Þjóðviljinn - 20.04.1969, Blaðsíða 8
g SÍÐA — ÞtfÓÐVILJINN — Suinnudagur 20. apríl 1069.
FRÁ RIFI
.
Við löndun í Rifi.
Sigurður Kristjánsson skipstjóri á Skarðsvikinni. — Fyrir aftam
hann sést útgerðarmaðurinn Sveinbjörn Bcnediktsson.
Þrifið fyrir næstu ferð.
Þeir voru að landa í Rifi
kvöldið sem við komum til
Samds, svo við máttum aftur
leggja á bílinn þennan versta
vegarspotta leiðarinnar til að
ná mymdum áður en þeir hóldu
út aftur, sjómennirnir.
Meðal þeirra sem voru að
landa þetta kvöld var aflakóng-
urinn, Sigurður Kristjánsson á
mb. Skarðsvfk. Eins og afla-
kónga er vandi lét hann ekki
sérlega hátt yfir veiðinni: —
Nei, það var ekki mikið, sjö
eða átta tonn. Þetta hafur verið
sasmilegt í vetur, 400 tonn eft-
ir 33 róðra-
Skarðsvíkin,. sem er 80 tonna
bátur, er á netum og með 11
manna áhöfn, aflinn fluttur til
vinnslu í frystihúsið á Hellis-
sandi. Segist Sigurður veiða um
þriggja klufckutíma siglingu
vestur af Jökli, koma inn á
kvöldin t>g halda út aftur á
nóttunni kl. 5—6.
— Við byrjuðum 15. febrúar
og vorum á trolli framanf og ég
hefði viljað halda áfram á troll-
inu, segir Sigurður, það er það
sem bezt hefur gefizt.
Ekki vill Sigurður skipstjóri
spá um útkomiu vetrarvertíðar-
innar: — Það er eikki hægt. En
það virðist vera 'fcoluverður fisfe-
ur þótt lítið fáist í net og hef-
ur verið ágætur afli á línu.
— Og ertu sáttur við kjörin?
— Eins og allir aðrir er ég
óánægður með fiskverðið. Það
fékksí 8% hækkun á fiskverð-
ið, en hefði mátt vera 15—16%-
En það varð að komast að ein-
hverju samkomulagi og þótt
sikipstjórar og stýrimenm vildu
halda átfram baráttunni er vafa-
samt fyrir fámenna stétt að
stöðva allan flotann fyrst há-
setamir telja sig geta unnið
fyrir þetta.
í brúnni hittum við útgerðar-
manninn, Sveinbjönr) Benedikts-
son, og spurðum hvort hann
væri ekkert hrædduir um að
mdssa aflakónginn, að einihver
byði i hann. En Sveiulbjörn
hefrur bakibryggingu: — Hanm á
orðið í fyrirtækinu, sjálfur,
strákurinn.
*
Daginn eftir hittum við fólk-
ið sem var að vinna atfla bát-
anna í Hraðfrystihúsi Hellis-
sands, allt í neytendapakkining-
ar á Bandaríkjamarkað.
— Þannig verður varan verð-
meiri, sagði Sigurður Magnús-
son verkstj. í viðtali við Þjóð-
viljann, við vinnum um 16
tonn á 10 tímum í þessa pakkn-
ingu. Hefur verið stanzlaus
vinna síðan vertíðin byrjaði og
komnir rúmlega átta þúsund
kassar í frost, yfir 100 tonn í
salt og söltuð 20—30 toinn af
þunnildum auk no!kkurs magns
af keilu, sem hefur verið hert.
Alls vinna um 60 manns hjá
frysti'húsinu að saltfiskverkun-
innd meðtalinni, meirihlutinn
konur, og hafa húsmæðumar
haft tækilfæri til að vinna hálf-
Rögnvaldur Ölafsson fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss
Hellissands.
an dagimn. Dálítið er af að-
komufólki, og er það allstað-
ar að.
— Er vinnsla í húsinu allt
árið?
ÍSIÍII!
ibVXbíí
Þómý Axelsdóttir og Gunnlaug Bárðardóttir pakka.
Þeir ætluðu að skreppa heim á Sand áður en aftur yrði farið út.