk: Ed Wynn, Keenan Wynn, Red Skelton, Rod Serling, Maxine Stuart og William Roerick. Þýðandi: Magnús Jónsson. 21.40 Afríka II. Myndin er í f jórum þáttum og verða tvær síðari myndimar sýndar tvo næstu daga. Þýðandi: Krist- mann Eiðsson. 22.25 Dagskrárlok. Sjónvarpið mánud. 27. janúar. 20.00 Fréttir. 20.35 Chaplin dansar tangó. 20.45 Saga Forsyteættarinnar. John Galsworthy — 16. þátt- ur. Aðalhluitverk: Eric Port- er, Susan Hampshire og Nicholas Pennell. Þýðandi: Þórður öm Sigurðssom. 21.35 Afríka III. Næst síðasta mynd í fltokkmum um Afrííku. Síðasta mynd verður sýnd þriðjudaginn 28. jamúar. — Þýðandi: Jón Thor Haraldss. 22.00 Dagskrárlok. Sjónvarpið þriðjud. 28. janúar. 20.00 Fréttir. 20.30 Afríka IV. Síðasta mynd- in í flokkmum um Afríku. — Þýðandi: Óskar Ingimarsson. 21.25 Emgum að treysta. Francis purbridge. Hér endar „Ævin- týri í Amsterdam“, og rvý saga heflst, sem nefnist „Kín- verski hnífurinn". Þýðandi: Öskar Ingimarsson. 22.25 Dagskrárlok. Sjónvarpið mlðvikud. 29. jan. 18.00 Hans og Gréta. Ævintýra- kvikmynd. Þýðamdi: Ellfert Sigurbjömsson. 18.50 20.00 Fréttir. 20.30 Millistrfðsárin. (15. þátt- «r). — Þessi þáttur fjallar einkum um hinar miklu framfarir í fluigsamgöngum, sem urðu á ánunum 1919 til 1928. Einnig greinir frá vax- andi veldi Japana á sjó og borgarastyrj öld í Kína. — Þýðandi og þulur: Berg- steinn Jónsson. 20.55 Rautt og svart. (Le Rouge et le.Noir). — Frönsk kvik- mynd gerð árið 1954, eftir samnefndri skáldsööu Sten- dhal. Síðari hluti. — Leiksítj.: Claude Auitant-Lara. Aðal- hlutverfc: Gérard Philipe, Danielle DarrieuK, Jean Martinelli, Antomella Lualdi og Antoine Balpétré. Þýð- andi: Rafn Júliusson. 23.30 Dagsfcrárltok. Sjónvarpið föstud. 31. janúar. 20.00 Fréttir. 20.35 Svart og hvitt. Skemmti- ÞáitJtur The Mitcheil Minstr- els. Þýðandi: Þórður örn Sigurðsson. 21.20 Harðjaxlinn. 22.10 Erlend málefni. 22.40 DagskrárJok. Sjónvarpið Iaugard. 1. febr. 16.30 Endurtekið efni. Island fullvalda 1918. Þessa dagskrá, sem byggð er á sögulegum heimildum um þjóðlíf og at- burði á fullveldisárinu 1918, hafa þeir Bergsteinn Jónsson, sagnfræðingur og Þorsteinn Thorarensen, rithöf., tekið saman fýrir sjónvarpið í til- efni af 50 ára Mlveldi ís- lands. Aður fflutt 1. desember 1968. 17.40 Skyndihjálp. 17.50 Iþróttir. Hlé. 20.00 Fréttir. 20.25 Opið hús. Einkum fyrir unglingana. M. a. kemur fram hljómsveitin Flowers. Kynnir er Marin Magnúsd. 21.00 Ævintýraþrá. Kvikmynd um sægarpinn Sir Francis Chichesiter, ævintýralegan feril hans og ótal dáðir drýgðar í lofti, á láði og legi. Þýðandi: Ingibjörg Jónsdóttir. 21.30 Lucy Ball. Þýðandi Bríet Héðinsdóttir. 21.55 Martröð. (Dead of Night). Brezk kvikmynd gerð af Michael Balcon árið 1945. — Myndin er gerð eftir sögum um sex dularfull fyrirbæri. — Leikstjóri: Cavalanti, Charies Crichten. Basil Dearden og Robert Hamer. Þýðandi: — • Ingifojöng Jónsdóttir.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.