Þjóðviljinn - 14.09.1969, Blaðsíða 3
........ "Tl
SwaaodaBUflí Bl* sepbeirtbar JKJ69 — SöÓBWaisfflíNN — SlÐA J
HVÍLDAR-
DAGINN
ER BJARNI FARINN FRA?
— Er Bjamd farinn frá? —
Fyrsta spurningin sem íslenzk-
ur trésmiður hjá Koehum® legg-
ur fyrir mig þegar ég heim-
sæki hann í einn skúranna við
Lovisastigen í Lumdi fyrra
sunnudag.
Trésimiðirnir búa flestir í
nokkrum skúrum við Lovisa-
stigen. Þeir haifa heribergi hver
um sig, fábreytileg að húsbún-
aði, greinilega aðeins hugsuð
sem hvíldarstaður fyrir vimnu-
aflið, þar er engin aðstaða til
annars en svefns,,sjónvarpsskoð-
umar og nauðsynlegustu þvotta.
Mannabústaður er of virðu'legt
heiti fyrir þessa skúra — þó
eru þeir ívið þetri en síldar-
braggarnir á Seyðisfirði í den-
tíð- Og trésmiðirnir gefa þeim
einkunnina: „Þetta er bara
þokkaiegt.“ Bústaðir járnsmið-
anna éru annars staðar í Lundi
og heldur lakari en híbýli tré-
smiða, öE einhver munur er á. *
Loks býr allstór hópur íslenzkra
iðnaðarmanna í Malmö.
Betra en hér
Nú eru liðnir nok'krir mán-
uðir síðan verkalýðsfélögin tóku
að flytja ,út íslenzkt vinnuafl.
Þeir samningar, sem verkalýös-
félögin hafa gert fyrir félags-
menn sína erlend'is eiu afar
hagstæðir. Allavega er þetta
þetra fyrir mennina og fjöl-
skyldur þeirra en atvinnuleys-
ið heima á íslandi og það er
staðreynd, að miklu stærri hóp-
ur hefði farið út til langframa
hefðu ekki verkalýðsifélögin —
Trésmiðafélagið og Félag járn-
iðnaðarmanna — ráðið mennina
til skemmri tíma i senn.
Islenzku iðnaðaiTnennirnir hjá
Kochuims voru flestir um 260
alls — 180 trésmiðir og 80 járn-
spúðý;. Þeii- vinna við að ganga
frá lest í skipi, sem á að flytja
ffljótandi gas. Trésmiðimir sjá
um tr.éverkið innan í lestunum
eii járnsmiðirnir ganga frá plöt-
unum sem eru lagðar innan á
lestarnar. Þetta er hvorttveggja
vandaverk, en íslenzku iðnaðar-
mennirnir hafa fengið mikið lof
fyrir frammistöðu sína, bæði
verkhraða og verklagni- Þeir
vinna nú við síðara skipið og er
ætlunin að Ijúka smíði þess um
miðjan næsta mánuð- Það er því
búizt við að trés'miðirnir háfi
tæpast vinnu þarna lengur en til
næstu mánaðamóta en járn-
smiðirnir eitthvað lengur.
Stærst í Evrópu
Kochums á í Malmö stærstu
skipakví Evrópu, að því er seg-
ir í auglýsingabæklingi fyrir-
itækisins, Einn eignaraðilla er
sá þýzki Krupp- Hjá Kochums
vinna menn af ótal þjóðernum,
en úr Norður-Evrópu eru þar
auk Islendinga einkum Finnar
og Þjóðverjar. Fáir Svíar vinna
hjá Kochums. „Þegar við segj-
um Svía, að við vinnum hjá
Kochums, er hlegið að bkkur“.
segir einn járnsmiðanna mér-
Ástæðan er sú, að aðbúnaður
að verkafólki hjá; Kochums er
Hundruð íslendinga hafa yfirgefið verkefnalaus verkstæðin og byggingarsvæðin á íslandi og haldið til vinnu ytra. Sumir vinna við
að auka auðæfin Krupps bess vestúr-þýzka, aðrir skapa öðrum auð, og eitt er víst: Neyðin rak þessa menn héðan og launakjör
þeirra eru betri úti en hér heima, — Dæmi: íslenzkur trésmiður hjá Kochums fær 15 krónur sænskar á tímann, þ.e. ltann vinnur
fyrir 3 — 5 sígarettupökkum á klukkutímann eða 16 —17 lítrum af mjólk og þannig má rekja dæmin lengi og lesendur geta
borið þessi dæmi saman við íslenzkan raunveruleika í dag — raunveruieika þeirra, sem hafa vinnu — og hinna, sem enga vinnu hafa.
ekki talinn upp á það allra
bezta- Ótviræð sönnun þess er,
að - Kochums hefur ekki tekizt
að fá sænska menn til starfa
hjá fyrirtækinu þrátt fyrir at-
vinnuleysi, sem er ríkjandi víða
í Norður-Svíþjóð- Einn af for-
stjórum fyrirtækisins sagði í
blaðaviðtali við blað í Suður-
Svíþjóð, að hann' hefði boðið
iðnaðarmönnum annars staðar í
Svíþjóð sömu kjör og íslending-
arnir hafa, sem eru mun betri
en almennt g'erist þar í landi —
en sænsku atvinnuleysingjarn-
ir hefðu neitað að vinna hjá
Kochums á þessum kjörum!
255 á tímann
Því neitar enginn að kjör ís-
lenzku iðnaðarmannanna eru á-
kafleg hagstæð. Þeir fá fríar
ferðir frá Islandi og til, þeir
fá ókeypis flutning til vinnunn-
ar á hverjum morgni og laun
þeirra em auk þess mjög há:
15 krónur sænskar á tímamn,
60 aurar á hvern tirna í vakta-
álag. Yfii’vinnutíminn er á 17-00
plús 60 aurar í vaiktaáilag. Ein
sænsk króna er um 17 krónur
íslenzkar þannig að umreiknað
f íslenzkar krónur er kaupið
þetta: Tímakaup í dagvinnu kr.
255 + vaktaálag kr. 10,20- Yf-
---------------------------
Tekniskur teiknarí
Hafnarmálastofnun ríkisins vill ráða tekniskan
teiknara.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfs-
manna.
Nauðsynlegt er að menntun og starfsreynsla sé
fyrir, hendi.
'Skriflegum umsóknum þar sem gerð er grein fyr-
ir aldri, menntun og starf^reynslu sé s'kilað til
Iiafnaí'málastofnunar ríkisins, Seljaivegi 32, Reykja-
vík, fyrir 25. septemiber.
irvinnutíminn kr. 289 + vaikta-
álag 10,20 = 299,20.
42 þúsund á
mánuði — að frá-
dregnum sköttum
Vinni iðnaðarmennirnir á
sunnudögum fá þeir 21 kr- á
tímann (357 kr.), en á síðustu
sex vikum höfðu trésmiðimir
unnið tvo sunnudaga. Vinnutím-
inn er 8% tími á dag og einn
tími á kvöldvaktinni telst yfir-
vinna. Fyrri vaktin vinnur frá
kl- 6 til kl. 3, en seinni vaktin
frá kl. 3 til.kl. 10. Á fyrri vakt-
inni er matartími í 15 mínútur
frá kl. 10—10.15 og enginm
annar frítími á þessari vakt-
Þegar skattar — 23% af laun-
um — hafa verið dregnir frá er
vikukaupið rúmar 600 krómur
sænskar. Sé miðað við 620 krón-
ur er kaupið 10-540,00 ísl. kr. fyr-
ir vikuna, 42 þúsund rúm á mán-
uði-
En ekki er allt talið enn: Iðn-
aðanmennirnir fé auik þessa
þrjár máltíðir ókeypis á dag.
Almennt verkamannakaup í
Svíþjóð er um 10 kr. á tímann
(170 ísl. kr.). Hæsta kaup, sem
um getur í akkorði er 23—24
krónur á tímann (391—408 kr.
isl.). Laun íslenzku iðnaðar-
mannanna fara sennilega upp
fyrir þetta hámark þegar tiilit
er tekið til ókeypis húsmæðis,
þriggja ókeypis máltíða og flutn-
ings til og frá vinnustað.
Hámarksyfirvinna
Þegar íslenzku iðnaðarmenn-
irnir hjá K'ochums fá borgað út
eru dregin aif þeim 9% í orlof,
sem þeir fá síðan borgað út við
brottför. Albert Ríkharðssom
járnsmiður sagði mér, að verka-
lýðsfélagið sjélft geymdi þetta
orlofsfé og borgaði það út þeg-
ar verkamennirnir færu úr
vinnu í orlof. Albert sagði mér
líka glöggt dæmi u.m þá skoðun
verkamanna: Hámarksyfirvimna
á mánuði er 48 stundir. Vinni
verkamaður eða iðnaðarmaður
lengur ér hann sektaður!
Islenzku idnaðarmennirnir i
Malmö benda á, að þeir kynn-
ist nýjum verkaðferðúm og
vinnuistíl, sem verði þeim án
efa verðmætt síðar er þeir koma
heim til Islands á ný.
Þeir sem áfellast iðnaðar-
mennina fyrir að fara utan þeg-
ar þessi kostakjör em í boði,.fá
lítið þak'klæti þar ytra í hópi
íslendinga. Þeir benda réttilega
á, að þeim hafi verið nauðug-
ur þessi kostur. Væri vinna
heima værum við þar frekar,
segja þeir aliir sem einn. Það
ber því að fella þunga áfellis-
dóma yfir ^eim mönnum sem
bera ábyrgð á atvinnumálum
heima á Islandi. Reyni þeir að
ráðast á okkiír atvinnulausa iðn-
aðarmenn mega Ménir Morgun-
blaðsskrifarar muna að sú árás
sfiýst gegn þeim sjálfum hálfu
harðari en fyrr.
Gagnrýni
En þrátt fyrir góð kjör
Malmö má með réttu gagnrýna
ýmislegt í aðbúnaði og aðstöðu
landa okkar þar ytra:
1 fyrsta lagi benda þeir á, að
á vinnustaðnum eru á fimmta
. þúsund starfsmenn- „Ég heiti
ekki Haraldur, heldur er ég
númer þetta og hitt- Ef ég fæ
flís í auga, hefur númer átta-
fjórimíufimm fengið flís í auga-
Umihveirfið verður kaldranalegt,
laust við þau manneskjulegu
viðhorf sem ríkja á smærri
vinnustöðum á lslandi“-
Okkur var heitið því að hérna
gætum við fengið 48 yfirvinnu-
tíma á mánuði. Þetta höfur ekki
staðizt. Og þó að við .berjumst
eðlilega fyrir styttum vinnutíma
heima, er ekki unnt að jafna
aðstaaðum okkar hér og heima
saman. Við erum komnir hing-
að eins og á vertíð og viljum ná
upp sem allramestu á þeirn tíma,
sem við erum hér-
Það er að sönnu gott að við
skúlum fá matinn ókeypis —
en okkur líkar hann ekki. Okk-
ur finnst maturinn bæði lítill
og lélegur. Erfiðisvinhumenn
þurfa að borða mikið — a.m.k-
g'erum við það heima á íslandi,
en skammtarnir eru heldur
naurnt skornir að okkur finnst.
Ein alvarlegasta aðfinnsla
iðnaðarmannanna íslenziku
fannst mér þó vera í sambandi
við sjúkrasamllagsaðstöðu:: Þeir
segjast hafa haldið að þeir
fengju ‘ sjálfkrafa réttindi í
sjúkrasamlagi þar ytra, en regl-
an er að sjálfsögðu ®ú að við-
komandi sjúkrasamlagsmeðlim-
ur þarf að fá flutningsvottorð
frá sjúkrasamlagi hér, sem hann
síðan leggur inn hjá sjúkrasam-
lagi ytra- Vegna þessa athug-
unarleysis mum það hafa komið
fyrir að íslenzkur. iðnaðarmaður
hafi notið læknisaðgerðar í
Lundi, sem hann síðan varð að
greiða dýru verði-
Guðjón Jónsson sagði mér hins
' vegar að sjúkrasamlagið hér
greiddi sinn hluta í læknis-
kostnaði ytra, gegn framvísun
reikninga-
Islenzku iðnaðarmennimir
sögðu loks, að reynt hefði verið
að koma upp metingi milli hóp-
anna- Þannig hefðu verkstjórar
haldið þrumandi ræður yffir *
Finnum og Þjóðverjum áð-ur en
Isiendingamir komu þangað og
sagt: Nú koma hingað heljar-
^ men-ni frá Islandi og eins gott
fyrir ykkur að standa ylckur, .
framvegis!
Skylda verkalýðs-
félaganna
Eftir að hafa fylgzt með land-
flótta íslenzkra iðnaðarmanna
síðustu mánuðina og eftir að
ha'fa heimsótt' þessa landflótta
iðnaðarmenn í Lundi blasir við
þessi niðurstaða: Stórfellt at-
vimnuleysi var staðreynd á Is-
lándi síðastliðinn vetur og enn
geigvænlegra atvinnuleysi blas-
ir við hér í vetur. ef ekki verð-
ur gripið til róttækra ráðstaf-
ana. Islenzkt verkafólk verður
í atvinnuleysinu ofursel-t neyð-
inni og þess vegna ber samtök-
um launáfólks skylda til þess að
berjast gegn orsökum slíks á-
stands, þ.e.a.s- stjórnarstefnunni
. sjálfri- Forustumenn verkalýðs-
félaganna eiga i'að taka frum-
kvæðið í slíkri baráttu- Hins
vegar er viðleitni verkalýðsfé-
laganna til þess að útvega fé-
lagsmönnum sínum atvinnu ytra
aðeins neyðarraðstöfun, eins og
þeir Jón Snorri Þorleifsstm, for-
maður Trésmiðafélagsins og
Guðjón Jónsson. formaður Fé-
lags jémiðnaðarrhanna hafa lagt
áherzlu á í viðtölum við Þjóð-
viljaim í sumar.
Þegar ríkisstjórnin er að reyna
í málgögnum sínum að ráðast á
íslenzku iðnaðarmennina fyrir
að fara utan, er stjómin að beita
vopni sem áðu-r en varir mun
snúaist gegn ríkisstjóminni
1 sjálfri. Hundruð íslendinga hafa
í sumar verið ytra í atvinnu,
Margir þeirra fjölskyldumenn og
eru að reyna að ná í lífsbjörg
fyrir erfiðan vetur sem fer í
hönd. Margir hafa verið í skól-
um — þ.á m. 30 vélskólanemar
hjá Kochums — og geta ekki
haldið áfram námi nema fá at-
vinnu yfir sumarið. — En hessir
Tslendingar munu langflestir
koma heim aftur. Þannig koma
iárnsmiðirnir 80 sennilega all-
ir heim á nýian leik, og megin-
þorri t-résmiðanna.
, bað er meinið"
Er B.iarni farinn frá? — var
spurningm sem trésmiðurinn
lagði fyrir mig eins og sagt er
frá í upphafi. Að sjálfsögðu
svaraði ég spurningunni í sam-
ræmi við hitrar pólitískar stað-
reyndir á íislandi t>g kunningi
minn í Lundi sagði: „Nei. hann
fer ekki meðan verkalýðshreyf-
újgin ekki stendur sig við ann-
að en að flytja út fölk“. — „Það
er meinið“, sagði trésmiðurinn.
— svavar.
Frá Raznoexport, U.S.S.R.
MarsTraðing Companybf
Aog B gæðaflokkar
Laugaveg 103
sími 1 73 73
i